Dagblaðið Vísir - DV - 21.01.2003, Blaðsíða 4

Dagblaðið Vísir - DV - 21.01.2003, Blaðsíða 4
4 Fréttir ÞRIÐJUDAGUR 21. JANÚAR 2003 I>v „í kjölfar bókhaldsmisferla í Bandaríkjunum, hafa kauphallir um allan heim hert reglur og aukið aðhald á mark- aðnum. Hluti afþví er aðalfundurinn hjá okk- ur í fyrra og aukið vald til handa forstjóra. í þessari viku erum við síð- an enn að auka þetta eftir- lit með því að taka upp rafrœnt eftirlitskeifi sem samstarfsaðilar okkar í NOREX á Norður- löndunum eru með. Þóröur Friöjónsson, forstjóri Kauphallar íslands Viðskipti á ijármálamarkaði: Grundvallaratriði að varðveita traustið Nafn: Þóröur Friöjónsson Aldur: 51 árs Heimili: Reykjavík Staða: Forstjóri Kauphallar íslands Efni: Hert viöurlög og aöhald á fjármálamarkaöi Þórður Friðjónsson, forstjóri Kaup- hallar íslands, vakti athygli fyrir helg- ina er Kauphöllin vítti tvö fyrirtæki á markaði og beitti þau fjársektum fyrir að standa ekki við skyldur sínar gagn- vart Kauphöllinni. Var ákveðið að beita Búnaðarbanka tslands hf. févíti að fjár- hæð 4,5 milljónir króna fyrir að hafa brotið flöggunarreglur í tengslum við gerð samnings um meðferð hlutabréfa í Fjárfestingarfélaginu Straumi hf. þann 19. júní 2002. Einnig var Plastprent hf. beitt févíti að fjárhæð kr. 1.250.000 fyrir brot á ákvæði 13. gr. reglna Kauphallar- innar um skráningu vegna hlutafjár- hækkunar fyrirtækisins. - Fyrirtækin mótmæltu þessu og m.a. byggir Búnaðarbankinn á því að Straumur sé fjárfestingarfélag sem ílöggunarreglur gildi ekki um. Hvað segir þú um þessa gagnrýni? „Það er einfaldlega engin stoð fyrir slíku. Þeir vísa til Evróputilskipunar sem á við um verðbréfasjóði. Fjárfest- ingarfélagið Straumur hefur alls ekki starfsleyfi sem verðbréfasjóður. Þetta er hlutafélag og skráð sem slíkt í Kauphöll- inni.“ FévHI beitt í fjórgang - En er þetta í fyrsta skipti sem slíkum aðgerðum er beitt? „Nei, slíku hefur verið beitt tvisvar sinnum áður, en í báðum tilvikum var um féviti að ræða að fjárhæð 500 þús- und krónur í hvort skipti. Annars skipta fiárhæðimar í sjáifu sér ekki öllu máli, heldur er þetta bending til fyrir- tækjanna um að fara að settum regl- um.“ Alvarleg áminning - Hvað þýðir þetta þegar févíti er beitt, mega fyrirtæki kannski búast við rauða spjaldinu í kjölfarið og brottvísun af markaði? „Þetta er alvarleg áminning um að fylgja reglum. Það getur auðvitað komið til brottrekstrar ef brot eru mjög alvar- leg, heimildir eru fyrir hendi. Það er þó að sjálfsögðu ekkert slíkt í sjónmáli varðandi þessi fyrirtæki." - Er verið að herða reglur Kaup- hallarinnar? „Þetta er hluti af ákveðinni þróun. Á aðaifundi Kauphailarinnar fyrir tæpu ári kom fram að herða þyrfti reglur, við- urlög og aðhald. Þetta var síðan aftur tekið upp í stjóm Kauphailarinnar í júní, þegar ákveðið var að færa ákvörð- unarvald um þessi efni frá stjóm til for- stjóra. Fleiri ákvarðanir í þessu hafa verið teknar og munu verða teknar og kynntar á næstunni." - Hvað ræður upphæðum í hverju féviti fyrir sig? „Það er einfaldlega okkar mat á brot- inu sjálfu, eðli þess og alvarleika." Reglur hertar um allan heim - Þú talar um hertar reglur, má bú- ast við að lengra verði gengið í þeim málum? „í kjölfar bókhaldsmisferla í Bandaríkjunum hafa kauphallir um all- an heim hert reglur og aukið aðhald á markaðnum. Hluti af því er aðalfundur- inn hjá okkur í fyrra og aukið vald til handa forstjóra. í þessari viku erum við síðan enn að auka þetta eftirlit með því að taka upp rafrænt eftirlitskerfi sem samstarfsaðilar okkar í NOREX á Norð- urlöndunum em með. Þetta er ákveðin þróun sem miðar að því að undirbyggja og treysta kauphall- arviðskipti. Menn gera sér grein fyrir því að markaður af þessu tagi byggir að verulegu leyti á trausti og trúverðug- leika. Það er því grundvaUaratriði að varðveita traustið" Höröur Kristjánsson blaðamaöur Góð staða hér á landi - Nú hafa skandalmál í Bandaríkj- unum ekki sist orðið til þess að auka vantrú fjárfesta á hlutabréfamark- aði. Hvemig hefur þetta verið hér á landi? „Við komum tiltölulega vel út í sam- anburði við aðra. Hlutabréfamarkaður- inn hér hækkaði um 16,7% á siðasta ári borið saman við lækkun á flestum öðr- um mörkuðum heimsins. Við erum því með tiltölulega hagstæðan samanburð." - Hver er ástæðan? „Ég held að það hafi að mörgu leyti verið staðið ágætlega að málum hér á landi að undanfomu. Við virðumst vera að komast út úr þessari lægð fyrr og á margan hátt á traustari grunn en marg- ar aðrar þjóðir. Það er aukin bjartsýni hér á landi samfara því að stöðugleiki eykst og verðbólga er nú komin niður á svipað stig og í okkar helstu viðskipta- löndum. Allt hjálpar þetta til.“ - Er markaðurinn hérlendis að einhverju leyti vanþróaðri en gengur og gerist í öðrum löndum sem við viljum miða okkur við? „Við verðum auðvitað að líta til þess að það er mun styttri hefð hér á landi fyrir slíkum viðskiptum. Viðskipti í þessa veru hefjast ekki fyrr en 1985. Kauphallir í öðrum löndum eru hins vegar með mjög langa sögu að baki. Hjá okkur hefur markaðurinn þó verið að þróast og við teljum að hann sé kominn á það stig að vera sambærilegur því sem er á öðrum Norðurlöndum. Við eigum því ekki að gera minni kröfur en aðrir í þessum efnum.“ Byggist algjörlega á trausti - Ef menn eru að leyna ykkur upp- lýsingum eins og virðist vera raunin með þau tvö fyrirtæki sem þið hafið nú vitt. Eru menn ekki í raun sjálf- um sér verstir, leiðir slíkt ekki ein- faldlega til vantrúar tjárfesta á fyrir- tækjunum og hugsanlega markaðn- um í heild? „Það er ekkert vafamál að viðskipti á þessum markaði byggjast algjörlega á þvi að þar ríki traust. Þar er líka grund- vallaratriði að allir hafi sama aðgang að upplýsingum. Á þessu byggjast þessi markaðsviðskipti og ég minni á að skráð félög í Kauphöll íslands eru al- menningshlutafélög og það hvílir rík upplýsingaskylda á félögunum. Allir samningar sem eru þess eðlis að hafa áhrif á markaðsvirði verða að vera uppi á borðinu." í Norex-samstarfi - KauphöU fslands er arftaki Verð- bréfaþings fslands en þann 6. júni 2002 var stofnað Eignarhaldsfélagið Verðbréfaþing hf. um rekstur Kaup- hallar íslands hf. og Verðbréfaskrán- ingu fslands hf. Eignarhaldsfélagið er í eigu fjármálafyrirtækja sem eiga 37,7%, skráð félög eiga 24,5%, lífeyr- issjóðir 13,4%, Seðlabankinn 11,0%, samtök fjárfesta 9,0% og ríkissjóður íslands á 4,4%. KauphöU fslands er auk þess í nánu samstarfi fjögurra kauphaUa á Norðurlöndum í gegnum Norex. „Við hugsum þetta samstarf þannig að þama verði áfram fjórar kauphallir en eitt og sama kerfi hjá þeim öUum. KauphaUarreglur sem við vinnum eftir eru að formi tU komnar frá Evrópusam- bandinu. Við erum komnir mjög langt í Norex samstarfinu í að þróa samræmt umhverfi fyrir kauphaUarviðskipti og sjáum fyrir okkur útvikkun samstarfsins tU Finnlands og Eystrasaitsríkjanna og hugsanlega fleiri landa siðar.“ Tilefni til bjartsýni - Þú segir viðskiptin hafa verið góð á síðasta ári, en hvemig sérðu fyrir þér nýbyrjað ár? „Við erum kannski ekki mikið í því að spá fyrir um óorðna hluti. Ég held þó að allar markaðsforsendur gefi tUefhi tU bjartsýni. Það er komið á meira jafn- vægi í efnahagskerfinu og hagvöxtur er að aukast." - Hafa virkjimar- og álversáform úrslitaáhrif á þessa þróun? „Það eru skiptar skoðanir um þessi áform en að því er varðar áhrifin á þjóðarbúskapinn er þó enginn vafi á því að þau munu auka umsvifin í efnahagslífinu. Það eru því ágæt skUyrði fyrir góðan hagvöxt á næstu árum.“ - Hvað með sjávarútveginn, verða áhrifin þar jafii jákvæð? „Hækkandi gengi íslensku krónunn- ar hefur vissulega neikvæð áhrif á sjáv- arútveginn, þó það sé hagstætt hvað varðar skuldir sjávarútvegsins. Þegar aUt er talið saman eru áhrifin í grein- inni fremur neikvæð, en ég tel þó að það hafi ekki nem úrslitaáhrif." Mikilvægt að opna sjávarútveg - Nú hefur þú áður bent á þann möguleika að Kauphöll íslands gæti sérhæft sig á sjávarútvegssviði og fengið erlend fyrirtæki til að skrá sig hér vegna sérstöðu og þekkingar á markaðinum. Kallar þetta ekki á að opnað verði fyrir fjárfestingar út- lendinga í íslenskum sjávarútvegi? „Það er að minu viti mjög mikUvægt og ég tel að það geti haft fremur jákvæð áhrif á okkar gjaldeyrisviðskipti," segir Þórður Friðjónsson. Hann telur einnig vel mögulegt að sníða reglur þannig að ekki þurfi að óttast að íslendingar glati yfirráðunum yfir fiskimiðunum, þótt opnað verði á fjárfestingar útlendinga í greininni. ÐV-MYND HARI Skautaö á Rauðavatni Frostið í Reykjavík beit í kinn í morgun enda 11 stig. Þær fundu þó ekki fyrir kuldanum á svelli Rauðavatns stúlkurnar úr Selásskóla. Fasteignamatið: Rangir tilkynn- ingarseðlar Á tUkynningarseðla frá Fast- eignamati rikisins um fasteignamat og brunabótamat 31. desember 2002, sem nú eru að berast fasteignaeig- endum, voru fyrir mistök áritaðar upplýsingar frá árinu 2001 í stað þeirra sem giltu 31. desember 2002. Dreifing á tilkynningarseðlunum hefur verið stöðvuð en ætla má að meirihluti þeirra hafi þegar verið borinn út til fasteignaeigenda. Fram kom hjá Hauki Ingibergs- syni, forstjóra Fasteignamats ríkis- ins, í gærkvöld að kostnaður vegna þessara mistaka næmi um 4,4 mUlj- ónum króna. Tilkynningarseðlar með réttum upplýsingum um matsfjárhæðir verða sendir út í vikunni 27.--31. janúar. Vegna þessara tafa verður frestur tU að óska breytinga á fast- eignamati frá 31. desember fram- lengdur tU 1. aprU 2003. Vakin er athygli á að á heimasíðu Fasteignamats ríkisins, www.fmr.is, eru upplýsingar um matsfjárhæðir fasteignamats og brunabótamats eins og þær eru hverju sinni. -hlh Hveragerði: Gróðurhúsalamp- ar finnast Lögreglan á Selfossi fann 90 grömm af hassi og marihuana auk lítUs magns af amfetamíni við leit á manni í liðinni viku. Maðurinn var farþegi i bifreið sem lögregla hafði afskipti af. í kjölfarið var gerð húsleit í Hveragerði og fannst lítilræði af fíkniefnum. Hins vegar fundust við leitina tveir nýir og ónotaðir gróðurhúsalampar sem stolið hafði verið frá Garðyrkjuskóla ríkisins fyrir skömmu. Ekki var máli „farþegans" alveg lokið því í fram- haldinu upplýsti lögregla innbrot í verslunina TRS og Pennann á Sel- fossi. Maðurinn viðurkenndi að hafa brotist inn í verslunina og valdið þar töluverðu eignatjóni. -aþ Kópavogur: Snákur handsamaður Lögreglan í Kópavogi handsam- aði kornsnák á heimUi í bænum fyr- ir skömmu. Vísbendingar um að gæludýrahald í húsinu væri ekki með eðlUegum hætti höfðu borist lögreglu. Snákurinn var fluttur að Keldum þar sem hann var aflífaður og hræinu eytt. -aþ Café 22: Lýst eftir vitnum Lögreglan í Reykjavík lýsir eftir vitnum að slysi sem varð á veitinga- húsinu Café 22 við Laugaveg í Reykja- vUc þann 18. janúar síðastliðinn. Slys- ið varð um hálfsjöleytið að morgni en þá féll maður niður stiga og slasaðist. Lögreglan biður aUa þá sem urðu vitni að slysinu að hafa samband við RannsóknardeUd lögreglunnar í Reykjavík. -aþ

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.