Dagblaðið Vísir - DV - 21.01.2003, Blaðsíða 34
34
ÞRIÐJUDAGUR 21. JANÚAR 2003
hanðbolti^ .ui
GOCD Q P@[Iíi®QaQ/
DV
Ágætis
upphitun
fyrir fram-
haldið
„Þetta var svolítið asnalegt en
ég var ánægðastur áð sjá hvað
liðið gaf sig 100% í leikinn. Við
pössuðum okkur að meiðast ekki
og reyndum hvað við gátum að
leika frjálsan bolta. Það gekk
upp og ég er ánægður með
hvernig við fórum í gegnum leik-
inn. Það var ágætis upphitun
fyrir framhaldið,” sagði Róbert
Sighvatsson eftir leikinn.
„Við ætlum að taka þessa
keppni í tröppum og ég er viss
um að við þurfum að hafa meira
fyrir hlutunum gegn Grænlend-
ingum. Viö sýndum fannst mér
að við erum sterkir og við höfum
kallað það fram. Þetta er allt
saman á réttri leið og við sýnd-
um það svo sannarlega í leikn-
um á móti Svíum áður en við
komum til Portúgals,” sagði Ró-
bert.
Alveg orðlaus
- segir Guömundur Guömundsson landsliðsþjálfari
„Ég er bara hreinlega orðlaus og
með ólíkindum að svona lið skuli
vera að taka þátt í heimsmeistara-
keppninni. Það var þó aðalatriðið
að leikmenn mínir voru mjög ein-
beittir allan tímann en það þurfum
við að vera í hverjum einasta leik.
Við gerum okkur hins vegar grein
fyrir því að Grænlendingar verða
miklu erfiðari en þeir eru með
þannig lagað séð með frambærilegt
liö og geta vel spilað góðan hand-
bolta,” sagði Guðmundur Guð-
mundsson landsliðsþjálfari í sam-
tali við DV eftir leikinn við Ástrala
í Viseu í gærkvöld.
- Kom það þér á óvart hvað
Ástralar voru slakir?
„Já, í sjálfu sér hefði maður
aldrei trúað því fyrir fram að þeir
væru svona slakir. Það var eins og
þeir væru hreinlega sprungnir og
meira hef ég ekki um frammistöðu
þeirra að segja. Það er ágætt að við
gerðum það sem við ætluðum okkur
en það var að hvíla lykilleikmenn.
Við skiptum leiknum eins jafnt á
milli manna og hægt var tii að
spara orku tii lengri tíma litið. Við
verðum að gera okkur grein fyrir að
núna bíður okkar stigvaxandi erfið-
ari verkefni. Við gætum átt í vænd-
um erfiðan leik gegn Grænlending-
um og við verðum að halda einbeit-
ingunni,” sagði Guðmundur.
-JKS
Leikmenn og þjálfarar urðu að sýna þolinmæði á meðan verið var að gera við Ijósin í íþróttahúsinu í Viseu.
Guðmundur Guðmundsson þjálfari er hér hugsi ásamt lærisveinum sínum. DV-mynd Hilmar Þór
Guöjón Valur Sigurðsson var markahæstur íslensku leikmannanna með 14
mörk og er hér eitt þeirra í uppsiglingu. DV-mynd Hilmar Þór
„Menn eru hissa“
„Menn eru hissa og þetta var allt
saman óraunverulegt. Það var ein-
hvem tímann í yngri flokkunum
sem maður spilaði svona leik síðast.
Ég átti svo sem ekki von á einu eða
neinu frá Áströlunum þannig lagað.
Ekki voru þeir sterkir og eins
fannst mér þeir ekki sýna mikla
baráttu. Við heföum fengið miklu
meiri mótspyrnu frá liði heima á ís-
landi en Áströlum sem voru mjög
slakir þegar á hólminn kom. Það er
jákvætt við okkar leik að við náðum
að halda einbeitingunni. Það hefur
verið langur aðdragandi að mótinu
og menn eru búnir að vera með hug-
ann við verkefnið. Það var alveg
sama á hverju gekk, menn héldu
haus og einnig þrátt fyrir að ljósin í
húsinu færu i hálftíma,” sagði Dag-
ur Sigurðsson, fyrirliði íslenska
liðsins, í samtali við DV eftir leik-
inn við Ástrali.
„Við reiknum með að Grænlend-
ingar séu töluvert sterkari en Ástr-
alir. Þeir eiga stráka sem eru að
leika í Danmörku og víðar og hafa
einnig komið heim til íslands og æft
þar með félagsliöum,” sagði Dagur
Sigurðsson. -JKS
Heiðmar Felixson:
Ekki nefbrotinn
Gott að fá að spila
„Það var ekki hægt
annað fyrir mig og
Guðjón Val en hlaupa
fram og *til baka og
skora. Það var gott að fá
að spila og losa um
stress i leiðinni og gott
fyrir Ólaf Stefánsson að
fá smáhvild. Ég átti samt
von á þvi að Ástralar
gætu meira en þetta en
leikurinn var ótrúlega auðveldur
þrátt fyrir mikil hlaup. Við getum
samt sem áður verið ánægðir með
að halda út allan leikinn
og leikurinn fór aldrei í
neina vitleysu,” sagði
Heiðmar Felixson. „Þessi
sigur gefur okkur smá
kraft í næstu verkefni og
ég hlakka mikið til. Það
er draumur að fá að taka
þátt í þessu móti með
landsliðinu. Ef við
höldum okkar striki og
einbeitingu þá held ég að við
vinnum Grænlendinga,” sagði
Heiðmar. -JKS
Gústaf Bjarnason varð fyrir
því óhappi að fá olnbogaskot á
nefið þegar tíu mínútur voru
liðnar af leiknum við Ástrala í
gærkvöld. Leikurinn var stöðv-
aður í þrjár mínútur meðan hlúð
var að Gústafi en óttast var að
hann hefði nefbrotnað.
Við nánari skoðun kom í ljós
að ekki var um nefbrot að ræða
og verður honum því ekkert að
vanbúnaði að taka þátt í næsta
leik íslenska liðsins, gegn Græn-
lendingum í kvöld. Gústaf hafði
haft sig töluvert frammi í leikn-
um og skoraði þrjú mörk á þeim
stutta tíma sem hann var inni á.
-JKS
Hrikalega erfitt
Þetta var erfiöasti leikur sem ég
hef nokkum tíma stjómað liði. Við
erum hér að kljást við bestu hand-
boltaþjóðir í heimi og ég ætla að
vona að þessi keppni gefi okkar
mönnum reynslu. Ég verð að viður-
kenna að ég bjóst við meira frá mín-
um mönnum en íslenska liðið er
geysilega öflugt á öllum sviðrnn. Það
er mikill munur á þessum þjóðum
eins og lokatölur leiksins gefa glöggt
til kynna,” sagði Markinkovic, þjálf-
ari ástralska landsliðsins, á blaða-
mannafundi eftir leikinn.
. „Við verðum að halda okkar upp-
byggingarstarfi áfram en það er al-
veg ljóst að við eigum töluvert í
land. Ég vissi alveg hvað beið okkar
í þessum leik en íslenska liðið er í
hópi sterkustu handboltaþjóða í
heimi. Við eigum að getað leikið bet-
ur en þetta og ef til vill hafa mínir
menn borið of mikla virðingu fyrir
íslenska liðinu,” sagði Markinkovic.
allLZSolta Við fkondbolta