Dagblaðið Vísir - DV - 01.10.2002, Blaðsíða 4
4
ÞRIÐJUDAGUR 1. OKTÓBER 2002
DV
Fréttir
Vaktmaður Búnaðarbankans harðneitar skjalaþjófnaði:
Segist hafa sett upp leik-
rit fyrir leynimyndavélar
- krefur Búnaðarbankann um sex mánaða laun
Samkvæmt heimildum DV innan
Búnaðarbankans harðneitar vakt-
maðurinn sem handtekinn var í síð-
ustu viku aðild
að þjófnaði á
skjölum sem Sig-
urður G. Guð-
jónsson, forstjóri
Noröurljósa,
komst yfir í sum-
ar. í skjölunum
var að fmna upp-
lýsingar um
skuldastöðu
Norðurljósa og
áform um að
steypa fyrirtæk-
inu í gjaldþrot í
því skyni að sam-
eina það félagi
sem tengist Skjá
einum.
Vaktmaðurinn
var umsvifalaust
rekinn i siöustu
viku eftir að á
leynimyndavél-
um sást til hans taka skjöl af borði
Áma Tómassonar aðalbankastjóra.
Hann var með hanska og fór með
skjalið sem var merkt „trúnaðar-
mál“ út úr herbergi bankastjórans.
Vaktmaðurinn var í fjóra tíma í yf-
irheyrslum en neitaði alfarið að
hafa áður gerst sekur um að taka
trúnaðargögn og koma í hendur for-
ráðamanna Norðurljósa og var hon-
um sleppt að loknum yfirheyrslum.
Þá mun hann einnig hafa neitað því
að þekkja neitt til Sigurðar G. Guð-
jónssonar eða annarra starfsmanna
Norðurljósa að undanskildum syni
sínum sem þar starfar.
Heimildir DV herma að vaktmað-
urinn beri því við að hafa vitað af
fóldum myndavélum sem víða voru
í bankanum. Vegna þess að hann
hafi verið einn grunaðra um að hafa
lekiö upplýsingum segist hann hafa
verið áreittur af ööru starfsfólki um
nokkurra vikna skeið. Vaktmaður-
inn bar því við að þess vegna hafi
hann ákveðið „aö setja upp leikrit"
fyrir framan myndavélarnar í
trausti þess að honum yrði sagt upp
og að hann fengi uppsagnarfrest
sinn greiddan. Hann hafi ekki
reiknað með því að lögregla væri
inni í málinu og viðbrögðin yrðu
eins hastarleg og raun bar vitni.
Maðurinn var samdægurs rekinn og
hann tekinn af launaskrá. Sam-
kvæmt kjarasamningum banka-
manna er heimilt að reka starfs-
Búnaðarbanklnn
Málaferli á mörgum vígstöövum.
menn án þess að greiða þeim upp-
sagnarfrest ef um er að ræða stór-
fellt brot í starfi. Á móti kemur að
fyrirtækjum kann að vera óheimilt
lögum samkvæmt að setja upp
leynimyndavélar.
Vaktmaðurinn hefur nú ráðið
Einar Þór Sverrisson héraðsdóms-
lögmann til þess að krefja bankann
um sex mánaða laun á uppsagnar-
fresti. Þá mun Einar Þór einnig
kanna það hvort bankinn hafi farið
að lögum þegar eftirlitsvélarnar
voru settar upp án vitundar starfs-
fólks.
„Við erum með mál vaktmanns-
ins í skoðun og munum líta til allra
þátta málsins," sagði Einar Þór í
samtali við DV í gær.
Fjármálaeftirlitið er enn með til
rannsóknar kæru Sigurðar G. Guð-
jónssonar, forstjóra Norðurljósa,
sem sakar bankann um að hafa bor-
ið á torg trúnaðarupplýsingar um
fyrirtækið með þvi að upplýsa
þriöja aðila um lánastööu bankans
og Norðurljósa. Þá er Búnaðarbank-
inn í máli við Norðurljós vegna 350
milljóna króna skuldabréfs sem
bankinn gjaldfelldi. Þá hefur bank-
inn einnig kært Sigurð G. til lög-
reglu fyrir aðild að skjalaþjófnaðin-
um. Það sér því ekki fyrir endann á
málaferlum í kringum bankann.
-rt
Slguröur G.
Guðjónsson.
Ámi
Tómasson.
Sóðaskapur á Geirsnefi
- yfirvöld láta gera úttekt á svæðinu
Formanni umhverfis- og heilbrigð-
isnefndar Reykjavikur hafa borist
kvartanir vegna umgengni og um-
hirðu á Geirsnefi í Reykjavík. Þar
hafa hundeigendur aðstöðu til að
sleppa hundum sínum lausum. Mis-
brestur hefur orðið á að þeir hirði upp
það sem hundamir láta frá sér á
lausagöngunni. Á nýafstöðnum fundi
umhverfis- og heilbrigðisnefndar var
samþykkt samhljóða að láta gera út-
tekt á svæðinu á Geirsnefi með tilliti
til umgengni, umhirðu og aðbúnaðar.
Borgin gerði á sínum tíma sam-
komulag við Hundaræktarfélagið um
opið svæði á Geirsnefi. Síðan hefur
einnig verið gert samkomulag sömu
aðila um hundasvæði við Öskjuhlíð-
ina. Samkvæmt samkomulaginu eiga
hundeigendur að hirða upp það sem
hundar þeirra láta frá sér. Á því hef-
ur orðið misbrestur og í sumum til-
vikum fara eigendurnir ekki út úr bíl-
um sínum nema rétt til þess að hleypa
hundunum út úr þeim og inn aftur,
þegar þeir hafa verið búnir að gera
stykki sin.
Kolbeinn Ó. Proppé sagði við DV að
auk þeirra athugasemda sem fram
hefðu komið vegna Geirsnefs kvartaði
útivistarfólk um lausagöngu hunda í
Elliðaárdal. Slíkt væri alveg bannað
en hægt væri að gera sér í hugarlund
að hundeigendur leituðu þangað ef
slæm umgengni og mikl bílaumferð
væri á Geirsnefi.
„Fólk kvartar yfir þessu,“ sagði
Kolbeinn. „Við vildum bregðast fljótt
við áður en málin væru farin að
stefna í óefni. -JSS
Ur Geirsnefi vló ósa Elllöaánna
Hundar borgarinnar hafa gert þarflr sínar um allt Geirsnef um langt árabil.
Fjölskylda í Grafarvogi lifir á neyðarmatarskammti frá RKÍ í fimm daga:
Matreiðslan er höfuðverkur dagsins
- dæturnar meö þurrt brauö og vatn í skólann
DV-MYND GVA
Neyöarskammtur
Hjónin Bergur Hauksson og Auöur Haröardóttir, ásamt dætrunum Ástu og
Birnu boröuöu pasta og baunir, ígildi þess matarskammts sem dreiftyröi hér
á landi kæmi til hungursneyöar.
Fjögurra manna fjölskylda í Grafar-
vogi hefur tekið að sér einstakt verk-
efhi í tengslum við landssöfnun Rauða
kross íslands til hjálparstarfs í sunnan-
verðri Afríku. Fjölskyldan hefur fengið
afhentan neyðarmatarskammt frá RKÍ,
ígildi þess matar sem dreift yrði hér á
landi ef alvarlegur matarskortur
myndi herja á landsmenn. Skammtur-
inn inniheldur pasta, baunir, maís,
mjólkurduft, olíu, hveiti og sykur. Á
þessum skammti ætlar fjölskyldan að
lifa í fimm daga. Þetta gerir hún til að
vekja athygli á landssöfnun Rauða
krossins, sem hefst n.k. laugardag, 5.
október, undir kjörorðinu „Göngum til
góðs“.
Vegna söfnunarinnar hefur Rauöi
kross íslands auglýst eftir tvö þúsund
sjálfboðaliðum til að afla fjár til hjálp-
arstarfs í sunnanverðri Afríku, þar
sem hungursneyð ógnar lífi næstum
fimmtán mihjóna manna. Talið er að
sjálfboðaliði sem gengur í tvo tíma geti
safiiað um 10.000 krónum, sem dugar
til að gefa fimm manna fjölskyldu mat
sem endist i tvo mánuði. Það getur
nægt til að bægja hungrinu frá fram að
næstu uppskeru.
„Við byrjuðum að lifa á skammtin-
um í morgun," sagði Bergur Hauksson,
húsbóndinn á heimilinu í Grafarvogi,
þegar DV ræddi við hann í gær. „Þá
borðuðum við hafragraut. Síðan var
pasta með olíu í hádeginu. Þetta eru
ekki stórir skammtar og maður er fljót-
ur að verða svangur aftur. Brauöið
verðum við að baka sjálf. Dætumar
fóru með þurrt brauð og vatn í skólann
í morgun. í kvöld verðum við með
baunir á borðum. Þær eru ígildi kjöts
og fisks og það er höfúðverkur dagsins
hvemig á að matreiða þær.“
Bergur sagði að efnið í matar-
skammtinum væri sniðið að þvi sem
íslendingar myndu þurfa í hung-
ursneyð, þ.e. þvi sem þeir væm vanir
að borða. Þess vegna væri meira um
pasta en minna af maísmjöli heldur en
í þeim matarskömmtum sem myndu
veröa sendir til Afríku.
Bergur kvaðst einskis sakna enn
sem komið væri af hefðbundnum
neysluvörum, nema ef vera skyldi kók-
ið. Nú væri ekki um það að ræða að fá
sér orkuskot með því að innbyrða syk-
ur, hvort sem væri í gosdrykkjum eða
öðm.
„En það er mikill lærdómur fólginn
í þessu,“ sagði Birgir. „Það er hægt að
gera ýmislegt ef fólk hefúr þekkingu og
hugmyndaflug. Við erum búin að verða
okkur úti um nokkrar uppskriftir og
tryggja okkur aðgang að fleirum ef þörf
þykir.“
Fólk sem vill leggja góðu máli lið
með stuttri heilsubótargöngu á laug-
ardag getur skráð sig á
www.redcross.is eða í síma Rauða
krossins 570 4000. -JSS
Ivar Om
Sverrisson.
Ég er í sjöunda himni
„Ég er rosalega
ánægður með við-
tökumar og þótt ég
hafi alltaf haft trú
á þessari sýningu
koma þessi sterku
viðbrögð dálítið á
óvart. Persónu-
lega má alltaf líta
á það sem leiksig-
m- þegar maður
tekst á hendur við
svona flókið og krefjandi hlutverk en
það er ekki til að spilla fyrir því þeg-
ar fólk er svona ánægt með útkom-
una. Ég er einfaldlega í sjöunda
himni og hlakka til að sýna aftur um
næstu helgi," segir ívar Öm Sverris-
son, sem leikur Hamlet hjá Leikfélagi
Akureyrar í samnefhdu leikriti eftir
William Shakespeare.
Sýningin hefúr fengið stjömudóma
jafnt hjá áhorfendum sem gagnrýnend-
um en það er Sveinn R. Einarsson sem
setur upp Hamlet á Akureyri. Frum-
sýnt var um síðustu helgi á Akureyri
og hefúr frammistaða ívars Amar vak-
iö mikla athygli. Hann er nýútskrifaö-
ur sem leikari en segist alltaf hafa ver-
ið óhræddur að takast á við hlutverkið.
„Það rikti alltaf mikil jákvæðni á æf-
ingatímabilinu," segir ívar Öm. -BÞ
Harma atburðinn
DV hefur borist eftirfarandi yfirlýs-
ing frá fjölskyldu Steins Ármanns
Stefánssonar, mannsins sem grunað-
ur er um að hafa banað 65 ára ibúa í
húsi númer 11 við Klapparstíg:
„Við hörmum þann skelfilega at-
burð sem átti sér stað að kvöldi
fimmtudagsins 26. september sl. og
teljum að ekki verði hjá því komist að
benda á aðgerðarleysi stjómvalda og
heilbrigðisyfirvalda í málum hins
grunaða. Við, fjölskylda Steins, höfum
í nær 25 ár gengið frá Pontíusi til
Pílatusar í þeirri von að einhveijar
úrlausnir fyndc.st á málum hans en
árangurinn er sá sem alþjóð veit.
Krafa okkar er að öll ráðuneyti
taki höndum saman og vinni að úr-
ræðum sem duga fyrir það ógæfu-
sama fólk sem greinist geðsjúkt.
Enginn ræður sínum skapadómi. ís-
land er að flestu gott samfélag en að-
stæður geðsjúkra eru smánarblettur
sem verður að eyða.
Geðsjúkir eiga ekki að liggja ut-
angerða í velferðarsamfélaginu, for-
smáðir og fyrirlitnir.
Og að lokum; er eðlflegt að maður
með lögheimfli á réttargeðdeOdinni
á Sogni skuli á sama tíma vera í
haldi lögreglu grunaður um morð?“
Fundur hjá Globodent
Hluthafafund-
ur Globodent fór
fram sl. föstudag.
EgOl Jónsson,
tannlæknir á Ak-
ureyri, segist
bundinn trúnaði
um fundinn að
svo stöddu og vill
ekki tjá sig um
gang mála fyrir
utan það að verkefnið gengi vel.
EgOl fékk sjálfur Globodent-hug-
myndina en hún snýst um bylting-
arkenndar breytingar á tannvið-
gerðum. Hugmyndin er að bora
töluvert stóra holu í hverja tönn og
fyOa síðan upp með stööluðum fyO-
ingum úr postulíni. Litur fyOingar-
innar yrði sá sami og tannarinnar
og því kaUast verkefnið „Black is
out“. Globobent er ætlað að fram-
leiða postulínsfyOingar tO að gera
við skemmdimar. -BÞ
Egill Jónsson.
Áminning vegna hávaða
Umhverfis- og heObrigðisstofa
Reykjavíkur hefur sent veitinga-
staðmnn Nasa í Thorvaldsenstræti
áminningu vegna hávaða. Áminn-
ingin er veitt í kjölfar hávaðamæl-
inga á staðnum. ítreka heObrigðisyf-
irvöld jafnframt þá kröfu að gerðar
verði ráðstafanir tO að hávaði inn-
anhúss verði framvegis ekki yfir
leyfilegum mörkum. í áminningar-
bréfi heObrigðisyfirvalda tO forráða-
manna Nasa segir að fylgst verði
með því að umrædd krafa verði upp-
fyOt og farið út i frekari þvingunar-
aðgerðir ef þörf þyki. -JSS