Dagblaðið Vísir - DV - 01.10.2002, Qupperneq 29
29
Rafpóstur: dvsport@dv.is
ÞRIÐJUDAGUR 1. OKTÓBER 2002
Úrslit í öllum
flokkum
Krosshjól
1. sæti Ragnar Ingi Stefánsson
2. sæti Pétur V. Pétursson
Vélsleðar
1. sæti Elvar Guðmundsson
2. sæti Árni Grant
Fólksbílar standard
1. sæti Stefán Ásgeirsson
2. sæti Birgir K. Birgisson
Jeppar standard
X. sæti Eyþór Már Bjarnason
2. sæti Anton Ólafsson
Fólksbílar útbúnir
1. sæti Jens Herlufsen
2. sæti Jón Geir Eysteinsson
Jeppar útbúnir
1. sæti Guömundur Pálsson
Opinn Flokkur
1. sæti Kristján Skjóldal
(á nýju ísl. meti 3.539)
2. sæti Jónas Karl Harðarson
ALLT flokkar
Krossbjól og sleðar:
Elvar Guðmundsson (sleði)
Bílar
Kristján Skjóldal
Valur Vífilsson kannar skemmdirnar
á blöndungnum eftir aö geysiöflug
nitrtosprenging varö í vélinni.
en langur tími fór oft i að slétta
brautina. En í veðurblíðunni við
Kleifarvatn kom það varla að sök þó
að margir áhorfendanna væru farnir
þegar síðustu spymumar vora ekn-
ar.
Fjöldi öflugra keppnistækja var
mættur á sandinn en keppt var í sjö
flokkum. Þar bar hæst baráttu kepp-
endanna á ofurbílunum í opna flokk-
inum en Kristjáni Skjóldal frá Akur-
eyri tókst þar að bæta vikugamalt ís-
landsmet sitt sem var 3.55 sek. Það
met setti hann í Sandspymukeppni
Bílaklúbbs Akureyrar sem fram fór
við Hrafnagil í Eyjafirði. Nýja met
Kristjáns er 3.357 sek.
Kristján Skjóldal var ánægöur meö árangur dagsins en hann setti
nýttíslandsmet þegar hann ók 100 metrana á 3.539 sek
DV-myndir JAK
Létt keppni.
„Það var ekki mjög erfltt fyrir
mig að sigra í dag,“ sagði Kristján
eftir keppnina. „Bílamir hjá öllum
andstæðingum mínum biiuðu eða
þeir veltu.
Keppnisbrautirnar vora mjög mis-
góðar og var sú hægri áberandi leið-
inlegri. Hún var svo óslétt að það
vora hálfgerðir stökkpallar í henni.
Það var áberandi tímamunur eftir
því í hvorri brautinni var ekið en
svona er bara sandurinn, áðstæðurn-
ar geta verið mismunandi og braut-
imar breytast eftir því sem líður á
keppnina. Það era ekkert endilega
kraftmestu bilarnir sem sigra. Það
spilar mikil heppni inn í þetta, öku-
maðurinn hefur líka sitt að segja og
ekki sakar aö vera á Chevrolet,"
sagði Kristján að lokum, kotroskinn
með sigurinn.
Sprengdi vélina.
Valur Vífílsson keppti við Krist-
ján í undanúrslitum en sprengdi loft-
hreinsarann af vélinni hjá sér á rás-
línu armarrar viðureignar þeirra.
„Þetta fór ekki alveg eins og til var
stofnað," sagði Valur. „Millihedds-
Guömundur Pálsson sigraöi I flokki útbúinna jeppa.
Jónas Karl Haröarson á Volvo-kryppu keppti til úrslita viö Kristján
Skjóldal f Opna flokknum.
íslandsmeistaramótiö í Sandspyrnu:
Kristján Skjóldal setti
nytt íslandsmet
pakkning fór hjá mér í morgun og
við vissum að haim dró aðeins olíu
inn á cylinder. Það vill nú bara vera
þannig að ef þú setur nitroið inn á og
það fer í olíuna þá verður svona súr-
efnissprenging. Þá kemur þessi stóri
hvellur, eldur og allur pakkinn.
Kristján var búinn að vinna fyrri
ferðina okkar, rétt marði hana. Ég
ætlaði að pressa á ljósin en um leið
og ég botnaði bílinn þá dó hann og í
bríaríi stóð ég hann áfram. Þá fór
vélin niður á lágan snúning með ni-
troið inni. Þá kom bara hvellur. Það
er bara svoleiðis. Lofthreinsarinn
þeyttist af og eldhaf kom upp um
blöndunginn.
Það sér aðeins á blöndungnum því
það hefur aðeins brotnað úr honum
en engar verulegar skemmdir. Ég
held að ég hefði átt möguleika á að
vinna Kristján. Ef allt hefði verið í
lagi hefði ég alveg átt að geta verið
með á myndinni og Stjáni veit það,“
sagði Valur að lokum.
JAK
Kristján Skjóldal setti nýtt Is-
landsmet í sandspyrnuakstri í frá-
bærri keppni sem Kvartmíluklúbb-
urinn hélt við Stefánshöfða við Kleif-
arvatn á Reykjanesi. Án efa er hér
eitt besta sandspyrnukeppnissvæði
landsins og fógur umgjörð svæðisins
hafði þau áhrif á keppendur og
áhorfendur að umgengnin var hreint
til fyrirmyndar. Þegar veðurguðirnir
hafa þanið sig aöeins munu ekki
sjást þar nein merki þess að öflug-
ustu ökutækjum landsins hafi verið
gefinn þar laus taumurinn. Ef hægt
er að setja út á eitthvað er það
hversu hægt keppnin gekk fyrir sig
Fyrirliði þýska landsliðsins:
Tilbúinn að láta fyrir-
liðabandið af hendi
Oliver Kahn, fyrirliði Bayem Munchen og þýska
landsliðsins, sagði í gær að hann væri tilbúinn að láta
fyrirliðabandið í þýska landsliðinu af hendi ef þess yrði
óskað. Þetta er í kjölfar fjölmiðlaumræðu vegna brots
hans á Brdaric, leikmanni Leverkusen, þegar liðin mætt-
ust á laugardag. Kahn réðst harkalega á leikmanninn en
markvörðurinn sterki fékk að líta gula spjaldið. í kjölfar
atviksins hafa margir gagnrýnt Kahn og segja að maður
sem hagi sér svona eigi ekki skilið að bera fyrirliðaband-
ið í þýska landsliðinu. „Ef einhver álítur að ég eigi ekki
skilið fyrirliðastöðuna mun ég að sjálfsögðu hætta strax
sem slíkur," segir Kahn. -PS
Þaö er þetta atvik sem fer fyrir brjóstiö á
knattspyrnuáhugamönnum I Þýskalandi.
Evrópukeppnin í knattspyrnu:
íslenskir eftirlits-
menn á faraldsfæti
Það er í nógu að snúast hjá ís-
lenskum eftirlitsmönnum á er-
lendri grundu en í þessari viku
eru þrír fulltrúar KSÍ að staxfa á
leikjum í Evrópukeppninni í
knattspymu.
Eggert Magnússon er sérstakur
sendifulltrúi Lennarts Johanns-
son, formanns UEFA, á leik
Juventus og Newcastle í kvöld og
á leik Inter og Lyon á miðviku-
dagskvöld. Ellert B. Schram held-
ur til Noregs þar sem hann hittir
fyrir Áma Gaut Arason en Ellert
verður eftirlitsmaður á leik Ros-
enborgar og Ajax og allir eru þess-
ir leikir í Meistaradeild Evrópu.
Þá er Geir Þorsteinsson, fram-
kvæmdastjóri KSÍ, eftirlitsmaður
á leik FC Köbenhavn og Djurgaar-
den í Evrópukeppni félagsliða í
Kaupmannahöfn.
-PS
Úlfarnir útdeila smokkum
Stjórn enska knattspymufé-
lagsins Wolves, sem landsliðs-
maðurinn ívar Ingimarsson leik-
ur með, hefur ákveðið að gefa
smokka fyrir alla heimaleiki fé-
lagsins. Félagið ætlar að starf-
rækja upplýsingamiðstöð á leik-
vangi félagins tvo tíma fyrir alla
heimaleiki liðsins þar sem veitt
verður ráðgjöf varðandi heilsu
manna en i miðstöðinni verður
starfandi fagfólk á sviði heflsu-
gæslu. Það voru leikmenn liðs-
ins sem í gær opnuðu ráðgjafar-
stöðina og útdeildu fyrstu
smokkunum til aðdáenda liðs-
ins.
-PS