Dagblaðið Vísir - DV - 01.10.2002, Blaðsíða 32

Dagblaðið Vísir - DV - 01.10.2002, Blaðsíða 32
(-Jk FRETTASKOTIÐ SÍMINN SEM ALDREI SEFUR Hafir þú ábendingu eöa vitneskju um frétt, hringdu þá í síma 550 5555. Fyrir hvert fréttaskot, sem birtist eöa er notaö T DV, greiöast 3.000 krónur. Fyrir besta fréttaskotiö í hverri viku greiöast 7.000. Fullrar nafnleyndar er gætt. Viö tökum viö fréttaskotum allan sólarhringinn. 550 5555 Viðbótarlífeyrissparnaður Allianz (OD Loforð er loforð ÞRIÐJUDAGUR 1. OKTÓBER 2002 Sími: 533 5040 - www.allianz.is Framkvæmdastjóri Ferðalausna á Akureyri: Segir Ferðamala ráð gagnslaust Tryggvi Sveinbjörnsson, fram- kvæmdastjóri Feröalausna ehf., er afar ósáttur við Ferðamálaráð og tel- ur að landsbyggðin gjaldi fyrir lítinn áhuga ráðsins á fjárveitingum út á land. Tryggvi sótti um styrk frá Ferðamálaráði til markaðssetningar innanlands en var neitað á þeim for- sendum að fyrirtæki hans, bókunar- og upplýsingavefurinn visit.is, væri fyrst og fremst miðUl en ekki fyrir- tæki sem væri starfandi í ferðaþjón- ustugeiranum. Vefur Tryggva snýr fyrst og fremst að málum tengdum ferðaþjónustu og því telur hann rök- semdir Ferðamálaráðs út í hött. „Þessi stofnun sem nefnd er Ferða- málaráð er gjörsamlega gagnslaust fyrirbæri fyrir ferðaþjónustuna utan höfuðborgarsvæðisins og innan höf- uðborgarsvæðisins sé litið til lengri tíma. Það er eins og þessir menn séu í einhverjum filabeinsturni og ég dreg verulega í efa að verið sé að vinna samkvæmt verkefnaskipan sem þeir eiga að vinna að samkvæmt lögum,“ segir Tryggvi. Hann vísar til laga um Ferðamála- ráð þar sem m.a. segir að ráðið skuli hafa á höndum stefnumörkun, skipu- lagningu og áætlanagerð um íslensk ferðamál. Einnig sé hlutverk ráðsins að starfrækja sameiginlega bókunar- miðstöðvar í samvinnu við aðila ferðaþjónustunnar en á visit.is er hægt að bóka ýmsa þjónustu. „Umhverfið sem ferðaþjónustan Bensínverð: Rök fýrir breytingu Oliufélögin höfðu ekki tekið ákvörðun um hvort breytingar yrðu á bensín- og olíuverði nú um mán- aðamótin þegar blaðið fór í prentun í morgun. Talsmenn þeirra bentu á að heimsmarkaðsverð hefði hækkað á milli mánaða þannig að það munaði 15 dollurum á meðalverði milli ágúst og septembermánaðar. Því væru rök fyrir verðbreytingu á grunni þeirra upplýsinga, hver svo sem ákvörðun- in kynni að verða. -JSS EINN EINN TVEIR NEYÐARLÍNAN LÖGREGLA SLÓKKVIUÐ SJÚKRAUÐ RIKINU VEITTI EKKI AF CASINO! þarf að búa við hér á landi er orðiö óþolandi. Allt skipulag er í molum, og það bendir ekkert til þess að breytinga sé aö vænta í þessum næst- stærsta gjaldeyrisskapandi atvinnu- vegi þjóðarinnar,“ segir Tryggvi. Elías Bj. Gíslason, forstöðumaöur skrifstofu Ferðamálaráðs á Akureyri, segist blása á gagnrýni Tryggva. Hvað styrkina varði hafi ráðið verið að höfða til aðila sem byðu grunn- þjónustu s.s. samgöngur, gistingu og veitingar. Miðlar eins og Morgun- blaðiö eða DV myndu ekki falla und- ir þá skilgreiningu þótt þeir fjalli sannarlega um ferðaþjónustu á stn- um síðum. „Við vorum í raun að blása til samstarfs hjá þessum aðil- um sem sinna grunnþjónustunni vítt og breitt um landið,“ segir Elías Bj. Gíslason. Hvað varðar meinta landsbyggðar- fordóma bendir Elías á að 14 af 19 styrkþegum séu starfandi utan höf- uðborgarsvæðisins. Fjórum hafi ver- ið synjað og þar á meðal Tryggva en það hafi ekkert með landsbyggðarfor- dóma að gera. -BÞ Ein máltíö Fjölskylda í Grafarvogi lifir þessa dagana á matarskammti samsvarandi sem Rauöi kross íslands myndi dreifa hér á landi ef til hugursneyðar kæmi. Þetta er í tengslum viö landssöfnun sem RKÍ eftir til nk. laugardag til hjálparstarfs í sunnanverði Afríku vegna hungursneyöar íbúanna þar. Á myndinni eru hjónin Auöur Haröardóttir og Bergur Hauksson ásamt dætrunum Ástu og Birnu. Þau halda á skammti sem nemur einni máltíö. Formaður efnahags- og viðskiptanefndar: Rekstur spilavíta er spurning um löggjöf - ekki stórfellt sálartjón hjá þjóðum sem leyfa svona starfsemi Vilhjálmur Eg- ilsson, alþingis- maður og formað- ur efnahags- og viðskiptanefndar Alþingis, segir tímabært að skoða ofan í kjölinn hvort rétt sé aö banna spilavíti eða aðra fjárhættustarfsemi á ís- Vilhjálmur Egilsson. landi. Lögreglan gerði rassíu um síðustu helgi og lokaði spila- klúbbi í Reykjavík þar sem f]ár- hættuspilarar hafa komið saman um nokkurra missera skeið. Vil- hjálmur segir að starfsemi sem þessi finni sér alltaf einhvern farveg. „Auðvitað verða allir að fara að lögum og menn verða að fara eftir því ef lögin í landinu segja að ekki megi reka spilavíti. Spurningin er hins vegar hvaða lög við ætlum að hafa í landinu. Við erum með fullt af löndum í kringum okkur sem eru mun frjálslyndari í þessum efnum og þar hefur lítið heyrst af stór- felldu sálartjóni," segir Vilhjálm- ur Egilsson. Margar hliðar eru á málinu að sögn Vilhjálms og koma upp mörg dapurleg mál hjá þeim sem ánetjast spilafikn. „Hins vegar verður þessi starfsemi alltaf til staðar, hvort sem hún er skipu- lögð sem atvinnustarfsemi eða ekki. Það getur enginn bannað fólki að gera þessa hluti heima hjá sér.“ Vísbendingar eru uppi um að fleiri þingmenn telji tímabært að láta endurskoða löggjöf um fjár- hættuspil en engin formleg þing- mál hafa verið lögð fram um þessi mál samkvæmt úpplýsing- um DV. Hins vegar hefur verið deilt um einkaleyfi Háskóla ís- lands á peningahappdrætti. „Þetta er eitt af þessu málum sem menn þurfa sifellt að skoða og fara yfir meðrök og mótrök. Það þarf að kanna hverju bannið skilar. Er hægt að finna einhvern löglegan farveg fyrir starfsemi á þessu sviði?“ spyr formaður efna- hags- og viðskiptanefndar Al- þingis. Maðurinn sem situr í gæslu- varðhaldi á Litla-Hrauni, grunað- ur um að hafa rekið spilaviti i miðborg Reykjavíkur, hefur áður verið dæmdur í sakamáli fyrir að hafa stundað slíka starfsemi. Með dómi Hæstaréttar árið 1993 var maðurinn dæmdur í 300 þús- und króna sekt til ríkissjóös. BÞ/ótt Byko í Njarðvík: 34 sagjt upp Öllum starfsmönnum glugga- og| hurðaverksmiðju Byko í Njarðvík, alls 34, var sagt upp i gær. Ástæðan er sú að rekstri verksmiðjunnar verður I hætt og starfsemin flutt til Lettlands,f til dótturfyrirtækisins BYKO-LAT sem er eitt af stærstu fyrirtækjum Lett-Í lands í útflutningi á timbri. Greint var * frá því IDV fyrir skömmu að uppsagn- ir væru yfirvofandi. Hanna Ingimund- ardóttir, trúnaðarmaður starfsmcuma, | segir þetta mikið áfall fyrir starfsfólk- ið þar sem fáir möguleikar séu lengur ( á vinnu í Reykjanesbæ. „Þeir segja að reksturinn gangi ekki' vegna taps en þetta kemur eigi að síð- ur flatt upp á starfsmenn. Það var til- tölulega nýbúið að kaupa rándýrar ’ vélar inn í húsið og manni datt því ekki i huga að meiningin væri að loka ( fyrirtækinu." Þór Gunnarsson verksmiðjustjóri segir að reynt verði að útvega sem i flestum vinnu hjá öðrum fyrirtækjum | Byko. Ráðgert sé að starfsemi verk- smiðjunnar í Njarðvík verði endan-1 lega hætt um áramótin. „Það fær eitt- hvað af þessu fólki vinnu áfram og' reynt verður að fmna störf sem víðast og þá vonandi einhver hjá Byko hér| suður frá.“ -HKr. / / / y / / / Einkaþota á íslandi: Getur verið skynsamlegur ferðamáti - kostar milljarð. Gott útlit með verkefni „Útlitiö varðandi verkefni fyrir þotuna er ágætt og hin fyrstu bíða okkar núna í vikunni," segir Bjöm Rúrikisson. Hann fer fyrir eignar- haldsfélaginu Maris - sem til helm- inga á móti norska félaginu Sundt Air á spánnýja einkaþotu sem kom- in er í flugflotann. Þotan verður jöfnum höndum staðsett á íslandi og í Noregi, en er þó einkum ætlað þjóna markaðnum hér. Stendur til að í framtíðinni verði þotan þó al- farið staðsett hérlendis og að þjálf- aðar verði á hana íslenskar áhafnir í stað norskra eins og er nú. Þotan tekur átta farþega, kostar um milljarð og er þægOegur farkost- ur. Bjöm Rúriksson segist hafa trú á þessu dæmi, svo sem í ljósi þess DV-MYND GVA Fyrir framan þotuna Björn Rúriksson á Reykjavíkurflug- veiii í gær. Hann segir fyrstu verkefni þotunnar bíöa strax núna í vikunni. hve fjölþjóðlegt íslenskt viðskiptalíf sé orðið. Oft geti menn þurft aö fara utan með skömmum fyrirvara og þá sé timinn dýrmætur. „Ég hef fulla trú á þessum rekstri og margir sjái að skynsamlegt getur verið að nýta sér þennan ferðamáta," segir Bjöm. Leiguferð með þotunni til dæmis frá íslandi til Lundúna og aftur heim kostar 1,5 milljónir kr. sam- kvæmt taxta, en mörg íslensk fyrir- tæki eru nú að sögn Bjöms að gera samninga um afnot sem tryggja lægra verð. Hann segir væntanlegar stóriðjuframkvæmdir á Austurlandi hafa haft sin áhrif á að hann ákvað að fara út í flugrekstur af þessum toga. -sbs Bifreiðaverkstœði Grafarvogs Gylfaflöt 24-30, 112 Reykjavík S. 577-4477, Fax: 577-4478 Allar almennar bílaviðgerðir Þjónustuaðili fyrlr Bilabúð Benna BYSSUR SPORTVORUGERÐIN SKIPHOLT 5 562 8383

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.