Dagblaðið Vísir - DV - 21.01.2003, Qupperneq 12
12
ÞRIÐJUDAGUR 21. JANÚAR 2003
DV
Fréttir
Þúsundir í heimsókn á nýjum hestabúgarði á Rangárvöllum:
Ævintyri a Armoti
„Fjölmennið hér á laugardag er
margfalt meira en við bjuggumst
við. Ég giska á að hartnær fimm
þúsund gestir hafi mætt hingað og
kynnt sér þá miklu uppbyggingu
sem hér hefur átt sér stað síðustu
tvö árin,“ segir Hafliði Halldórs-
son á Ármóti á Rangárvöllum. Þar
hefur nú verið tekið i notkun hest-
hús fyrir 140 hross, reiðhús og
margháttuð útiaðstaða, eins og
keppnisvellir, kemst í gagnið á
næstu mánuðum. Eystra var opið
hús fyrir gesti og gangandi um
helgina.
Þjálfaö fyrir heimsmeistara-
mótiö
Svíinn Dan Evert er aöaleigandi
Ármóts og hefur hann jafnframt
íjármagnað hinar miklu fram-
kvæmdir þar að mestu leyti. „Þetta
er ferðaþjónusta, veiðiparadís,
hrossaræktarbú og jafnframt er hér
frábær aðstaða til hvers konar úti-
vistar. í nágrenninu eru þær perlur
sem njóta mestra vinsælda meðal
ferðamanna í dag,“ sagði Hafliði.
Hann segir starfið á Ármóti með-
al annars lúta að þjálfunarstarfi fyr-
ir heimsmeistamót islenska hests-
ins sem haldið verður í Danmörku á
sumri komanda. Þá séu margar
kynbótasýningar og aðrar uppá-
Stemning í stíunni
Gestir á Ármóti skiptu þúsundum og voru þeir heillaðir af hinni miklu uppbyggingu sem þarna hefur átt sér stað.
faestir avarpaoir
Jón Albert Sigurbjörnsson, formaður Landssambands hestamanna, talar til
gesta en að baki honum eru ýmsir kunnir. Lengst til vinstri Dan Evert, Svíinn
sem hefur fjármagnaö hina miklu uppbyggingu á Ármóti.
Góður gestur
Hafliði á Ármóti tekur viö góðri gjöf frá góðum gesti, hestamanninum
og sjarmatröllinu Fjölni Þorgeirssyni sem nú dvelst orðið
mikið í Rangárþingi.
komur fyrirhugaðar á meðal hesta-
manna í sumar - og tamninga- og
þjálfunarstarf vegna þeirra sé tíma-
frekt og umfangsmikiö.
Tónlist hestamanna
„Þessi mikla aðsókn hér á laugar-
daginn var alveg frábær og mér
finnst ánægjulegt að hafa getað
dregið svona marga gesti til okkar í
sveitinni," segir Hafliði.
Meðal uppákoma við þetta tilefni
Klappað fyrlr eigendum
Hafliði Halldórsson er staðarhaldari
á Ármóti en hann sést hér ásamt
Ingibjörgu Magnúsdóttur eiginkonu
sinni. Hér er þeim klappað lof í lófa
af Sigurbirni Bárðarsyni sem var
veislustjóri.
Ahugasamir ahorfendur
Það vargóð stemmning á Ármótum á
laugardaginn, en talið er að gestir þar
hafi ekki verið færri en fimm þúsund.
Það endurspeglar vel þann mikla áhuga
sem nú er meðal þjóðarinnar á
hestamennsku - og fer hann raunar
stöðugt vaxandi.
DV-MYNDIR SKH
Sungið fyrir gesti
Meðal tónlistaratriða viö opnunina á
Ármóti var söngur Jóns Smára Lár-
ussonar, en hann hefur slegið í
gegn / söngleiknum Gunnar á Hlíðar-
enda sem notið hefur mikla vin-
sælda á Hvolsvelli síöustu árin.
var tónlistarflutningur hestamann-
anna Helga Bjömssonar, Magnúsar
Kjartanssonar og ýmissa fleiri. Há-
punkturinn var þegar Guðni
Ágústsson landbúnaðarráðherra
opnaði formlega hina glæsilegu að-
stöðu, sem nú er risin á Ármóti á
Rangárvöllum. -sbs
Tvelr góðir
Guðni Ágústsson landbúnaðarráðherra og Svíinn Dan Evert sem fjármagnað
hefur hina miklu uppbyggingu á Ármóti.
Hafnarfjörður:
Lóða- og
húsakönnun
Bæjaryfirvöld í Hafnarfirði
standa fyrir könnun 20. janúar til
31. janúar þar sem áhugi fólks á lóð-
um og húsagerðum er athugaður.
Niðurstöðumar verða síðan hafðar
til hliðsjónar við ákvörðun um
hvers kyns lóðir verður boðið upp á
í næstu lóðaúthlutun á Völlum. Á
Völlum er gert ráð fyrir blandaðri
byggð húsa, þar sem lágreista og
dreifðasta byggðin er innst í hverf-
inu, næst Grísanesinu og þéttari
byggðin sem nær dregur aðalgöt-
unni í gegnum hverfið. Húsagerðir
skulu vera blandaðar og vera sér-
sniðnar að þörfum markaðarins að
hluta. Gert er ráð fyrir um 550 íbúð-
um en fyrsta úthlutun á að fara
fram síðla vors.
Hægt er að setja inn upplýsingar
vegna könnunarinnar á vefsíðu
Hafnarfjarðarbæjar auk þess sem
hægt verður að fylla út eyðublað í
afgreiðslu umhverfis- og tæknisviðs
Strandgötu 8-10. -hlh
Samherji:
Kaupir hlut
í Fjord
Seafood
Samið hefur verið um kaup Sam-
herja hf. á eignarhlut i norska sjávar-
útvegs- og fiskeldisfyrirtækinu Fjord
Seafood ASA, sem er eitt af stærstu
fyrirtækjum á sínu sviði í heiminum.
Samherji hf. kaupir um 2,6% hlut í
Fjord Seafood í lokuðu hlutafjárút-
boði. Nafnverð hlutabréfanna er 11,2
milljónir norskra króna og kaupir
Samherji hf. þau á genginu 2,5.
Heildarfjárfesting Samherja i þess-
um viðskiptum er því 28 milljónir
norskra króna eða um 320 milljónir ís-
lenskra króna. Jafnframt hefur Sam-
herji gert víðtækan samstarfssamning
við Fjord Seafood, sem m.a. tekur til
samstarfs félaganna í fiskeldi og sölu
sjávarafurða. -VB
Færri útköll í frosti:
Þjófar skutu
sér leið inn
Þeir voru bíræfnir þjófamir sem
brutust inn í fyrirtæki í höfuðborg-
inni á sunnudagsmorgun. Sam-
kvæmt upplýsingum frá Öryggis-
miðstöð íslands barst stjómstöð til-
kynning um innbrotið. Öryggis-
vörður fór þegar á staðinn og sá
undireins að rúða hafði verið brotin
og ummerki voru eftir innbrot. Ör-
yggisvörður kallaði lögreglu á vett-
vang og við nánari skoðun kom í
ljós að þjófarnir höfðu skotið að
minnsta kosti tveimur haglaskotum
inn um rúðuna. Göt voru gegnum
gardínur og högl i innréttingum og
veggjum. Það eina sem var horfið var
ferðatölva sem hafði staðið á borði við
gluggann. Miðað við fjölda hagla í
borðinu má leiða að því getum að
ferðatölvan hafi verið alsett hagla-
skotum og því trúlega ónothæf.
Annars hefur útköllum fækkað hjá
Öryggismiðstöðinni að undanfórnu og
telja menn að aukið frost geti verið
ástæðan - enda loki fólk frekar glugg-
um í kuldanum. Að sögn Kjartans S.
Ólafssonar, þjónustustjóra öryggis-
gæslu, er annars alltof algengt að fólk
skilji eftir opna glugga, bæði í heima-
húsum og fyrirtækjum. „Þetta er af-
skaplega bagalegt, því auk þess að
dragsúgur og blaktandi gardínur ræsi
kerfin, þá eru opnir gluggar nánast
eins boð til þjófa um að skríða inn,“
segir Kjartan. -aþ