Dagblaðið Vísir - DV - 04.12.2002, Blaðsíða 13
MIÐVKUDAGUR 4. DESEMBER 2002
13
Áfram kaupmáttaraukning launa
- samkvæmt spá fjármálaráðuneytisins
I>V
Þetta helst
vmmt i
HEILDARVIÐSKIPTI 7.377 m.kr.
Hlutabréf 818 m.kr.
: Húsbréf 2.468 m.kr.
MEST VIÐSKIPTI
íslandsbanki 536 m.kr.
Eimskip 94 m.kr.
: / Össur 35 m.kr.
MESTA HÆKKUN
j O SÍF 5,9%
: o Jaröboranir 4,2%
j © Hampiöjan 4,2%
MESTA LÆKKUN
i O Hlutabréfasj. ísl. 3,4%
: O Íslandssími 2,4%
; © ísl. hlbrsjóöurinn 2,3%
Ú R VALS VÍSITALAN 1.323
- Breyting 0,19%
Afkoma
Sjóvár-Almennra:
Undir væntingum
stjórnenda
Hagnaöur af rekstri Sjóvár-Al-
mennra trygginga hf. fyrstu níu mán-
uði ársins var 320 milljónir króna.
Hagnaður sama tímabils á síðastliðnu
ári var 424 milljónir króna en hefði orð-
ið 291 miiljón króna minni ef verðlags-
leiðréttingum hefði ekki verið beitt við
gerð þeirra reikningsskila. Afkoman er
undir væntingum stjómenda félagsins.
Bókfærð iðgjöld skaðatrygginga
vom 6.775 milljónir króna en bókfærð
iðgjöld líftrygginga 783 milljónir króna.
Bókfærð tjón skaðatrygginga vom
4.019 milljónir króna en bókfærðar líf-
tryggmgabætur vora 1% milljónir
króna.
Hremn rekstrarkostnaður vegna
skaðatryggingarekstrar var 942 millj-
ónir króna og vegna líftryggingarekstr-
ar 260 milljónir króna
Fjárfestingartekjur yfirfærðar á vá-
tryggingarekstur vora 471 mihjón
króna en voru 1.099 milljónir króna á
sama tímabili árið áður, reiknað með
þeirri aðferð sem nú er notuð. Fjárfest-
ingartekjur samstæðunnar vora 979
milljónir króna á tímabilinu og fjárfest-
ingargjöld vora 478 milljónir króna. Að
teknu tilliti til yfirfærðra fjárfestingar-
tekna á vátryggingarekstur var hagn-
aður af fjármálarekstri 30 milljónir
króna á tímabilinu.
í frétt frá Sjóvá kemur ffarn að á
fyrstu níu mánuðum ársins hafa íjár-
festingartekjur lækkað verulega, miðað
við sama tímabil fyrra árs. Því veldur
einkum styrking krónunnar og minni
verðbólga en langtímafjárfesting félags-
ins í dótturfélögum leiðir einnig til
tímabundinnar lækkunar á vaxtaber-
andi eignum.
Rækjuskipum
fækkar ört
Veruleg fækkun hefur orðið á út-
hafsrækjuskipum í haust að því er
fram kemur í frétt í Fiskifréttum.
Fiskifréttir greina frá því að á dög-
unum voru tveir rækjutogarar,
Hamrasvanur SH og Nökkvi HU, seld-
ir til Færeyja. Þormóður rammi-Sæ-
berg hf. hefur lagt ísrækjutogaranum
Sigluvík SI og Hraðfrystihús Eski-
fjarðar hf. tilkynnti nýlega að félagið
myndi hætta rækjuveiðum og
-vinnslu um áramótin. Að sögn Fiski-
frétta hafa fleiri rækjuskip hætt veið-
um eða þeim verið lagt tímabundið
vegna erfiðleika í útgerð.
Fiskifréttir fjalla um fækkun
rækjuskipa og erfiðleika í veiðum og
vinnslu rækju í ítarlegri fréttaskýr-
ingu í blaðinu sem út kom í síðustu
viku. í umfjölluninni kemur fram sú
skýring á fækkun rækjuskipa að út-
gerð þeirra hafi einfaldlega ekki stað-
ið undir sér. Þá kemur fram sú skoð-
un að dómur félagsdóms frá því í sum-
ar, um mönnun og skiptakjör sjó-
manna á rækjuskipum, valdi því að
launakostnaður hækki umtalsvert og
það hafi fyrir marga orðið dropinn
sem fyllti mælinn.
Ólafur Marteinsson, framkvæmda-
stjóri Þormóðs ramma-Sæbergs hf.,
segir í samtali við Fiskifréttir að útlit
sé fyrir að rækjuvinnsla á Islandi eigi
eftir að minnka verulega ef fram fer
sem horfir.
í endurskoðaðri þjóðhagsspá fjár-
málaráðuneytisins kemur fram að
áframhald verður á kaupmáttaraukn-
ingu launafólks á næstu árum. I end-
urskoðaðri spá kemur fram að kaup-
máttur launa hefur aukist um tæplega
3,5% það sem af er ári og gert er ráð
fyrir að hann aukist um rúmlega 2%
að meðaltali milli áranna 2001 og 2002.
Á næsta ári er samkvæmt spánni gert
ráð fyrir svipaðri kaupmáttaraukn-
ingu, eða um 2%, og um 1,75% aukn-
ingu árið 2004.
Kaupmáttur ráðstöfunartekna
hefur aukist minna en kaupmáttur
launa á þessu ári þar sem atvinnu-
leysi hefur aukist. Talið er aö kaup-
máttur ráöstöfunartekna muni
aukast um 1% á árinu 2002. Á næsta
ári er gert ráð fyrir að ráðstöfunar-
tekjur aukist um 2,5% og um 1,75%
árið 2004.
Launavísitala Hagstofunnar hef-
ur hækkaö um 5% það sem af er
þessu ári en gert er ráð fyrir að
hækkunin frá desember 2001 til des-
ember 2002 verði 5,25%. Launa-
hækkun á milli ársmeðaltala þess-
ara ára gæti því orðið um 7%.
Nokkur óvissa ríkir um hækkun
launa á næsta ári. Samkvæmt kjara-
samningum er almennt gert ráð fyr-
ir um 3,25% hækkun launa í upp-
hafi ársins. Slaki á vinnumarkaði
gefur ekki tilefni til mikils launa-
skriðs. Á hinn bóginn er rétt að
hafa í huga að ákvörðun kjarasamn-
inga um sérstaka hækkun lægstu
launa umfram önnur laun gæti haft
viss áhrif á launaþróunina, sérstak-
lega í þeim launaflokkum sem koma
þar fast á eftir. Hér er því gert ráð
fyrir að launaskrið geti orðið um
0,5% yfir árið 2003 og um 0,75% yfir
árið 2004. Samkvæmt því má gera
ráð fyrir að almenn launahækkun
geti orðið um 4,25% árið 2003 og um
3,5% áriö 2004.
_____________Viðskipti
Umsjón: Vi&skiptablaðið
Stórbætt
eiginfjárstaða
í kjölfar ágætrar aíkomu í sjávarútvegi
undanfama mánuði hefúr fjárhagsstaða
felaga í greininni batnað til muna.
Þannig var eiginfjárhlutfall 10 stærstu
sjávarútvegsfyrirtækja í Kauphöll íslands
að meðaltali 33% í lok september sL en
var til samanburðar 24% á sama tíma i
fyrra. Þá var eiginfjárhlutfall þriggja
þessara félaga lægra en 20% sem telja
verður mjög lágt í ljósi þess hve áhættu-
söm starfsemi sjávarútvegur er. Nú er
staðan allt önnur og aðeins þijú felög era
með lægra eiginfjárhlutfall en 30%. Þessi
staða gefúr til kynna að skráð sjávarút-
vegsfyrirtæki séu betur í stakk búin nú
en oft áður til að standa af sér sveiflur,
taka þátt í sameiningum eöa ráöast í
viðamiklar fjárfestingar.
syidr hina.
hliöina
Atakasaga ^ ^
Kristínar Eyjolfsdmtur,,
móður þroskaheftrar og geðfatlaðrar stú
fjmm
!J jJÍIJ Ifl'i)
Breytt útlit -
Fléttur og fjaðrir
Barnið Yhitt e
hættulel
íJ
Lilja Pálmadóttin
Jón Stefáns og m
Úiöf Kolbnun f m
fVleð fullt ?%ijí
hus matar L
meo s
■
náttúra er
uppspretta listsköpunar
Heimagerður BRJÓSTSYKU