Dagblaðið Vísir - DV - 20.09.2002, Page 15
FÖSTUDAGUR 20. SEPTEMBER 2002
15
Menning
Hamlet aflýst
- planlögð uppsetning Konunglega leikhússins í Kaupmannahöfn á Hamlet hefur valdið titringi meðal Dana
Það er gaman að segja frá því nú
þegar frumsýning Leikfélags Akur-
eyrar á Hamlet eftir Shakespeare fœr-
ist óðum nœr að aðalskandallinn í
Danmörku undanfarnar vikur og
mánuði hefur verið uppsetning á
Hamlet í Konunglega leikhúsinu sem
átti að frumsýna 13. september en var
aflýst rúmum mánuði fyrr.
DV-MYND KAE
Ofelía á Islandi voriö 1988
Sigrún Edda Björnsdóttir lék hana af eftir-
minnilegri ástríöu.
Danir hafa lengi haft áhyggjur af leikhúsi
sinu og dæmt það dautt, ekki síst sjáift Kon-
unglega leikhúsið við Kóngsins Nýja torg. I
von um að geta lífgað það ofurlítið við réð
leikhússtjórnin ungan svissneskan krafta-
verkakarl, Stefan Bachmann, sem hefur gert
það gott með nýstárlegum uppsetningum
heima hjá sér og víðar, til að setja upp
Hamlet.
Vinsamlegast svolítið tryllt
Allt var með felldu uns Bachmann réð 35
ára mongólíta í hlutverk Ófeliu. Hún hafði
áður leikið með áhugamannaleikflokki og var
sviðsvön, og var ráðningin með fullu sam-
þykki foreldra hennar og Þroskahjálpar þar í
landi. Bachmann leikstjóri ætlaðist til að hún
færi frjálslega með hlutverk Ófelíu. Hún átti
ekki að fylgja sviðsfyrirmælum eða fara með
tilsvör Shakespeares eins og leikhúsgestir
þekkja þau heldur vera hún sjálf og meðleik-
ararnir áttu að bregðast við í orðum og gerð-
um eftir því sem tilefni væru til. Ekki átti hún
þó eingöngu að vera hún sjálf heldur vinsam-
legast líka svolítið villt og tryllt, og þótti sum-
um leikurum sem-Stefan gerði í því á æflng-
um að koma henni í þær aðstæður að hún
rambaði út fyrir sin eigin takmörk; það fannst
þeim rotið.
Þetta uppátæki Bachmanns er partur af því
„raunveruleikhúsi" sem hefur vakið athygli
undanfarin ár, ekki sist þegar Lars Norén not-
aði raunverulega nýnasista í sýningu í Sví-
þjóð og fékk þá lánaða úr fangelsi. Sú tilraun
endaði með ósköpum.
Hvað er eðlilegt?
Tveimur vikum eftir að æfingar hófust
gengu þrír leikarar út og Ófelia veslingurinn
varð fóðurlaus, Hamlet móðurlaus og án vin-
arins Rósinkrans lika. í yfirlýsingum leikar-
anna burtgengnu kom fram að þeim fyndist
þessi hlutverkaskipun siðferðilega röng,
stúlkan gæti ekki varið sig og ekki leikið hlut-
verkið sómasamlega, og því myndi þetta upp-
átæki verða til þess eins að lítillækka hana og
vekja athygli á fötlun hennar. Leikhússtjórinn
var á öðru máli, að hans sögn var tilgangur
leikstjórans sá að láta „hið eðlilega" mæta
„hinu afbrigðilega" á leiksviðinu, og þar eð
hegðun Hamlets er ekki alltaf „eðlileg" áttu
áhorfendur væntanlega að velta fyrir sér hvað
væri eðlilegt og hvað afbrigðilegt meðan þeir
væru að horfa á sýninguna.
Ekki var ráðið í stöður leikaranna þriggja,
allt var í ráðaleysi og uppnámi og grimmar
deilur geisuðu á síðum dönsku blaðanna í allt
sumar. Þó benti Berlingske Tidende í leiðara
á að í þessu máli hefðu allir rétt fyrir sér,
Bachmann til að túlka Shakespeare á sinn
hátt, þroskaheft fólk til að verða sýnilegt í
samfélagi sem yfirleitt felur það og leikararn-
ir til að fylgja sannfæringu sinni og ganga út.
Aðrir voru á öðru máli.
A5 vera eða ekki vera
„Það er engin nýsköpun í þessu," sagði rit-
höfundurinn Jette Drewsen, „þvert á móti er
það eldgömul hefð að reyna að sniðganga gáf-
aðar konur“ - eins og Ófelía er. Fleiri hafa þó
tekið undir með Bachmann að Ófelía sé ráð-
gáta í verkinu og það sé aðeins undirstrikað
með leikaravalinu. Þýskur leikstjóri sem unn-
ið hefur á Det kongelige segir að leikaramir
þar séu skíthræddir við að prófa eitthvað
nýtt, þeir hangi í örygginu eins og hundur á
roði. Þýskir leikarar hlýði hins vegar leik-
stjóranum skilyrðislaust.
Bachmann þessi hafði áður sett upp Hamlet
þar sem titilhlutverkið var leikið af konu og
Ófelía af tveggja metra háum karlmanni í
satínnærfötum, og það voru einmitt slíkar
DV-MYND PJETUR
Ófelía á íslandi um jól 1997
Ungri og viðkvæmri Þrúöi Vilhjálmsdóttur var
sýnd mikil harka í hlutverkinu.
uppáfinningár sem ollu því að hann var ráð-
inn til Danmerkur. Og minna má á að í sum-
ar var sett upp í Krónborgarkastala sýning á
Hamlet án Hamlets! Ong Kong Sen stýrði
henni og þar var Ófelía í aðalhlutverki en
Hamlet sást aldrei, né heyrðist í honum.
Það ber ekki vott um kjark leikhússtjórnar
að standa ekki við bakið á manni sem hún
hafði ráðið til að setja upp verk við húsið,
meiri mannsbragur hefði verið að sýna verk
hans og láta almenning um að dæma árangur-
inn. Raunar bendir Jens Albinus, sem átti að
leika Hamlet, á það í viðtali að líklega hafi
leikhússtjómin aldrei borið fullt traust til
leikstjórans þó að hún hafi ráðið hann. Þetta
minnir á það sem stundum hefur verið sagt að
Shakespeare hafi hitt naglann á höfuðið með
þjóðareinkenni Dana þegar hann skapaði
Hamlet, manninn sem ekki vissi hvort hann
átti að vera eða ekki...
BORGARLEIKHÚSIÐ
Leikfélag ReykjaviVur
STÓRA SVIÐ
HONKl UÓTIANDARUNOINN
e. George Stilcs ogAnthony Drewe
Gamansöngleikur fyrir alla
fjölskylduna.
Frumsýning lau. 21. sept. kl. 14
Sun. 29. sept. kl. 14 og kl. 18
KRYDDLEGIN HJÖRTU
e. Laura Esquivel
Lau 28. sept. kl. 20
MEÐ VÍFIÐ í LÚKUNUM
e. Ray Cooney
f kvöld kl. 20
ath: örfáar sýningar í haust
HAUSTHÁTÍÐ
BORGARLEIKHÚSSINS
FOLKWANG TANZSTUDIO OG
HENRIETTE HORN
Sun. 22. sept. kl. 20.30
MERCE CUNNINGHAM DANCE
COMPANY
Þri. 24. sepL kl. 20.00 - UPPSELT
VIDEODANS
Sýning og fyrirlestur Birgit Hauska
Fös. 27. sept. kl. 20
NÝJA SVIÐ
AND BJÖRK, OF COURSE ..
e. Þorvald Þorsteinsson
í kvöld kl. 20
LITLA SVIÐ
GESTURINN
e. Eric-Emmanuel Schmitt
í kvöld kl. 20
Fáar sýningar eftir
ÁSKRIFTARKORT
VERTU MEÐÍVETUR
7 sýningar á 10.500 og ýmis
fríðindi innifalin.
ío miða kort á 16.400. Frjáls notkun.
Nýja sviðið - Komið á kortið!
4 miðar á 6.000
www.hhh.is
Sellófon
eftir Björk Jakobsdóttur
Fös. 20. sept., uppselt
Lau. 21. sept., örfá sæti
Fim. 26. sepL, aukasýning, uppselt
Fös. 27. sept., 50 sýn., uppselt
Lau. 28. sept., uppselt
Þri. 8. okt., uppselt
Mið. 9. okt., uppselt
Fim. 10. okt., uppsclt
Þri. 15. okt., nokkur sæti
Mið. 16, okt., uppselt
Fim. 17. okt., uppsclt
Sun. 20. okt., aukasýning, laus sæti
Miðasala í síma 555-2222
Kœru lesendur!
A midvikudögum ogfóstudögum
bjóðum við nú upp d upplýsingar
umpað helsta í menningarlífinu
hér d menningarsíðu.
Með kveðju,
Midasolusimi: 551 12
Netfang: midasala@li
Veffang: www.leikhu
ÞjóÐLEiKHusiÐ
iHljómsveitin lék
olýsantega vel
a koflum
Sigfrfður Bjömsdóttir, DV 31. maf 2002
(L) LEXUS
ADALSTYRKTARAÐILI
SINFÓNlUHLJÓMSVEITAR
(SLANOS
Það er einstök upplifun að sjá og heyra
Sinfóníuhljómsveit íslands. Fáðu þér áskrift í vetur og tryggðu þér
öruggt sæti á einstaka skemmtun.
Með Regnbogaskírteini getur þú valið ferna, sex eða átta tónleika
sem falla best að þínum smekk. Verð frá 8.950 krónum.
Hringdu núna í 545 2500 eða
skoðaðu sinfonia.is og tryggðu
þér sætiívetur.
0
SINFÓNÍUHLJÓMSVEIT
ÍSLANDS
Háskólabíó við Hagatorg I Sími 545 2500 I sinfonia@sinfonia.is I www.sinfonia.is