Dagblaðið Vísir - DV - 21.01.2003, Blaðsíða 2

Dagblaðið Vísir - DV - 21.01.2003, Blaðsíða 2
2 ÞRIÐJUDAGUR 21. JANÚAR 2003 Fréttir DV Þjóðverji um sextugt, sem flutti inn 1,5 kg af kókaíni, nafngreindi samstarfsmenn: Roskin kona átti að birtast í flugrútunni DV-MYND GVA Meö trefil á bak viö dómtúlkinn Réttarhaldið var stutt og skýrt þar sem túlkurrakti fyrir ákæröa hvað fór fram, auk þess að þýöa allt sem hann sagði. í lokin ávarpaði Þjóðveriinn dómarann á eigin tungumáli. Túlkurinn er til hægri en hinn þýski sakborning- ur skýlir sér bak viö trefil sinn. „Ég er mjög leiður yfir þessu,“ sagði Þjóðveiji um sextugt, búsettur í Hamborg, þegar hann ávarpaði héraðs- dómara í lok réttarhalds þar sem ríkis- saksóknari ákærir hann fyrir innflutn- ing á 1,5 kílóum af kókaíni af styrk- leika 33 til 38 prósent í lok okbóber. Þetta er mesta magn kókaíns sem toll- gæsla og lögregla hafa lagt hald á í einu. Málflutningurinn í gær snerist tals- vert um rökræður um styrkleika efh- anna. Dósent í eiturefnafræði við Há- skóla íslands kom fyrir dóminn, en hann sagði að kókaín yrði allt að 90 prósentum af styrkleika og því hafi verið um fremur veik efni að ræða í þessu máli. Hann sagði styrkleikann aðallega ráðast „af árgöngum". Bryujar Níelsson, verjandi Þjóðverj- ans, sagði að refsing fyrir brot manns- ins mætti ekki verða meira en tveggja ára fangelsi. Ragnheiður Harðardóttir saksóknari sagði á hinn bóginn að Hæstiréttur hefði dæmt mann sem skipulagði innflutning á 630 kílóum af kókaíni í 3ja ára fangelsi. Þar hefði hins vegar verið um mun sterkari efni að ræða. Flutningsmaður, eða burðar- dýr í því máli, hefði fengið tveggja ára fangelsi. Verjandinn sagði að sér sýndist að dómar væru að mildast í fíkniefnamál- um undanfarin ár, enda væru fómar- lömbin í raun ekki til staðar í þeim - þau hins vegar keyptu efiiin sjálfviljug. „Þetta er fremur orðið heilbrigðis- vandamál sem verður ekki frekar leyst með refsingum," sagði Brynjar. Fjárhagsvandi og „heimkoman" Þjóðverjanum vöknaði um augu á svipaðan hátt og við yfirheyrslur hjá lögreglu og þingfestingu i gær. Þegar hann lýsti því hvemig mál þetta bar að kvaðst hann hafa verið í fjárhagsvandræðum. Hann hefði kynnst tveimur mönnum en þá Óttar Sveinsson blaðamaður nafngreindi hann hjá lögreglu - mennirnir hefðu borið erlend fomöfn. Þjóðverjinn sagði báða hafa komið á heimili sitt en þeir hefðu komið með kókaínið og aðstoðað hann við að pakka þeim inn á sig. Ákærði sagðist hafa fengið 750 evr- ur - hátt í sjötíu þúsund krónur, til að kaupa sér farmiða til íslands. Að auki hefði hann fengið eitt þúsund evrur greiddar sem þóknun strax en samtals átti hann að fá 5 þúsund evrur fyrir flutninginn, rúmlega fjögur hundruð þúsund krónur. Maðurinn bar að hann hefði hitt mennina á flugvellinum í Frankfurt en þar hefðu þeir borðað hamborg- ara hjá McDonald’s, en hann hefði fengið fyrirmæli um að er hann kæmi í flugrútuna í Keflavík þá myndi roskin kona gefa sig á tal við hann. Ragnheiður saksóknari sagði að lögreglan hefði fylgst náið með flug- rútunni en þar hefði engin grun- samleg roskin kona verið. Var hún þar með að gefa til kynna að fram- burður ákærða um þetta væri ekki réttur. Maðurinn hélt því fram að hann hefði ekki ætlað að taka nema eitt kíló með sér til íslands og aldrei ef „styrkleikinn hefði verið yfir 20 prósentum". Dómarinn, Valtýr Sig- urðsson, spurði þá að bragði hvort hann hefði einhverja þekkingu á slíku - ekki síst í því ljósi að Þjóð- verjinn kvaðst aldrei hafa reykt í lífmu og væri alfarið á móti fikni- efnum. Hann svaraði því þá þannig að slíkt hefði hann vissulega ekki haft. Fullyrðing hans um 20 prósent- in er því ekki trúverðug. Dómur veröur kveðinn upp yfir Þjóðverjanum á þriðjudag í næstu viku. Stuttar fréttir Norðmenn Utanríkisráðuneyt- ið hefur falið Aiþjóða- stofnun Háskóla ís- lands að taka þátt samstarfsverkefni með Norðmönnum þar sem m.a. er kann- að hvort löndin taki að sér stjórn fiskveiða á N-Atlantshafi ef þau ganga í ESB. Þetta er án vitneskju sjávarútvegsráð- herra. - RÚV greindi frá. Afföll minnka Affoll húsbréfa minnka með hverjum deginum sem líður og hafa lækkað um 10 prósentustig frá því þau voru mest síðastliðið vor. Þá voru þau um 12% en í gær voru þau komin niður i um 2%. - Mbl. greindi frá. 80 metra strompar Um 80 metra háir skorsteinar verða við fyrirhugað álver Alcoa í Reyðarfirði til að draga sem mest úr loftmengun í nágrenni verksmiðjunnar. Reiknað er með að starfsleyfi fyrir verksmiðjuna verði gefið út i mars. Stúlkur betri í íslensku Árangur stúlkna var marktækt betri en árangur pilta í samræmdu prófunum í íslensku sem nemendur i 4. og 7. bekk tóku í haust. Árangur var svipaöur hjá báðum kynjum í stærðfræði. Blaðamaður yfirheyrður Reynir Traustason blaðamaður neit- ar að greina frá því hvemig hann komst yfir gögn Skifunnar um fjárframlög Jóns Ólafssonar til stjómmálaflokka. Lögreglan yfirheyrði Reyni í gær vegna rannsóknar á málinu en hann er grun- aður um að vera annað hvort í vitorði með þeim sem tók gögnin eða hafa sjálf- ur tekið þau ófrjálsri hendi. Samstarf við Ættfræðiþjónustan um íslendingabók: Gefa má fyllri mynd af frændgarði Jón Valur Jensson hjá Ættfræði- þjónustunni segist óska aðstandend- um íslendingabókarinnar - ættfræði- gagnagrunns á Netinu - til hamingju með árangurinn. Bókin muni opna nýjar víddir fyrir fjölda manns og í raun margfalda hóp þeirra sem geri sér grein fyrir hvað ættfræðin hafi að bjóða. Hins vegar segist Jón hissa á um- mælum þeirra um að bókin sé fyrst og fremst byggð á kirkjubókum, manntöl- um og slíkum heimildum; hið rétta sé að hún sé fyrst og fremst byggð á ætt- fræðibókum og æviskrám, eins og Frið- rik Skúlason hafi sjálfur sagt, meðal annars á fundum í Ættfræðifélaginu. Vissulega hafi einnig verið byggt á þjóðskránni, manntölum og kirkjubók- um en þó fyrst og fremst þegar öðrum heimildum bar ekki saman. „Þeir njóta vinnu sem ættfræðingar hafa tekið saman - og við því er ekkert að segja,“ segir Jón. „Það má segja að í þeirra störfmn og eins má benda á að ættfræðingamir borguðu ekki endilega eldri ættfræðingum fyrir afhot af heim- ildum. En það væri þó stórmannlegra að viðurkenna hvers þeir nutu af fyrri verkum." Jón segir ýmislegt jákvætt við þessa nýjung. í fyrsta lagi sé ákaflega mikils virði að áhugi almennings á ættfræði glæðist. „í öðru lagi er þetta svo langt frá því að tæma alla möguleika á frek- ari köfún í heim ættfræðinnar. Til dæmis má segja svo miklu meira um hvem og einn einstakling en þama kemur fram og gefa fyllri mynd af frændgarði manna.“ -ÓTG DVJHYND HILMAR ÞÓR Glaðst yfir stórsigri Btöörur voru á lofti þegar íslendingar gjörsigruðu Ástrala, 55-15 á HM í handknattleik í Portúgal í gær. Sjá nánar á íþróttasíöum. íslendingabók á Netinu: Oþarfa viðkvæmni? íslandsbókin nýtist ættfræðingum líka Upplýsingar um skyldleika eru ekki viðkvæmar persónuupplýsingar, að sögn Sigrúnar Jóhannesdóttur, for- stjóra Persónuvemdar. Út frá því má ef til vill álykta að ekkert standi í vegi fyrir að íslendingabók íslenskrar erfða- greiningar og Friðriks Skúlasonar verði opnuð betur. Þótt allir hafi i bókinni aðgang að öllum einstaklingum sem fæddir eru fyrir 1700 er hún að öðra leyti nokkum veginn alveg takmörkuö við upplýsing- ar um forfeður þess sem flettir í henni þegar kemur aftur fyrir þriðja ættlið. Sá sem leitar getur með öðmm orðum ekki séð hver voru böm systkina langömmu sinnar eða langafa - og ekki er heldur hægt að skoða ættir óskyldra núlifandi einstaklinga. Að vísu ber að hafa í huga að í bók- inni era ýmsar viðbótarupplýsingar um þá sem látnir em, jafhvel um dán- arorsök og hvort viðkomandi hafi ver- iö tökubam. Slíkar upplýsingar geta sigrún Kári Johannesdottir. Stefánsson. verið viðkvæmar persónuupplýsingar, segir Sigrún. Varðandi vinnslu slikra upplýsinga skipti máli hve langt er síð- an viðkomandi einstaklingur var uppi; hvort hann dó í fýrra eða á átjándu öld en æskilegt sé að sett verði lagaregla sem taki af öll tvímæli um það. Um þá sem eru á lífi gefur íslend- ingabók hins vegar engar upplýsingar aðrar en um nafn, fæðingardag og nán- asta venslafólk. Sem fyrr segir virðist því fatt mæla gegn þvf að bókin verði galopnuð hverjum og einum hvað þetta varðar. Kári Stefánsson sagði í viðtali við Morgunblaðið aö hann hefði viljað hafa grunninn miklu opnari; aðgangsskil- málamir hefðu verið ákveðnir í lög- fræðideild fyrirtækisins, „sem eyðir mestum hluta tíma síns í að koma með andstyggilegar tillögur“. Sigrún Jóhannesdóttir segir að Per- sónuvemd hafi ekki fjallað um Islend- ingabók í þeirri mynd sem hún birtist nú en gefið álit á henni á frumstigi. „Við bentum þá ráöuneytinu á að ef til vill vantaði skýrari reglur um slíka vinnslu," segir Sigrún. „Þar til 1. janú- ar 2001 féll öll vinnsla ættfræðiupplýs- inga utan laga og réttar en svo gengu ný lög í gildi þar sem ekki var kveðið á um að svo skyldi vera. Af fréttum að dæma er að vænta lagafrumvarps þar sem skotið verður ótviræðri lagastoð undir vinnslu á ættfræðiupplýsing- um.“ -ÓTG 14 ára á vélsleða Fjórtán ára ökumaður var tekinn í gær á óskráðum vélsleða á Akureyri. Vélsleðaakstur er bannaður í þéttbýli og telur stjómarmaður í félagi vélsleða- manna í Eyjafirði að allmörg dæmi séu um að réttindalausir unglingar eigi þama í hlut. - RÚV greindi frá. Beint leiguflug til Alicante Sumarferðir, ný ferðaskrifstofa í eigu Helga Jóhannssonar, Þorsteins Guðjónsson- ar og Gunnars Fjalars Helgasonar, em að taka til starfa og hyggj- ast bjóða upp á beint leiguflug til Alicante á Spáni í sumar. - Mbl. greindi frá. Nina Hagen gegn virkjun Þýska söngkonan Nina Hagen hefur skorað á íslendinga í tölvupósti, sem gengur milli manna í Reykjavík, að leggja ekki bönd á náttúruna og mögu- leika hennar með fyrirhuguðum virkj- ana- og álversframkvæmdum. Viðbygging við MK Tómas Ingi Olrich menntamálaráðherra og Sigurður Geirdal, bæjarstjóri í Kópa- vogi, undirrituðu í gær nýjan samning um viðbyggingu við Menntaskólann í Kópavogi. Vill lengri greiðslustöðvun Fuglabúið Móar hf. fékk í gær fram- lengda greiðslustöðvun til 8. apríl nk. Við meðferð málsins fyrir Héraðsdómi Reykjavíkur lagðist Búnaðarbanki ís- lands, viðskiptabanki Móa, gegn því að greiðslustöðvunin yrði framlengd leng- ur en til 1. febrúar. Óska aðstoðar Vinir Guðrúnar Bjargar Svanbjöms- dóttur, sem leitað hefur verið að síðan 29. desember sl., hafa sent út tölvubréf þar sem óskað er eftir aðstoð sem flestra við leitina. Er það gert i samráði við fjölskyldu Guðrúnar og lögreglu. -HKr.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.