Dagblaðið Vísir - DV - 01.10.2002, Blaðsíða 2
ÞRIÐJUDAGUR 1. OKTÓBER 2002
Fréttir
DV
Skoðanakönnun DV um fylgi stjórnmálaflokkanna:
Miklar sveiflur
- Sjálfstæðisflokkur og Samfylking á uppleið en fylgi Framsóknar hrynur
Fylgi Framsóknarflokksins er
komið langt niður fyrir kjörfylgi eft-
ir stöðuga fylgisaukningu í könnun-
um DV siðastliðna 12 mánuði. í
könnun blaðsins í júní sl. var Fram-
sókn á flugi og hafði fylgið ekki
mælst meira í könnunum DV í 8 ár.
Sú sæla var hins vegar skammvinn
eins og niðurstöður könnunar DV
sem gerð var i gærkvöld bera með
sér. Sjálfstæðisflokkurinn réttir
hins vegar verulega úr kútnum og
nálgast helmingsfylgi eins og í
könnunum DV í kjölfar síðustu al-
þingiskosninga. Samfylkingin fagn-
ar fylgisaukningu og nálgast nú
kjörfylgi. Samanlagt bæta Sjálfstæð-
isflokkur og Samfylking við sig
svipuðu fylgi og Framsókn tapar.
Vinstri grænir eru hættir að hrapa
en Frjálslyndir skrapa botninn.
Fylgi þeirra hefur ekki verið jafnlít-
ið síðan í janúar 2001. Þetta eru
helstu niðurstöður skoðanakönnun-
ar DV sem gerð var í gærkvöld, þeg-
ar rúmir 7 mánuöir eru til næstu al-
þingiskosninga.
Úrtakið í könnun DV var 600
manns, jafnt skipt milli höfuðborg-
arsvæðis og landsbyggðar sem og
kynja. Spurt var: Hvaða lista mund-
ir þú kjósa ef þingkosningar færu
fram núna?
Af öllu úrtakinu sögðust 9,5 pró-
sent mundu kjósa Framsóknarflokk-
inn, 32,7 prósent Sjálfstæðisflokk-
inn, 1,3 prósent Frjálslynda flokk-
inn, 16,3 prósent Samfylkinguna, 9
prósent Vinstrihreyfinguna - grænt
framboð og 0,2 prósent Húmanista-
flokkinn. Enginn sagðist mundu
kjósa Kristilega lýðræðisflokkinn
né Anarkista. 23 prósent sögðust óá-
kveðin en 8 prósent neituðu að
svara. 31 prósent tóku því ekki af-
stöðu til spumingarinnar sem er
svipað og í könnun DV í júní.
Þegar einungis er litið til þeirra
sem afstöðu tóku sögðust 13,8 pró-
sent mundu styðja Framsókn eða
11,8 prósentustigum færri en í júní,
47,3 prósent Sjálfstæðisflokk, 1,9
prósent Frjálslynda, 23,7 prósent
Samfylkingu, 6,2 prósentustigum
fleiri en í júní, og 13 prósent Vinstri
græna.
Miðað við kjörfylgi þá er Fram-
sókn að tapa 4,6 prósentustigum,
Sjálfstæöisflokkur bætir við sig 6,6
prósentustigum, Frjálslyndir tapa
2,3, Samfylking tapar 3,1 prósentu-
stigi og Vinstri grænir bæta við sig
3,9 prósentustiga fylgi. Vinstri
Fylgi flokka
- mlðað við þá sem tóku afstððu
S0
40
30
DV 30/09 '02
DV 02/06 '02
MDV 04/03 '02
DV 24/10 '01
4 «? DV 07/08 '01
i j I :DV 07/06 '01
1 Uu j f! DV 28/01 '01
DV 12/01 '01
,DV 29/09 '00
DV 21 -22/03 '00 i
dv 28 -29/12 99 | Samfylkingin
DV 20/10 99 ’ 3
; ,DV 13/09'99 »8 27
I '-Kosningar
SKOCMNAKONNIJN
JSSSk
lill r* dl ii ”
Niðurstöður skoðanakannana DV
: SXMXN4KCKNUN
Kosningar 8/5 '99
grænir hafa hins vegar tapað gríð-
arlegu fylgi frá því í könnun DV í
janúar 2001 þegar fylgi þeirra mæld-
ist 29,3 prósent.
18/03 '98
Sjálfstæðisflokkur sterkur
meðal karla
Þegar afstaða kynjanna er skoðuð
kemur í Ijós að Sjálfstæðisflokkur
er mun sterkari meðal karla en
kvenna, nær tæplega 55 prósenta
fylgi ef aðeins er litið til afstöðu
karla. Frjálslyndir sækja einnig
meirihluta síns fylgis til karla en
fylgi flokksins er reyndar mjög lítið.
Mun fleiri konur en karlar eru óá-
kveðnar eða 28,3 prósent á móti 17,7
prósentum karla.
Eins og í fyrri könnunum sækir
Framsókn mest af sínu fylgi til
landsbyggðarfólks. Samfylking er
sömuleiðis mun sterkari á lands-
byggðinni en 28,1 prósent lands-
byggðarfólks sögðust mundu kjósa
18/03 '99
hana. Sjálfstæðisflokkurinn er hins
vegar mjög sterkur á höfuðborgar-
svæðinu en þar nýtur hann 63,2 pró-
senta fylgis. Fylgi Vinstri grænna
er sterkara á landsbyggðinni en á
höfuðborgarsvæðinu.
Skipting þingsæta
Þegar þingsætum er skipt miðað við
fjölda atkvæða í könnuninni fengi
Framsókn 9 menn kjöma, tapaði 3 frá
kosningunum vorið 1999, Sjálfstæðis-
flokkur fengi 31 menn, bætti við sig
fimm mönnum, Frjálslyndir fengju
engan þingmann, töpuðu báðum
sínum. Þá fengi Samfylking 15 menn
kjörna, tapaði 2 frá því í kosningunum.
Loks fengju Vg 8 menn, tveimur fleiri
en í kosningunum vorið 1999. -hlh
Alþingi sett í dag
Enginn friður við Frantsokn
- segir Ögmundur Jónasson
Vinstrihreyfmgin - grænt framboð
ætlar ekki að gefa eftir við að gagnrýna
Framsóknarflokkinn á komandi þingi
til að laða hann til samstarfs í vor, þótt
markmið vinstri-grænna sé að mynduð
verði „velferðarstjóm" eftir komandi
kosningar.
„Nei, enda látum við nafhgiftir flokk-
anna okkur í léttu rúmi liggja; við horf-
um á gjörðir manna og flokka og því
miður getur Framsóknarflokkurinn
ekki státað af sínum verkum á liðnum
árum, þannig að honum verður ekkert
geflð fri,“ segir ögmundur Jónasson,
þingflokksformaður vinstri-grænna.
Spurður hvort stjómarandstaðan
verði sameinuð á komandi þingvetri
segir Ögmundur eðlilegt að núningur sé
á milli flokkanna en jafnframt sé brýnt
að þeir sem viiji sameinast í baráttu fyr-
ir velferðarkeriið geri það.
„Við leggjum mjög ríka áherslu á að
átak verði gert í velferðarmálum bæði
til vamar og sóknar og við erum meira
en tilbúin til samstarfs við aðra stjóm-
arandstöðuflokka, enda höfum við lagt
áherslu á að eftir komandi kosningar
Ogmundur
Jónasson.
verði mynduð hér
velferðarstjóm; það
er kominn tími til,“
segir Ögmundur.
Þingmál Sam-
fylkingarinnar
Stóra stjómar-
andstöðuflokkamir
tveir kynntu í gær
þingmál sem lögð
verða ffarn í upphafi þingsins sem sett
verður í dag.
Samfylkingin segist ætla að leggja
megináherslu á þrjá málaflokka í vetur:
neytendur, velferð fólksins og fyrirtæk-
in.
Þingmenn flokksins ætla að leggja til
að ríkisstjóminni veröi falið að kanna
ástæður þess að matvælaverð er miklu
hærra hér á landi en að meðaltali í lönd-
um Evrópusambandsins, enda sé staða
neytenda hér á landi óviðunandi í þess-
um efnum. Rannveig Guðmundsdóttir,
einn flutningsmanna frumvarpsins, var
spurð í gær hvers vegna flokkurinn
Rannveig
Guömundsdóttir.
gerði ekki tillögu
um frjálsan inn-
flutning landbún-
aðarafurða eða aðr-
ar aðgerðir sem
beindust gegn aug-
ljósum ástæðum
hás matvælaverðs.
Rannveig svar-
aði því til að mikil-
vægt væri að
stjómvöld áttuðu
sig fyrst á því hvar ástæðumar lægju;
gripa mætti til aðgerða þegar það lægi
fyrir.
Annaö svipað þingmál Samfylk-
ingarinnar felur í sér að bomar verði
saman tekjur banka af vaxtamun og
þjónustugjöldum hér á landi og ann-.
ars staðar á Norðurlöndunum og í
ESB.
Af öðrum nýjum þingmálum Sam-
fylkingarinnar má nefha tillögu um
skattfrelsi lágtekjufólks, um flutn-
ingskostnað fyrirtækja á landsbyggö-
inni og um hvemig skuli bregöast
við til að draga úr ójafnvægi sem
myndist í byggðamálum vegna ffarn-
kvæmda á Austurlandi.
Þingmál vinstri-grænna
Fyrsta þingmál vinstri-grænna er
þingsályktunartillaga um að einkavæð-
ingamefhd verði leyst frá störfum. Ög-
mundur Jónasson segir eðlilegt að
stöðva einkavæðingaráform á meðan
Ríkisendurskoðun vinnur að úttekt á
einkavæðingarferlinu í heild og annarri
á sölu Landsbankans sérstaklega.
Megináherslur flokksins verða á at-
vinnu- og velferðarmál, kvenfrelsismál,
umhverfis- og náttúmvemd auk utan-
ríkismála. Af einstökum málum má
nefna þingsályktunartillögur um stuðn-
ing við smá og meðalstór fyrirtæki, upp-
byggingu sjúkrahótela, stækkun
friðlands í Þjórsárverum, vemdun
rjúpnastofnsins og bætt starfsumhverfi
fyrir kvennahreyfmguna.
Þá ætlar flokkurinn að leggja til laga-
frumvarp til að girða fyrir að eigendur
stofnfjár sparisjóðanna geti selt það á yf-
irverði. -ÓTG
Arnór sá besti
Blaðamenn
sænska knatt-
spymutímaritsins
Footballextra
Match telja Amór
Guðjohnsen besta
erlenda knatt-
spyrnumanninn
sem leikið hefur í
sænsku úrvalsdeildinni frá upphafi.
Hér er um að ræða 1. sætið af um
það bil þrjú hundruð úr röðum er-
lendra knattspyrnumanna sem leik-
ið hafa í Allsvenskan frá upphafi.
Teitur Þórðarson er í sjöunda sæti
listans. í umsögn um Arnór er
greint frá því að hann hafl verið
listamaður með bolta, snöggur og
leikinn og þekktur fyrir hælsend-
ingar. Mbl. greinir frá.
Lottómiðinn seldur á Hellu
Enn hefur handhafi hins fjórfalda
Lottóvinnings ekki gefið sig fram en
þegar dregið var á laugardagskvöld-
ið var 1. vinningur orðinn 19,5 millj-
ónir króna. Miðinn var seldur í
verslun KÁ á Hellu, samkvæmt upp-
lýsingum íslenskrar getspár. Eins
og landsmönnum er kunnugt hefur
gjaman liðið talsverður tími frá því
að dregið er þangað til vinningshaf-
ar „þeirra stóru“ gefa sig fram. Fólk
bíður þess þó af spenningi eins og
áður að fá að sjá hver það er sem
fær stóru búbótina.
Coldplay kemur fyrir jól
Breska hljómsveitin Coldplay er á
leiðinni aftur til íslands. Hún spilar
í Laugardalshöllinni þann 19. sept-
ember. Strákamir í Coldplay voru
hér síðast á ferð í ágúst fyrir rúmu
ári. Líkaði þeim svo vel við land og
þjóð að ákveðið var að snúa hingað
á ný til að leika fyrir íslendinga sem
keypt hafa plötur þeirra í um 10
þúsund eintökum. Önnur plata
sveitarinnar hefur farið í efstu sæti
sölulistanna í Evrópu og selst í um
3 milljónum eintaka. Mbl. greinir
frá þessu.
Fimm skipverjum bjargað
Fimm skipverjum var bjargað um
borð í Sæþór EA frá Árskógsströnd eft-
ir að rúmlega 100 tonna rækjuskip,
Aron ÞH, 107 tonn, sökk um 27 sjómil-
ur norður af Grímsey um sjöleytið í
gærmorgun. Amþór Hermannsson,
skipstjóri á Sæþóri, sagði að blíðskap-
arveður hefði verið á miðunum þegar
óhappið varð. „Þama var logn og speg-
ilsléttur sjór,“ sagði Amþór.
Aron var farinn að halla mjög þegar
Sæþór kom að honum en menn biðu í
um 20 mínútur áður en ljóst varð að
rækjuskipinu yrði ekki bjargað.
Aurarnir hverfa alveg
Seðlabankinn
mun innkalla 5, 10,
og 50 aura myntim-
ar en eftir 1. októ-
ber á næsta ári
verða þær ekki
lengur lögmætar.
Fram að þeim tíma
mun bankakerfmu
verða gert að taka við aurum frá al-
menningi þó svo að ekki sé gert ráð
fyrir að slíkt verði í stórum stíl
enda heyrir til undantekninga að
aurar leynist lengur i vösum lands-
manna. -BÞ/-Ótt
Haldiö til haga
í frétt DV í gær um auðgunarbrot
víxluðust tvær tölur varðandi irm-
brot og þjófnaði. Rétt er að 7.022
þjófnaðir voru framdir á landinu
árið 2001 en 2.857 innbrot.