Dagblaðið Vísir - DV - 02.12.2002, Síða 6
22
MÁNUDAGUR 2. DESEMBER 2002
Sport
i>v
Hittni Grindvíkinga
gerði gæfumuninn
- gerðu 17 3ja stiga körfur í sigrinum gegn Breiðabliki
Breiðablik og Grindavík buöu
upp á flnan leik í Smáranum á
föstudagskvöld í leik þar sem
gestirnir úr Grindavík reyndust
sterkari I lokin og sigruðu,
101-103. Blikar fengu tækifæri til
að jafna undir lokin en skot
Bandaríkjamannsins Kenny Tate
úr erfiðu færi geigaði um leið og
leiktíminn rann út. Grindvíking-
ar voru sjöðandi heitir fyrir utan
3ja stiga línuna að þessu sinni og
héldu sér inni í leiknum með 3ja
stiga körfum. Alls skoraði liðið 17
slíkar og úr aðeins 27 tilraunum
sem er frábær nýting.
Leikurinn fór fjörlega af stað og
var mikið skoraö. Varnir beggja
liða voru kannski ekki upp á sitt
besta og fengu menn oft auðveld-
ar körfur óáreittir.
Staðan eftir fyrsta leikhluta var
30-29 og geröu Grindvíkingar rétt
rúmlega helming stiga sinna fyrir
utan 3ja stiga linuna. Áfram
héldu liðin að skora til skiptis og
var sóknarleikurinn áberandi á
kostnað varnarleiksins. Blikar
voru sterkari í leikhlutanum og
náöu aö byggja upp 11 stiga for-
skot, 62-51, sem þeir fóru með í
hálfleik. Guðlaugur Eyjólfsson
skoraði fjórar 3ja stiga körfur í
öðrum leikluta fyrir Grindavík og
var því kominn með sex slíkar i
fyrri hálfleik.
Heimamenn komust síðan mest
13 stigum yfir í þriðja leikhluta,
80-67, en þá fór að síga á ógæfu-
hliðina. Sóknarleikur liðsins
snerist mikið um einstaklings-
framtak og að sama skapi voru
Grindvíkingar búnir að herða
vörnina hjá sér. Blikar leiddu
með fimm stigum eftir þriðja leik-
hluta en það var ekki lengi þvi
Darrell Lewis byrjaði síðasta leik-
hlutann á tveimur 3ja stiga körf-
um og Grindvíkingar komnir yflr.
Blikar náðu að rétta úr kútnum
og kom Þórólfur Þorsteinsson
Blikum aftur þremur stigum yfir,
92-89, með góðri 3ja stiga körfu.
Gestirnir svöruðu með þremur
3ja stiga körfum frá Guðlaugi,
Lewis og Bjarna Magnússyni og
voru komnir átta stigum yfir þeg-
ar skammt var eftir af leiknum.
Blikar gáfust ekki upp og minnk-
uðu muninn í tvö stig þegar sjö
sekúndur voru eftir og brutu á
Guðmundu Bragasyni þegar fimm
sekúndur voru eftir. Hann fór á
vítalínuna og klikkaða úr báðum
vítaskotum sínum og Tate náði
frákastinu og brunaði fram og
náði skoti sem geigaði.
Blikarnir klaufar
Blikar léku vel mestallan leik-
inn og voru klaufar aö tapa þessu
niður. Pálmi Sigurgeirsson var i
miklu stuði og lék vel og var jafn-
besti leikmaður liðsins. Tate lék
gríðarlega vel í fyrri hálfleik en
komst ekkert áleiðis í þeim seinni
og var mistækur. Mirko Virijevic
stóð fyrir sínu og átti fínan leik
en þessir þrír leikmenn sjá um að
skora bróðurpart stiga liðsins.
Jón
Arnar Ingvarsson stjórnaði leik
liðsins með ágætum þegar hann
var inni á og hefði mátt spila
meira og Þórarinn Andrésson
stóð sig vel þann tíma sem hann
var inni á. Sóknarleikur liðsins
var þó frekar þunglamalegur þeg-
ar hann, Mirko og Tate voru þar
allir saman.
Lewis átti stórleik
Hjá Grindavík átti Lewis stór-
leik. Hann var með þrefalda
tvennu þar sem hann tók 13 frá-
köst og gaf 13 stoðsendingar
ásamt því að skora 29 stig og
halda Tate niðri í seinni hálfleik.
Guðlaugur var sjóðandi heitur og
skoraði átta 3ja stiga körfur úr að-
eins 11 tilraunum og Páll Axel
Vilbergsson var góður í fyrri hálf-
leik. Þá átti Bjarni mikilvægar
körfur í lokin og Guðmundur var
traustur.
-Ben
Breiðablik-Grindavik 101-103
0-2, 9-5, 16-12, 24-19, (30-29), 36-36, 41-36,
4045, 55-45, (62-51). 62-54, 71-62, 80-67,
80-73, (84-79), 84-87, 89-87, 92-89, 92-95,
95-103, 101-103.
Stig Breióabliks: Pálmi Sigurgeirsson 31,
Kenneth Tate 25, Mirko Virijevic 21, Frið-
rik Hreinsson 9, Þórólfur Þorsteinsson 5,
Þórarinn Andrésson 5, Jóhannes Hauksson
3, Jón Amar Ingvarsson 2.
Stig Grindavikur: Darreel Lewis 29, Guð-
laugur Eyjólfsson 24, PáU Axel Vilbergsson
18, Guðmundur Bragason 12, Helgi Jónas
Guðfmnsson 10, Bjarni Magnússon 8,
Nökkvi Már Jónsson 2.
Dómarar
(1-10): Eggert
Aðalsteinsson
og Björgvin
Rúnarsson (8)
Gϗi leiks
(1-10): 8.
Áhorfendur:
Um 200.
Maður leiksins:
Darrell Lewis, Grindavík.
Fráköst: Breiöablik 50 (25 í sókn, 25 í
vöm, Mirko 17, Tate 13), Grindavík 26 (8 í
sókn, 18 í vöm, Lewis 13).
Stoösendingar: Breiöablik 22 (Jón Amar
7), Grindavík 28 (Guölaugur 7).
Stolnir boltar: Breiöablik 9 (Tate 3,
Pálmi 3), Grindavík 7 (Guðlaugur 3).
Tapaöir boltar: Breiöablik 13, Grinda-
vík 14.
Varin skot: Breiðablik 6 (Mirko 4),
Grindavík 10 (Páll Axel 5).
3ja stiga: Breiöablik 26/7, Grindavík
26/17 .
Víti: Breiöablik 18/12, Grindavík 17/10.
Hamar-Snæfel! 77-74
0-2, 2-4, 4-11, 9-18, 16-20, 21-20, (26-22),
26-24, 28-30, 32-35, 34-37, 41-37, (42-39),
44-39, 46-41, 57-49, (59-57), 61-57, 65-60,
70-60, 71-69, 75-71, 75-74, 77-74.
Stig Hamars: Robert O’Kelley 31, Svavar
Birgisson 14, Lárus Jónsson 14, Marvin
Valdimarsson 6, Svavar Páll Pálsson 6,
Hjalti Pálsson 3, Hallgrimur Brynjólfsson 3.
Stig Snœfells: Clifton Bush 38, Hlynur E.
Bæringsson 22, Georgi Bujukliev 5, Jón
Jónsson 4, Lýður Vignisson 3, Helgi Guð-
mundsson 2.
Dómarar
(1-10): Einar
Skarphéðinsson
og Leifúr Garð-
arsson (8)
Gœði leiks
(1-10): 7.
Áhorfendur:
340.
Maður leiksins:
Clifton Bush, Snæfelli.
Fráköst: Hamar 42 (10 í sókn, 32 í
vöm, Svavar B. 10, Marvin 10), Snæfell
52 (17 í sókn, 35 í vöm, Clifton 20).
Stoösendingar: Hamar 18 (Lárus 6),
Snæfell 11 (Daði 3 og Hlynur 3).
Stolnir boltar: Hamar 11 (Marvin 3
og Svavar 3), Snæfell 11 (Lýður 4).
Tapadir boltar: Hamar 11, Snæfell
18.
Varin skot: Hamar 4 (Hjalti 2), Snæ-
fellO.
3ja stiga: Hamar 22/6, Snæfell 25/5.
Viti: Hamar 16/11, Snæfell 18/13.
Kenneth Tate skorar hér úr hraðaupphlaupi fyrir Breiðablik gegn Grindvíkingum en alls skoraði hann 25 stig í
leiknum. DV-mynd E.ÓI.
Formanninum að þakka
- þegar Hamar sigraði Snæfell í Hvera-
gerði á föstudagskvöldið, 77-74
Leikur Hamars og Snæfells var
sannkallaður baráttuleikur, bæði
liðin urðu að vinna til að sitja
ekki eftir í botnbaráttunni. Snæ-
fellsmenn byrjuðu miklu betur,
þeir náðu strax forustu og voru
yfír framan af fyrsta leikhluta,
Hamarsmenn náðu þó aö komast
yfir í lok fyrsta leikhluta. í öðrum
leikhluta var jafnræði með liðun-
um og skiptust þau á að hafa for-
ustu. Hamar var yfir í hálfleik,
42-39. í þriðja og fjórða leikhluta
hafði Hamar yfirhöndina og náði
mest tíu stiga forustu en Snæfells-
mönnum tókst að saxa á og í lok-
inn skildu aðeins þijú stig. Þetta
er fyrsti leikur Hamars þar sem
þeir fá ekki á sig meira en áttaíu
stig í leik.
„Hvað er hægt að segja, þetta
er svo svekkjandi," sagði Bárður
Eyþórsson, þjálfari Snæfells, er
DV-Sport ræddi viö hann í leiks-
lok. „Þetta eru allt of margir leik-
ir sem við töpum á einu til þrem-
ur stigum, en við bætum okkur
þó en það virðist ekki vera nóg.
Clinton spilaði mjög vel og þeir
réðu ekkert við hann i leiknum.
Þetta fer nú vonandi að snúast
okkur í hag, ég hef allavega trú á
því,“ sagði Bárður að lokum.
Mjög sáttur
„Vömin spilaði vel og í leiks-
lok hélt ég að það væri kominn
hálfleikur miðað við hvað hafði
verið skorað. Þetta hafa oftast
verið hálfleikstölur hjá okkur.
Nei, við gerðum ágætis hluti og
það bar árangur," sagði Pétur
Ingvarsson, þjáifari Hamars.
„Þeir geta þakkað formanninn-
um þennan sigur. Ég stjórnaði
vöminni svo vel frá hliðarlínu,"
sagði Lárus Friðfmnsson, formað-
ur Hamars, kampakátur í lokin.
Hamarsliðið spilaöi mjög vel
saman, leitt af Lámsi, Svavari B.
og Robert O’Kelly. Hjalti Pálsson
kom líka sterkur inn. Hjá Snæ-
felli voru Clifton og Hlynur allt í
öllu.
-EH