Dagblaðið Vísir - DV - 01.10.2002, Blaðsíða 18

Dagblaðið Vísir - DV - 01.10.2002, Blaðsíða 18
18 ÞRIÐJUDAGUR 1. OKTÓBER 2002 Tilvera DV Jazzhátíð Reykjavíkur: Hilmar Jensson Heldur útgáfutónleika í Kaffi Reykjavík í kvöld. Agnar Már Magnússon Er með einleikstónleika í Norræna húsinu í kvöld. Vinsælustu kvikmyndírnar Witherspoon er vinsæl Það er ljóst að Reese Witherspoon er að stimpla sig inn í hóp allra vin- sælustu leikaranna í Hollywood. Nýjasta kvikmynd hennar, Sweet Home Alabama, var langvin- sælasta kvikmyndin um helgina í Bandaríkjunum og fór fram úr öll- um væntingum. Þessum miklu vin- sældum er eingöngu hægt að þakka þessari geðþekku leikkonu, því að mati flestra gagnrýnenda þykir myndin ekkert sérstök en það geisl- ar af Witherspoon og sagði einn gagnrýnandinn að það væri ekki fyrr en löngu eftir sýningu á mynd- inni að töfrar Witherspoon hyrfu og þá uppgötvast að myndin er alls ekki góð. I myndinni leikur Wither- spoon tískuhönnuðinn Melanie Charmichael, sem trúlofast eftir- sóttasta piparsveininum í New York. Hún á sín leyndarmál, meðal annars það að hún er gift. Hafði eig- inmaður hennar neitað henni um skilnað. Nú þarf á góðum ráðum að Sweet Home Alabama Miklar vinsældir er Reese Wither- spoon að þakka. halda því ekki má tilvonandi eigin- maður hennar komast að hinu sanna. í öðru sæti listans er einnig ný kvikmynd, The Tuxedo, bráð- fjörug kvikmynd með Jackie Chan sem þykir skemmtileg þó Chan þyki fara troðnar slóðir. -HK * át Veislan hefst í dag Jazzhátíð Reykjavikur hefst í dag með opnunartónleikum í Ráðhúsi Reykjavíkur þar sem Stórsveit Reykjavikur verður aðalnúmerið. Auk þess munu djassmenn koma fram og leika sýnishom af því sem þeir ætla að bjóða uppá á hátíðinni. Jazzhátíð Reykjavíkur er búin að skipa sér fastan sess í tónlistarlífi höfuðborgarinnar og bíða margir spenntir eftir henni, enda má segja að þá myndist andrúmsloft sem margir kannast við sem farið hafa á erlendar djasshátíðir. Mikill fjöldi innlendra og erlendra djasmanna koma við sögu á hátíðinni og er margt forvitnilegt og spennandi sem boðið er uppá. Auk opnunartónleikana í Ráð- húsinu er boðið uppá tvenna tón- leika í kvöld. I Norræna húsinu verður píanóleikarinn Agnar Már Magnússon, með einleikstónleika. Eru tónleikar þessir hluti af undir- búningi hans fyrir þátttöku í Marti- al Solal keppnina sem fram fer í París. Þessir tónleikar hefjast kl. 20.30. Seinna um kvöldið eða kl. 22.00 verða tónleikar i Kaffi Reykja- vík, sem er aðal tónleikastaður há- tíðarinnar, þar sem Hilmar Jensson mun leika efni af nýrri plötu, sem nefnist Tyft. Er um útgáfutónleika að ræða. Með Hilmari, sem leikur á gítar eru Andrew D*Angelo saxó- fónn og Jim Black, trommur. Tvennir tónleikar eru á morgun. Fyrri tónleikamir eru i Kafíl Reykjavík kl. 20.30. Það er tríó sem kallar sig Punkt Project III, sem heldur þá tónleika. Meðlimir tríós- ins eru Úlfar Ingi Haraldsson bassa, Ólafur Jónsson tenósaxófón og Matthías M.D. Hemstock trommur. Seinni tónleikarnir eru á sama stað kl. 22.00. Þar kemur fram Thorodd- sen/Fischer kvartettinn sem skip- aður er gítarleikurunum Björn Thoroddsen og Jacob Fischer, Dan Cassidy, fiðlu og Jón Rafnsson, bassa. -HK Sven-Göran í erfiðum málum ítalski lögfræðingurinn, Nancy Dell'Olio, sambýliskona Svíans, Svens-Görans Erikssons, lands- liðsþjálfara Englendinga, hefur lagt hart að honum að flýta útgáfu æviminninga sinna til þess að vera á undan fyrrum ástkonu sinni, ljóskunni og sjónvarpskon- unni Ulriku Johnsson, sem sögð er með mergjaða bók um meint ástarsamband þeirra í smíðum. Samband þeirra Ulriku og Erikssons komst í hámæli rétt fyr- ir úrslitakeppni HM í sumar og þrátt fyrir mikla fjölmiðlaum- ræðu, heldur Nancy enn tryggð við Eriksson. Hún mun þó hafa sett honum stólinn fyrir dymar og það skilyrði að hann svaraði fyrirhuguðum hefndarskrifum hennar með útgáfu eigin bókar um einnar nætur ævintýri þeirra og mun Ericsson hafa orðið við þeirri kröfu. Sjálf segir Nancy að Ulrika hafi ekki þolað það að Sven-Göran hafi ekki svarað kalli hennar eftir nætmrævintýrið og því ákveðið að hefna sín með skrifum um upplogið ástasamband. REUTERSMYND Rachel Roberts í Versalahöll Bandaríska leikkonan Rachel Roberts, mótleikari Al Pacinos í myndinni Simo- ne, mætir hér til hátíðarsamkomu í Versalahöll í nágrenni Parísar með dýrind- is demantsfesti um hálsinn, sem hönnuð er af svissneska skartgrípahönnuð- inum Shopard. ______________________________ ALLAR UPPHÆÐIR I ÞUSUNDUM BANDARIKJADOLLARA. SÆTI FYRRI VIKA TITILL INNKOMA HELGIN: INNKOMA ALLS: FJÖLDI BÍÓSALA O Sweet Home Alabama 35.648 35.648 3293 o The Tuxedo 15.051 15.051 3022 e 1 Barbershop 10.007 51.312 2051 o 3 My Big Fat Greek Wedding 9.434 136.628 1841 e 2 The Banger Sisters 5.426 18.821 2738 e 5 The Four Feathers 3.556 12.377 2187 o 6 One Hour Photo 3.021 26.107 1303 o 4 Ballistic: Ecks vs. Sever 2.738 11.589 2705 o 7 Signs 2.363 221.155 1783 © 8 Swimfan 1.554 26.676 1840 0 10 Trapped 1.502 5.725 2227 0 9 Stealing Harvard 1.488 12.720 2323 © 13 Spy Kids 2: 1,130 81.468 1570 © 11 XXX 1.010 139.802 1261 © 12 City By the Sea 764 21.629 1034 © 15 Igby Goes Down 613 2.048 121 © 18 Spirited Away 527 1.110 53 © 14 Austin Powers in Goldmember 489 211.809 707 © _ Secretary 361 629 53 © - Moonlight Mile 329 329 22 Vinsælustu myndböndin Hvaö er bak við luktar dyr Tvær ólikar spennumyndir ná toppsætunum á myndbandalistan- um þessa vikuna. Um er að ræða háspennumynd David Finchers, Panic Room, sem er i efsta sæti og svo hina dularfullu K-Pax með Kevin Spacey og Jeff Bridges i að- alhlutverkum. Panic Room er fjórða sakamála- myndin í röð sem Fincher leik- stýrir. Hann byrjaði með Seven, sem hann á enn eftir að toppa. í kjölfarið fylgdu The Game og Fight Club. Panic Room er sú fjórða og kannski sú fyrir utan Seven sem er hvað heilsteyptust. Hún ger- ist á einum sólar- hring og segir frá mæðgum sem flytja í stórt hús í flottasta hverfinu á Manhatt- an. Eigandinn hafði verið forríkur sér- vitringur sem lét meðal annars byggja öryggisherbergi þar sem hægt var að fylgjast með öllu sem gerðist í íbúðinni án þess að nokkur gæti komist þangað inn. Þetta herbergi kemur að góðum notmn þeg- ar þrír innbrotsþjóf- ar brjótast inn í íbúð- ina í leit að auðæfum sem hinn látni hafði falið. Þeir vita ná- kvæmlega að auðæf- anna er að leita í Ör- yggisherberginu. -HK VIKAN 23.-29. SEPTEMBER FYRRI VIKUR SÆTI VIKA TITILL (DREIFINGARAÐIU) ÁUSTA O _ Panic Room (skIfan) 1 o _ K-Pax (SAM MYNDBÖND) 1 o 2 My Big Fat Greek Wedding (myndformj 3 o 1 Don’t Say a Word (skífanj 5 o 3 Collateral Damage isam myndböndi 3 o 6 Kate and Leopold iskífani 2 o 12 The Time Machine (sam myndbónd) 2 o 5 Shallow Hal (skífan) 6 o 4 We Were Soldiers (skífanj 3 © 7 A Beautiful Mind (sam myndbönd) 5 © 8 D-Tox (sam myndbönd) 2 © io Vanilla Sky (sam myndböndi 6 © 11 The 51st State (myndform) 6 © 9 Blade II (myndform) 4 © © 13 The Majestic sam myndbönd) 2 14 The Last Castle (sam myndbönd) 5 0 15 Ocean's Eleven (sam myndbönd) 9 © _ Life as a House (myndform) 1 © _ Amores Perros (sam myndbönd) 2 © 18 Long Tlme Dead (sam myndbönd) 5

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.