Dagblaðið Vísir - DV - 01.10.2002, Blaðsíða 7
ÞRIÐJUDAGUR 1. OKTÓBER 2002
DV
7
Fréttir
Herjólfur siglir á ný
Vestmannaeyjaferjan Heijólfur hóf
áætlunarsiglingar á ný í gær. Ferjan
hafði verið í slipp i Danmörku um
tveggja vikna skeið en kom til Eyja
að nýju í gærdag. Að sögn Lárusar
Gunnólfssonar skipstjóra gekk slipp-
ferðin eins og í sögu og allt stóðst
áætlun. Fyrir utan hefðbundið eftir-
lit og viðgerðir á vélum og tækjum
var Herjólfur málaður. Á meðan
skipið var í slipp í Frederikshavn í
Danmörku notaði áhöfnin timann og
tók skipið í gegn að innan.
Herjólfur er 10 ára gamalt skip,
3354 brúttótonn að stærð. Skipið
gengur 17 sjómílur og er því 2 klst. og
45 mín. á milli Vestmannaeyja og
Þorlákshafnar. Hámarksfjöldi far-
þega er 500. Rekstur Herjólfs er í um-
sjá Landflutninga-Samskipa. -aþ
„Veöurspámaðurinn"
Verkið sem er eftir Ásmund Sveinsson stendur fyrir framan Ásmundarsafn í
Reykjavík. Verkið er máttugt tákn um manninn og náttúruna.
Stytta reist á Blönduósi til heiðurs elsta veðurmælingamanni landsins:
Meiri binding en mjaltir
Við sofum ekki á verðinum
Rafiðnaðarsamband íslands gætir hagsmuna rafiðnaðarmanna um land allt
RAFIÐNAÐARSAMBAND
fiSLANDS
- segir Grímur Gíslason sem níræður mælir veðrið fimm sinnum á dag
Blönduósbær hyggst heiðra Grím
Gíslason veðurathugunarmann til
30 ára og fréttaritara Ríkisútvarps-
ins um langt skeið með því að koma
upp á Blönduósi afsteypu af styttu
Ásmundar Sveinssonar, Veðurspá-
manninum. Grímur er níræður að
aldri og fyrsti og eini heiðursborg-
ari Blönduóssbæjar.
„Ég er glaður og þakklátur vegna
þess heiðurs sem mér er sýndur og
það verður gaman að fá þetta fallega
listaverk hingað í bæinn,“ sagði
Grímur í samtali við DV í gær.
Hann sagðist þó stíga í báða fætur
vegna málsins og gat þess af lítillæti
að í raun væri hann ekkert allt of
hrifrnn af því að menn væru að
hampa þessu.
Grímur hefur stundað veðurmæl-
ingar í hálfan þriðja áratug og fer
aldrei í háttinn fyrr en eftir mið-
nætti vegna starfa síns. „Já, þessu
fylgir mikil binding. Þeir sem eru
með kýr eru miklu óbundnari því
það er hægt að hnika mjöltum til að
skaðlausu um nokkra stund en veð-
urfréttir verða alltaf að koma á rétt-
um tíma.“
Hann segist ekki hafa haft neinn
afleysingamann í seinni tíð en hægt
sé að tilkynna forfoll og þá sé orðið
við því. Hann fari þó alla jafna lítið
frá heldur mæli veðrið fimm sinn-
um á dag. „Þetta er ósköp hvers-
dagslegt. Ég er ekkert öðruvísi en
aðrir veðurathugunarmenn fyrir
utan það að ég er hundgamall," seg-
ir Grimur sem er aldnastur ís-
lenskra veðurmælingamanna. Auk
þessa starfa flytur hann reglulega
fréttapistla í Rikisútvarpið, ríður
daglega út og er í ýmsu félagsstarfi.
Það var Þór Jakobsson veður-
fræðingur sem fyrstur hreyfði við
hugmyndinni og var málið tekið
fyrir á fundi bæjarstjómar í gær-
kvöld. Jóna Fanney Friðriksdóttir,
bæjarstjóri á Blönduósi, segist von-
ast til að hægt verði að reisa stytt-
una næsta sumar og er líkleg stað-
setning nálægt hringtorginu á
Blönduósi. -BÞ
Rafiðnaðarsambandið er starfsgreinasamband 10 félaga rafiðnað-
armanna. Félagar eru þeir sem starfa í rafiðnaði hvort sem þeir hafa
sveinspróf eða ekki; rafiðnfræðingar, rafvirkjar, rafveituvirkjar, raf-
vélavirkjar, rafeindavirkjar, símsmiðir, símamenn, sýningarmenn,
tölvu- og kerfisumsjónarmenn og tæknifólk í mynd- og hljóðverum.
Rafiönaðarskóli íslands
Samtök rafiðnaðarmanna eiga og reka Rafiðnaðarskólann. Hann
býður upp á fjölbreytt starfsmenntunarnámskeið.
Kynntu þér málið: www.raf.is
Hlutverk Rafiðnarsambands íslands
Gerð kjarasamninga og túlkun þeirra, varsla starfsréttinda og vinnu-
vernd.
Að tryggja félagsmenn og fjölskyldur þeirra þegar áföll dynja á.
Að annast fræðslu- og útgáfustarfsemi.
Að gefa félagsmönnum og fjölskyldum þeirra kost á góðri orlofs-
aðstöðu.
Orlofsaðstaða fyrir félagsmenn
Rafiðnaðarsambandið á og rekur 39 orlofshús á 15 stöðum á land-
inu (auk 2 húsa á Spáni), 11 tjaldvagna, 2 fellihýsi og leigir nokkur
orlofshús.
Fegurð
Kirkjan við Úlfljótsvatn í afar fallegu
haustveöri um síðustu helgi.
Elíkjaii byggði,
rafveitan
endurbyggði
Það haustar fallega, lygnir og ljúf-
ir dagar víða um land og hreint ekki
kalt. Við Úlíljótsvatn var fegurðin í
fyrirrúmi um síðustu helgi þegar
fréttamaður DV fór þar um. Þar má
sjá að raforkuöflun þarf ekkert endi-
lega að skemma stemninguna.
Heimildir eru um kirkju við Úlf-
ljótsvatn frá því um 1200, en þessi
kirkja var byggð þar 1863 af ekkju
sem þá bjó á Úlfljótsvatni. Árið 1963
endurbyggði Rafmagnsveita
Reykjavíkur kirkjuna. Þáverandi
vígslubiskup á Selfossi, Sigurður Páls-
son, sagði við athöfn í kirkjunni að
það væri létt verk fyrir Rafmagnsveit-
una með öll sín auraráð að endur-
byggja kirkjuna, þegar umkomulítil
ekkja hefði byggt hana fyrir 100 árum.
Kirkjan var lengd við endurbygging-
una og tuminum bætt við. -GG