Dagblaðið Vísir - DV - 21.01.2003, Blaðsíða 1
DAGBLAÐIÐ VÍSIR
17. TBL. - 93. ÁRG. - ÞRIÐJUDAGUR 21. JANÚAR 2003
VERÐ I LAUSASOLU KR. 200 M/VSK
Greiðslubiónusta
Landsbankinn
■m'-: *■
—-
(slenska landsliðið í handbolta niðurlægði Ástrala í
fyrsta leik á Heimsmeistaramótinu í Portúgal. Fjörutíu
marlca sigur er ekki aðeins stærsti sigur íslenska
landsliðsins heldur einnig stærsti sigur á HM frá
upphafi. Guðmundur Guðmundsson landsliðsþjálfari
segist hreinlega orðlaus og að með ólíkindum sé að
lið eins og landslið Ástrala -------------------------
skuli fá að taka þátt í HM. ■ hm í handbolta
BLS. 34-37
MORDALDA
NOREGI
ER ÞETTA HÆGT?
LEIÐUR
YFIR
ÞESSU_____
m FRÉTT
BLS. 2
Alþingi kemur saman í dag:
Halldór
óhræddur
Almenningur í Noregi er felmtri sleginn eftir að
fimmtugur maður myrti eiginkonu sína og tvær
dætur, 18 og 12 ára, og framdi síðan sjálfsvíg á
eftir. Elsta dóttir hjónanna, 21 árs, var flutt að
heiman og virðist það hafa orðið henni tii lífs.
Yngsta dóttirin var fjölfötluð og vöknuðu
grunsemdir um að ekki væri allt með felldu þegar
hún mætti ekki í skólann í gær. Nágrannar standa
skilningsvana frammi fyrir þessum ósköpum en
föðurnum, sem var atvinnulaus sjómaður, er lýst
sem hæglátum og viðfelldnum manni og
hjálpsömum nágranna.
Þessi harmleikur bætist við tvö önnur voveifleg
dauðsföll í Noregi um helgina þegar maður myrti
sambýliskonu sína og framdi sjálfsvíg á eftir.
Alls hafa 11 morð verið framin í Noregi það sem
af er árinu. --------------------
SJÁ ÍTARLEGA FRÉTT
BLS. 17