Dagblaðið Vísir - DV - 01.10.2002, Page 20
20
i
Fólk í fréttum
95 ára
Þóra Jónsdóttir,
Snorrabraut 58, Reykjavík.
85 ára
Ása Torfadóttir,
Hringbraut 48, Reykjavík.
Ásta Einarsdóttir,
Vogatungu 111, Kópavogi.
Hulda Sigurbjörnsdóttir,
Víöilundi 24, Akureyri.
Þórdis Siguröardóttir,
Austurvegi 5, Grindavík.
80 ára
Ingveldur Jónína Þórðardóttir,
Holtsbúð 87, Garöabæ.
Kristján Eiríksson,
Sundabúð 1, Vopnafirði.
Páll G. Pálsson,
Arnarhrauni 5, Hafnarfirði.
75 ára
Asgeir Gunnlaugsson,
Suöurengi 1, Selfossi.
Einar Bjarnason,
Höfðagötu 4, Stykkishólmi.
70 árg
Auður Kristjánsdóttir,
Kistuholti 7, Selfossi.
Erla Karlsdóttir,
Jörundarholti 40, Akranesi.
Guðleifur Sigurjónsson,
Sunnubraut 38, Keflavík.
Hreinn Kristinsson,
Ystabæ 7, Reykjavík.
Ingibjörg Eggertsdóttlr,
Kleppsvegi 120, Reykjavík.
Þóra Sigurjónsdóttir,
Engihjalla 3, Kópavogi.
60 ára
Bernharð Linn,
Spóahöfða 12, Mosfellsbæ.
Guðmundur Þorsteinsson,
Blöndubakka 9, Reykjavík.
Jónína Guðmundsdóttir,
Rjúpufelli 7, Reykjavík.
Jónína Slgurðardóttir,
Mávahllö 33, Reykjavík.
Tómas Rögnvaldsson,
Seljabraut 36, Reykjavík.
Aðalsteinn Víglundsson
þjálfari Fylkis, meistaraflokks karla
Aöalsteinn Víglundsson, þjálfari
Fylkis, meistaraflokks karla í knatt-
spyrnu, má vera hreykinn af sínu
liði í sumar. Fylkismenn uröu í
öðru sæti í íslandsmótinu og urðu
bikarmeistarar, annað árið í röð,
eftir 3-1 sigur á Fram á Laugardals-
vellinum á laugardaginn var.
Starfsferill
Aðalsteinn fæddist á Akranesi
19.7. 1965 og ólst þar upp. Hann var
í Bamaskóla á Akranesi, lauk þar
grunnskólaprófi, stundaði nám við
Fjölbrautaskóla Vesturlands á
Akranesi, lauk þar sveinsprófi í raf-
virkjun 1987, stundaði nám við
Tækniskóla íslands 1987-89, stund-
aði nám við Tækniháskólann í
Odense í Danmörku 1990-93 og lauk
þar tæknifræðiprófi 1993.
Aðalsteinn var tæknifræðingur
hjá AKO 1993-96 og hefur verið
tæknifræðingur hjá Marel frá 1996.
Aðalsteinn æfði og keppti í knatt-
spymu með yngri flokkum ÍA frá
sjö ára aldri, lék með meistaraflokki
ÍA 1985-90, lék með B 1909 í Odense
1990-93, gekk til liðs við Fylki og lék
með meistaraflokki Fylkis 1993-97,
var aðstoðarþjálfari Fylkis hjá Ólafi
Þórðarsyni 1998 og 1999 og aðstoðar-
þjáifari ÍA með honum 2001 en hef-
ur verið aðalþjálfari Fylkis frá
haustinu 2001.
Aðalsteinn var tvívegis íslands-
meistari í knattspymu með yngri
aldursflokkum ÍA, varð bikarmeist-
ari með meistaraflokki ÍA 1986, varð
íslandsmeistari sem aðstoðarþjálf-
ari ÍA 2001 og fagnar nú bikarmeist-
aratitli með Fylki.
Fjölskylda
Eiginkona Aðalsteins er Guðrún
Kristín Reimarsdóttir, f. 19.11. 1965,
meinatæknir við Landspítalann í
Reykjavík. Hún er dóttir Reimars
Andlát
Hjörtur Jónsson
Snæfells, símaverkstjóri hjá Land-
spítalanum á Akranesi, og Ingu
Magnúsdóttur húsmóður.
Synir Aðalsteins og Guðrúnar
Kristínar eru Amar Freyr, f. 27.3.
1989, grunnskólanemi; Ingi Þór, f.
6.9. 1995, grunnskólanemi.
Systkini Aðalsteins eru Sæmund-
ur Víglundsson, f. 17.10. 1957, bygg-
ingatæknifræðingur á Akranesi en
kona hans er Valdís Inga Valgarðs-
dóttir bankafulltrúi og á hann tvö
börn; Elís Rúnar Víglundsson, f. 8.6.
1959, vöruflutningabílstjóri í
Reykjavik en kona hans er Hrönn
Nordal verslunarmaður og á hann
tvö börn; Jónína Halla Víglunds-
dóttir, f. 15.1. 1969, kerfisfræðingur
og hjúkrunarfræðingur i Raufoss í
Noregi en maður hennar er Harald-
ur Ingólfsson, atvinnumaður í
knattspymu og eiga þau tvö böm.
Foreldrar Aðalsteins: Víglundur
Elísson, f. 7.12. 1929, verkamaður á
Akranesi, og k.h., Unnur Þórdís Sæ-
mundsdóttir, f. 17.11. 1936, d. 18.7.
1995, húsmóðir og starfsstúlka.
Ætt
Víglundur er bróðir Gunnlaugs
efnafræðings. Víglundur er sonur
Elísar Bergs, b. í Laxárdal í Bæjar-
hreppi á Ströndum Þorsteinssonar,
b. 1 Hrútatungu og á Hlaðhamri Þor-
steinssonar, b. í Hrútatungu Jóns-
sonar. Móðir Þorsteins Þorsteins-
sonar var Ólöf Guðmundsdóttir, b. á
Tannstööum Guðmimdssonar. Móð-
ir Elísar Bergs var Ingibjörg Bjarna-
dóttir, b. á Skarfhóli í Miðfirði
Bjamasonar.
Móðir Víglundar var Guðrún
Benónýsdóttir, b. í Laxárdal Jónas-
sonar, oddvita 1 Jónsseli Jónssonar.
Móðir Benónýs var Guðrún Magn-
úsdóttir. Móðir Guðrúnar Benónýs-
dóttur var Sigríður Guðmundsdótt-
ir, b. í Laxárdal Bjamasonar, á
íslendingaþættir
Umsjón: Kjartan Gunnar Kjartansson
50 ára__________________________________
-------------- Elsa Jónsdóttir
verslunarmaöur,
Dælengi 9, Selfossi.
Eiginmaður hennar er
Árni Benediktsson. Þau
taka á móti ættingjum
og vinum í Oddfellow-
-------------- húsinu, Vallholti 19,
Selfossi, laugard. 5.10. frá kl. 20.00 og
fram eftir kvöldi.
Garðar Eiríksson
skrifstofustjóri Mjólkurbús Flóamanna,
Réttarholti 6, Selfossi.
Helga Þórarinsdóttir,
Vogalandi 12, Reykjavík.
Hermann Þórisson,
Túngötu 37, Reykjavík.
Hilmar Pálsson,
Hafraholti 18, Isafirði.
Hólmfríður Ósk Jónsdóttir,
Borgarhlíð 3e, Akureyri.
Kristjana S. Hjálmarsdóttir,
Kögunarhæð 4, Garöabæ.
Mariena Margrét Einarsson,
Heiðarholti la, Keflavík.
Siguriaug Sveinsdóttir,
Grænuhlíð 20, Reykjavik.
Steinunn Torfadóttir,
Hvannhólma 6, Kópavogi.
Vilhjálmur Óskarsson,
Fagrahjalla 26, Kópavogi.
40ára___________________________________
Alda Særún Guðbjörnsdóttir,
Seljabraut 38, Reykjavík.
Anna Gyða Gylfadóttir,
Engihjalla 11, Kópavogi.
Auður Slgríður Kristinsdóttir,
Eiðistorgi 15, Seltjarnarnesi.
Ágúst Vilhelm Steinsson,
Strembugötu 10, Vestmannaeyjum.
Björn Sævar Einarsson,
Berjarima 45, Reykjavík.
Guðlaugur Þröstur Bjarnason,
Hæöargerði 6, Reyðarfiröi.
Guðmundur Karl Bergmann,
Berjarima 27, Reykjavík.
Jón Björgvinsson,
Hverfisgötu 4, Hafnarfirði.
Kristján Björn Tómasson,
Rfumóa 2, Njarðvík.
Kristján Einar Gíslason,
Holtsbúð 6, Garðabæ.
Lena Sædís Kristinsdóttir,
Arnarhrauni 24, Hafnarfiröi.
Ragnhelður Eva Birgisdóttir,
Nónhæö 1, Garðabæ.
Sigrún Sigmundsdóttir,
Jörundarholti 19, Akranesi.
kaupmaður
Hjörtur Jónsson kaupmaður lést
á Landspítalanum í Fossvogi þriðju-
daginn 24.9. sl. Útfor hans fór fram
frá Dómkirkjunni í gær.
Starfsferill
Hjörtur fæddist í Saurbæ í Vatns-
dal í Austur-Húnavatnssýslu 12.11.
1910 og ólst upp í Vatnsdalnum
fyrstu fjórtán árin en flutti þá til
Reykjavíkur og var í foreldrahúsum
meðan hann var i skóla. Hann lauk
prófi frá Verzlunarskóla íslands
1929.
Að námi loknu hóf Hjörtur skrif-
stofustörf hjá Eimskipafélagi ís-
lands, vann þar í bókhaldi 1929-42,
og var aðalbókari 1943-44, er hann
sneri sér að rekstri eigin fyrirtækja.
Hjörtur stofnaði verslunina
Olympíu 1938, starfrækti, ásamt eig-
inkonu sinni, Lífstykkjaverksmiðj-
una Lady, sem hún stofnaði 1937 og
rak í fimmtiu ár. Hann var formað-
ur og framkvæmdastjóri Uppsala
hf., verslunarhúss sem hann reisti
að Laugavegi 26 1958-63 og stofnaði
Húsgagnahöllina 1964, með Jóni,
syni sínum.
Hjörtur var hluthafakjörinn end-
urskoðandi Eimskipafélagsins
1945-58, sat í stjórn og fram-
kvæmdastjórn Verslunarráðs ís-
lands 1952-59 og 1970-71, sat i skóla-
nefnd VÍ 1951-55 og var formaður
hennar 1953-55, sat í stjóm Lífeyris-
sjóðs verslunarmanna í tuttugu og
eitt ár frá stofnun og formaður
sjóðsins 1956-77, sat í stjóm Fjár-
festingarfélags íslands frá stofnun
Borðeyri Hallgrímssonar. Móðir
Guðmundar í Laxárdal var Guðrún
Guðmundsdóttir. Móðir Sigríðar
var Anna Kristín ljósmóðir Jóns-
dóttir, b. í Laxárdal Hallgrímssonar.
Unnur Þórdís var systir Pálma,
sparisjóðsstjóra og hreppstjóra.
Unnur Þórdís var dóttir Sæmundar,
hreppstjóra og oddvita í Heydal í
Bæjarhreppi Guðjónssonar, hrepp-
stjóra og oddvita í Heydal og á Borð-
eyri Ólafssonar. Móðir Sæmundar
var Ingibjörg Sæmundsdóttir.
Móðir Unnar Þórdísar var Jó-
hanna Brynjólfsdóttir, b. í Bakka-
seli, bróður Lýðs, afa Þórðar Sæ-
mundssonar, símstöðvarstjóra á
Hvammstanga, föður Sveins Helga,
skattstjóra í Reykjanesumdæmi, og
sem fulltrúi Lífeyrissjóðs verslunar-
manna 1971-80, í stjóm Húnvetn-
ingafélagsins og formaður þess 1946,
í stjórn Félags vefnaðarvörukaup-
manna, í stjóm Kaupmannasamtaka
íslands um árabil og formaður
þeirra 1970-73, og var þátttakandi í
ýmsum öðrum félögum og samtök-
um.
Hjörtur var eindreginn talsmaður
frjálsrar verslunar, athafnafrelsis og
óskoraðs kosningaréttar og skrifaði
Qölda greina í dagblöð og tímarit um
þessi baráttumál. Hann var vara-
þingmaður Reykvíkinga fyrir Sjálf-
stæðisflokkinn 1971-74.
Hjörtur var sæmdur heiðurs-
merki Kaupmannasamtaka íslands
og er heiðursfélagi Húnvetningafé-
lagsins
Fjölskylda
Hjörtur kvæntist 31.12.1937, eftir-
lifandi eiginkonu sinni, Þórleifu Sig-
urðardóttur, f. 8.8.1916, iðnrekanda.
Hún er dóttir Sigurðar Oddssonar,
skipstjóra og leiðsögumanns á
dönsku varðskipunum við Island, og
k.h., Herdísar Jónsdóttur húsmóður,
er bjuggu við Laugaveg.
Synir Hjartar og Þórleifar eru Jón
Hjartarson, f. 26.6. 1938, kaupmaður
ÞRIÐJUDAGUR 1. OKTÓBER 2002
DV
afa Þórs Magnússonar, fyrrv. þjóð-
minjavarðar, og Lýðs Bjömssonar
sagnfræðings. Systir Brynjólfs var
Oddhildur, langamma Gunnlaugs
kaupmanns, föður Gunnlaugs Sæv-
ars, framkvæmdastjóra Urðar,
Verðandi Skuldar. Brynjólfur var
sonur Sæmundar, b. I Hrafnadal
Lýðssonar, hreppstjóra í Hvítuhlíð
Jónssonar, b. í Skádholtsvík Hjálm-
arssonar, ættföður Tröllatunguætt-
ar Þorsteinssonar. Móðir Lýðs var
Sigríður Andrésdóttir, ættföður
Ennisættar Sigmundssonar. Móðir
Jóhönnu var Guðrún Þorleifsdóttir,
b. á Ölkeldu í Staðarsveit Jónsson-
ar, og Elínar Guðmundsdóttur.
í Reykjavík, kvæntur Maríu Júlíu
Sigurðardóttur húsmóður og eiga
þau þrjár dætur, Áslaugu, Herdísi
og Guðrúnu Þóm; Sigurður Hjartar-
son, f. 13.12. 1941, kaupmaður í
Reykjavík, kvæntur Eddu Sigríði
Sigfúsdóttur kaupkonu og eiga þau
tvo syni og eina dóttur, Hjört, Birgi
og Þórleifu; Gunnar Hjartarson, f.
4.1.1946, framkvæmdastjóri í Garða-
bæ, kvæntur Sigríði Baldursdóttur
íslenskufræðingi og eiga þau tvær
dætur, Guðrúnu og Helgu Margréti.
Hálfsystir Hjartar: Anna Bene-
diktsdóttir, f. 25.2. 1898, d. 30.3. 1985,
var gift Friðrik H. Lúðvíkssyni,
kaupmanni í Reykjavík.
Alsystir Hjartar: Helga Jónsdótt-
ir, f. 14.6. 1909, d. 31.5. 1981, var gift
Árna Steinþórssyni verkstjóra.
Kjörsystir Hjartar: Margrét Theo-
dóra Frederiksen, f. 1.3. 1917, en
hennar maður var Harry Frederik-
sen, framkvæmdastjóri i Reykjavík.
Foreldrar Hjartar voru Jón Hjart-
arson, f. 5.3.1879, d. 13.1. 1963, bóndi
í Vatnsdal í sautján ár og síðar al-
þingisvörður í Reykjavík, og k.h.,
Guðrún Friðriksdóttir, f. 28.12. 1874,
d. 16.3. 1942, húsfreyja. Þau vora
fædd á bökkum Blöndu og voru
Húnvetningar í báðar ættir.
Jarðarfarir
Þórður Elísson, Þórustíg 9, Ytri-Njarðvík,
verður jarðsunginn frá Ytri-Njarðvíkur-
kirkju þriðjud. 1.10. kl. 14.00.
Pétur Frlðrik Sigurösson listmálari,
verður jarðsunginn frá Háteigskirkju
þriðjud. 1.10. kl. 15.00.
Tómas ísfeld, Skólavegi 25, Vest-
mannaeyjum, verður jarðsunginn frá Bú-
staðakirkju þriðjud. 1.10. kl. 13.30.
Erlendur Jónsson, Kópavogsbraut la,
Kópavogi, veröur jarðsunginn frá Kópa-
vogskirkju þriðjud. 1.10. kl. 13.30.
m
Þórarinn Olgeirsson útgerðarmaður
fæddist 1. október 1883 á Valdastöðum í
Sandvíkurhreppi. Hann var sonur Olgeirs
Þorsteinssonar, síðast bónda og hrepp-
stjóra í Vogsósum í Selvogi, og k.h.,
Steinunnar Einarsdóttur húsfreyju.
Þórarinn tók skipstjórnarpróf frá
Stýrimannaskólanum i Reykjavík
1909. Hann fór ungur til sjós, fyrst á
opnum bátum og skútum og síðan á
togurum. Þórarinn réð sig háseta á
skútuna Agnesi 1899 og var síðan á
ýmsum skútum við Faxaflóa. Hann var
háseti á togaranum Max með Eldeyjar-
Hjalta 1907-1908, var þar síðan stýrimaður
og loks skipstjóri, var skipstjóri á Great Ad
miral 1912-1915, skipstjóri á Jarlinum um
Þórarinn Olgeirsson
skeið, skipstjóri á Belgaum 1919, á Júpiter
1925-1929, á Venusi 1929-1936 og loks á
King Sol, einum stærsta togara Breta.
Þórarinn var jafnframt útgerðarmað-
ur frá 1906. Hann flutti til Grimsby á
Englandi 1915 og var þar búsettur
lengst af síðan að undanskildum árun-
um 1940-1943 er hann var búsettur í
Fleetwood. Hann var lengi umboðs-
maður íslenskra togaraeigenda í Bret-
landi frá 1940, var vararæðismaður ís-
lands í Grimsby á árunum 1948-1954 og
síðan ræðismaður íslands þar í fjölda
ára frá 1954, var heiðursfélagi Félags
íslenskra botnvörpueigenda og sæmdur
riddarakrossi og stórriddarakrossi fyrir
störf sína á sjó og i landi.