Dagblaðið Vísir - DV - 01.10.2002, Blaðsíða 8

Dagblaðið Vísir - DV - 01.10.2002, Blaðsíða 8
8 ÞRIÐJUDAGUR 1. OKTÓBER 2002 Fréttir TX\T Dalsmynni: Frestur til úrbóta Ekki kemur til aðgerða Umhverf- is- og heilbrigðisstofu Reykjavikur gagnvart hundaræktarbúinu í Dals- mynni að sinni. Forráðamenn bús- ins hafa lagað tvö atriði af fjórum sem heilbrigðisyfirvöld höfðu gert athugasemdir við. Þeir hafa fengið frest til 15. október til að koma þvi sem á skortir í lag. Umhverfis- og heilbrigðisstofa hafði áminnt forráðamenn hunda- ræktarbúsins og gefið þeim frest til 24. september til að koma tilteknum atriðum í lag. Ella yrði hugsanlega gripið til þess að stöðva eða tak- marka viðkomandi starfsemi eða notkun, leggja þar með hald á vörur og fyrirskipa förgun þeirra. Öm Sigurðsson, skrifstofstjóri Umhverfis- og heilbrigöisstofu, sagöi að forráðamenn búsins væm nú búnir að sækja um starfsleyfi eins og þeim bæri að gera. Þá væri búið að sækja um breytta notkun húsnæðis. Hins vegar ætti eftir að senda inn teikningar á fyrirkomu- lagi á loftræstikerfi, svo og teikning- ar á fyrirkomulagi frárennslislagna og rotþróa. -JSS Asetylengas ekki framleitt lengur hjá ÍSAGA: - engin hætta því samfara, segir framleiðslustjóri DV-MYND HARI Fjarstýrð verksmiðja Þorlákur Kjartansson framleiöslutjóri segir engar eldfimar lofttegundir lengur framleiddar hjá ÍSAGA. Því sé engin hætta því samfara aö fjarstýra verksmiöj- unni erlendis frá líkt oggert er víöa um heim. Fyrirhugað er á næstu vikum að taka upp fjarstýringu á framleiðslu verksmiðju ÍSAGA á Breiðhöfða í Reykjavík. Verður verksmiðjunni þá fjarstýrt um nætur í gegnum Netið um símalínur frá Kaupmannahöfh, en fyr- irtækið framleiðir m.a. lofttegundir á hylki til margvíslegra nota hérlendis. Hefur nokkuð borið á áhyggjum fólks vegna þessa sem óttast sprengihættu og að fjarstýringin geti brugðist. Þorlákur Kjartansson framleiðslustjóri segir enga hættu vera samfara fiarstýringu á verksmiðjunni. „Þama er bara um hagræðingu að ræða. Það á að keyra verksmiðjuna á nóttunni frá Danmörku. Þetta er eins og tíðkað er víða erlendis þar sem mörgum verksmiðjum er stýrt frá ein- um stað. Óslóarverksmiðjan er t.d. keyrð frá Svíþóð og í Ameríku er víða mörgum verksmiðjum stýrt frá sömu stöð. Síðan við fengum þessa tækni sem Netið gefur okkur þá er þetta ekk- ert mál.“ Þorlákur segir að búið sé að fara vandlega i gegnum allt þetta ferli, bæði ef símalínur detta út og annað. Hann segir að ef eitthvað komi upp á þá drep- ist á verksmiðjunni eftir nokkrar sek- úndur. Litið mál sé líka að kalla menn út með stuttum fyrirvara. Hann segir starfsmönnum ekki fækkað vegna þessa, en tilfærslur verði á mönnum. Asetylengasframleiðslu hætt Þorlákur telur að ótti manna stafi trúlega af þeim misskilningi að ÍSAGA framleiði enn eldfimt asetylengas. Ef- laust sé mönnum líka enn í fersku minni eldsvoði og sprengingar í gömlu asetylen-verksmiðju fyrirtækisins á Rauðarárstíg fyrir mörgum árum en ótti við slíkt sé með öllu óþarfúr í dag. Þorlákur segir að fyrir ári hafi þeirri verksmiðju í Reykjavík verið lokað vegna samdráttar, en árlega voru fram; leidd þar um 40 tonn af asetylengasi. í ffamhaldinu var ákveðið að flytja gas- ið inn í hylkjum. Þá er fyrirtækið ný- byrjað að selja propan-gas sem kemur líka innflutt í kútum af nýrri gerð sem kynnt var i sumar. AGA á íslandi, eða ÍSAGA eins og fýrirtækið hefur jafnan verið ne&t, var stofhað árið 1919 til að framleiða asetylengas fyrir vita landsins. Fyrsti vitinn haföi reyndar verið reistur hér árið 1878 og fyrstu AGA vitamir hér- lendis voru reistir árið 1909. Lengst af var hlutabréfaeign AGA í ÍSAGA breytileg en 1991 eignaðist sænska fyr- irtækið AGA meirihluta í félaginu eftir að hlutabréf í ÍSAGA voru boðin til sölu á alþjóðlegum markaði. Fyrir tveim árum keypti þýska fýrirtækið Linde AGA sem heitir nú AGA-Linde. ÍSAGA ehf. hefur aðsetur á Breið- höföa í Reykjavík. Þar eru nú unnin um 900 rúmmetrar á klukkustund af súreöii og köfnunarefhi, en asetylen- ffamleiðslunni hefur verið hætt. Þriðja verksmiðjan er á Hæðarenda í Gríms- nesi. Þar er náttúruleg kolsýra unnin úr jarðhitavatni. Enn aðrar lofttegund- ir, sem ÍSAGA ehf. selur, eru innflutt- ar, eins og t.d. argon og helíum. -HKr. Verksmiðjunni verður fjarstýrt frá Danmörku <illt ('iliiiiWverDasta í heimi rihshipta í riag' - það borgar sig að hlusta Útvarpi Sögu fm 94.3 Þáttur um viðskipti og efna- hagsmál þar sem blaðamenn Viðskiptablaðsins rýna í það helsta á markaðnum á hverjum virkum degi milli klukkan 17 -18 Landsbankinn Landsbréf DVJYIYND KÖ Hoppað í sjóinn Kappsund í flotgöllum milli samgönguráöuneytisins og Siglingastofnunar var meðal atriöa á dagskrá öryggisvikunnar viö Miöbakkann í Reykjavík á laugar- dag. Um 500 manns komu á svæöiö, skoöuöu varöskip og fleiri fleytur og fylgdust meö æfingu á björgun úr sjó meö þyrlu Landhelgisgæslunnar. Öryggisvika sjómanna: Björgunaræfing í öllum skipum Öryggisvika sjómanna stendur nú sem hæst og gær fór fram kynn- ing á því hvemig beri að standa að björgunaræfingum um borð í skip- um. Kynningin fór fram í Reykja- vík, Vestmannaeyjum, Eskifírði, Akureyri og á Isafirði. „Við viljum vekja alla sjómenn til umhugsunar um öryggismál sín, á sem áhrifaríkastan hátt,“ segir Hilmar Snorrason, skólastjóri Slysavarnaskóla sjómanna, sem ásamt mörgum öðrum, kemur að framkvæmd hennar. Hápunktur vikunnar verður á morgun kl. 13 þegar stefnt er að björgunaræfing- um í öllum skipum islenska flotans. Vikunni lýkur á fimmtudag með ráðstefnu í Borgartúni í Reykjavík þar sem mörg fróðleg erindi verða flutt og hvetur Hilmar sjómenn til að mæta og vera virka i þessum þýðingarmiklu málum. Þetta er í fyrsta sinn sem öryggis- vika sjómanna er haldin hér á landi. Það er samgönguráðuneytið sem stend- ur að henni, ásamt hagsmunasamtök- um sjómanna og fleirum. Stefht er að því að hún verði árviss héðan í frá, í síðustu viku september. -Gun.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.