Dagblaðið Vísir - DV - 04.12.2002, Blaðsíða 6

Dagblaðið Vísir - DV - 04.12.2002, Blaðsíða 6
6 MIÐVIKUDAGUR 4. DESEMBER 2002 Fréttir Ríkisútgjöld hafa stór- aukist undanfarin ár. Og nú síðast lagði meirihluti fjárlaga- nefndar til stórkost- lega aukningu á því sem ráð var fyrir gert í fjárlagafrum- varpinu. Gœluverk- efni alþingismanna? Kosningavetur? Ein- ar Oddur Kristjáns- son, varaformaður fjárlaganefndar, er ekki á því og heldur uppi vörnum. Þetta eru engar gælur Nafn: Einar Oddur Kristjánsson Aldur: 59 ára Heimili: Flateyri og Reykjavík Staöa: Varaformaöur fjárlaganefndar Alþingis Efni: Aukning ríkisútgjalda og tillögur um aukin útgjöld á fjárlögum næsta árs Ríkisútgjöld hafa aukist um fimmtung á fimm árum og núna leggur fjárlaganefnd til tvisvar sinnum meiri hækkun á útgjöldum fjárlaga en í fyrra. Hafa böndin losnað á út- gjöldum ríkisins? í fyrsta lagi er það þannig að eftir fyrstu umræðu um fjárlaga- frumvarp koma bæði ríkisstjórn og þingmenn meö tillögur að við- Döðlur Valhnetukjarnar Apríkósur ... allt sem þaifí baksturinn! bótarútgjöldum sem fjárlaga- nefnd gerir svo að sínum tillög- um. Hluti þingmanna í þessu er ekki stór. Varðandi aukninguna undan- farin ár vegur hækkun launa op- inberra starfsmanna umfram al- menna launaþróun ákaflega þungt. Starfsmenn ríkisins eru jafnháðir afkomu og viðgangi framleiðslufyrirtækjanna og allir aðrir launþegar á íslandi þannig að launaþróun þeirra sem vinna hjá ríkinu getur aldrei og má aldrei verða önnur en á almenna markaðnum. Hafa þá laun ríkisstarfs- manna að þínu mati hækkað óeðlilega mikið? Þau hafa hækkað hraðar en hjá öðrum, bæði hjá ríkinu og sveit- arfélögunum. Meö samningunum 1997 var samningsumboðið fært inn til ríkisforstjóranna. Það var röng stefna og við verðum fyrr eða síðar að hverfa frá henni. Launakostnaður er þó ekki nema um fjórðungur af ríkis- útgjöldum. Beinn launakostnaður er um 75 milljarðar en til viðbótar er óbeinn launakostnaður á mjög mörgum sviðum. Það skýrir þó ekki allt, eða hvað? Það hefur náttúrlega verið gríðarlegur hagvöxtur. Efnahags- lífið hefur stækkaö. Og það er al- veg staðreynd að ríkið hefur tek- ið til sín hluta af þeirri stækkun. Það hefur verið pólitískur vilji til að gera það. í fyrsta lagi vegna þess aö við áttum gríðarlega mik- ið af skuldum frá óreiðutímum sem okkur bar og ber aö borga niður. Það hefur verið gert svo um munar. í öðru lagi er það pólitísk stefna þessarar ríkis- stjórnar að viðhalda því velferð- arkerfi sem hér er, bæta það og efla. Yfírheyrsla Olafur Teitur Guðnason blaöamaöur Horfum við þá fram á óbreytta þróun? Nei, við vitum að við höfum ekki ráðið við rekstrarform opin- bers rekstrar. Og þess vegna ber okkur skylda til að leita allra leiöa í rekstrarformum. En þaö hefur hvergi komið fram í máli sjálfstæðismanna að þar með yrði á nokkurn hátt horfið frá þeirri samhjálp sem er pólitísk samstaða um á íslandi. Þannig að ræðan sem höfð er eftir Halldóri Ásgrímssyni á þingi framsóknar- manna um daginn er mjög alvar- legur misskilningur af hans hálfu. Meirihluti fjárlaganefndar leggur núna til viðbótarút- gjöld upp á hátt í þrjú hund- ruð milljónir til safna víðs vegar um landið. Er kominn kosningavetur? Þetta er nú ekki allt til safna, heldur margvíslegra félags- og menningarmála. En hér verður að hafa í huga að það tíðkast sá siður að margt af þvi sem var í fjárlögunum í fyrra er tekið út úr fjárlagafrumvarpinu núna. Það þurfti þess vegna að bæta þeim hlutum aftur inn. Þetta hljómar sem undarlegt verklag. Þegar við setjum þetta upphaf- lega inn er það túlkað þannig að þetta séu tímabundin framlög, en þau eru það í reynd ekki; upp- bygging ýmissa menningarstofn- ana og safna er margra ára verk- efni. Þannig að það þarf kannski að vinna þetta betur og skil- greina hve mörg ár tekur að byggja upp tiltekiö safn. Hvað með t.d. hálfa milljón til kvenfélags til þess að skrá einhverja muni? Það er gríðarlega mikið af til- tölulega lágum styrkjum til alls konar verkefna. Þarna er um aö ræða styrk til að varðveita muni frá mjög merkum skóla, Hús- mæðraskólanum Ósk á ísafirði. Þetta hefur mjög mikið gildi og ég sé enga fjarstæðu í því að styrkja það. Sum útgjöld hafa verið köll- uð gæluverkefni þingmanna. Eru þau það ekki? Gæluverkefni og ekki gælu- verkefni, allt i lagi, við getum fari í gegnum það. Endurbygging ýmissa húsa sem hafa ótvírætt menningargildi, eru það ein- hverjar gælur? Það sem hefur fengið þetta fína nafn: menning- artengd ferðaþjónusta, er það gælur? Ég held að svo sé ekki, heldur sé það markviss uppbygg- ing á verulegum verðmætum sem munu reynast íslensku þjóðlífi og efnahagslífi ákaflega þýðing- armikil. í stórum dráttum er mjög rangt að halda því fram að þingið sé að spreða peningum af ábyrgðar- leysi - þó að eflaust megi finna þess einhver dæmi, bæði nú og fyrr. Sumir þingmenn fullyrða að ráðherrar hafi það fyrir sið, að sleppa því að gera tillögur um ýmis útgjöld - og geta þannig í staðinn notað fjárheimildir sínar í önnur verkefni - í trausti þess að þingið leggi til það sem upp á vantar. Þessi grunur hefur oft verið til staðar, það er alveg rétt. Ég ætla ekki að segja að þetta sé svona, en okkur hefur oft grunað þetta. Hver er meginvandinn við gerð fjárlaga? Okkur hefur ekki tekist aö kostnaðargreina marga þætti rík- isrekstrarins. Þannig að þegar við erum að fjalla um hluti eins og sjúkrahús er þetta allt dálítið mikið limbó. Á sumum sviðum hafa orðið stórkostlegar breyt- ingar, til dæmis gagnvart skólum landsins. Þar hefur greiðslum verið komið í hlutlægt form í staðinn fyrir limbó eins og er með sjúkrahúsin. Og ég trúi því að unnið sé af miklu kappi að því að greina kostnað í heilbrigðis- þjónustunni þannig aö við getum vitað hvað við erum að gera. Það er gríðarlegt fé sett í heilbrigðis- mál og á að duga til að við höfum áfram bestu heilbrigðisþjónustu í heimi. í fyrra var útgjaldahlið fjár- lagafrumvarps dregin saman á milli 2. og 3. umræðu. Hvernig verður það nú? Útgjöldin verða ekki dregin saman nú. Inn í þriðja umræðu kemur samningurinn við ellilíf- eyrisþega og öryrkja en svo koma líka nýjar tekjur á móti. Hver verður þá afgangur af reglulegum rekstri ríkissjóðs? Hann verður rúmur milljarð- ur, eitthvað svoleiðis. Ég tel það allt í lagi. Þetta eru mjög passíf fjárlög, enda erum við í jafnvæg- isstöðu í næstum öllum þáttum þessa þjóðlífs, nema gagnvart byggö í landinu; þar er mikið ójafnvægi. l>£ REYKJAVIK AKUREYRI Sólarlag í kvöld 15.43 15.03 Sólarupprás á morgun 10.55 11.04 Siódegisflóó 18.19 22.52 Árdegisflóö á morgun 06.44 11.17 m Slydda Sunnan og suðvestan 8-13 m/s og skúrir eða slydduél sunnan- og vestanlands en hægari og víða léttskýjað noröan- og austanlands. Hiti 0 til 7 stig. B rra Hvasst Ört vaxandi sunnan- og suöaustan- átt og þykknar upp. Suðaustan 18-23 m/s og rigning sunnan- og vestan til, hvassast á annesjum Talsverð rigning. Hiti 5 til 10 stig. Veðriö næ Föstudagur Hiti 0° «13° Laugardagur Hiti 0° «15° Sunnudagur O 6 Hití 0" tii 0° Vindur: Vindun Vindur: 5-10“"* 5-10'V. 8-13 "v* t t * Sunnan og Hæg suölæg Suðaustan suóvestan 5- átt. Stóku 8-13 m/s. 10 m/s skúrir Rignlng vestan tll en suövestan- sunnan og hægari lands en austan tll en austan tll. annars skýjað meö Skúrlr. bjartvlörl. köflum og Kólnandi Hltl 0 til 5 úrkomulrtiö. veöur. stlg. Hltl 0-6 stlg. Þvtitli iftWL m/s Logn 0-0,2 Andvari 0,3-1,5 Kul 1,6-3,3 Gola 3,4-5,4 Stinningsgola 5,5-7,9 Kaldi 8,0-10,7 Stinningskaldi 10,8-13,8 Allhvasst 13,9-17,1 Hvassviöri 17,2-20,7 Stormur 20,8-24,4 Rok 24,5-28,4 Ofsaveöur 28,5-32,6 Fárviöri >= 32,7 AKUREYRI rigning 5 BERGSSTAÐIR hálfskýjað 4 BOLUNGARVÍK léttskýjað 6 EGILSSTAÐIR KEFLAVIK skúr 5 KIRKJUBÆJARKL skúr 2 RAUFARHÖFN alskýjaö 3 REYKJAVÍK léttskýjaö 5 STÓRHÖFÐI skúr 5 BERGEN skýjaö 7 HELSINKI snjókoma -5 KAUPMANNAHÖFN rigning 3 ÓSLÓ alskýjaö 0 STOKKHÓLMUR -1 ÞÓRSHÖFN rigning 8 ÞRÁNDHEIMUR léttskýjað 3 ALGARVE þokumóöa 14 AMSTERDAM alskýjaö 5 BARCELONA BERLIN þokumóöa 1 CHICAGO alskýjaö -6 DUBLIN léttskýjaö 6 HALIFAX snjóél -7 HAMBORG þokumóöa 4 FRANKFURT skýjaö 5 JAN MAYEN þokumóöa 6 LONDON rigning 7 LÚXEMBORG þokumóöa 4 MALLORCA MONTREAL NARSSARSSUAQ alskýjaö -1 NEW YORK heiðskírt -6 ORLANDO skýjaö 13 PARÍS þokuruöningur 4 VÍN súld 5 WASHINGTON heiöskírt -7 WINNIPEG heiöskírt -24 ■BEBEPBBBEHÍIi

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.