Dagblaðið Vísir - DV

Ulloq
Ataaseq assigiiaat ilaat
Tidligere udgivet som

Dagblaðið Vísir - DV - 01.10.2002, Qupperneq 16

Dagblaðið Vísir - DV - 01.10.2002, Qupperneq 16
16 ÞRIÐJUDAGUR 1. OKTÓBER 2002 Útgáfufélag: ÚtgáfufélagiS DV ehf. Framkvæmdastjóri: Hjalti Jónsson A&alrltstjóri: Óli Björn Kárason Ritstjóri: Sigmundur Ernir Rúnarsson Aöstoóarritstjóri: Jónas Haraldsson Ritstjórn, skrifstofur, auglýsingar, smáauglýsingar, blaðaafgreiösla, áskrift: Skaftahlíö 24,105 Rvik, simi: 550 5000 Fax: Auglýsingar: 550 5727 - Ritstjórn: 550 5020 - Aðrar deildir: 550 5749 Ritstjórn: ritstjorn@dv.is - Auglýsingar: auglysingar@dv.is. - Dreifing: dreifing@dv.is Akureyri: Kaupvangsstræti 1, stmi: 462 5000, fax: 462 5001 Setning og umbrot: Útgáfufélagið DV ehf. Plötugerö og prentun: Árvakur hf. DV áskilur sér rétt til að birta aðsent efni blaðsins i stafrænu formi og í gagnabönkum án endurgjalds. DV greiðir ekki viðmælendum fyrir viðtöl við þá eöa fyrir myndbirtingar af þeim. Ráðist imt í spilaklúbb Áratugum saman hafa menn spilað í happdrættum hér á landi, freistað gæfunnar í þeirri von að vinna stóra vinninginn. Sama gildir um veðmál, heimilt hefur verið að veðja um úrslit í kapp- reiðum og lengi hafa menn veðjað á úrslit kappleikja í íþróttum, ým- ist hérlendis eða það sem algengara er, kappleikja erlendis. Lottó var sett á laggirnar hér á landi í nóvember 1986. Það er rekið af íslenskri getspá. Viðtökur voru svo góðar að upp- haflegt leikform varð of lítið svo að því var breytt. Þá tók ís- lensk getspá þátt í stofnun Víkingalottós árið 1991, ásamt að- ilum annars staðar á Norðurlöndum. í Víkingalottóinu er spilað um hærri upphæðir en áður hafa þekkst í íslenskum happdrættum. Með tilkomu lottósins jókst samkeppni á happdrættismarkaði. Önnur happdrættisfyrirtæki leituðu nýjunga og buðu t.d. skafmiðahappdrætti og sjónvarpsleiki. Við lýði er Gullnáman, kerfi samtengdra happdrættis- véla, þar sem boðið er upp á einn uppsöfnunarpott, gullpott, sem byrjar í háifri milljón króna. Rekstur Gullnámunnar byggir á reglugerðum, annars vegar frá árinu 1993 og hins vegar frá árinu 1998. Téður gullpottur vex í hlutfalli við þátttöku þar til hann fellur og nýr tekur að vaxa. Tveir slík- ir féllu í liðnum september, annar rúmlega 700 þúsund krónur, hinn rúmlega 5,7 milljónir. í júlí og ágúst féllu þrír slíkir að upphæð rúmlega 1,1 milljón til rúmlega 7,3 milljón- ir króna. íslensk getspá, sem rekur lottóið, er í eigu íþróttasam- bands íslands, Öryrkjabandalags íslands og Ungmennafé- lags íslands. Þessi samtök njóta góðs af rekstrinum. Háskóli íslands nýtur tekna happdrættis síns og Gullnámunnar. Ýmis góðgerðarfyrirtæki standa í happdrættisrekstri. Þeir sem spila í þessum happdrættum, eða freista gæfunnar í lottói, spilavélum eða öðru slíku, eru þó fæstir að hugsa um að styrkja gott málefni. Þeir stunda fjárhættuspil, leggja fé undir í þeirri von að hagnast. Þessi starfsemi er lögleg og flestir sem þar leggja undir kunna að fara með sitt fé, taka ekki óþarfa áhættu. Þeir spila í von um skjótan ágóða en jafnframt vegna þeirrar spennu sem fylgir. Sjálfsagt er að leyfa happdrætti, lottó og spilakassa. Fólk á að ráða því sjálft hvort það tekur þátt eða ekki. Hið sama ætti að gilda um spilavíti, kasínó, en gerir ekki. Fréttir helg- arinnar, um að lögreglan hafi ráðist inn í spilaklúbb í Reykjavík, minna á þá forræðishyggju sem enn er við lýði hérlendis. Hvers vegna á að banna fullorðnu fólki að leggja undir í spilavítum en leyfa um leið önnur peningaspil? Slíkt er firra og tvískinnungur. Spilavíti eru leyfö í öðrum lönd- um og þau sækja íslendingar. Geri þeir slíkt hið sama heima hjá sér eru þeir lögbrjótar og forráðamennimir tugt- húsaðir. Þeir sem taka áhættu í spilavíti geta bæði grætt og tapað. Hið sama gildir á öðrum sviðum, t.d. í hlutabréfaviðskipt- um, án þess að stjórnvöld grípi inn í og banni þá starfsemi. Meginreglan hlýtur að vera sú að fólk kunni fótum sínum forráð. Stöku menn kunna það ekki og verða fórnarlömb spilaflknar. Þær undantekningar eiga þó ekki að ráða vali fjöldans heldur ber að aðstoða þá einstaklinga svo þeir nái aftur tökum á lífi sínu. Stjórnvöld vinna ekki gegn spilaflkn með tvískinnungi sínum, að leyfa í senn ýmis form fjár- hættuspila en banna önnur. Vilhjálmur Egilsson, formaður efnahags- og viðskipta- nefndar Alþingis, segir í DV í dag að tímabært sé að endur- skoða lög um spilavíti. Þingmaðurinn bendir réttilega á frjálslyndari þjóðir í þessum efnum, allt í kringum okkur, án þess að þar beri mikið á stórfelldu sálartjóni samfara frelsinu' Jónas Haraldsson DV i^vropusmnar a Sigurður Kári Kristjánsson lögfræðingur og stjórnarmaöur J Heimssýn Á síðustu misserum hefur umræða um hugsanlega aðild íslands að ESB ver- ið nokkuð fyrirferðarmikil hér á landi. í þeirri um- ræðu hefur hver aðildar- sinninn á fætur öðrum ruðst fram á ritvöllinn og fullyrt að hagsmunum ís- lands sé betur borgið inn- an sambandsins en utan þess. Jafnframt hafa einstakir stjórn- málamenn haldið því fram að tekist verði á um aðild að Evrópusamband- inu í komandi kosningum. Hvort sem það er rétt eða ekki er nauðsyn- legt að gera alvarlegar athugasemdir við ýmsar fullyrðingar sem aðildar- sinnar hafa gagnrýnislaust komist upp með að halda fram kröfum sín- um til stuðnings. Rangar fullyrðingar - rangar niðurstöður. Einn þeirra er fráfarandi fram- kvæmdastjóri Samfylkingarinnar, Björgvin G. Sigurðsson, en hann ritaði grein i Morgunblaðið þann 28. mars sl. undir fyrirsögninni „Evrópa komin á kortið". í greininni er því blákalt haldið fram að andstaða ráðamanna við aðild íslands að ESB hafi kostað ís- lendinga mörg tækifæri. Segir Björgvin að lífskjör Islendinga séu verri en þjóða ESB og að tækifæri ungs fólks hér á landi séu færri en jafnaldra þeirra í Evrópu. Ekki eru reyndar færð rök fyrir síðari full- yrðingunni en það breytir því ekki að hvort tveggja er rangt. Atvinnuleysi á íslandi er nánast ekkert. Hér fá nánast allir vinnu sem vilja og svo mikil er eftir- spurnin eftir vinnuafli í einstökum atvinnugreinum að fyrirtæki þurfa að flytja vinnafl inn til landsins er- lendis frá. Innan ESB er atvinnu- leysi alvarlegt vandamál - vanda- mál sem íslendingar eiga að þakka fyrir að vera lausir við. Samkvæmt upplýsingum frá Al- þjóðabankanum er þjóðarfram- leiðsla á mann sú níunda hæsta í heimi á Islandi. Auk þess er kaup- máttur almennings á íslandi sá sjö- undi mesti á heimsvísu. Ein þjóð innan ESB getur státað af hærri kaupmætti en íslendingar, Lúxem- borgarar. Þær þjóðir sem bera ESB uppi og eru þungamiðja sambands- ins, þ.e. Bretland, Þýskaland, Frakkland, Spánn og Ítalía, standa okkur íslendingum langt að baki samkvæmt úttekt Alþjóðabankans og eru í 20. til 30. sæti á listanum. Það má vissulega til sanns vegar færa að vaxtamunur milli Evrópu og íslands er nokkur, þó hann fari minnkandi. Hins vegar tengist stór hluti hans tímabundnum aðstæðum í hagkerfinu og rennur til innlendra aðila og hefur því ekki í for með sér nettótap fyrir þjóðarbúið, eins og að- ildarsinnar fullyrða ranglega í áróðri sínum fyrir aðild íslands að ESB. Að lokum er það rangt að tækifæri ungs fólks á íslandi séu lakari en jafnaldra þeirra í Evrópu. íslensk ungmenni standa jafnfætis ungum ríkisborgurum innan ESB. Reglur EES-samningsins um frjálsa for al- mennings, þ.á m. ungs fólks, um þau lönd sem eiga aðild að samningnum, gagnkvæm viðurkenning prófa og starfsréttinda og aðgangur íslenskra ríkisborgara að evrópskum mennta- stofnunum tryggja jöfn tækifæri ungs fólks í Evrópu, íslendinga sem annarra. Það verður erfitt fyrir Björgvin G. Sigurðsson að hrekja ofan- greindar staðreyndir þó svo að þær hafi eflaust verið honum kunnar þegar hann ritaði grein sína þann 28. mars sl. Það sem er verra er að Björgvin skuli í ljósi þeirra komast að þeirri niðurstöðu að lífskjör Is- lendinga séu verri en aimennings innan ESB og að tækifæri ungs fólks á íslandi séu lakari en jafn- aldra þeirra i Evrópu. Hann fer einfaldlega með rangt mál og slær fram fullyrðingum sem hann hefur ekki einu sinni fyrir að rökstyðja. villigöt „Atvinnuleysi á Islandi er mikil er eftirspumin eftir i að flytjc Raunar er óskiljanlegt að slíkri fjarstæðu sé haldið fram í ljósi þess sem að ofan greinir. ísland standi utan ESB Framtíð íslands er bjartari utan ESB en innan sambandsins. Stafar það af fylgifiskum ESB-aðildar sem ekki eru þjóðinni í hag. Til viðbótar þeim staðreyndum sem áður hafa verið nefndar og varða hátt atvinnu- leysi innan ESB og hærri þjóðar- framleiðslu og kaupmátt á íslandi en í Evrópu, má nefna fyrirhugaða sam- Sandkom Davíð íjóla- bókaflóðið Heyrst hefur að Davíð Oddsson muni blanda sér í jólabókavertíðina með smásagnasafni sem ekki hefur enn hlotið nafn. Síð- asta smásagnasafn Dav- íðs, Nokkrir góðir dagar án Guðnýjar, hlaut ágæta dóma hér á landi og þýsk- ir gagnrýnendur hafa einnig hrósað þvi mjög. Þessa nýja smásagnasafns er því beðið með nokkurri óþreyju. Til stóö að smá- sagnasafnið kæmi út fyrir síðustu jól en Davíð náði ekki að skila í tíma. Varla er verra að safnið komi út um þessi jól, nokkrum mánuðum fyrir alþingiskosningar, enda mun Davíð vafalaust fá mikla og góða auglýsingu út á það - nema dómar verði honum þeim mun óhag- stæðari. Gamall félagi og vinur Davíðs, Þórarinn Eld- jám, mun einnig senda frá sér smásagnasafn um þessi jól. Búist er við samkeppni þeirra á milli um sölu en lík- lega mun Davíð hafa þar vinningirm enda hefur hann stóran stjórnmálaflokk á bak við sig sem ber siðferðileg skylda til að festa kaup á bók foringjans. Skógrœktamefndir í Nepal Það vakti talsverða athygli fyrir nokkrum mánuðum þegar efnt var til fyrirlestrar undir yfirskriftinni „Kvótakerfið sem lopapeysa." Þama var ekkert grín á ferðinni heldur háalvarleg umræða, þótt yfirskriftin hafi sjálfsagt viljandi verið höfð óvenjuleg til þess að trekkja að. Það hlýtur að hafa borið árangur þvi Rann- sóknastofa i Kvennafræðum stóð nýverið fyrir fyrir- sandkorn@dv.is lestrinum „Staða kvenna innan skógræktamefnda í Nepal.“ Að þessu sinni var raunar ekki um líkingamál að ræða; „skógræktarnefndir í Nepal“ voru hér ekki nefndar sem táknmynd fyrir „karlaveröld" eða neitt slíkt, heldur var raunverulega verið að ræða þessar til- teknu skógræktamefndir. I Nepal eru þessar skógræktamefndir ráðandi um nýtingu skóga - í þeim sitja nær eingöngu karlar og þykir áhugafólki um jafnrétti kynjanna horfa til vand- ræða hve erfitt hefur verið að fá konur til starfa í þeim. Fyrirlesari um málið var skógræktarráðunautur Vest- urlands. Titringur vegna Evrópukosningar Það var ekki laust við að ýmsum þætti formaður framkvæmdastjómar Sam- fylkingarinnar, Stefán Jón Hafstein, gefa tóninn um yfirvofandi Evrópukosn- ingu Samfylkingarinnar í nýlegri grein í Morgun- blaðinu. I stóram dráttum var það niðurstaða greinar- innar að þeir flokksmenn sem svöruðu spumingunni í könnuninni neitandi væru alfarið á móti aðild íslands að ESB en að þeir sem svöruðu játandi væru ekki endilega eindregið hlynntir aðild, heldu vildu láta reyna á hvort viðundandi samningar næðust í viðræð- um. Andstæðingar ESB innan Samfylkingarinnar eru sagðir síður en svo ánægðir með þessa „meldingú' frá framkvæmdastjóminni og raunar „hlutlausa" Evrópu- kynningu flokksforystunnar almennt í aðdraganda póst- kosningarinnar.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.