Dagblaðið Vísir - DV - 04.01.2003, Síða 48
52
HelQarblcið DV LAUGARDAGUR 4. JANÚAR 2003
Reynsluakstur
Njdil
Gunnlaugsson
*C
cð
•q
s
S
>
Q
Betrí innrétting og
meirí búnaður
aði þýðir þó aðeins eitt: meiri þyngd enda er VX útfærslan
hvorki meira né minna en 135 kg þyngri en gamli bíilinn
með gormafjöðruninni en sá bíll var 1980 kUó í heUdar-
þyngd.
TOYOTA LAND CRUISER 90 VX
Vél:__________________________Þriqqja lítra, D-4D dísilvél
Kostir: Fjöðrun, innrétting, hallaviðnám
Gallar: Þyngri, fótarými framsœtisfarþega
P. Samúelsson frumsýndi rétt fyrir hátíðamar nýjan
Land Cruiser 90 sem er stærri og betur búinn bUl en áður.
90 bíllinn kom fyrst á markað árið 1996 og allar götur síð-
an hefúr hann verið vinsælasti jeppi landsmanna enda 2150
eintök þegar seld. Hvort nýi jeppinn heldur þeim vinsæld-
um á eftir að koma i ljós en mikið hefur verið í hann lagt
eins og við reyndum í fjölbreyttum akstri um Suðurlandið.
Toyota DNA
Um leið og sest er upp i bUinn koma Toyota-genin strax
i ljós. Mælaborðið er af svokallaðri Optitron gerð, sömu
gerðar og í Land Cruiser 100 og Corolla. Innréttingin er öU
orðin fágaðri og mun betra efnisval í henni en áður. í VX
bílnum, sem er dýrasta útfærsla hans, er nú 6 diska
magasín með 9 hátölurum staðalbúnaður, auk skriðstUlis, 6
öryggispúðum og hemlalæsivörn. Einnig bætist við hita-
stýrð miðstöð, þokuljós, rafstUlt leðursæti og loftpúðafjöör-
un. Upphækkunin á miðjustokknum, sem innheldur akst-
urstölvuna, er minni en áður og einfaldari í notkun. Vegna
aukinnar stærðar bætir hann við í öUum málum, stærra
farangursrými, meira fótapláss nema kannski í farþegasæti
frammi í og meira hliðarpláss. Stærri bUl með meiri bún-
Betri akstursbíll
í akstri og torfærueiginleikum hefur hann bætt við sig í
nánast öUum atriðum. Hann er mun hljóðlátari en áður
enda vindstuðuU hans lægri og bUlinn betur hljóðeinangr-
aður. Aksturinn er mjúkur og áreynslulaus í „Comfort"
stiUingunni á TEMS-fjöðruninni en hægt er að velja um
þrjár stífari stiUingar í viðbót. Aukinnar þyngdar verður þó
aðeins vart, aðaUega í miUUiröðun hans enda mesta togið
neðarlega á snúningssviðinu. Einnig er upptakiö aðeins
minna, fer úr 12,5 sekúndum á gamla bílnum í 12,8 sekúnd-
ur og ekki er lengur yfirgír í nýja bUnum. Á móti kemur að
VX nú er með örlítið hærri drUhlutföUum en áður, fer úr
4,10 í 4,30 og er nú með sömu hlutfóU og þegar hann kom
fyrst árið 1996. PrófunarbíUinn var búinn nýjung sem með-
al annars var þróuð hér á landi sem er haUaviðnám
(HAC/DAC). Það heldur bUnum stöðugum á leið niður
brekkur og kemur einnig í veg fyrir að hann renni aftur á
bak þegar stoppað er í miklum haUa. í torfærum nýtur tog-
ið í dísUvélinni sín vel og gUti það einu hvort reynt væri
við bratta brekku í Jósepsdal eða gljúpan sand við Kleifar-
vatn.
Hækkar, enda betur búinn
BUlinn hækkar að meðaltali um hálfa mUljón í verði en
á móti kemur meiri staðalbúnaður sem hefði hækkað
gamla bUinn um 420.000 í VX-útfærslunni. VX er aðeins fá-
anlegur sjálfskiptur og kostar þannig 5.290.000 kr. Helstu
keppinautar eru MMC Pajero, Nissan Patrol og Land Rover
Discovery. MMC Pajero með 3,2 lítra vélinni kostar
4.990.000 kr. en þá vantar í hann rafstiUt leðursæti. Patrol
Elegance kostar 5.130.000 en er ekki eins vel búinn og likt
og Discovery S sem kostar 4.790.000 kr. Ekki má heldur
gleyma Grand Cherokee en vel búin Limited-útfærsla hans
er ekki mikið dýrari, á 5.650.000 kr. -NG
Rúmtak:____________________2982 rúmsentímetrar
Ventlar: 16
Þjöppun: 18,4:1
Gírkassi: 4ra þrepa sjálfskiptur
UNDIRVAGN:
Fjöðrun framan: Tveqqja klafa qormafjöðrun
Fjöðrun aftan: Fjöqurra klafa qormafjöðrun
Bremsur: Loftkældir diskar/diskar, ABS, EBD, BAS
Dekkjastærð: 265/65 R17
YTRI TÖLUR:
Lenqd/breidd/hæð:____________4850/1875/1905 mm
Hjólahaf/veghæð:___________________2790/220 mm.
Beygjuradíus:________________________11,4 metrar.
INNRI TÖLUR:
i I Farþegar m. ökumanni: 8
Fjöldi höfuðpúða/öryqgispúða: 8/6
Faranqursrými: 620 lítrar.
i
HAGKVÆMNI:
Eyðsla á 100 km: 10,4 lítrar
Eldsneytisqeymir: 87 lítrar
Ábyrqð/ryðvörn: 3/12 ár
Grunnverð: 3.990.000 kr.
Verð prófunarbíls: 5.290.000 kr.
Umboð: P. Samúelsson
Staðalbúnaður: 6 öryggispúðar, útvarp/geislaspilari
með 6 hátölurum, fjarstýrðar samlæsingar, raf-
drifnar rúður, rafdrifnir og upphitaðir speglar að-
fellanlegir, loftkæling með tvöfaldri hitastýringu,
spólvörn, fjölstillanleg rafstýrð framsæti, skriðstill-
ir, 2 12 V innstungur, leðurinnrétting, loftpúða-
fjöðrun, þokuljós, aksturstölva, álfelgur,
SAMANBURÐARTÖLUR:
Hestöfl/sn.: 163/3400
Snúninqsvæqi/sn.: 343 Nm/1600-3200
Hröðun 0-100 km: 12,8 sek.
Hámarkshraði: 170 km/klst.
Eigin þyngd: 2085 kg.
Heildarþyngd: 2850 kq.
© Pláss í aftursætum er gott. jafnvel með bílstjórasæti
aftarlega eins og hér sést.
© Þriggja lítra D-4D vélin er sú sama og kom í gamla bíl-
inn árið 2000.
© Aðalútlitsbreytingin er að framan jiar sem aftursveigð
ljósin ná hátt upp á brettin.
® Innréttingin er mun betri en áður og framför í alla
staði.
© Hægt er að fá VX sein átta manna bíl og eru þá sæti í
öftustu röð þrjii og öll með þriggja punkta beltum.