Dagblaðið Vísir - DV - 01.10.2002, Blaðsíða 21

Dagblaðið Vísir - DV - 01.10.2002, Blaðsíða 21
21 ÞRIÐJUDAGUR 1. OKTÓBER 2002 r>V Tilvera Richard Harris sjötugur Irski leikarinn Ric- hard Harris á stóraf- mæli i dag. Þessi skap- mikli leikari, sem ósjaldan hefur lent í vandræðum vegna kjaftháttar og villts líf- ernis, varð fyrst þekktur þegar hann lék í The Sport- ing Life, en þar lék hann rugbyspil- ara, íþrótt sem hann hafði stundað og náð árangri í. Eftir því sem hann varð frægari leikari varð líf hans villtara. Hlutverkin urðu minni með árunum og það var ekki fyrr en á síðasta ára- tug að hann fór að vinna sér sess aft- ur sem karakterleikari. Gildir fyrir miövikudaginn 2. október Vatnsberinn (20. ian.-i8. febr.i: I Gamall vinur kemur í óvænta heimsókn síðari hluta dags og segir þér heldur en ekki undarlegar fréttir. Happatölur þínar eru 9, 17 og 26. Fiskarnlr (19. febr.-20, mars); | Láttu sem ekkert sé Iþó að einhverjir séu að finna að við þig. Það er ekkert annað en öfund yfir velgengni þinni sem býr þar að baki. Hrúturinn (21. mars-19. anrih: . Vinir þínir eru ekkert ’ sérlega skemmtilegir við þig. Það gæti verið að þú þyrftir að vera dálitið skemmtilegri sjálfur. Happatölur þínar eru 3, 22 og 26. Nautlð (20. april-20. maí): Þú ferð út að skemmta þér og kynnist ein- hveijum sérstaklega spennandi. Ekki er ólíklegt að eitthvert framhald verði á þeim kynnxun. Tviburarnir m.. maí-21. iúnti: Þú þarft að taka ' afstöðu í erfiðu máii. Ekki hika við að leita eftir aðstoð ef þér f vera á henni. Vinur þinn endurgeldur þér greiða. Krabblnn (22. iúní-22. Mk Þér finnst þú hafa allt of i mikið að gera. Hvemig væri að reyna að virkja fleiri í starfið í stað þess að gera allt sjálfur? Vertu aðgætinn f öllu sem varðar peninga. Liónið (23. iúlí- 22. áeústl: Hjón og pör eiga sér- lega góðar stundir saman og huga að sameiginlegri framtið. Það er svo ótal margt hægt að gera ef maður er hugmyndaríkur. Mevlan (23. áeúst-22. seot.l: Þér gengur allt í haginn og ekki er laust V\^lL,við að þú finnir fyrir * T öfund í þinn garð. Láttu sem þú vitir ekki af því. Happatölur þínar eru 8,11 og 33. Vogln (23. sept.-23. okt.t: Eitthvað spennandi og mjög undarlegt gerist í dag. Þú skalt ekki láta álit þitt f ljós nema beðið verði sérstaklega um það. Sporðdreklnn (24. okt,-2l. nóv.); Þér finnst þú dálitið S einn í heiminum um pþessar mundir. Þetta ástand varir ekki lengi þar sem þú kynnist mjög áhugaverðri persónu næstu daga. Bogmaðurlnn (22. nóv.-21. des ); .Nú er svo sannarlega Fóþarfi að láta sér leiðast, það er svo mikið um að vera í kringum þig. Ferðalag er í undir- búningi og þú hlakkar mjög til. Stelngelfln i22, des.-19, ien.); Undarleg staða kemur upp í vinahópnum og sýnist sem mál geti orðið ansi flókin þó að tilefnið virðist ekki mikið. Happatölur þínar eru 5,12 og 31. Vogln (23. se Dreymir ekki fyrir neinu - segir Harpa Jónsdóttir, handhafi íslensku barnabókaverðlaunanna Bíógagnrýni_________________________________________________ Góö börn í vondum skóla Þó svo Harpa Jónsdóttir, kennari á ísafirði, hafi á sínum tíma verið i hjálparstarfi bæði í Palestínu og Afríku þá hefur hún aldrei komið til Samiraka. Samt hefur hún skrif- að bók sem heitir Ferðin til Samiraka og hlotið fyrir hana ís- lensku barnabókaverðlaunin. Hvemig fór hún að þessu? „Ég bara settist við gömlu Macin- tosh-tölvuna mína og skrifaði," seg- ir hún glaðlega. „Sagan alger spuni þar sem eitt leiddi af öðru. Ég próf- aði að gera ramma og ætlaði að fylla upp í hann en þá bara datt mér ekk- ert í hug. Það var ekki flóknara en það.“ Sambíóin - Max Keeble’s Big Movie: ★ iz Brautryðjendur víða Sagan fjallar um Sigrúnu, isfirska stúlku, sem er leidd inn í framandi heim. Þar kynnist hún fólki sem á fárra kosta völ, illa kúgað af ráð- andi öflum. Kúgaramir era svokall- aðir Brautryðjendur sem nota ýmis óvönduð meðul til að viðhalda völd- um. Sigrún ákveður að koma hinu bágstadda fólki til hjálpar, berjast fyrir frelsi þess og hætta lífl sínu fyrir það. Ýmsar furðuverur koma líka við sögu sem hafa áhrif á fram- vinduna, til dæmis ein lítil og loðin með löng eym og þijár litlar hend- ur! Þetta er semsagt spennusaga um baráttu góðs og ills og gerist í ævin- týraheimi. „Sumir hafa lesið ótrúlegustu hluti út úr sögunni sem mér voru algerlega huldir þegar ég var að skrifa en eflaust notar maður ómeð- vitað eitthvað úr eigin reynslu. Þessi harðstjómarþáttur hefur kannski sprottið af því að á ferðum um heiminn sér maður víða kúgun og Brautryðjendumir geta átt sér margar fyrirmyndir. Þeir era svo margir sem segja að ein leið sé rétt og allar hinar rangar. Það geta ver- ið harðstjórar ríkja, öfgatrúarflokk- ar og fleiri. Ég skrifa þetta samt ekki með sérstakt dæmi í huga.“ Gaman að öllu dulrænu - Nú gerist sagan undir yfirborði jarðar. Trúir þú á líf í stokkum og steinum? „Nei, en ég hef rosalega gaman af dulrænum frásögnum, hvort sem er um berdreymi, álfa eða annað. Sjálf er ég samt mjög jarðbundin og dreymir ekki fyrir neinu." - Þig hefur þá ekki dreymt fyrir verðlaununum? DV-MYND ÞÖK. Verðlaunahafinn „Sumir hafa lesiö ótrúlegustu hluti út úr sögunni sem mér voru aigeriega huldir þegar ég var aö skrifa en eflaust not- ar maöur ómeövitaö eitthvaö úr eigin reynslu, “ segir Harpa Jónsdóttir kennari. „Nei, þau komu mér á óvart. Auð- vitað tekur maður þátt í keppni með því hugarfari að vinna en ég gat eins búist við að það mistækist." - Lestu mikið sjálf? „Já, ég les mikið, meðal annars bamabækur. Þegar maður á börn og er að kenna verður maður að fylgjast með. Ég hef lesið allar Harry Potter-bækumar og líka bæk- umar hans Philip Pullman. Þær era frábærar." - Ferðin til Samiraka er þín fyrsta bók. En ertu skúffuskáld? „Nei, þetta er það fyrsta sem ég hef skrifað. Reyndar hef ég samið söngtexta fyrir leikrit en það var ekki merkilegur skáldskapur. Mað- urinn minn samdi tónlist við bama- leikritið Fuglinn í fjörunni. Æfingin átti að byrja ellefu, ég fékk lagið kortér í og var tilbúin með textann fimm mínútur yfir!“ - Varla hefurðu hespað bókinni af á þessum hraða? „Nei, nei. Ég skrifaði söguna fyrst fyrir þremur árum, breytti henni svo aðeins áður en ég sendi hana i keppnina og endurskoðaði hana síð- an í sumar, fyrir útgáfuna. Samt er ég frekar fljót að vinna. Maður neyðist til þess þegar maður er I rúmlega fullri kennslu og með ung böm. Ég á tvö, átta og fjögurra ára, og svo 18 ára stjúpdóttur." - Svo það þýðir lítið að spyrja um tómstundir. „Já, en ég syng samt í hjóna- kvartett sem heitir Vestan fjögur og flytur aðallega tónlist frá endur- reisnartimanum, matrigala og slíkt. Stundum stillum við okkur líka upp í kirkjunni í Holti og syngjum þar íslensk lög fyrir ferðamenn af skemmtiferðaskipum. Hjónin sem við syngjum með eiga stóra stelpu sem er vinkona stelpunnar okkar og þær syngja saman i tríói ásamt einni til. Reyndar er ég líka í hátíða- kór Tónlistarskólans sem syngur eitt verk á ári, æfir það frá áramót- um fram áð páskum og flytur það þá. Það er afar skemmtilegt." Byrjuð á næstu bók - Hvemig ætlar þú svo að veija verðlaunafénu fyrir bókina? „Við eram nýbúin að kaupa gam- alt draumahús á ísafirði sem þarfn- ast talsverðrar viðgerðar svo það er lítið vandamál að koma peningun- um í lóg.“ - Þú lætur varla staðar numið við skriftimar eftir svona góðar viðtök- ur við fyrstu tilraun. „Nei, ég er aðeins byrjuð á þeirri næstu.“ -Gun. Hvar era bömin úr bíómyndun- um? Hvar hittir maður krakka sem eru svona sérdeilis úrræðagóð, djúpvitur, réttlát, sanngjöm og húmorísk? Ekki hef ég hitt eitt ein- asta þeirra i þeim fjölmörgu bama- afmælum sem ég hef haft ánægju af aö sækja og þó hafa þar verið mörg indælis börn í alla staði. Max Keeble (Alex D. Linz), er dæmigert kvikmyndabam. Hann er sætur og sniðugur og fullur hug- mynda en er samt ekki vinsælasti strákurinn í skólanum, heldur einmitt sá sem sum hrekkjusvínin hafa yndi af að fara illa með. Max á tvo afbragðsvini, Megan, huggulega stelpu sem spilar á klarínett og Robe, feitan strák sem er alltaf í slopp (?). Þau eru krúttleg og skemmtileg, réttsýn og gáfuð og til- búin til að vemda minnimáttar og hvaðeina. Enda er aðalhrekkjusvín- ið á móti þeim og skólastjórinn, sem er hrottalega heimskur asni, þolir þau alls ekki. Max og vinir hans era nýbyijuð í gaggó og þrátt fyrir leið- indaskólastjóra og hrekkjusvín gengur allt ágætlega þar til foreldr- ar Max segja honum að þau séu að fiytja til Chicago eftir nokkra daga (fólk er alltaf svo fljótt að flytja í Ameríku!) og þá sér Max sér leik á borði, hann getur hagað sér ná- kvæmlega eins og hann hefur alltaf langað en aldrei þorað - staðið upp í hárinu á hveijum sem er, algjör- lega ábyrgðarlaust því þegar kemur að skuldadögum er hann farinn! í þennan atburðaríka söguþráð bæt- ist svo við metnaður skólastjórans að láta reisa fótboltavöll, hvað sem það kostar, á landi þar sem nú er dýraathvarf sem geymir bæði geitur og apa. Að mörgu leyti er Max Keeble’s Big Movie skemmtileg bamamynd - þessi algjörlega ábyrgðarlausa upp- reisn er ágætishugmynd að vinna með (þótt allir séu náttúrlega dregn- ir til ábyrgðar í amerískri bama- mynd fyrr eða síðar). En eins og oft er í bamamyndum af þessu tagi verður atburðarásin helst til yfir- gengileg, hefndarverk Max eru verulega andstyggileg og ég er hand- viss um að færri geitur, jarðýtur og skemmdarverk hefðu sist skemmt fyrir söguþræðinum. Eiginlega finnst manni eftir að hafa horft á svona mynd að það sé varhugavert að setja jafn klára krakka eins og Max og vini hans í hendumar á jafn óhæfu og heimsku fólki eins og skólastjóranum og kennurunum og foreldrar þeirra ættu að íhuga aðrar menntunarleiðir. Alex D. Linz er finn bamaleikari, sætur og sjarmerandi og vel trúan- legur í hvort sem heldur er prakk- arastrikum eða einlægum eintölum en Larry Miller er stjama myndar- innar í hlutverki skelfilega skóla- stjórans sem sjónvarpar ræðum sín- um yfir nemendur með mynd af Hvíta húsinu á bak við sig. Leikstjóri: Tim Hiil. Handrit: Jonathan Bernstein. Kvlkmyndataka: Arthur Al- bert. Tónlist: Michael Wandmacher. Aó- alleikarar: Alex D. Linz, Zena Grey, Larry Miller, Noel Fisher, Orlando Brown ofl.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.