Dagblaðið Vísir - DV - 20.09.2002, Qupperneq 19
19
FÖSTUDAGUR 20. SEPTEMBER 2002_________________________________________
X>‘V" Tilvera
lí f iö
E F T I R V I N K U
•Uppákomur
■Mótmæli á Austurvelli
Kl. 12 ver&a mótmæli á Austurvelli gegn
náttúruspjöllum á hálendinu. Tvær konur munu flytja
görning sem heitir .Ál-konumar afhjúpaöar". Þá mun
Ólöf Stefanía Eyjólfsóttir lesa Ijóð og söngkonan
Magga Stína mun flytja tvö lög með þriggja manna
hljómsveit, fiðlu, kontrabassa og harmóníku. Þetta
er 19. dagur mótmælanna.
•Tónleikar
■RoKRió á 22
Það verður rokkað þétt á 22 í kvöld þar sem þrjár
framsæknar rokksveitir koma fram, Brain Police,
Sólstafir og Dys. Herlegheitin hefiast kl 22 og kost-
ar einungis 500 kall inn.
•Fundir
og fyrirlestrar
Tolkien-ráðstefna
í dag hefst í norræna húsinu ráðstefna um Hringa-
dróttinssögu eftir J.R.R. Tolkien og tengsi hennar viö
norrænan menningararf. Þá veröur geröur saman-
burður á úrvinnslu Tolkiens, Halldórs Laxness og
Sigrid Undset á menningarfinum, skirskotun verka
þeirra tii samtimans og siðfræði þeirra.
•Leikhús
BSellófon
Sellófon er kærkomin innsýn í daglegt líf Elínar sem
hefur tekið að sér það hlutverk í líffnu að halda öllum
hamingjusömum, nema ef til vill sjálfri sér. Á gaman-
saman hátt er skyggnst inn í líf Elínar sem er tveggja
barna móðir í ábyrgðarstöðu hjá tölvufyrirtæki á milli
þess sem hún tekur til sinna ráða til þess að við-
halda neistanum í hjónabandinu. Björk Jakobsdóttir
er handritshöfundur en hún er jafnframt eini leikarinn
í sýningunni. Verkið er sýnt í Hafnarfjarðarieikhúsinu
í kvöld kl. 21. Uppselt er á sýningu kvöldsins.
BBevglur með óllu
Beyglur með öllu ver&a sýndar i Iðnó í kvöld kl. 21.
Það er tilvalið að skella sér á Tjarnarbakkann á und-
an þar sem boðið er upp á sérstakan beyglumatseð-
il. Miðapantanir í síma 562 9700. Hér er á ferð
kvennahúmor eins og hann gerist besturí boði Skjall-
bandaiagsins.
BGesturinn
í kvöld sýnir Borgarleikhúsið verkið Gestinn á litia
sviðinu. Höfundur er Eric-Emmanuel Schmitt en
helstu leikendur eru þau Gunnar Eyjólfsson, Ingvar E.
Sigurðsson, Jóna Guörún Jónsdóttir og Kristján
Franklín Magnús. Leikstjóri er Þór Tulinius en miða-
pantanir fara fram í sima 568 8000.
BFullkomið brúókaup
Framhaldsskólasýningin Fullkomið brúðkaup er sýnd
í Loftkastalanum kl. 20 i kvöld. Hér er á ferðinni
dúndurfarsi sem fjallar um vandræði brúðguma sem
er á leið upp að altarinu. Það er Magnús Geir sem
leikstýrir hópnum sem er settur saman af ijómanum
af leiklistartffi framhaldsskólanna. Pör i giftingarhug-
leiðingum ættu ekki að láta þessa sýningu fram hjá
sér fara. Miðasala í síma 552 3000.
Lárétt: 1 úrgangsfisk-
ur, 4 mætur,
7 samstæða, 8 smápoki,
10 steintegund,
12 ræna, 13 andstyggð,
14 frjó, 15 bóndi,
16 yfirhöfn,
18 hornmyndun,
21 spilið, 22 fiskilína,
23 forfaðir.
Lóðrétt: 1 ijör,
2 okkur, 3 klunni,
4 léttlyndur, 5 krap,
6 gagn, 9 hljóðfæri,
11 rík, 16 varg,
17 krot, 19 fugl,
20 hjara.
Lausn neðst á síðunni.
Skák
Hvltur á leik!
Ingvar Þór Jóhannesson og Bjöm
Þorfmnsson hafa verið að tefla 1 Ung-
verjalandi með þokkalegum árangri á
alþjóðlegum mótum. Bjöm lauk sínu
móti með 6 v. af 11 en mót Ingvars
var 13 umferðir. Ingvar var með 6 v.
af 11 en þó voru 12 umferðir búnar
en einn keppandinn hætti þátttöku í
mótinu. Hér á Ingvar í höggi við
ensku skákkonuna Heather Richards
og vinnur tiltölulega auðveldan sigur.
Hvitt: Ingvar Þór Jóhannesson (2284).
Svart: Heather Richards (2275).
Blrds-byrjun.
Alþjóðlegt mót
í Búdapest (8) 14.09.2002.
1. f4 d5 2. Rf3 Rf6 3. g3 g6 4. Bg2
Bg7 5. 0-0 c5 6. d3 0-0 7. c3 Rc6 8.
Ra3 Hb8 9. Re5 Rxe5 10. fxe5 Rg4
11. d4 cxd4 12. cxd4 f6 13. h3 Rh6
14. exf6 exfB 15. Bf4 Ha8 16. Db3
g5 17. Be3 He8 18. Bf2 Be6 19.
Hacl a6 20. Hc5 Kh8 21. Hfcl Hb8
22. Hc7 b5 23. H7c6 b4 24. Rbl a5
25. Rd2 a4 26. Ddl Hb7 27. Kh2
Dd7 28. Dxa4 DÍ7 29. Ha6 b3 30.
Rxb3 Bd7 31. Da5 Hb5 32. Dc7
Hxe2 33. Ha8+ Bf3 (Stöðumyndin)
34. Hxf8+ DxfB 35. Dxd7 Hb8 36.
Hc7 Dg8 37. Kgl Hbe8 38. Bxd5
Dg6 39. Bf3 Hxb2 40. Bh5 Hbl+ 41.
Kh2 He2 42. Bxe2 De4 43. Dg7+ og
mát. 1-0.
mmsmm
•moi o& ‘puo 61 ‘-tpd L\ ‘jin 91 ‘SnonB n
‘pgjo 6 Tou 9 ‘Sp g ‘buuisqbiS p ‘tsnqQJi)s g ‘sso z ‘duj x HiaJQoq
'utBpv 82 ‘uæj 22 ‘uuisb \z ‘iSou 81 ‘ndin 91 ‘mq si
‘iQæs n ‘QaSo gx ‘qbj z\ TbSe oi ‘isod 8 T[3)s l ‘uSaS \ ‘so.q 1 qxajBq
Dagfari
Segöu mér
sögu
Þótt ég sé komin yfir miðj-
an aldur finnst mér gott að
láta segja mér sögur, rétt
eins og þegar ég var lítil. Þá
meina ég segja - ekki lesa.
Þótt það sé reyndar ágætt
líka. Auðvitað erum við
alltaf að láta segja okkur
sögur þegar við horfum á
leikrit, kvikmyndir, lesum
bækur og jafnvel dagblöðin.
En nú er ég að meina frásögn
beint í æð, sannsögulega eða
uppdiktaða eftir atvikum,
flutta blaðalaust af innlifun
og með réttum áherslum en
samt áreynslulaust. Það er
skemmtilegt form sem skap-
ar sérstakt andrúmsloft.
Þetta sannreyndi ég á
Ljósanótt í Keflavík um dag-
inn. Þar var sögustund í
gömlu húsi. Veðurblíðan úti
dró eflaust úr aðsókn en
stundin var eftirminnileg
fyrir þá sem hennar nutu.
Síst spilltu fágaðir harm-
oníkutónar og sönglög við
hæfi. Umgjörðin var líka ein-
stök, ævagamlir veggir,
áreiðanlega þrungnir af
sögu, hefðu þeir mátt mæla
og ljósastikur sem sveipuðu
söngkonuna ljóma svo hún
varð eins og álfamær í upp-
lýstum kletti. Það sem mestu
skipti var þó frásögnin, bæði
efni og flutningur. Hvoru-
tveggja var áhrifaríkt.
Þessi stund hefur orðið
mér tilefni hugrenninga um
þessa tegund sagnalistar.
Hvort hún sé ekki vannýtt í
okkar landi. Við erum rík af
sögum og eflaust líka sögu-
mönnum og konum. Þessa
auðlind þarf að virkja og
skapa svona baðstofustemn-
ingu öðru hverju til mótvæg-
is við hávaðann.