Dagblaðið Vísir - DV - 04.12.2002, Blaðsíða 29
<r
Ólafur Magnússon, framkvæmdastjóri íþróttasambands fatlaöra, Kristín Rós Hákonardóttir, sundkona úr Fjölni, Héöinn Jónsson, sjúkraþjálfari fslenska
liösins, og Bjarki Birgisson, sundmaöur úr Fjölni, stilltu sér upp fyrir Ijósmyndara DV áöur en haldiö var af staö til Argentfnu í gær. DV-mynd E. Ól.
Bjarki Birgisson tekur þátt í
þremur greinum, 100 metra
bringusundi, 200 metra fjórsundi
og 50 metra flugsundi. Dagskrá
hans er eftirfarandi:
Fimmtudagur 12. desember
100 metra bringusund
Besti tími: 1:34,43 mín.
Laugardagur 14. desember
200 metra fjórsund
Besti tími: 3:10,10 min.
Sunnudagur 15. desember
50 metra flugsund
Besti tími: 35,96 sek.
Úrslitaleikur um Heimsbikar félagsliða fór fram í Japan í gær:
••
Oruggt hja Real Madrid
- vann bikarinn í þriðja sinn með sigri á Olimpia, 2-0
Ronaldo sneri í gær aftur á leik-
vanginn í Yokohama í Japan þar
sem hann skoraði bæði mörk Bras-
ilíumanna í úrslitaleiknum gegn
Þjóðverjum á HMi sumar og það
var eins og við manninn mælt.
Hann skoraði fyrsta mark Real Ma-
drid í úrslitaleiknum gegn parag-
væska liðinu Olimpia um heims-
bikar félagsliða meö góðu skoti frá
vítateig eftir undirbúning frá Raul
og Roberto Carlos.
Real Madrid var miklu betri aðil-
inn í leiknum, fékk fjölmörg færi til
að skora fleiri mörk en varö þó að
bíða þar til á 84. mínútu eftir öðru
markinu sem gulltryggði sigurinn.
Varamaðurinn Guti skoraði þá með
skalla eftir fyrirgjöf frá Luis Figo.
Sanngjam sigur Evrópumeistar-
anna, 2-0, og sárabót fyrir heldur
dapurt gengi að undanfómu.
Þessi sigur var einnig sárabót
fyrir tapið gegn argentínska hðinu
Boca Juniors fyrir tveimur árum
og beið liðið lægri hlut, 2-1, þrátt
fyrir að hafa mikla yfirburði allan
leikinn.
Þetta var þriðji sigur Real Ma-
drid í keppninni en áður hafði liðið
unnið árið 1998 þegar brasihska
hðið Vasco da Gama var lagt að
velli, 2-1. Þá voru 38 ár liðin síðan
félagið hafði unnið tithinn en það
vann úrúgvæska liðið Penarol í
tveimur leikjum árið 1960 þegar
keppt var um bikarinn í fyrsta
sinn.
Vincente Del Bosque, þjálfari
Real Madrid, var sáttur við úrslitin
eftir leikinn.
„Það var frábært að vinna þenn-
an titU á aldarafmæli félagsins. Það
sem er þó mikUvægara er að við
skoruðum tvö mörk og fundum aft-
ur markaskóna sem hafa verið
týndir að undanfómu. Það, ásamt
því að margir leikmenn eru að
koma tíl baka eftir meiðsh og veik-
indi, gefur okkur ástæðu tU
bjartsýni með framhaldið á
tímabUinu," sagði Vincente Del
Bosque, þjálfari Real Madrid, eftir
leikinn. -ósk
Zinedine Zidane, Ronaldo og Luis Figo fagna hér sigrinum gegn paragvæska liöinu
Olimpia í Yokohama f Japan f gær. Reuters
- segja Kristín Rós Hákonardóttir og Bjarki Birgisson sem taka þátt fyrir íslands hönd
Heimsmeistaramót fatlaðra í
sundi hefst 10. desember næstkom-
andi í Mar del Plata i Argentínu.
Tveir íslenskir sundmenn, Kristín
Rós Hákonardóttir og Bjarki Birgis-
son, verða meðal keppenda og ljóst
aö miklar væntingar verða gerðar
tU þeirra þar sem þau hafa verið
meðal fremsta sundfólks í sínum
flokki í heiminum undanfarin ár.
Kristín Rós keppir í funm grein-
um: 100 metra baksundi, 50 og 100 m
skriðsundi, 100 metra bringusundi
og 200 metra fjórsundi, á mótinu en
Bjarki keppir í þremur greinum, 100
metra bringusundi, 200 metra fjór-
sundi og 50 metra flugsundi.
DV-Sport hitti Kristínu Rós og
Bjarka í gær áður en þau lögðu af
stað í 27 tíma langt ferðlag tU Mar
del Plata og ræddi við þau um mót-
ið og fleira því tengt.
Hefur tvo titla aö verja
Kristin Rós á tvo titla að verja frá
síðasta heimsmeistaramóti á Nýja
Sjálandi fyrir fjórum árum og hún
sagði að mótiö legðist vel í hana.
„Mótið leggst vel í mig. Ég hef tvo
titla að verja og auðvitað finn ég
fyrir pressu um að standa mig vel.
Ég hef hins vegar æft mjög vel fyrir
mótið, er í flnu formi og ætla mér
stóra hluti á mótinu," sagði Kristín
Rós.
Erum búin aö æfa rosalega
Bjarki Birgisson, sem er að taka
þátt í sínu fyrsta heimsmeistara-
móti, tók í sama streng og Kristín.
„Við erum búin að æfa rosalega
fyrir þetta mót og það ríkir mikU tU-
hlökkun. Ég er orðinn alveg svaka-
lega stressaður enda veit ég að það
eru gerðar miklar kröfur tU manns
þegar maður keppir fyrir íslands
hönd,“ sagði Bjarki.
Frábærar fyrirmyndir
Kristín Rós og Bjarki eru frábær-
ar fyrirmyndir fyrir fatlaða fþrótta-
menn en skyldu þau líta þannig á
sig.
„Ég lít ekkert frekar á mig sem
fyrirmynd fyrir fatlaða íþróttamenn
heldur en ófatlaða. Við æfum alveg
jafnmikið og fólk í fremstu röð ófatl-
aðra gerir en ég geri mér samt grein
fyrir því að eftir því sem við náum
betri árangri því auöveldara verður
fyrir íþróttasamband fatlaðra að fá
styrki og sjálfsagt fjölgar fötluðum
íþróttaiðkendum líka í kjölfariö.
Það hvUir nokkur ábyrgð á okkur
en ég held það geri það aUtaf þegar
maður keppir fyrir íslands hönd,“
sagði Bjarki.
Nám sett á hiiluna
Kristín Rós segfr að fómimar séu
miklar ef árangur eigi að nást í
íþróttum og gUdir það jafnt um fatl-
aða sem ófatlaða íþróttamenn.
„Við erum hvomgt í skóla eins og
stendur heldur höfum við helgað
okkur sundinu fyrir þetta mót. Það
eru ýmsar fómir sem fólk þarf að
færa ætli það sér að ná árangri en
ég hef hingað tU ekki séð eftir því
að hafa frestaö námi um tíma. Þetta
er svo gaman, sérstaklega þegar vel
gengur," segir Kristín Rós.
Jákvætt viöhorf
Aðspurð sögðust Kristín Rós og
Bjarki verða vör við mjög jákvætt
viðhorf frá fólki og fyrirtækjum í
þeirra garð og ágætlega hefði geng-
ið að safna fyrir ferðinni.
„Fólk gengur að okkur úti á götu,
óskar okkur góðs gengis og hvetur
okkur tU dáða og það er mjög gam-
an. Þaö hjálpar líka tU þegar um-
fjöUun í fiölmiölum er tU staðar,"
sagði Kristín Rós að lokum.
Hún stingur sér fyrst tU sunds
þriðjudaginn 10. desember í 100
metra baksundi þar sem hún á
heimsmetið en fyrsta sund Bjarka
er fimmtudaginn 12. desember. -ósk
Kristín Rós Hákonardóttir tek-
ur þátt í flmm greinum á Heims-
meistaramótinu í sundi í Argent-
ínu. Kristín Rós tekur þátt í 100
metra baksundi, 50 og 100 m
skriösundi, 100 metra bringu-
sundi og 200 metra fjórsundi.
Dagskrá hennar er eftirfarandi:
Þriöjudagur 10. desember
100 metra baksund
Besti timi: 1:25,98 mín. (heimsmet)
Miðvikudagur 11. desember
100 metra skriðsund
Besti timi: 1:18,05 mín.
Fimmtudagur 12. desember
100 metra bringusund
Besti tími: 1:35,64 min. (heimsmet)
Laugardagur 14. desember
200 metra fjórsund
Besti tími: 3:15,16 mín.
Sunnudagur 15. desember
50 metra skriðsund
Besti timi: 37,41 sek.
MIÐVIKUDAGUR 4. DESEMBER 2002
Jón meiddur á hné
Jón Nordal Hafsteinsson, framherji
úr Keflavík, verður frá keppni næstu
tvær til þrjár vikur vegna meiðsla á hné
eftir því sem fram kemur á vefsvæði
körfuknattleiksdeildar Keflavíkur.
Jón lék ekki með Keflvíkingum gegn
KRá fóstudagskvöldið og mun fara í
myndatöku seinna í vikunni.
Þetta er áfall fyrir Keflvíkinga því að
hann hefur gegnt mikilvægu hlutverki i
vamarleik þeirra það sem af er tíma-
bili. -ósk
keppm i hverju orði
Rafpostur: dvsport@dv.is
Heimsmeistaramót fatlaðra í sundi hefst 10. desember í Argentínu:
Finnum fyrir pressu
Dagskrá íslensku
keppendannaí
Argentínu