Dagblaðið Vísir - DV

Ulloq
Ataaseq assigiiaat ilaat
Tidligere udgivet som

Dagblaðið Vísir - DV - 04.12.2002, Qupperneq 15

Dagblaðið Vísir - DV - 04.12.2002, Qupperneq 15
15 MIÐVIKUDAGUR 4. DESEMBER 2002 DV____________________________________________________________________________________________________Menning Suðrænn súludans DV-MYND E.ÓL. Sigurbjörg Þrastardóttir, skáld og rithöfundur Skrífar áhrífamikla sögu um sérkennilega píslargöngu stúlku í Bologna. Sólar saga er fyrsta skáldsaga Sigurbjargar Þrastardóttur en hún hefur áður sent frá sér ljóða- bækumar Blálogaland og Hnatt- flug. Fyrir Sólar sögu hlaut Sig- urbjörg bókmenntaverðlaun Tómasar Guðmundssonar og er vel að þeim komin. Sagan segir frá ungri, íslenskri konu, Sól, sem stundar nám í Bologna á Italiu. Hún er hamingjusöm í þessari fal- legu borg sem hún dýrkar og dáir. En þegar hún verður fyrir þeirri skelfilegu reynslu að vera nauðgað og misþyrmt af tveimur mönnum er stoð- unum kippt undan tilveru hennar. Þegar Sól rank- ar við sér eftir aðhlynningu á spítala er minni hennar gloppótt en hún man þó óljóst eftir fólkinu sem fann hana í blóði sínu og kom henni undir læknishendur. Andlit árásarmannanna sá hún aldrei og veit því ekki hverjir þeir eru eða hvar þá er að finna. Hún situr uppi með hrollvekjandi minningar en í stað þess að flýja heim í faðm fjöl- skyldunnar einsetur hún sér að ná aftur áttum í borginni sem hún elskar. Hún leggur upp í sér- kennilega píslargöngu, en áður hefur hún losað sig við áhyggjufullar og ástríkar vinkonur sínar með því að segjast ætla til íslands. Þær anda léttar og fara rólegar í sumarfríið en þar sem áætlun Sólar krefst einveru pakkar hún niður og flytur sig um set innan borgarinnar. Bókmenntir Áætlunin gengur út á að faðma hverja einustu súlu borgarinnar og þannig hyggst Sól ná sáttum við borgina og örlög sín. Um leið má líta á súlunar sem fallustákn og áætlunina sem ómeðvitaða til- raun Sólar til þess að sættast við árásarmennina. Hún heldur bókhald yfir faðmaðar súlur og hægt og hægt nálgast hún takmark sitt; að hafa tekið alla borgina í faðm sér, fyrirgefið og um leið svipt hana vondum minningum. Meðan á verkefninu stendur hugsar Sól margt og hugurinn hvarflar til skiptis frá Italíu til Islands. Hún rifjar upp atriði úr bernsku sinni og lesandinn áttar sig á að Sól hefur verið einrænt og sérkenni- legt barn. Henni finnst gott að þegja og vera ein með sjálfri sér, þolir illa líkamlega snertingu og kemur sér í hvarf hvenær sem færi gefst. Eftir dauða ömmu sinnar tekur hún sér nafnið Sól en ein merking orðsins sol á ítölsku er einsemd. Það er táknrænt; Sól er mörkuð einsemdinni alla tíð og eftir nauðgunina verður hún henni alveg að bráð. Sjálfsmyndin splundrast við áfallið og er sorglegt að fylgjast með Sól þar sem hún mátar sig inn í hvert hlutverkið á fætur öðru, allt frá hefðarkonu á 5 stjömu hóteli niður í hóp útigangsmanna. En í stað þess að nálgast kjarna sinn að nýju fjarlægist hún sjálfa sig og aðra meira og meira og rambar á brún geðveikinnar. Sigurbjörg Þrastardóttir útfærir þekkt en vand- meðfarið stef, nauðgun og ofbeldi, í texta sem er bæði vel skrifaður og einstaklega myndrænn. Höf- undur veltir lesendum ekki upp árásanni sjálfri heldur kemur henni á framfæri í brotakenndum lýsingum víðs vegar í textanum. Það að lesandinn skuli þurfa að endurskapa atburði sjálfur eykur áhrifamátt textans og gerir ástand Sólar trúverð- ugra. Hún er í brotum, meidd, svívirt og hjálpar- vana og flöktandi hugsanir hennar eru til vitnis um manneskju sem svipt hefur verið því fallegasta sem hún átti: trúna á lífið og ástina. Sólar saga er kraftmikil og sannfærandi saga um eftirköst og afleiðingar ofbeldis og boðskapur sög- unnar er greinilega sá að manneskja sem þarf nauðug viljug að þola innrás í eigin líkama jafnar sig aldrei. Sigríður Albertsdóttir Sigurbjörg Þrastardóttir: Sólar saga. JPV-útgáfa 2002. Sagan af furdufugli Tveir furðufuglar, rithöfundurinn Sjón og myndlistarmaðurinn Daði Guðbjömsson, hafa tekið höndum saman og búið til bók sem er engri annarri lík - bók um furðufugl sem börn geta endalaust skoðað, saman og I einrúmi. Furðufuglinn er í raun og sann- leika furðulegur, en hvað er það sem gerir hann svona furðulegan? Er það goggurinn? Eru það fætumir - eða stélið? Er það hausinn eða kannski augun? Eða er það dansinn sem hann dansar þegar hann hittir ókunnuga? Það er alveg hægt að lofa þvi að fugl eins og þennan hafið þið aldrei séð fyrr en vel getur farið svo að þið tak- ið undir með honum og syngið lagið hans: „Killí - dillí - dú, síllí - bíllí - fú!“ Myndir Daða em litríkar eins og hans er vandi og gaman fyrir tilvon- andi listamenn að sjá nákvæmlega hvemig svona furðudýr er byggt upp. Og viðbúið að íbúðarveggir og til- fallandi pappírsblöð fyllist af furðu- fuglum ... Mál og menning gefur bók- ina út. BORGARLEIKHUSIÐ Leíkféiag Reykjavikur STÓRA SVIÐ SÖLUMAÐUR DEYR e. Arthur Millcr Fö. 6/12 kl. 20. Lau. 28/12 kl. 20. HONKl UÓTI ANDARUNGINN e. George Stiles ogAnthony Drewe Gamansöngleikurfyrir allajjölskylduna. Lau. 7/12 kl. 20. ATH. Kvöldsýning. Su. 8/12 kl. 14. MEÐ VÍFIÐ í LÚKUNUM e. Ray Cooney Fi. 5. des. kl. 20 - AUKASÝNING. Fi. 12. des. kl. 20 - AUKASÝNING. Ath. Allra síðustu syningar._____ NÝJA SVIÐ JÓN OG HÓLMFRÍÐUR Frekar erótískt leiktrit íprem páttum e. Gabor Rassov Lau. 7/12 kl. 20. Lau. 28/12 kl. 20. JÓLAGAMAN Jólasveinakvteði Jóhannesar út Kötlum í leikbúningi o.fl. Lau. 7/12 kl. 15. Lau. 14/12 kl. 15. ÞRIÐJA HÆÐIN HERPINGUR eftirAuðiHaralds HINN FULLKOMNI MAÐUR eftir Mikael Torfason (SAMSTARFI VIÐ DRAUMASMIÐJUNA Lau. 28/12 kl. 20, Fö. 10/1 kJ. 20. LITLA SVIÐ RÓMEÓ OG JÚLÍA e. Shakespeare í SAMSTARFI VIÐ VESTURPORT Mi. 4/12 kl. 20. Su. 8/12 kl. 20. Má. 30/12 kl. 20. Ath: breyttan sýningatíma. FORSALUR BROT AF ÞVÍ BESTA - UPPLESTUR OG TÓNLIST J<^/ íKringlusafni ogBorgarleikhús 'u Rithöfundar lesa úr verkum sínum. Fi. 5/12 kl. 20. Fi. 12/12 kl. 20. GJAFAKORT I LEIKHUSIÐ - FRÁBÆR JÓLAGJÖF Sól & Máni - Nýr íslenskur söngleikur eftir Sálina hans Jóns míns og Karl Ágúst Úlfsson FORSALA AÐGÖNGUMIÐA STENDUR YFIR. TILBOÐSVERÐ, KR. 2.800, GILDIR TIL JÓLA. Frumsýning n. janúar SINFÓNÍUHLJÓMSVEIT ÍSLANDS Elnstök stund ííslensku tónlístarlífl Aðventutónleikar 1 HaUgrímskirkju Johann Sebastian Bach: Jólaóratóría 5. og 6. des. kl.19.30 og 7. des. kl.17.00 Tveir af okkar fremstu söngvurum, Gunnar Guðbjömsson og Marta Guðrún Halldórsdóttir, taka höndum saman með heimsþekktum kollegum sínum, Andreas Schmidt og Monica Groop. Sinfóníuhljómsveit íslands og Mótettukór Hallgrímskirkju undir stjórn Harðar Áskelssonar, flytja þessa mögnuðu jólagleðitónlist. www.hhh.is Grettissaga Saga Grettis. Leikrit eftir Hilmar Jónsson. Byggt á Grettissögu Lau. 7. des., nokkur sæti Þri. 17. des., uppselt Sun. 29. des. Hátíðarsýning, iaus sæti Sellófon eftir Björk Jakobsdóttur Mið. 4. des., nokkur sæti Fös. 6. des., uppsclt Mið. 11. des., Félagsheimilinu Klifi, Ólafsvik Fös. 13. des. Lokasýning fyrir jól, nokkur sæti Sýningarnar á Sellófon hcfjast kl. 21.00 Miðasala í síma 555-2222 SKJALLBANDALAGIÐ KYNNIR í IÐNÓ Fim. 5/12 kl. 21 Örfá sæti Fös. 6/12 kl. 21 50. sýning - uppsett Fös. 13/12 kl. 21 Nokkur sæti - síðasta sýning fyrir jól Miðasalan í Iðnó er opin frá 10-16 alla virka daga, 14-17 um helgar og frá kl. 19 sýningardaga. Pantanir í s. 562 9700. Ósóttar pantanir eru seldar 4 dögum fyrir sýningar. Hin smyrjandi Jómfrú Nærondi leiksýning fyrir líkamo og sól. Sýnt íIðnó: Lau. 7. des. kl. 20. Laus sæti. Sun. 8. des. kl. 15. Laus sæti. Sun. 8. des. kl. 20. Uppselt. Lau. 14. des. kl. 20. Sun. 15. des. kl. 15 og20. (Síðustu sýningar fyrir jól.) Smurbrauðsmáltíð innifalin í miðaverði. Miðasala í Iðnó, s. 5629700 Forsala aðgöngumiða er hafin Tilboðsverð kr. 2.800 (fullt verð 3.100) Gildir til Jóla Gjafakort á Sól og Mána - tilvalin jólagjöf Tilboðsverð gildir til Jóla Syningar hefjast 11. janúar Tryggið ykkur [niða so Eftir Sálina hans Jóns míns og Karl Ágúst Úlfsson Leikstjóri: Hilmarjónsson BORGARLEIKHUSIÐ Sálin hans Jóns míns Leikfélag Reykjavíkur íslenski dansflokkurinn Miðasala 568 8000

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.