Dagblaðið Vísir - DV - 09.01.2003, Blaðsíða 23

Dagblaðið Vísir - DV - 09.01.2003, Blaðsíða 23
I FIMMTUDAGUR 9. JANÚAR 2003 23 I>V \ agasín Þrettándagleði á leikskólanum Brekkuborg: Ljós í stein- inum „Sum börnin þóttust sjá álfa og huldufólk í steinunum sem eru hér á lóðinni. Nokkur þeirra bönkuðu meira að segja upp á hjá þessum vættum sem þarna búa og þóttust sjá ljós þarna inni,“ segir Guðrún Samúelsdótt- ir, leikskólastjóri á Brekkuborg i Grafarvogi, í samtali við DV- Magasín. Börnin á leikskólanum huguðu að álfum, huldufólki og huliðsvættunum, sem sagðar eru búa í steininum umrædda, að morgni þrettándans, 6. janúar. Þegar inn í skólann var svo kom- ið hélt hátíðin áfram - og börnin kvöddu jólin með viðeigandi hætti. Tekin við hlutverki ömmu og afa Margt er gert á Brekkuborg í því að viðhalda gömlum hefðum. Þær eru þema í starfi leikskólans á fyrstu dögum hvers árs. Sagðar eru ýmsar sögur um líf fólks á liðinni tið og elstu börnin fara í heimsókn á Árbæjarsafn. Þema- starfinu lýkur svo með þorrablóti í kringum bóndadag, sem í ár er 24. janúar. „Ég hef stundum sagt að leik- skólarnir séu teknir við hlut- verki afa og ömmu; að fræða börnin um líf kynslóðanna á fyrri tíð eins og var gert á kvöld- vökunni í baðstofunni. Finn líka að oft eru þessar frásagnir ekki einasta framandi börnunum heldur líka ungu fólk sem kemur til starfa," sagði Guðrún Samú- ’ elsdóttir. Máninn hátt á himni skín Fyrir utan steininn góða á leik- skólalóðinni, þar sem börnin veifuðu stjörnuljósum og kertum, sungu þau lög eins og Stóð ég úti í tunglsljósi, Máninn hátt á himni skín og Nú er glatt í hverj- um hól. Lög sem hvert manns- barn sem komið er til vits og ára kann - og þarf að kunna. Sú þekking glatast heldur ekki með þeirri kennslu sem fram fer á Brekkuborg. ’#• - •' ■ ; -rn «v Börnin á leikskólanum Brekkuborg í Grafarvogi huguðu á þrettándanum Fyrir utan steininn góða á leikskólalóðinni, þar sem bömin veifuðu að álfum, huldufólki og huliðsvættunum, sem sagðar eru búa í steininum stjörnuljósum og kertum, sungu þau lög eins og Stóð ég úti í tunglsljósi, umrædda. Máninn hátt á himni skín og Nú er glatt í hverjum hól.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.