Dagblaðið Vísir - DV - 09.01.2003, Blaðsíða 6
Mælaborðið er óvenjuskrautlegt og mlkló lagt í falleg-
ar línur og króm.
Amerískt
dollaraqrín
Götin á hlið vélarsaiarins eru plat og
hafa ekkert hlutverk nema útlitló.
Rudolf
Kristins-
son á
glæsileg-
an Buick
Super
1949
Rudolf Kristinsson er mikill hag-
leiksmaður og hefur gert upp margan
fombílinn. Einn af hans bílum er for-
láta Buick Super 1949, svokallað „doll-
aragrín", enda breyttist hönnun bíla
mikið eftir stríð. Rudolf á einnig fjóra
Overland-bíla og hann er einnig gjald-
keri Fombílaklúbbsins þannig að það
veröur seint sagt um hann að hann
hafi lítinn fombílaáhuga. Buick-bíll
Rudolfs er nákvæmlega eins og fyrsti
bíllinn sem hann eignaðist, þá 17 ára
gamall, fyrir 46 ámm, og er liturinn
meira að segja sá sami. Að sögn Rud-
olfs varð gamli bíllinn hans ónýtur
árið 1963, sundurétinn af ryði en þá
var búið að skipta tvisvar um bretti á
honum. Sá bíll var annar af tveimur
sem komu hingað upp úr stríðinu en
hinn átti bandaríska sendiráðið sem
segir kannski eitthvað um viðhöfnina
sem fylgir þessum bílum.
Gerði upp sjálfur
Rudolf gerði þennan bíl upp að lang-
mestum hluta sjálfur, stykki fyrir
stykki, enda bíllinn tekinn í gegn frá a
til ö. Bílinn keypti Rudolf í Oklahoma
í Bandarikjunum árið 1989 og flutti
inn til landsins. „BOlinn var algjört
flak þegar ég fékk hann, sólbrunninn
og allt gúmmí ónýtt en tiltölulega laus
við ryð,“ segir Rudolf. Það tók hann
fimm ár að gera bílinn upp og var
hann tilbúinn fyrir afmælissýningu
Fornbílaklúbbsins árið 1994. Þessir
bílar þóttu mikið dollaragrin þegar
þeir komu og vom allt öðruvísi en
menn höfðu vanist. Straumlínulagið
var orðið meira, götin komin á vélar-
hlífina og framrúðan bogin en ekki
bein eins og áður,“ segir Rudolf. Götin
eru reyndar plat, segir hann, en
þekkja má í sundur Super eins og
hans á þremur á hvorri hlið en
Roadmaster hafði fjögur. Eins og áður
segir er Rudolf mikill áhugamaður um
Overland-bíla sem kepptu við Fordinn
á millistríðsárunum. Hann er með tvo
slíka uppgerða, 1924- og 1926-módel, og
svo tvo sem er verið að gera upp,
Station 1946 og gamlan 1917 sem við
munum örugglega skoða betur seinna.
-NG
Draumabíilinn minn
G 71891^' ^ , g
FIMMTUDAGUR 9. JANÚAR 2003
DV
M
agasm
Magasín-myndir Sigurður Jökull
Rudolf Kristinsson
má vera ánægöur meö Buickinn
enda er hann afar glæsilegur svo
ekki sé meira sagt.
Skreytíngin á húddlnu kölluöu menn byssusigti
sín á mllli í gríni.
Vélin er átta gata línuvél og sú fyrsta í Bulck sem
var meö vökvaundirlyftum.
„Afturendinn“ er frekar vígalegur.