Dagblaðið Vísir - DV - 21.01.2003, Blaðsíða 24
24
íslendingaþættir
Umsjón: Kjartan Gunnar Kjartansson
80 ára_____________________
Jónína Ágústsdóttir,
Dalbraut 18, Reykjavík.
Þorgeróur Jörundsdóttir,
Bakkavör 9, Seltjarnarnesi.
___________________
Erna H. Kolbeins,
Huldulandi 1, Reykjavík.
Gísli Kristjánsson,
Hamrahlíö 5, Grundarfiröi.
Guörún Guömundsdóttir,
Laufási 6, Egilsstöðum.
Ingibjörg Kristjánsdóttir,
Grandavegi 47, Reykjavík.
Sverrir Sigurösson,
Karlsbraut 17, Dalvík.
70 ára_______________________
Bjargmundur Einarsson,
Efra-Ási, Hofsósi.
Erla Friðbjörnsdóttir,
Túngötu 22, Grenivlk.
Guömundur Halldórsson,
Hjallastræti 12, Bolungarvík.
Guörún Þ. Vilhjálmsdóttir,
Laufengi 1, Reykjavík.
Hólmfríður Reimarsdóttir,
Lagarási 33, Egilsstöðum.
60 ára
Atli Einarsson,
Bessahrauni 22, Vestmannaeyjum.
Sigmar Björnsson,
Lækjarseli 10, Reykjavík.
Sigurborg Kristinsdóttir,
Sléttahrauni 20, Hafnarfirði.
50 ára
Agústa Linda Agústsdóttir,
Þverbrekku 4, Kópavogi.
Guðmundur Ómar Jónsson,
Stekkjarbergi 4, Hafnarfirði.
Hjörtur Sigurösson,
Núpasíðu 6e, Akureyri.
Hreinn Viihjálmsson,
Sogavegi 120, Reykjavík.
Páll Gestsson,
Hjallabraut 1, Hafnarfirði.
Páli Kárason,
Birkiteigi 2, Mosfellsbæ.
Kona hans er Sólveig Þ.
Siguröardóttir. Þau hjónin
taka á móti ættingjum og
vinum á heimili sínu laug-
ardagskvöldið 25. janúar
eftir kl. 19.
40 ára_______________________
Bragi Hlíðar Sigurösson,
Holtsgötu 18, Njarðvík.
Eyrún Oddný F. Óiafsdóttir,
Flétturima 11, Reykjavík.
Haukur Blöndal Kjartansson,
Njálsgötu 80, Reykjavík.
Siggeröur Á. Siguröardóttir,
Vesturgötu 117, Akranesi.
Sævar Már ingimundarson,
Háaleitisbraut 36, Reykjavík.
Þórunn Ágústa Einarsdóttir,
Þverási 5a, Reykjavík.
Örn Valsson,
Rauðalæk 42, Reykjavík.
Smáauglýsingar
ov
550 5000
Andlát
Margrét Möller lést að morgni 18. janú-
ar á hjúkrunarheimilinu Eir.
Sigurfinnur Ólafsson, Skjólbraut la,
Kópavogi, lést 15.janúar.
Guömunda Ásgeirsdóttir lést á dvalar-
heimilinu Seljahlíð 17.janúar.
Elín Þorleifsdóttir, Hátúni 7, Keflavík,
verður jarösungin frá Keflavíkurkirkju í
dag, 21. janúar, kl. 14.
Guörún S. Karlsdóttir, Ægisíðu 56,
Reykjavík, verður jarðsungin frá Nes-
kirkju 22. janúar.
Kristberg Magnússon, Gullsmára 7,
Kópavogi, verður jarösunginn frá Digra-
neskirkju 22. janúar kl. 15.
Birna Guömundsdóttir, áður til heimilis
á Afiagranda 23, verður jarðsungin frá
Fossvogskapellu 22. janúar kl. 13.30.
ÞRIÐJUDAGUR 21. JANÚAR 2003
DV
Sextugur
Arnar Jónsson
leikari
Arnar Jónsson leikari, Óðins-
götu 9, Reykjavik, er sextugur í
dag.
Starfsferill
Kristmar Amar er fæddur 21.
janúar 1943 á Akureyri. Hann
stundaði nám í MA og Iðnskólan-
um á Akureyri og lauk námi frá
Leiklistarskóla Þjóðleikhússins
1964. Arnar lék í Grímu 1962-1966
og var lausráðinn leikari hjá Þjóð-
leikhúsinu og Leikfélagi Reykja-
víkur 1964-1965 og fastráðinn leik-
ari hjá Leikfélagi Reykjavíkur
1965-1968. Hann var stofnandi og
leikari í Leiksmiðjunni 1968-1969
og leikari hjá Leikfélagi Akureyr-
ar 1969-1973, fastráðinn þar
1973-1975. Hann var og stofnandi
og leikari í Alþýðuleikhúsinu á
Akureyri 1975-1978 og fastráðinn
leikari hjá Þjóðleikhúsinu frá
1978.
Amar hefur leikið um 150 hlut-
verk í leikhúsum, þar af 60 aðal-
hlutverk. Má þar nefna Fandó í
Fandó og Lis hjá Grímu, Arlekínó
í Tveggja þjóni og Artúr í Tangó
hjá Leikfélagi Reykjavíkur, titil-
hlutverkið í Galdra-Lofti í
Leiksmiöjunni, Don Juan í Stein-
gestinum, Makka hníf í Túskild-
ingsóperunni og Henry Higgins í
My Fair Lady hjá Leikfélagi Akur-
eyrar. Platonov í Villihunangi,
Pétur Gaut eldri í Pétri Gaut, Sig-
urbjöm í TröUakirkju, Bjart í
Sjálfstæðu fólki, Abel Snorko í
Abel Snorko býr einn og Kreon
konung í Antígónu í Þjóðleikhús-
inu. Sem stendur leikur hann
Helga í Veislunni og Jón TröU í
Með fullri reisn í Þjóðleikhúsinu.
Þá hefur Arnar einnig leikið í
mörgum kvikmyndum, meðal
annars burðarhlutverk í Útlagan-
um, Atómstöðinni, Á hjara verald-
ar, Gullsandi, Maríu og Dansin-
um. Hann hefur leikstýrt allmörg-
um verkum á sviði, leikið hátt á
annað hundrað hlutverk í útvarpi
og fjölmörg hlutverk í sjónvarpi.
Amar var formaður Leikarafé-
lags Þjóðleikhússins um nokkurra
ára skeið, einnig varaformður Fé-
lags íslenskra leikara í nokkur ár
og var í stjóm golfklúbbsins Odds
en áhugamál hans eru golf, hesta-
mennska og útivist.
Fjölskylda
Amar kvæntist 8. október 1965
Þórhildi Þorleifsdóttur, f. 25.3.
1945, leikstjóra. Foreldrar hennar
voru Þorleifur Guðmundsson,
kaupsýslumaður í Reykjavík, og
kona hans, Guðrún Bergsdóttir,
húsmóðir. Þau eru bæði látin.
Börn Amars og Þórhildar eru
Guðrún Helga, f. 15.7. 1964, eigin-
maður hennar er Geir Sveinsson,
þjálfari og háskólanemi, og barn
þeirra er Arnar Sveinn; Sólveig, f.
26.1. 1973, leikkona í Berlín, en
hennar maður er Jósef Halldórs-
son, nemi í arkitektúr, og synir
þeirra em Halldór Dagur og Arn-
ar; Þorleifur Örn, f. 15.7.1978, leik-
listamemi í Reykjavík, maki er
hin finnska Meri Louekari; Odd-
ný, f. 1.5 1980, nemi, Reykjavík, og
Jón Magnús, f. 10.8. 1982, nemi,
Reykjavík, og hann á soninn Vikt-
or Huga.
Systir Amars er Helga Elín-
borg, f. 28.12. 1945, leikkona í
Reykjavík, gift Örnólfl Árnasyni
rithöfundi. Fóstursystir Amars er
Arnþrúður Jónsdóttir, f. 6.12.1955,
búsett í Reykjavík.
Foreldrar Amars: Jón Kristins-
son, fyrrv. forstjóri elliheimilanna
á Akureyri, Hlíðar og Skjaldarvík-
ur, og kona hans, Amþrúður Ingi-
marsdóttir.
Ætt
Föðursystir Amars er Stefanía,
móðir Jóns Viðars Jónmundsson-
ar nautgriparæktaráðunautar.
Faðir Jóns var Kristinn, b. á
Kambfelli í Eyjafirði, Stefánsson.
Móðir Kristins var Jóhanna
Magnúsdóttir, vinnumanns í
Heiðarhúsum á Flateyjardal, Jón-
atanssonar. Móðir Magnúsar var
Aðalbjörg Jónsdóttir. Móðir Aðal-
bjargar var Rannveig Magnúsdótt-
ir, prófasts á Hrafnagili, Erlends-
sonar, fóður Guðlaugar, móður
Péturs Guðjónssonar söngkenn-
ara, ættföður Gudjohnsen-ættar-
innar.
Móðir Jóhönnu var Kristín
Jónsdóttir, b. á Heiðarhúsum,
Jónssonar og konu hans, Guð-
finnu Arngrímsdóttur. Móðir
Guðfinnu var Hugrún Björnsdótt-
ir, lögréttumanns á Stóru-Laug-
um, Amgrímssonar, af ætt Hrólf-
unga, bróður Páls, langafa Ólafar,
langömmu Bjarna Benediktssonar
forsætisráðherra. Páll var einnig
langafi ísaks, langafa rithöfund-
anna Stefáns Jónssonar og Thors
Vilhjálmssonar. Móðir Jóns var
Elínborg Jónsdóttir, skipstjóra á
Kálfsá í Ólafsfirði, Magnússonar
og konu hans, Lísibetar Friðriks-
dóttur.
Móðurbróðir Amars er Ingi-
mar, prestur á Þórshöfn, faðir
Ingimars, fréttamanns í Brussel.
Arnþrúður var dóttir Ingimars,
útgerðarmanns á Þórshöfn, Bald-
vinssonar, b. á Fagranesi á Langa-
nesi, Metúsalemssonar, b. í
Hamragerði, Sigurðssonar, um-
boðsmanns á Eyjólfsstöðum á
Völlum, Guðmundssonar, bróður
Páls, langafa Móeiðar, ömmu
Helga Skúlasonar leikara. Móðir
Ingimars var Hólmfríður, systir
Ingunnar, ömmu Gylfa Þ. Gísla-
sonar og Gunnlaugs Schevings
listmálara. Hólmfríður var dóttir
Stefáns, umboðsmanns á Snartar-
stöðum, Jónssonar, prests á
Helgastöðum, Stefánssonar. Móðir
Jóns var Þuríður Jónsdóttir, syst-
ir Þorgríms, langafa Gríms Thom-
sens. Móðir Baldvins var Guðrún
Skúladóttir, systir Sveins, langafa
Kristjönu, móður Brynjólfs
Bjarnasonar, forstjóra Granda.
Móðir Amþrúðar. var Oddný
Árnadóttir, pósts á Vopnafirði,
Sigbjamarsonar, prests á Kálfa-
fellsstað, Sigfússonar. Móðir Sig-
bjamar var Ingveldur Jónsdóttir,
prests í Þingmúla, Hallgrímsson-
ar, bróður Þorsteins, afa Jónasar
Hallgrímssonar skálds. Móðir Ing-
veldar var Ingibjörg Þórðardóttir
af Arnheiðarstaðaættinni. Móðir
Áma var Oddný Pálsdóttir
Thorarensen, prófasts í Sandfelli,
Magnússon, klausturhaldara á
Munkaþverá, Þórarinssonar,
sýslumanns á Grund, Jónssonar,
ættföður Thorarensenættarinnar.
Móðir Oddnýjar Pálsdóttur var
Anna Benediktsdóttir, systir
Sveins, afa Einars Benediktssonar
skálds. Móðir Oddnýjar Árnadótt-
ur var Þórdís, systir Stefáns, afa
Stefáns Benediktssonar, fyrrv.
þjóðgarðsvarðar í Skaftafelli. Þór-
dís var einnig systir Gúðnýjar,
ömmu Einars Braga rithöfuhdar.
Þórdís var dóttir Benedikts, b. á
Brunnum í Suðursveit, bróður
Guðnýjar, ömmu Þórbergs Þórð-
arsonar. Benedikt var einnig
bróðir Sigurðar, afa Gunnars
Benediktssonar rithöfunda'r. Móð-
ir Þórdísar var Ragnliildur Þbr-
steinsdóttir. Móðir Raghhildar
var Guðný Einarsdóttir. Móðir
Guðnýjar var Ragnhildur Sigurð-
ardóttir. Móðir Ragnhildar Sig-
urðardóttur var Sigríður Jóns-
dóttir „eldprests" Steingrímsson-
ar. '
Aukasýning er á Veislunni í
kvöld í tilefni dagsins.
Sextugur
Erlendur M. Guðmundsson
vélvirkjameistari
Erlendur M. Guðmundsson vél-
virkjameistari, Leirdal 8, Vogum,
Vatnsleysuströnd, er sextugur í dag.
Starfsferill
Erlendur er fæddur að Brekku í
Vogum 21. janúar 1943, ólst upp í
Vogunum og hefur búið þar alla tið.
Hann var við nám í Brunnastaða-
skóla 1950 til 1957, héraðsskólann að
Laugarvatni 1957-58 og Iðnskóla
Keflavíkur 1958 til 1964. Hann hefur
alltaf búið i Vogunum.
Fjölskylda
Erlendur kvæntist 14.7.1963 Svein-
dísi E. Pétursdóttur gangaverði, f.
7.12. 1943. Foreldrar hennar voru
Pétur Sveinsson og Guðlaug S.
Sveinsdóttir. Þau bjuggu í Hafnar-
firði og Reykjavík en eru bæöi látin.
Böm Erlendar og Sveindísar eru
Björgvin Pétur, f. 13.4. 1964,
búsettur á Eskifirði, en kona hans
er Elísabet Lára Eiríksdóttir, f.
16.10. 1964, og böm þeirra eru Odd-
ný Erla, Vilborg Konný, Sveindís
Björg og Ómar Unnþór; Lovísa Ósk,
f. 14.9. 1965, búsett í Reykjanesbæ,
en hennar maður er Hallvarður Þ.
Jónsson, f. 12.4. 1962, og dætur þær
Erlendsína Ýr og Ríkey Rán; Vil-
hjálmur Agnar, f. 15.4. 1967, búsett-
ur i Vogum, en sambýliskona hans
er Svava Sigmundsdóttir, f. 15.2.
1973, og böm Þengill Þór og Gabriel
Gísli; Sigurður Þór, f. 4.3. 1974,
búsettur í Jacksonville, Flórída og
kona hans er Mary Erlendsson og
bar Þór Michael, f. 21.8. 1997. Systk-
ini Erlends voru ellefu talsins en
ein systir er látin. Aldursröðin er
þessi: Magnea Guðríður Guðmunds-
dóttir, f. 31.8. 1941, d. 5.7. 1986, hún
var búsett í Ströby, Danmörku;
Haukur Mattias Guðmundsson, f.
7.6. 1944, búsettur í Innri-Njarðvík;
Hreiðar Sólberg Guðmundsson, f.
15.6.1945, búsettur í Kópavogi; Sess-
elja Guðlaug Guðmundsdóttir, f.
30.11. 1947, búsett í Mosfellsbæ; Jón
Grétar Guðmundsson, f. 8.7. 1949,
búsettur í Vogum; Helgi Ragnar
Guðmundsson, f. 18.8.1950, búsettur
í Vogum; Svandís Guðmundsdóttir,
f. 28.5.1952, búsett í Svíþjóð; Halla
Jóna Guðmundsdóttir, f. 4.8. 1953,
búsett í Vogum; Guðlaugur Rúnar
Guðmundsson, f. 15.1.1955, búsettur
í Danmörku; Björgvin Hreinn Guð-
mundsson, f. 23.1. 1957, búsettur í
Vogum; Viktor Guðmundsson, f. 1.5.
1960, búsettur í Vogum.
Foreldrar Erlends: Guðmundur
Björgvin Jónsson, verkstjóri, vél-
virki og pípulagningarmaður, f.
1.10. 1913, látinn, og Guðrún Lovisa
Magnúsdóttir, f. 18.12. 1922, hús-
freyja í Vogum.
Ætt
Faðir Guðmundar Björgvins var
Jón, útvegsbóndi að Brunnastöðum,
Vatnsleysustrandarhreppi, Einars-
son, Jónssonar bónda og k.h., Sig-
ríðar ísleifsdóttur.
Móðir Guðmundar var Margrét
Pétursdóttir, Jónssonar, útvegs-
bónda í Nýjabæ, síðar Brekku und-
ir Vogastapa, og k.h., Guðlaugar
Andrésdóttur, ljósmóður og hús-
freyju.
Foreldrar Guðrúnar Lovísu voru
Magnús Jónsson, bóndi að Halldórs-
stöðum, Vatnsleysustrandarhreppi,
og k.h., Erlendsína Helgadóttir hús-
freyja.
Erlendur og Sveindís verða með
opið hús í húsakynnum Hitaveitu
Suðumesja hf., að Brekkustíg 36,
Ytri-Njarðvík (Reykjanesbæ), laug-
ardaginn 25. janúar milli klukkan
19 og 23. Gengið inn frá Bakkastíg.