Dagblaðið Vísir - DV - 17.12.2002, Page 20

Dagblaðið Vísir - DV - 17.12.2002, Page 20
20 ÞRIÐJUDAGUR 17. DESEMBER 2002 Islendingaþættir Umsjón: Kjartan Gunnar Kjartansson 90 ára_____________________________ Óla S. Þorleifsdóttir, Dalalandi 4, Reykjavík. Sigurbjörg Þorleifsdóttir, Bleikargróf 7, Reykjavík. Unnur Stefánsdóttir, Lagarási 31, Egilsstööum. 85 ára_____________________________ Ármann Helgason, Kjarnalundi, dvalarh., Akureyri. 75 ára_____________________________ ~^ Ásgeir Sigurösson, V Laugavegi 146, Hann er aö Oeiman á Erla Einarsdóttir, Miðleiti 1, Reykjavík. Guöfinna Jónsdóttir, Helgavatni 1, Borgarnesi. Harry Sönderskov, Þúfubaröi 15, Hafnarfirði. Jón Loftsson, Hafnarbraut 35, Hólmavík. Kristjana Benediktsdóttir, Ásgarðsvegi 20, Húsavík. Þórdís Eggertsdóttir, Hraunbæ 92, Reykjavík. 70 ára_____________________________ Bjarkey Sigurðardóttir, Þverholti 4, Keflavík. Margrét Þorgrímsdóttir, Blesugróf 40, Reykjavtk. 60 ára_____________________________ HJaltl Jónsson, Vogalandi 9, Djúpavogi. Hreiöar Steingrímsson, Norðurbyggð 13, Akureyri. Jóhannes Ágústsson, Breiðvangi 35, Hafnarfirði. Sigrún Erlendsdóttir, Lækjasmára 1, Kópavogi. Þórhildur Karlsdóttlr, Álfabrekku 7, Kópavogi. 50 ára_____________________________ Erlingur Brynjólfsson, Austurvegi 33, Selfossi. Friðgeir Sigurður Haraldsson, Melgerði 10, Kópavogi. Inglgeröur Jakobsdóttir, Lyngbergi 45, Hafnarfirði. Sigmar Halldór Óskarsson, Blöndubakka 8, Reykjavík. Þórunn Helga Traustadóttir, Ljósalandi 25, Reykjavtk. 40 ára_____________________________ Barbara Glod, Grófarsmára 2, Kópavogi. Bryndís Garöarsdóttir, Túnhvammi 10, Hafnarfirði. Denise Lucile Rix, Blikastíg 2, Bessastaðahreppi. Guöríöur S. Sigurðardóttir, Brekkulæk 6, Reykjavík. Guörún Margrét Valdimarsdóttir, FTfulind 15, Kópavogi. Guðsteinn Stefán Þorláksson, Kristnibraut 35, Reykjavík. Jóhannes G. Benjamínsson, Bakkavör 1, Seltjarnarnesi. Kristinn Símon Skúlason, Þverholti 5, Keflavík. Ragnar Ólafsson, Bröttuhlíð 7, Mosfellsbæ. Sigrún Graham, Efstahrauni 22, Grindavík. Sólveig Hólmfríöur Sverrisdóttir, Heiðargerði 43, Reykjavtk. Sverrir Hafnfjörö Þórisson, Skúlaskeiði 18, Hafnarfiröi. Þorsteinn J. Haraldsson, Einholti lOb, Akureyri. Þórir Guömundsson, Grænukinn 28, Hafnarfirði. Andlát Erlendur Elnarsson, Bústaöavegi 77, Reykjavík, lést á hjartadeild Landspítalans við Hringbraut fimmtud. 12.12. Gísli Siguröur Sigurösson, Bárugötu 19, Reykjavík, lést föstud. 29.11. Útförin hefur farið fram. Jenný Lúövíksdóttir lést á hjúkrunarheimilinu Hrafnistu í Hafnarfirði að morgni föstud. 13.12. fit Aðventu-leiðískrossar 12V - 34V Sent í póstkröfu Si'mi 431 1464 og 898 3206 DV wmmim u i Guömundur Gunnarsson formaður Rafiðnaðarsambands íslands Guömundur Gunnarsson, formað- ur Rafiönaðarsambands íslands, ótt- ast að boðaðar verðlags- og skatta- hækkanir sveitarstjóma og ríkis hleypi verðbólgunni á skrið. Þetta kom fram í DV-frétt í gær. Starfsferill Guðmundur fæddist í Reykjavík 29.10. 1945. Hann lauk gagnfræða- prófi frá Gagnfræðaskóla Austur- bæjar 1962, stundaði nám við Iðn- skólann í Reykjavík, lærði rafvirkj- un hjá fóður sínum og lauk sveins- prófi 1966, stundaði nám við Tækni- skóla íslands 1967-69 og lauk þaðan raftækniprófi og stundaði nám í kennslu og uppeldisfræði við KHÍ 1976-78, auk þess sem hann hefur sótt margs konar námskeið í stýri- og tölvukerfum og félagsmálum á Norðurlöndunum. Guðmundur var rafvirki hjá fóð- ur sínum 1962-70, hjá ÍSAL 1970-74, hjá Byggingafélaginu Breiðholti 1974-75, var framkvæmdastjóri Eft- irmenntunar rafiðna 1975-86, kenn- ari við Iðnskólann í Reykjavík 1976-82, formaður Félags íslenskra rafvirkja frá 1986-95 og formaður Rafiðnaðarsambands íslands frá 1993. Guðmundur sinnti skátastarfi sem unglingur og sat í stjórnum og sinnti rekstri unglingaklúbba á veg- um borgarinnar, hefur setið í trún- aðarráði og stjóm Félags íslenskra rafvirkja frá 1971, í sambands- og miðstjórn Rafiðnaðarsambands ís- lands frá 1972, fræðslunefnd raf- virkja 1976-83 og frá 1992, í stjórn Nordisk E1 Utbildings Komité 1978-92, Iðnfræðsluráði frá 1985-95, í Kaupskrámefnd Utanríkisráðu- neytisins 1991-95, í Starfsmennta- ráði félagsmálaráðuneytisins frá 1992 og formaður frá 2002, formaður Menningar- og fræðslusambands al- þýðu 1992-96, í skólanefnd Rafiðnað- arskólans frá stofnun og formaður frá 1993 og formaður 1994-96, i stjórn Norræna rafiðnaðarsam- bandsins frá 1993 og formaður 1994-96, í stjóm Norræna bygging- arsambandsins 1994-97 og frá 2000, í stjóm Evrópska byggingarsam- bandsins frá 1995, varaborgarfull- trúi í Reykjavík 1994-98, í miðstjóm ASÍ frá 1996, í stjóm Útivistar frá 1997 og var formaður styrktarfélags Virkisins 1997-2001. Auk þess hefur hann sinnt fjöl- mörgum nefndarstörfum á vegum rafiðnaðarmanna, ASÍ og hins opin- bera, hérlendis og á Norðurlöndum. Guðmundur hefur þýtt og samið nokkrar kennslubækur fyrir rafiðn- aðarmenn og skrifað fjölda greina í blöð og tímarit. Fjölskylda Dóttir Guðmundar og fyrstu konu hans, Hildar Rúnu Hauksdóttur, f. 7.10.1946, er Björk Guðmundsdóttir, f. 21.11.1965, söngkona, búsett i New York, böm hennar eru Sindri og ísadóra. Böm Guðmundar og annarrar konu hans, Elínar Bimu Hjörleifs- dóttur, f. 19.4. 1948, eru Ingibjörg Hrönn Guðmundsdóttir, f. 31.1.1971, húsmóðir í Mosfellsbæ, gift Ragnari Val Ragnarssyni og em synir þeirra Garðar, Daði og Hrannar; Hallfrið- ur, f. 16.5. 1972, húsgagnasmiður og nemi í tækniteiknun, búsett í Reykjavík, maður hennar er Kor- mákur Hlini Hermannsson og er sonur þeirra Auðun; Gunnar Öm, f. 20.9. 1977, nemi í verkfræði í Kaup- mannahöfn, kona hans er Þórhildur Sigurðardóttir og eru börn þeirra Guðbjörg og Guðmundur. Eiginkona Guðmundar er Helena Sólbrá Kristinsdóttir, f. 24.2. 1960, sjúkraliði. Hún er dóttir Kristins El- íasar Haraldssonar bílstjóra, sem lést 1987, og Esterar Úraníu Frið- þjófsdóttur gjaldkera. Sonur Guðmundar og Helenu er Kristinn Þór, f. 29.3. 1990, nemi. Dóttir Helenu og uppeldisdóttir Guðmundar er Elísa Ósk Viðars- dóttir, f. 8.11.1985, nemi. Systkini Guðmundar: Kristín, f. 29.12.1946, skrifstofustjóri við Land- græðslu ríkisins í Gunnarsholti; Auðunn Öm, f. 27.3. 1949, rafvirki og verksmiðjustjóri hjá Þykkvabæj- arkartöflum. Foreldrar Guðmundar eru Gunn- ar Guðmundsson, f. 10.9.1923, fyrrv. rafverktaki og kaupmaður í Reykja- vík, og k.h., Hallfríður Guðmunds- dóttir, f. 3.3. 1925, húsmóðir. Ætt Gunnar er bróðir Sophusar, foður Friðriks, forstjóra Landsvirkjunar, og Guðmundar sýslumanns. Gunn- ar er sonur Guðmundar, b. á Auð- unarstöðum, Jóhannessonar, b. á Auðunarstöðum, Guðmundssonar. Móðir Jóhannesar var Dýmnn Þór- arinsdóttir, systir Þuríðar, langömmu Halldórs E. Sigurðsson- ar, fyrrv. ráðherra. Móðir Guð- mundar á Auðunarstöðum var Ingi- björg, systir Bjöms í Grímstungu, afa Bjöms Pálssonar, fyrrv. alþm. á Löngumýri, og langafa Páls Péturs- sonar félagsmálaráðherra. Móðir Gunnars var Kristín Gunn- arsdóttir, b. í Valdarási í Víðidal, Kristóferssonar. Hallfríður er dóttir Guðmundar, bifvélavirkja í Reykjavík, bróður Vilborgar, ömmu Þorgerðar Ingólfs- dóttur söngstjóra. Guðmundur var sonur Jóns, b. á Hlemmiskeiði, Ámasonar. Móðir Halifríðar var Rósa Bach- mann, systir Hallgríms ljósameist- ara, foður Helgu Bachmann leikkonu, Höllu Bachmann trúboða og dr. Jóns G. Hallgrímssonar lungnaskurðlæknis. Rósa var dóttir Jóns Bachmann, b. í Steinsholti, bróður Borgþórs, föður leikkvenn- anna, Önnu, Þóru og Emelíu Borg. Jón var sonur Jósefs, b. i Skipanesi, Magnússonar, og Halldóru Guð- laugsdóttur. Móðir Rósu var Hall- fríður ljósmóðir Einarsdóttir, út- vegsb. í Nýjabæ á Akranesi, Einars- sonar. Fimmtugur Ágúst Ragnarsson tónlistarmaöur og ráðgjafi hjá Símanum Ágúst Ragnars- son, hljómlistar- maður og ráðgjafi hjá Símanum, Lindasmára 27, Kópavogi, er fimmtugur í dag. Starfsferill Ágúst fæddist í Reykjavík og ólst þar upp í miðbæn- um. Hann varð gagnfræðingur frá Flensborgarskóla í Hafnarfirði 1969, lauk rafiðnaðar- prófi frá Iðnskóla Hafnarfjarðar 1973 og símsmiða- námi frá Póst- og símamálaskólan- um 1983. Ágúst lærði og starfaði hjá Rafha í Hafnarfirði 1971-76 og var síðan búsettur í Sviþjóð í eitt ár þar sem hann starfaði í glerverksmiðju. Ágúst var rafvirki hjá Samvirkja í Sigvölduvirkjun í eitt ár og var síðan rafvirki hjá Pósti og síma 1979-84. Hann helgaði sig síðan spilamennsku í þrjú ár en hefur leikið með hinum ýmsu hljómsveit- um í þrjátíu og sex ár. Hann hóf störf hjá Iselco 1987 og starfaði þar til 2000, lengst af sem verslunar- stjóri. Ágúst hóf síðan störf hjá Símanum 2000 og hefur verið ráð- gjafi þar síðan. Ágúst hóf hljómsveitarferil sinn með hljóm- sveitinni Bendix í Hafnarfirði 1966. Hann lék síðan með hljómsveitinni Start, Deildartungubræðrum, Stormsveitinni og síðar Fánum og Mávum. Ágúst hefur tvisvar tekið þátt í Landslaginu, var með lagið Ráðhús- ið 1989 og Reykjavik 1991. Einnig hefur hann gefið út plötur og verið með lög á plötum. Má þar nefna plötuna Ljóslifandi, sem hann gaf út ásamt Jóni bróður sínum 1982, og plötuna Kosmísk augu sem hann gaf út fyrir jólin 1989 ásamt bræðrum sínum, Jóni og Ólafi. Hann gaf út plötu með Bendix 1974 og síðar jóla- plötu með Rock-Ola 198. Einnig átti Ágúst lag á SATT-plötu 1986 og átti lagið Kveðja til vina á plötunni Lagasafhið II sem gefin var út fyrir jólin 1992. Fjölskylda Ágúst kvæntist 13.11. 1983 Berg- ljótu Benónýsdóttur, f. 26.10. 1958, fulltrúa. Hún er dóttir Benónýs Guðjónssonar, bónda á Bæ II í Hrútafirði, sem nú er látinn, og Laufeyjar Dagbjartsdóttur húsmóð- ur sem nú býr í Reykjavík. Börn Ágústs frá því áður eru Eva Lind, f. 28.10. 1971, rakari, búsett í Hafnarfirði, gift Ásgeiri Helga Ás- geirssyni og eiga þau tvö börn; Heiða, f. 24.9. 1974, skrifstofumaður hjá Marel, búsett í Hafnarfirði og á hún eina dóttur; Vaka, f. 25.6. 1979, nemi við Hí. Böm Ágústs og Bergljótar eru Hlín, f. 27.11.1983, nemi í MR; Ágúst Elí, f. 22.4. 1987, nemi í Kópavogi. Systkini Ágústs eru: Hilmar, f. 14.9.1948, verkfræðingur, búsettur í Hafnarfirði, og á hann fjögur böm; Jón G., f. 5.5. 1950, húsasmiður, bú- settur í Reykjavík, kvæntur Guð- rúnu H. Ágústsdóttur; Baldur, f. 3.12. 1957, framkvæmdastjóri, bú- settur í Hafnarfirði, kvæntur Hrefnu Sigurðardóttur; Ólafur, f. 17.9. 1959, sölumaður, búsettur í Mosfellsbæ, kvæntur Guðbjörgu Pétursdóttur; Árni, f. 9.8. 1960, flug- umferðarstjóri, búsettur í Hafnar- firði, kvæntur Lilju Finnbogadótt- ur; Dagbjört, f. 11.9. 1965, sjúkra- þjálfi í Hafnarfirði, gift Gísla Valdi- marssyni; Ragnar H., f. 11.10. 1978, búsettur í Kópavogi; Heiðrún, f. 5.12. 1979, nemi I Reykjavík. Foreldrar Ágústs eru Ragnar J. Jónsson, f. 22.5.1929, fyrrv. forstjóri, búsettur í Reykjavík, og Lára Guð- mundsdóttir, f. 13.9. 1929, búsett í Hafnarfirði. Núverandi eiginkona Ragnars er Anna Einarsdóttir húsmóðir en eig- inmaður Láru var Baldur Ámason trésmiður sem er nýlátinn. fga Útför Margrétar Siguröardóttur, Álfheim- um 42, Reykjavík, fer fram frá Áskirkju þriðjud. 17.12. kl. 13.30. Útför Brynjólfs Kristinssonar frá Hjarð- angri fer fram frá Glerárkirkju þriöjud. 17.12. kl. 14.00. Útför Lovísu Jóhannsdóttur, f. á Skálum á Langanesi, til heimilis á Stýrimanna- stíg 13, Reykjavík, verður gerð frá Foss- vogskirkju 17.12. kl. 10.30. Heiðrún Kristín Óskarsdóttir, Hólavegi 37, Siglufirði, veröur jarðsungin frá Siglufjarðarkirkju miövikud. 18.12. kl. 14.00. Afmælisgreinar yfir jól og áramót Upplýsingar vegna afmælisgreina sem birtast eiga í jólablaði DV og áramótablaði DV þurfa að berast ritstjórn blaðsins eigi síðar en fimmtudaginn 19. desember nk. Athylgi skal vakin á því að netfang ættfræðideildar DV er aettir@dv.is, ekki aettir@ff.is.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.