Dagblaðið Vísir - DV - 21.01.2003, Blaðsíða 8

Dagblaðið Vísir - DV - 21.01.2003, Blaðsíða 8
8 ÞRIÐJUDAGUR 21. JANÚAR 2003 Fréttir :ov Deilur Baugsmanna og Jóns Geralds Sullenbergers: Málaferli á málaferli ofan íslendingabók: Ættir 700 þúsund íslendinga á Netinu - harkaleg átök fyrrum samherja sem ekki sér fyrir endann á Höfðuöstöövar Baugs Baugsmenn töldu aö þessi húsleit lögreglu í höfuöstöövum fyrirtækisins heföi haft mikil áhrif á samninga þeirra viö Phiiip Green vegna samstarfs um kaup á bresku verslanakeöjunni Arcadia sem rann út í sandinn í haust. Deilur Baugsmanna og Jóns Ger- alds Sullenbergers, eiganda Nor- dica Inc. á Flórída í Bandaríkjun- um, virðast engan endi ætla að taka. Höfðað hefur verið hvert mál- ið af öðru í hatrammri deilu þess- ara fyrrum viðskiptafélaga og vina. Nýjasta málið er meinsærismál Jóns Geralds gegn Jóhannesi Jóns- syni, stjórnarmanni í Baugi Group og stjómarformanni í Baugi ísland, jafnframt því að vera stjómarfor- maður í Fjárfestingarfélaginu Gaumi ehf. Samkvæmt málsóknarskjölum var meint meinsæri framið fyrir rétti í Dadesýslu í Flórída 13. janú- ar. Þá kom Jóhannes fyrir réttinn vegna kyrrsetningarmáls Gaums ehf. gegn Jóni Gerald og fyrirhug- aðri sölu hans á skemmtisnekkj- unni Thee Viking. í lögsókn Jóns Geralds kemur m.a. fram að undir eiðsvarinni yfirheyrslu hafi Jó- hannes greint réttinum ranglega frá ýmsu er þessu tengdist, m.a. stöðu sinni hjá Gaumi og Baugi hf. Mál vegna þessara bátakaupa tengjast reyndar kaupum á tveim öðrum bátum sem voru forverar Thee Viking. Fyrirtæki á Bahama Vegna þessara málaferla í Bandaríkjunum hafa talsmenn Gaums og Baugs þráfaldlega tekið fram að Baugur ætti ekki aðild að kaupum á bátnum Thee Viking heldur Gaumur sem lánað hefði tæpar 40 milljónir til kaupanna. Þá snúist deilan um að Jón Gerald hafi ekki staðið við skuldbindingar varðandi uppgjör á því láni. Jón Gerald fullyrðir aftur á móti í meinsærisgreinargerð sinni að það sé Bónus og Baugur sem séu aðilar máls en ekki Gaumur. Gaumur hafi aldrei verið aðili að málinu og reikningar hafi verið stílaðir á Baug og Bónus. Ekki hafi komið til tals að Gaumur fengi hlut í Thee Viking. Aftur á móti hafl Tryggvi Jónsson, þáverandi forstjóri Baugs Group, ritað Jóni Gerald Sullen- berger bréf þar sem hlutir í Thee Viking yrðu færðir á Miramar, fyr- irtæki þeirra á Bahama. Málin hrúgast upp Öll eru þessi mál tilkomin eftir aö upp úr samstarfi Jóns Geralds og Baugsmanna slitnaði á síðasta ári en Fyrirtæki Jóns Geralds, Nor- dica Inc., sá um innkaup og merk- ingar á bandarískum vörum sam- kvæmt evrópskum reglum sem keyptar voru til Baugs. í framhald- inu kærði Jón Gerald Sullenberger stjómarformann og forstjóra Baugs og sakaði þá um ólögmæta auðgun, m.a. með samþykki rangra reikn- inga útgefnum af Nordica Inc., fyrirtæki Jóns Geralds. í kjölfarið hófst dramatísk lögreglurannsókn með innrás lögreglu í höfðustöðvar Baugs í Reykjavík í lok ágúst í fyrra og síðan húsleit hjá SMS í Færeyjum sem Baugur er helm- ingseigandi að. Var þetta á sama tíma og Baugur var í viðræðum um kaup á bresku verslanakeðjunni Arcadia sem ekki gekk upp. Baugs- menn kærðu húsleitarheimild hér- aðsdóms, framgöngu lögreglu og kröfðust gagna sem lögregla hafði haldlagt. Eitt mál leyst Á sama tíma stóðu Baugsmenn í hörðum deilum við Jim Schafer hjá WallMart en hann var kunningi Jóns Geralds Sullenbergers. Upp úr nánu samstarfi Jims Schafers og Bónuss slitnaði og trúnaðurinn brast með miklum látum síðastlið- ið sumar og var Jim þá rekinn úr starfi framkvæmdastjóra Bonus Dollar Stores í Bandaríkjunum. Baugur fullyrti opinberlega að Schafer hefði misnotað stöðu sína til þess að kaupa innréttingar í Bonus Dollar Stores af sínu eigin fyrirtæki, Retail Stores Services, sem hvorki Baugur né stjórn Bon- us Dollar Stores heföu haft hug- mynd um að væri til. Jim Schafer stefndi fyrirtækjunum en þeim málum lauk óvænt með því að Baugur samdi við Jim Schafer um uppgjör. Á haustdögum hætti Tryggvi Jónsson svo sem forstjóri Baugs er hann keypti Heklu hf. og gerðist þar forstjóri. Tiltölulega hljótt var um deilur Jóns Geralds og Baugsmanna frá því í haust eða þar til dómari í Flórída ógilti kyrrsetningarkröfu Gaums 13. janúar. I kjölfarið hóf Baugur mál i Bandaríkjunum gegn Nordica Inc. vegna ógreiddra reikninga og upplýst var að Gaum- ur myndi höfða mál gegn Jóni Ger- ald. Það nýjasta er svo meinsæris- málið sem Jón Gerald hefur nú höfðað gegn Jóhannesi Jónssyni og DV greindi frá á laugardag. Búist er við fleiri málshöfðunum á báða bóga. Tengsl Gaums og Baugs Til að átta sig á hvemig Gaumur kemur inn í þessa umræðu er rétt að líta á eigendur Baugs Group ehf. en tíu stærstu hluthafarnir í félag- inu þann 27. desember 2002 voru eftirfarandi: Gaumur Holding S.A. með hluti upp á 491.734.758 krónur, eða 20,53% af heildarhlutafé í fyrirtæk- inu. Fjárfestingarfélagið Gaumur ehf. með 400.114.688 krónur í hluta- fé, eða 16,70%. Reitan Handel AS kemur næst með 282.540.000 krónur í hlutafé, eða 11,79%. Kaupþing - Safnreikningur ísland er með 236.690.550 krónur sem er 9,88%. Kaupþing banki hf. er með 83.464.876 krónur, eða 3,48%. Fast- eignafélagið Stoðir hf. er með 81.414.885 krónur eða 3,40%. Búnað- arbanki íslands hf. er með 77.462.871 krónur, eða 3,23%. Líf- eyrissjóðir Bankastræti 7 er með 57.890.931 krónur, eða 2,42%. Fjár- festingarfélagið Straumur hf. er með 51.404.500 krónur, eða 2,15%, og Eignarhaldsfélagið ISP ehf. er með 48.302.978 krónur, eða 2,02%. Heildarhlutafjáreign í félaginu var 27. desember alls 2.395.676.412 krón- ur. ■ í stjóm Baugs Group eru sem að- almenn, þau Hreinn Loftsson lög- maður, sem er stjómarformaður, Guðfinna S. Bjamadóttir, rektor Háskólans í Reykjavík, Tom Kristi- ansen frá AD Reitan Handel, Jó- hannes Jónsson, kaupmaður og stofnandi Bónuss og Þorgeir Bald- ursson forstjóri prentsmiðjunnar Odda hf. Varamenn í stjórn eru Hans Kristian Hustad og Kristín Jó- hannesdóttir. Forstjóri félags- ins er Jón Ásgeir Jóhannesson. Hann var stjóm- arformaður meðan Tryggvi Jóns- son var forstjóri eða á þeim tíma er upp úr samstarfinu við Jón Gerald slitnaði. Fyrirtækið sem Baugsmenn segja nú aö hafi raunverulega átt viðskiptin um Thee Viking er Fjárfestingarfélagið Gaumur ehf. sem er, eins og hér kemur fram, annar stærsti eigandi Baugs Group. Gaumur er aftur á móti í eigu Jóhannesar Jónssonar og fjöl- skyldu og er Jóhannes þar stjórn- arformaður. Þá eru með honum í stjórn félagsins sonur hans, Jón Ásgeir, og dóttir hans, Kristín Jó- hannesdóttir, er framkvæmda- stjóri. -HKr. Jón Gerald Jóhannes Sullenberger. Jónsson. Thee Víking Snekkja sem oröiö hefur tilefni haröra deilna. Nú hefur málflutningur í kyrrsetningarmáli Gaums í Bandaríkjunum vegna bátsins kallaö á máisókn Jóns Geralds Sullenbergers gegn Jóhannesi Jónssyni vegna meints meinsæris hans fyrir rétti í Flórída. Jón Ásgeir Jóhannesson. Friðrik Skúlason. Griðarlegur áhugi virðist vera á ættfræði- grunninum Is- lendingabók sem settur var á Netið á laugardag. í gær höfðu rúmlega 20 þús- und manns skráð sig sem notendur að vefnum. ís- lendingabók er opin öllum endur- gjaldslaust og geta notendur skoðað upplýsingar um sjálfa sig, ættir sín- ar og ættingja fram í þriðja lið auk þess að rekja ættir sínar saman við aðra sem skráðir eru í grunninn. Ættfræðigrunnurinn er sam- starfsverkefni Friðriks Skúlasonar og íslenskrar erfðagreiningar. „Þetta er eini ættfræðigrunnur- inn í heiminum sem nær til heillar þjóðar. í íslendingabók er að fmna upplýsingar um ættir 700 þúsund ís- lendinga eða meira en 95% allra þeirra sem uppi hafa verið frá því fyrsta manntalið var gert árið 1703,“ segir Friðrik Skúlason. Fjöldi skráðra einstaklinga sem fæddust á 20. öld er um 366 þúsund manns og tengingar við báða for- eldra í 95% tilvika. Langflestir eða 77% þeirra sem skráðir eru í grunn- inn voru uppi á síðustu tveimur öld- um. Aðspurður segir Friðrik eina ástæðu þess að íslendingabók er opin öllum án endurgjalds þá að með því móti fái aðstandendur grunnsins mikilvægt villutékk. „Við eigum von á því að fólk sendi okkur viðbótarupplýsingar og leiðrétti það sem missagt er. Það er okkur afar mikilvægt," segir Frið- rik Skúlason. Áhugasamir geta skráð sig á heimasíðu íslendingabókar og fá síðan notendanafn og lykilorð sent heim bréfleiðis. -aþ Barði mann með kjötexi Kona barði fyrrum eiginmann sinn í höfuðið með kjötexi og var höggið svo þungt að skaft axarinnar brotnaði. Þetta er meðal þess sem fram kemur í dagbók lögreglunnar eftir helgina. Atburður þessi átti sér stað á sunnudag og mun maðurinn hafa ætlað að sækja muni í íbúð konunnar fyrrverandi. Hann mun [ sjálfur hafa hringt eftir aðstoð lög- reglu. Maðurinn var fluttur á slysa- deild en áverkar á höfði hans reynd- ust minni háttar. Lögreglan lagði aftur á móti hald á kjötexina. -aþ Sparkaði í lög- reglumann Lögreglumenn, sem voru staddir í Hafnarstræti aðfaranótt sunnudags- ins, sáu skyndilega hvar tveir dyra- verðir lágu ofan á kvenmanni fyrir utan veitingahús. Lögreglumennirn- ir tóku konuna inn í lögreglubíl til þess að ræða við hana. Að sögn dyravarða hafði hún ráðist á gest inni á staðnum og verið vísað út í kjölfarið. Þá hóf hún að sparka í dyraverðina sem skýrir af hverju þeir héldu henni niðri eins og fyrr er lýst. Svipað var uppi á teningn- um í lögreglubifreiðinni því konan hóf aftur aö beita fótum, sparkaði í einn lögreglumann og hrækti á þann næsta. Hún var flutt með það sama á lögreglustöð og gisti í fanga- klefa. -aþ 11«

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.