Dagblaðið Vísir - DV - 04.12.2002, Blaðsíða 15
15
MIÐVIKUDAGUR 4. DESEMBER 2002
DV____________________________________________________________________________________________________Menning
Suðrænn súludans
DV-MYND E.ÓL.
Sigurbjörg Þrastardóttir, skáld og rithöfundur
Skrífar áhrífamikla sögu um sérkennilega píslargöngu stúlku í Bologna.
Sólar saga er fyrsta skáldsaga
Sigurbjargar Þrastardóttur en
hún hefur áður sent frá sér ljóða-
bækumar Blálogaland og Hnatt-
flug. Fyrir Sólar sögu hlaut Sig-
urbjörg bókmenntaverðlaun
Tómasar Guðmundssonar og er
vel að þeim komin.
Sagan segir frá ungri, íslenskri
konu, Sól, sem stundar nám í
Bologna á Italiu. Hún er hamingjusöm í þessari fal-
legu borg sem hún dýrkar og dáir. En þegar hún
verður fyrir þeirri skelfilegu reynslu að vera
nauðgað og misþyrmt af tveimur mönnum er stoð-
unum kippt undan tilveru hennar. Þegar Sól rank-
ar við sér eftir aðhlynningu á spítala er minni
hennar gloppótt en hún man þó óljóst eftir fólkinu
sem fann hana í blóði sínu og kom henni undir
læknishendur. Andlit árásarmannanna sá hún
aldrei og veit því ekki hverjir þeir eru eða hvar þá
er að finna. Hún situr uppi með hrollvekjandi
minningar en í stað þess að flýja heim í faðm fjöl-
skyldunnar einsetur hún sér að ná aftur áttum í
borginni sem hún elskar. Hún leggur upp í sér-
kennilega píslargöngu, en áður hefur hún losað sig
við áhyggjufullar og ástríkar vinkonur sínar með
því að segjast ætla til íslands. Þær anda léttar og
fara rólegar í sumarfríið en þar sem áætlun Sólar
krefst einveru pakkar hún niður og flytur sig um
set innan borgarinnar.
Bókmenntir
Áætlunin gengur út á að faðma hverja einustu
súlu borgarinnar og þannig hyggst Sól ná sáttum
við borgina og örlög sín. Um leið má líta á súlunar
sem fallustákn og áætlunina sem ómeðvitaða til-
raun Sólar til þess að sættast við árásarmennina.
Hún heldur bókhald yfir faðmaðar súlur og hægt og
hægt nálgast hún takmark sitt; að hafa tekið alla
borgina í faðm sér, fyrirgefið og um leið svipt hana
vondum minningum.
Meðan á verkefninu stendur hugsar Sól margt og
hugurinn hvarflar til skiptis frá Italíu til Islands.
Hún rifjar upp atriði úr bernsku sinni og lesandinn
áttar sig á að Sól hefur verið einrænt og sérkenni-
legt barn. Henni finnst gott að þegja og vera ein
með sjálfri sér, þolir illa líkamlega snertingu og
kemur sér í hvarf hvenær sem færi gefst. Eftir
dauða ömmu sinnar tekur hún sér nafnið Sól en ein
merking orðsins sol á ítölsku er einsemd. Það er
táknrænt; Sól er mörkuð einsemdinni alla tíð og
eftir nauðgunina verður hún henni alveg að bráð.
Sjálfsmyndin splundrast við áfallið og er sorglegt
að fylgjast með Sól þar sem hún mátar sig inn í
hvert hlutverkið á fætur öðru, allt frá hefðarkonu
á 5 stjömu hóteli niður í hóp útigangsmanna. En í
stað þess að nálgast kjarna sinn að nýju fjarlægist
hún sjálfa sig og aðra meira og meira og rambar á
brún geðveikinnar.
Sigurbjörg Þrastardóttir útfærir þekkt en vand-
meðfarið stef, nauðgun og ofbeldi, í texta sem er
bæði vel skrifaður og einstaklega myndrænn. Höf-
undur veltir lesendum ekki upp árásanni sjálfri
heldur kemur henni á framfæri í brotakenndum
lýsingum víðs vegar í textanum. Það að lesandinn
skuli þurfa að endurskapa atburði sjálfur eykur
áhrifamátt textans og gerir ástand Sólar trúverð-
ugra. Hún er í brotum, meidd, svívirt og hjálpar-
vana og flöktandi hugsanir hennar eru til vitnis
um manneskju sem svipt hefur verið því fallegasta
sem hún átti: trúna á lífið og ástina.
Sólar saga er kraftmikil og sannfærandi saga um
eftirköst og afleiðingar ofbeldis og boðskapur sög-
unnar er greinilega sá að manneskja sem þarf
nauðug viljug að þola innrás í eigin líkama jafnar
sig aldrei.
Sigríður Albertsdóttir
Sigurbjörg Þrastardóttir: Sólar saga. JPV-útgáfa 2002.
Sagan af
furdufugli
Tveir furðufuglar, rithöfundurinn
Sjón og myndlistarmaðurinn Daði
Guðbjömsson, hafa tekið höndum
saman og búið til bók sem er engri
annarri lík - bók um furðufugl sem
börn geta endalaust skoðað, saman
og I einrúmi.
Furðufuglinn er í raun og sann-
leika furðulegur, en hvað er það sem
gerir hann svona furðulegan? Er það
goggurinn? Eru það fætumir - eða
stélið? Er það hausinn eða kannski
augun? Eða er það dansinn sem hann
dansar þegar hann hittir ókunnuga?
Það er alveg hægt að lofa þvi að fugl
eins og þennan hafið þið aldrei séð
fyrr en vel getur farið svo að þið tak-
ið undir með honum og syngið lagið
hans: „Killí - dillí - dú, síllí - bíllí -
fú!“
Myndir Daða em litríkar eins og
hans er vandi og gaman fyrir tilvon-
andi listamenn að sjá nákvæmlega
hvemig svona furðudýr er byggt upp.
Og viðbúið að íbúðarveggir og til-
fallandi pappírsblöð fyllist af furðu-
fuglum ... Mál og menning gefur bók-
ina út.
BORGARLEIKHUSIÐ
Leíkféiag Reykjavikur
STÓRA SVIÐ
SÖLUMAÐUR DEYR
e. Arthur Millcr
Fö. 6/12 kl. 20.
Lau. 28/12 kl. 20.
HONKl UÓTI ANDARUNGINN
e. George Stiles ogAnthony Drewe
Gamansöngleikurfyrir allajjölskylduna.
Lau. 7/12 kl. 20. ATH. Kvöldsýning.
Su. 8/12 kl. 14.
MEÐ VÍFIÐ í LÚKUNUM
e. Ray Cooney
Fi. 5. des. kl. 20 - AUKASÝNING.
Fi. 12. des. kl. 20 - AUKASÝNING.
Ath. Allra síðustu syningar._____
NÝJA SVIÐ
JÓN OG HÓLMFRÍÐUR
Frekar erótískt leiktrit íprem páttum
e. Gabor Rassov
Lau. 7/12 kl. 20.
Lau. 28/12 kl. 20.
JÓLAGAMAN
Jólasveinakvteði Jóhannesar út Kötlum í
leikbúningi o.fl.
Lau. 7/12 kl. 15.
Lau. 14/12 kl. 15.
ÞRIÐJA HÆÐIN
HERPINGUR eftirAuðiHaralds
HINN FULLKOMNI MAÐUR
eftir Mikael Torfason
(SAMSTARFI VIÐ DRAUMASMIÐJUNA
Lau. 28/12 kl. 20, Fö. 10/1 kJ. 20.
LITLA SVIÐ
RÓMEÓ OG JÚLÍA e. Shakespeare
í SAMSTARFI VIÐ VESTURPORT
Mi. 4/12 kl. 20.
Su. 8/12 kl. 20.
Má. 30/12 kl. 20.
Ath: breyttan sýningatíma.
FORSALUR
BROT AF ÞVÍ BESTA -
UPPLESTUR OG TÓNLIST
J<^/ íKringlusafni ogBorgarleikhús 'u
Rithöfundar lesa úr verkum sínum.
Fi. 5/12 kl. 20.
Fi. 12/12 kl. 20.
GJAFAKORT I LEIKHUSIÐ -
FRÁBÆR JÓLAGJÖF
Sól & Máni - Nýr íslenskur söngleikur eftir
Sálina hans Jóns míns og Karl Ágúst Úlfsson
FORSALA AÐGÖNGUMIÐA STENDUR YFIR.
TILBOÐSVERÐ, KR. 2.800, GILDIR TIL JÓLA.
Frumsýning n. janúar
SINFÓNÍUHLJÓMSVEIT ÍSLANDS
Elnstök stund
ííslensku
tónlístarlífl
Aðventutónleikar
1 HaUgrímskirkju
Johann Sebastian Bach:
Jólaóratóría
5. og 6. des. kl.19.30 og
7. des. kl.17.00
Tveir af okkar
fremstu
söngvurum,
Gunnar
Guðbjömsson og
Marta Guðrún
Halldórsdóttir,
taka höndum
saman með
heimsþekktum kollegum sínum,
Andreas Schmidt og Monica
Groop.
Sinfóníuhljómsveit íslands og
Mótettukór Hallgrímskirkju
undir stjórn Harðar
Áskelssonar, flytja þessa
mögnuðu jólagleðitónlist.
www.hhh.is
Grettissaga
Saga Grettis. Leikrit eftir Hilmar Jónsson.
Byggt á Grettissögu
Lau. 7. des., nokkur sæti
Þri. 17. des., uppselt
Sun. 29. des. Hátíðarsýning, iaus sæti
Sellófon
eftir Björk Jakobsdóttur
Mið. 4. des., nokkur sæti
Fös. 6. des., uppsclt
Mið. 11. des., Félagsheimilinu Klifi, Ólafsvik
Fös. 13. des. Lokasýning fyrir jól,
nokkur sæti
Sýningarnar á Sellófon hcfjast kl. 21.00
Miðasala í síma 555-2222
SKJALLBANDALAGIÐ KYNNIR
í IÐNÓ
Fim. 5/12 kl. 21 Örfá sæti
Fös. 6/12 kl. 21 50. sýning - uppsett
Fös. 13/12 kl. 21 Nokkur sæti -
síðasta sýning fyrir jól
Miðasalan í Iðnó er opin frá 10-16
alla virka daga, 14-17 um helgar og
frá kl. 19 sýningardaga. Pantanir í
s. 562 9700. Ósóttar pantanir eru
seldar 4 dögum fyrir sýningar.
Hin smyrjandi Jómfrú
Nærondi leiksýning fyrir líkamo og sól.
Sýnt íIðnó:
Lau. 7. des. kl. 20. Laus sæti.
Sun. 8. des. kl. 15. Laus sæti.
Sun. 8. des. kl. 20. Uppselt.
Lau. 14. des. kl. 20.
Sun. 15. des. kl. 15 og20.
(Síðustu sýningar fyrir jól.)
Smurbrauðsmáltíð innifalin í miðaverði.
Miðasala í Iðnó, s. 5629700
Forsala aðgöngumiða
er hafin
Tilboðsverð kr. 2.800 (fullt verð 3.100)
Gildir til Jóla
Gjafakort á Sól og Mána - tilvalin jólagjöf
Tilboðsverð gildir til Jóla
Syningar hefjast 11. janúar
Tryggið ykkur [niða
so
Eftir Sálina hans Jóns míns
og Karl Ágúst Úlfsson
Leikstjóri: Hilmarjónsson
BORGARLEIKHUSIÐ
Sálin hans Jóns míns
Leikfélag Reykjavíkur
íslenski dansflokkurinn
Miðasala 568 8000