Dagblaðið Vísir - DV - 17.12.2002, Side 11

Dagblaðið Vísir - DV - 17.12.2002, Side 11
ÞRIÐJUDAGUR 17. DESEMBER 2002 DV Útlönd Deilurnar fyrir botni Miðjarðarhafs: Blair boðar til við- ræðna í Lundúnum Yasser Arafat, leiðtogi Palestínu- manna, hefur þegið boð Tonys Blairs, forsætisráðherra Bretlands, um að senda fulltrúa sína tO viðræðna í Lundúnum i næsta mánuði um um- bætur á heimastjórn Palestínumanna og hugsanlegar leiðir til að koma á friði í Mið-Austurlöndum. Ekki er vitað hverjir muni taka þátt í ráðstefnunni fyrir hönd Palest- ínumanna, en Blair mun hafa boðið Arafat að senda fulltrúa sína en ekki honum sjálfum. Saeb Erekat, aðalsamnigafulltrúi Palestínumanna, staðfesti í gær að Arafat hefði þegið boðið og bætti við að ekki hefði enn verið ákveðið hvaða ráðherrar úr heimastjórninni yrðu sendir til Lundúna. Nabil Shaath, ráðherra í heima- stjórninni, sagði að palestinsk stjórn- völd fógnuðu fyrirhuguðum viðræð- um en bætti við að þau kærðu sig ekki um að ræða eingöngu um fyrir- hugaðar umbætur á heimastjórninni. „Við erum ánægðir með að Blair skuli Tony Blair Tony Blair hefur tekiö frumkvæðiö í friðarumleitunum fyrir botni Miöjaröarhafs. taka frumkvæðið en viljum fá að vera með í því að ákveða umræðuefnið. Við viljum fyrst og fremst leggja áherslu á friðarferlið svo binda megi enda á þjáningar þjóðar okkar sem fyrst,“ sagði Shaath og bætti við að palestínsk stjórnvöld hefðu miklar væntingar til viðræðnanna og vonuðu svo sannarlega að þær ættu eftir að verða árangursríkar. Fulltrúum „kvartettsins" svokall- aða, þ.e.a.s. Bandaríkjanna, Rússlands, Sameinuðu þjóðanna og Evrópusam- bandsins, hefur einnig verið boðið til viðræðnanna auk fulltrúa nágranna- ríkjanna, Sádi-Arabíu, Egyptalands og Jórdaníu, og er vonast til að drög verði lögð að frekara friðarferli sem lagt gæti grunnin að sáttum og stofnun sjálfstæðs ríkis Palestínumanna. Fulltrúum ísraelskra stjórnvalda hefur einnig verið boðið til viðræðn- anna en ekki er búist við að þau sendi fulltrúa vegna anna við kosninga- undirbúning og hafa þau óskað eftir því við bandarísk stjórnvöld að þau fresti öllum viðræðum um væntanlegt friðarferli þar til eftir kosningarnar sem fram fara 28. janúar. REUTERSMYND Prinsessan og kóalabjörninn Japanski krónprinsinn Naruhito gat ekki stillt sig um aö smella mynd af eiginkonu sinni, Masako prinsessu, þar sem hún heldur á lifandi kóalabirni í heimsókn þeirra í Taronga-dýragaröínn /' Sydney í Ástralíu í morgun. A1 Gore ekki aftur í forsetaframboð: Erfiðasta ákvörðunin A1 Gore, fyrrum varaforseti Bandaríkjanna, sagði í gær að ákvörðun sín um að bjóða sig ekki aftur fram til forseta árið 2004 hefði verið erfiðasta ákvörðun sem hann hefði nokkru sinni tekið. Hann væri engu að síður sáttur við hana. Gore kom á óvart þegar hann greindi frá þessu í viðtali í sjón- varpsþættinum 60 mínútum á bandarisku sjónvarpsstöðinni CBS á sunnudagskvöld. Ákvörðun hans þýðir að framboðsmál demókrata eru galopin. Varaforsetinn fyrrverandi sagðist telja að ef hann færi fram myndi kosningabaráttan óhjákvæmÚega snúast um endurtekningu baráttu hans við George W. Bush forseta frekar en um framtíð landsins. „Þetta var líklega erfiðasta ákvörðunin sem ég hef nokkru sinni tekið,“ sagði Gore á fundi með fréttamönnum í Raleigh í Norður- REUTERSMYND Ekki fram At Gore, fyrrum varaforseti Banda- ríkjanna, ætlar ekki aö keppa aftur viö George W. Bush um húsbónda- valdiö í Hvíta húsinu áriö 2004. Karólínu í gær þar sem hann kynnti nýútkomna bók sína. „En ég er alveg sáttur við þessa ákvörðun. Ég tel að hún sé rétt fyr- ir landið og fyrir flokkinn sem ég er i og ég held að hún sé rétt fyrir mig og fjölskyldu mína.“ Með yfirlýsingu sinni batt Gore enda á margra mánaða vangaveltur manna um hvort hann myndi aftur etja kappi við Bush. Úrslit kosning- anna fyrir tveimur árum réðust ekki fyrr en eftir endurtalningu í Flórída og margra vikna baráttu fyrir dómstólunum. Fyrrum ráðgjafi í kosningabar- átttu Gores fyrir tveim árum sagði að þessi ákvörðun kæmi sér vel fyr- ir alla þá sem hefðu áhuga á fram- boði þar sem Gore hefði augljóslega haft sterkasta stöðu hefði hann ákyeðið að bjóða sig aftur fram. Ýmsir mikilsmetnir demókratar íhuga að bjóða sig fram. http'J/simnct. is/homedecorl928/ Skoðið heitnasíðuna okkar og ktkið á tilboðin Allar helgimyndir «25% afslætti. Einnig styttur í úrvali. VIDEOHÖL LIN LÁGMÚLA

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.