Dagblaðið Vísir - DV - 01.10.2002, Page 27
ÞRIÐJUDAGUR 1. OKTÓBER 2002
27
x>v _____ ______________________________________________________Sport
Lagt er aö Sam Torrance að halda áfram sem fyrirliði Ryder-liðsins
Torrance segir Langer
verða frábæran fyrirliða
- Curtis Strange ekki kennt um ófarir Bandaríkjamanna
Fyrir Ryder-keppnina um síðast-
liðna helgi hafði fyrirliöi evrópska
liðsins, Sam Torrance, lýst því yfir
að hann myndi ekki halda áfram
sem fyrirliði liðsins. Leikmenn og
aðstandendur evrópska liðsins
vonast þó til þess að Torrance end-
urskoði þessa ákvörðun sína og
bjartsýnustu menn segja að það
séu teikn á lofti um að hann sé að
gera það.
Verst allra frétta
Torrance sjálfur verst þó allra
frétta af málinu. „Að taka ákvörð-
un um framtíðina núna er ekki efst
í huga mér og ég er nú eiginlega
ekki að hugsa um þetta mál. Sum-
ir liðsmanna spurðu mig sigur-
kvöldið hvort ég ætlaöi ekki að
halda áfram en þeir voru allir fúll-
ir,“ sagði Torrance.
Ef Torrance stendur við ákvörð-
un sína um að hætta kemur upp sú
spurning hver muni taka við stöð-
unni. Þeir sem helst eru nefndir til
sögunnar eru Bernhard Langer,
einn af þeim sem lögðu grunninn
að sigrinum, Ian Woosnam, aðstoð-
armaður Torrance, og Nick Faldo.
Hrifnastur af Langer
Sam Torrance er sjálfur hrifn-
astur af hugmyndinni um að Þjóð-
veijinn Bernhard Langer taki við
liðinu. „Ég er alveg sannfærður
um að hann verður fyrirliði liðsins
en ég veit bara ekki hvenær. Hann
yrði frábær fyrirliöi."
Einn af þeim sem hafa tjáð sig
um árangur evrópska liðsins er
sjálfur Alex Ferguson, fram-
kvæmdastjóri Man. Utd og sam-
landi Sam Torrance. „Sigurinn var
frábær. Ég fagna fyrir hönd
Torrance. Hann sýndi að hann
hafði fullkomna stjórn á liðinu og
hann fór aldrei á taugum þrátt fyr-
ir að á ýmsu gengi og það er gott
að fylgjast með slíkum stjórn-
anda,“ sagði Ferguson
Ein af hetjum Evrópu var nýlið-
inn Philip Price sem fékk það erf-
iða hlutverk að leika gegn Phil
Michelson á lokadaginn og tókst
honum, það sem fyrirfram var
talið hið ómögulega; að leggja
Michelson að velli nokkuð sann-
færandi. Price er fyrirliðanum
þakklátur fyrir traustið. „Ég þakka
Jean Todt hjá Ferrari:
Fyrirskipun
ekki gefin
Stjómandi Ferrari-liðsins, Jean
Todt, hefur vísað þeim ásökunum á
bug að hann hafi skipað Micheal
Schumacher að hleypa félaga sín-
um Rubens Barrichello fram úr á
lokametrunum í Formúlu 1 keppn-
inni í Indianapolis um helgina.
Ferrari-liðið hefur verið gagnrýnt
talsvert í vetur fyrir einmitt að
vera að hagræða úrslitum á milli
þessara tveggja ökumanna eftir því
hvað hentar hverju sinni og sumir
gagnrýnendur halda því fram að
þetta sé að koma niður á iþróttinni
og að aðsókn fari þar af leiðandi
minnkandi.
Reyndar sagði Schumacher á
blaðamannafundinum eftir keppn-
ina um helgina að hann hefði nú
verið að endurgjalda Barrichello
þegar sá síðamefndi hleypti honum
fram úr í kappakstrinum í Austur-
ríki í maí. Síðan þá hefur það tví-
vegis gerst að Barrichello hefur
verið gefinn sigur af Schumacher
og nú í þriðja skiptið. -PS
Torrance fyrir að meðhöndla mig
sem raunverulegan hluta af þessu
liði en ekki einhvem gaur sem
ekki er í neinu formi en komst
samt einhvem veginn í liðið. Ég
vildi leggja eitthvað af mörkum til
liðsins og var sannfærður um að
ég gæti það,“ sagði Price.
Mitt tækifæri
Annar nýliði í liðinu átti púttið
sem tryggði endanlega sigurinn en
það var írinn Paul McGinley. „Þeg-
ar ég kom á flötina á 18. holunni
sagði hann við mig; Gerðu þetta
fyrir mig,“ sagði McGinley.
„Þegar ég stóð yfir boltanum fyr-
ir púttið vissi ég hvað var í húfi.
Þetta var sambland af spennu,
adrenalini og einbeitingu. Þetta
Það er stórleikur í G-riðli á Ólymp-
íuleikvanginum í Munchen í kvöld
þegar Bayem Munchen mætir stórliði
AC Milan sem hefur byrjað tímabilið
mjög vel og er þetta tvímælalaust stór-
leikur kvöldsins. Heimamenn verða
án Lizarazu, Deislers, Scholls og
Santa Cruz vegna meiðsla á meðan
andstæðingamir mæta með sitt
sterkasta lið. I sama riðli mætast
Deportivo og Lens en eftir slæmt tap í
síðasta leik á heimavelli verður
Deportivo að ná í þrjú stig ef liðiö ætl-
ar að gera einhverja hluti í þessari
keppni.
í H-riðli tekur Galatasaray á móti
Club Brugge en í síðustu umferð tap-
aði tyrkneska liðið á heimavelli sín-
um sem er ekki algengt. í sama riðli
fer Barcelona í ferðalag til Moskvu
þar sem það mætir Lokomotiv.
Man. Utd leikur á heimavelli við
Olympiakos frá Grikklandi en liðin
leika í F-riðli. Paul Scholes leikur að
nýju í liöi Man.Utd en ekki er víst
hvort þeir Rio Ferdinand og Veron
verða með, Ferdinand á við lítils hátt-
ar meiðsli að striða og Veron er að
var mitt tækifæri og ég leysti það.“
Eðlilega er ekki sama stemning-
in hinum megin við hafið en fjöl-
miðlar þar í landi fara mjúkum
höndum um Curtis Strange, fyrir-
liða bandaríska liðsins, og harð-
neita að ósigurinn sé honum að
kenna. Heyrst hafa efasemdarradd-
ir um að sú ákvörðun Strange á
lokadaginn að láta sína sterkustu
menn fara síðast af stað hafi verið
rétt en þar með lentu þeir á móti
veikari mótherjum Evrópu. Hins
vegar snúa Bandarískir fjölmiðlar
þessu við og tala frekar um að Sam
Torrance hafi sýnt þar snilldar-
takta með því að láta sína bestu
menn fara út fyrst en sú ákvörðun
kom flestum í opna skjöldu og þar
á meðal Curtis Strange. Þeir segja
skríða úr veikindum. í sama riðli
mætast Maccabi Haifa og Leverkusen
á Kýpur.
í E-riðli tekur Juventus á móti
Newcastle en enska liðið er enn stiga-
laust í riðlinum og ekki er líklegt að
það breytist í kvöld. Juventus mætir
með sitt stjömum prýdda lið en hins
vegar mætir Newcastle með hálf-
vængbrotið lið þar sem í það vantar
að Torrance hafi spunnið þama
eitraöan vef sem bandaríska liðið
hafi ekki sloppið út úr.
Áhorfendum hrósað
Bandarískir fjölmiölar hrósa
evrópsku leikmönnunum í hástert
og þá sérstaklega þeim Paul McG-
inley og Colin Montgomery sem
ekki alltaf hefur verið vinsæll vest-
anhafs. Þá fá áhorfendur á Belfry
sinn skerf af hólinu og hrífast
bandarískir blaðamenn af því
hvemig þeir studdu sína menn,
jafnframt því hvemig gestunum
var sýnd full kurteisi á meðan á
mótinu stóð. Eitthvað sem banda-
rískir áhorfendur hafa átt erfitt
með að gera þegar mótið er haldið
í Bandaríkjunum. -PS
einn hættulegasta mann liðsins. Craig
Bellamy er að taka út fyrsta leikinn í
þriggja leikja banni. í sama riðli mæt-
ast Feyenoord og Dynamo Kiev
Á sjónvarpsstöðinni Sýn verður
leikur Man. Utd og Olympiakos sýnd-
ur i beinni útsendingu og á eftir hon-
um leikur Bayem og AC Milan.
-PS
Blcsnd í poka
Þaó veróur enn bið á þvi að
Ronaldo leiki sinn fyrsta leik
með Real Madríd. Forvarsmenn
spænska liðsins voru að gera sér
vonir um að kappinn yrði klár í
leikinn gegn AEK í meistara-
deildinni annað kvöld en af því
verður ekki. Hann á enn við smá-
vægileg meiðsli aö stríöa og eng-
in áhætta verður tekin með þvi
að láta hann leika. Hins vegar er
fastlega búist viö að hann leiki
sinn fyrsta leik gegn Alaves á
laugardaginn kemur.
Þrátt fyrir að hið fornfræga
lið Fiorentina hafi verið dæmt
niður um tvær deildir á Ítalíu er
ekki að sjá að áhangendur liösins
hafi snúið baki við því. Um ný-
liðna helgi sóttu yfir 16 þúsund
áhorfendur leik liðsins gegn
Castelnuovo Garfagnana í 3.
deildinni. Fiorentina var dæmt
niður vegna gjaldþrots liösins og
heitir nú fullu nafni Fiorentina
Violas. Þess má geta að þaö er lið
í efstu deildinni sem eru að fá
færri áhorfendur á heimaleiki
sína og má í því sambandi nefna
Parma.
Dieter Höness, framkvæmda-
stjóri Hertha Berlín, og mark-
vörður liðsins, Gabor Kiraly,
eiga jafnvel yfir höfði sér sektir
vegna framkomu sinnar í garð
eins aöstoðardómarans í leik
liðsins gegn 1860 Múnchen. Þeir
félagar mótmæltu hástöfum
markinu sem Múnchenliðið
skoraði en Markus Schroth,
sem það gerði, handlék greini-
lega boltann áður en hann skor-
aði. Höness og Kiraly verða að
svara fyrir þetta avik hjá þýska
knattspymusambandinu.
Þaó var stór stund en trega-
full fyrir suma Lundúnabúa þeg-
ar niðurrif á gamla Wembley-
leikvanginum hófust í gærmorg-
un. Vertakar hófu þá sínu vinnu
en nýi völlurinn mun rísa á rúst-
um hins gamla. Það mun taka
fjögur ár aö byggja nýjan
Wembley sem mun hýsa um 90
þúsund manns.
Flest bendir nú til þess að
Martin O’Neill, knattspyrnu-
stjóri Celtic, geri nýjan samning
við félagið og munu aðstandend-
ur liðsins og O’Neill setjast niður
eftir leikinn við erkifjenduma í
Glasgow Rangers um næstu
helgi. Ánægja hefur verið með
störf O’Neill og þykir ekki
ólíklegt að hann skrifi undir
samning til íjögurra ára.
Franska liöiö Auxerre verður
án Djibrill Cisse í leiknum við
Arsenal í meistaradeildinni ann-
að kvöld. Hann hefur ekki verið
með í fyrstu tveimur leikjunum í
keppninni vegna meiðsla. Cisse
er einn mesti markaskorari liðs-
ins og hefur hans verið sárt
saknað í síðustu leikjum.
Velska knattspyrnusamband-
inu er í mun að gera nýjan samn-
ing við Mark Huges, þjálfara
landsliðsins. Er líklegt að það
gerist í vikunni og myndi Hug-
hes vera með samning til ársins
2006. Hann tilkynnti landsliðs-
hópinn sem mætir ítölum í und-
ankeppni Evrópumótsins í Car-
diff þann 16. október.
West Ham hefur orðið fýrir
blóðtöku en í ljós hefur komið að
Freddie Kanoute, sem meiddist
í leiknum við Chelsea um síð-
ustu helgi, verður frá í fjórar vik-
ur vegna þeirra.
Oliver Dacourt, leikmaður
Leeds, sagði eftir leik liðsins
gegn Arsenal um helgina að
Arsenal væri trúlega besta lið
Evrópu nú um stundir. Það heföi
alla burði til að standast
spænska stórveldinu Real
Madríd snúning. -JKS
Meistaradeild Evrópu í knattspyrnu heldur áfram í kvöld:
Stórleikur í Múnchen