Dagblaðið Vísir - DV - 01.10.2002, Qupperneq 12
12
____________________________________________________________________________________________________ÞRIÐJUDAGUR 1. OKTÓBER 2002
Útlönd DV
Jose Maria Aznar
Jose Maria Aznar segir aö ekki komi
til greina aö veita Böskum meira
sjálfræöi en þeir hafi þegar.
Aznar gegn frekara
sjálfræði Baska
Jose Maria Aznar, forsætisráð-
herra Spánar, sagði í gær að ekki
kæmi til greina aö veita Böskum
meira sjálfræði en þeir hafi þegar.
Þetta kemur fram aðeins degi
eftir að Juan Jose, landstjóri í
Baskahéruðunum, óskaði eftir því
við spænsku ríkisstjómina að fram
færi um það þjóðaratkvæðagreiðsla
strax á næsta ári hvort baskneska
þjóðin vildi stofha sérstakt heima-
stjómarriki þriggja Baskahéraða.
Aznar sagði einnig að ekkert hér-
að á Spáni gæti gert ráö fyrir því að
geta sagt skilið við Spán og komið á
því sem hann kallaði ólöglega ríkis-
stjóm.
Leitað sátta í
átökunum á Fila-
beinsströndinni
Þrir háttsettir ráðherrar frá Vest-
ur-Afríku ræddust við fram á nótt á
heimili Laurents Gbagbos, forseta
Fílabeinsstrandarinnar, til að reyna
að finna friðsamlega lausn á átök-
unum sem hafa skekið landið í á
aðra viku.
Ráðherramir, sem era frá Níger-
íu, Ghana og Tógó, hittust í Accra í
Ghana í gær, áður en þeir flugu til
Filabeinsstrandarinnar. Þar gera
þeir sér vonir um að hitta uppreisn-
armenn sem gerðu misheppnaða tU-
raun tU valdaráns 19. september.
Ekki er vitað hverjir leiðtogar upp-
reisnarmanna era né heldur hvað
þeir vUja og hve margir þeir era.
KoFi Annan, framkvæmdastjóri
Sameinuðu þjóðanna, bauð í gær
fram aðstoð sína við að binda enda
á uppreisnina sem hefur hrakið
fjölda manps á Qótta.
UPPBOÐ
Eftirtaldir munir veröa boönir
upp aö Billjardstofunni 66 ehf.,
Lágmúla 5, þriðjudaginn 8.
október 2002 kl. 14.00:
09nl793,Thinkpad sjóðsvél af tegund-
inni, 1 stk. Riley snókerborð, 10“, 4
stk. Riley, 12“, 40 stk. álstólar, 50 stk.
notaðir kjuðar, 14 stk. loftljós yfir
billiard- og snókerborðum, 2 stk. jón-
artæki, Eagle 5000,1 stk., 4 stk. Sam
bUliardborð, 9“, 2 stk. bUliardborð,
billiard og snóker, gervihnattardiskur,
Davis, barinnrétting úr brúnum við,
Kallixs N0007055 ásamt tölvu sem
fylgir, m/spegli, 40 kassar af kúlum
fyrir bæði, Omrom, sjónvarpstæki
Grundig, 28“, 1 stk. skjávarpi, snóker-
borð, 12“, 2 stk. Matchrum snóker-
borð, staðsett á lögheimUi gerðarþola,
8“, staðsett á þaki hússins, myndavéla-
kerfi, og þjófavarnarkerfi Evrópa
9000, ferðatölva IBM.
Ávísanir ekki teknar gildar sem
greiðsla nema með samþykki upp-
boðshaldara eða gjaldkera.
Greiðsla við hamarshögg.
SÝSLUMAÐURINN í REYKJAVÍK
Viðræður um vopna-
eftirlitið ganga vel
- segir Hans Blix, yfirmaður vopnaeftirlitsnefndar SÞ
Fulltrúar vopnaeftirlitsnefndar
Sameinuðu þjóðanna og fullrúar
íraksstjómar sitja nú á fundi i Vínar-
borg, annan daginn í röð, tU að ná
samkomulagi um framkvæmd vopna-
eftirlits í landinu, svo komast megi
hjá yfirvofandi hernaðaraðgerðum
sem Bandaríkjamenn hafa boðað
verði írakar ekki við kröfum um skU-
yrðislaust vopnaeftirlit og afvopnun.
Að sögn talsmanna SÞ er farið fram
á algert frelsi tU vopnaskoðunar þar
sem engar byggingar verði undan-
skUdar, ekki einu sinni haUir Sadd-
ams forseta.
Sviinn Hans Blix, yfirmaður vopna-
eftirlitsnefndar SÞ, sagði í gær að
samningaviðræðumar hefðu gengið
vel á fyrsta degi og að hann væri
bjartsýnn á að vopnaeftirlitsnefhdin
gæti hafiö störf í Irak um miðjan októ-
ber.
Á sama tima munu Bandaríkja-
menn og Bretar halda áfram tUraun-
um sínum tU að sannfæra þau ríki
Hans Blix
Blix er bjartsýnn og vonast til aö
vopnaeftirlit geti hafist um miöjan
október.
sem fuUtrúa eiga í öryggisráði SÞ um
nauðsyn þessa að koma Saddam
Hussein frá völdum, en undanfarna
daga hafa herþotur þeirra haldið uppi
stöðugum loftárásum á hernaðar-
mannvirki íraka á flugbannssvæðun-
um í norður- og suðurhluta landsins.
Rússar hafa harðlega gagnrýnt loft-
árásimar og sagt þær spUli aðeins fýr-
ir möguleikanum á friðsamlegu sam-
komulagi í deUunni.
Donald Rumsfeld, vamarmálaráð-
herra Bandaríkjanna, varði aðgerð-
imar í gær og sagði þær aðeins svar
við árásum og hótunum Iraka um að
skjóta á bresku og bandarísku eftir-
litsflugvélamar sem sjái um eftirlit á
flugbannssvæðunum og þær hótanir
sýni vel hvemig írakar virða ákvarð-
anir SÞ að vettugi.
Hann sagði að þeir hefðu 67 sinnum
skotið á eftirlitsvélamar síðan 16.
september þegar þeir buðust tU að
hleypa vopnaeftirlitsmönnum SÞ aft-
ur mn í landið.
REUTHRSMYND
Kemst þó hægt fari
Hún var ekki beint snör í snúningum þessi fimmtán kílóa þunga skjaldbaka þegar hún kom sér út í sjóinn á miöhluta
indónesísku eyjarinnar Jövu. Þar haföi Indónesi nokkur, Agus Santoso, sem kunnur er fyrir viöleitni sína til aö vernda
skepnur þessar, sleppt skjaldbökunni svo hún gæti leitaö uppi frændur sína í sjónum.
>
-~r.-------------
Landsþing breskra krata á móti einkaframkvæmd:
Blair segir að stjórn sín verði
að vera róttækari og djarfari
Tony Blair, forsætisráðherra
Bretlands, ætlar að greina fuUtrú-
um á landsfundi Verkamanna-
flokksins í Blackpool i dag að rikis-
stjóm hans verði að gerast bæði
djarfari og róttækari, nú þegar hún
hefur setiö í fimm ár.
Blair mun flytja aðalræðu sína á
landsfundinum 1 dag og fastlega er
búist við því að hann muni boða
róttækar umbætur í þjónustu ríkis-
ins við almenning. Forsætisráðherr-
ann mun gera tilraun tU að þagga
niður í þeim sem hafa gagnrýnt
hann fyrir að gera ekki nóg á fyrsta
kjörtímabUinu í að bæta þjónust-
una, svo sem skólakerfið og heU-
brigðiskerfið.
FuUtrúar á landsfundinum höfn-
uðu í gær tUlögum forystunnar um
einkaframkvæmd í opinberri þjón-
ustu og er það í annað skipti sem
Blair hefur mátt þola svona ósigur
REUTERSMYND
Blalr á landsfundi
Tony Blair, forsætisráöherra Bret-
lands, flytur landsfundi Verkamanna-
flokksins boöskap sinn í dag.
frá því hann tók við forystu í
flokknum.
íraksmálin verða væntanlega fyr-
irferðarmikU í ræðu Blairs, enda
háværar gagnrýnisraddir innan
Verkamannaflokksins á fylgispekt
forsætisráðherrans viö herskáa
stefnu Georges W. Bush Bandarikja-
forseta.
Blair mun lýsa yfir stuðningi sin-
um við tilraunir Sameinuðu þjóð-
anna að fást við stjómvöld í Bagdad
en að orðspor SEimtakanna myndi
biða mikinn hnekki ef ekki tækist
að hafa hemU á Saddam Hussein
íraksforseta og tilraunum hans tU
að komast yfir gjöreyðingarvopn.
Sex af hverjum tíu fundarmönnum
lýstu í gær yfir stuðningi við stefnu
Blairs í írakmálinu en fjórir af
hverjum tíu lýstu yfir andstöðu
sinni við hemaðaraðgerðir tU aö
steypa Saddam af stóli.
Schröder til Parísar
Gerhard
Schröder Þýska-
landskanslari fer tU
Parísar á morgun
tU viðræðna við
Jacques Chirac
Frakklandsforseta.
Þetta verður fyrsta
ferð Schröders tU
Frakklands frá því hann var endur-
kjörinn kanslari í síðasta mánuði.
Leiðtogarnir ræða meðal annars
írak og fyrirhugaða stækkun ESB.
Ofbeldi á kjördag
Að minnsta kosti fimm manns
týndu lífi þegar vopnaðir menn
hófu skothríð á langferðabfl í ind-
verska hluta Kasmírs í morgun,
þegar þriðja umferð kosninganna
þar hófst i einhverjum órólegustu
hlutrnn þessa umdeUda héraðs.
Hervélar rákust saman
Óttast er að þrettán manns hafi
týnt lífi þegar tvær flutningavélar
indverska hersins rákust saman á
flugi yfir héraðinu Goa í morgun.
Áhyggjur óþarfar
Hófsamir íslamstrúarmenn, sem
unnu á í þingkosningunum í
Marokkó um helgina, sögðu í gær
að engin ástæða væri tU að hafa
áhyggjur af áhrifum þeirra á stjóm-
mál landsins.
Bankastjórasyni rænt
Mannræningjar í Þýskalandi hafa
enn á valdi sínu eUefu ára gamlan
son auðugs bankastjóra, þótt lausn-
argjald upp á milljón evrur hafi þeg-
ar verið greitt.
Mugabe fékk meirihluta
Robert Mugabe,
forseti Simbabves,
og flokkur hans
fengu meirihluta
ftUltrúa í bæjar- og
sveitarstjómar-
kosningunum í
landinu um helg-
ina. Með því inn-
siglaði Mugabe tök sín á héraös-
stjómum þar sem völd hafa hafa
lengi verið mikU.
Enn einn fellibylurinn
FeUibylurinn LUi tók i gær stefn-
una á Kúbu eftir að hafa gert usla á
Cayman-eyjum og Jamaíku þar sem
fjórir létust af völdum flóða og
skriðufaUa.
Bhutto ákallar BNA
Benazir Bhutto,
fyrrum forsætisráð-
herra Pakistans
sem fær ekki að
bjóða sig fram í
kosningunum í
næstu viku, for-
dæmdi stjómmál í
landinu í gær og
hvatti bandarísk stjómvöld tU að
vinna að því að koma á lýræðislegri
stjóm í Pakistan.
Alnæmi á uppleið
Fjöldi alnæmissjúklinga og HTV-
smitaðra í Rússlandi, Kína, Ind-
landi, Nígeríu og Eþiópíu gæti þre-
faldast fram tU ársins 2010, að því er
fram kémur í bandarískri skýrslu.
Lula nokkuð sigurviss
Luiz Inacio LiUa da SUva, helsti
frambjóðandi vinstrimarma, virðist
nokkuð viss um að fara með sigur af
hólmi i forsetakosningunum í Bras-
Uíu næstkomandi sunnudag.