Dagblaðið Vísir - DV - 21.01.2003, Síða 14
14
ÞRIÐJUDAGUR 21. JANÚAR 2003
Tilvera jjrvr
i
Flottust!
Salma Hayek olli
aödáendum sínum
ekki vonbrigöum
þegar hún stormaöi
inn á hátíöina í
eldrauöum síökjól.
Tískusérfræöingar
voru ánægðir og
sögðu kjólinn fara
afar vel viö
litarhaft
leikkonunnar.
S Golden Globe hátíðin þótti takast vel:
I sínu fínasta pússi
Það var mikið um dýrðir á Golden Globe
verðlaunahátíðinni í fyrrinótt eins og vera ber.
Leikkonur og leikarar komu í sínu fínasta pússi enda
hátíðin ein mesta skrautsýning vestanhafs fyrir utan
sjálfa Óskarshátíðina. Margir kjólamir eru
augnayndi eins og sést á myndunum. Björk hefur
einnig haft sín áhrif því tvœr leikkonur, Lara Flynn
Boyle og Debra Messing, þóttu stœla svanakjólinn
hennar - með slœmum árangri. Það fer náttúrlega
ekki hver sem er í skóna hennar Bjarkar.
Áhrifamáttur Bjarkar
Lara Flynn Boyle þótti afar ósmekkleg,efmarka má orö tískusérfræöinga vestanhafs. Kjóllinn
þykir vond stæling á víöfrægum kjól Bjarkar. Lara kemst ekki meö tærnar þar sem Björk haföi
hælana. Debra Messing, stjarnan í Will og Grace, þótti einnig vera undir áhrifum Bjarkar. Ekki
sérlega fallegur kjóll og líklega rétt til getiö að Debra hafi ekki skorað stig í þetta skiptiö.
Rosalegar mæðgur
Jamie Lee Curtis klæddist svartri
dragt. Dóttir hennar, Annie, er hins
vegar í einkennilegum kjól sem erfitt
er aö lýsa meö orðum.
Svört klassík
René Zellweger fékk verðlaun sem
besta leikkona fyrir myndina Chicago.
Kjóllinn er klassískur Hollywoodkjóll; úr
svörtu satíni í bland viö flauel.
Stórglæsileg
Leikkonan Susan Sarandon var stórglæsileg á
verðlaunahátíöinni. Eldrauður kjóllinn fer henni
afspyrnuvel.
Blaöafulltrúi í buxum
Allison Janney, sem er best þekkt sem
blaðafulltrúinn ráöagóöi á þáttunum West Wing,
kiæddist smókingbuxum og hvítri blússu.
Tískusérfræöingar gáfu henni ágæta einkunn
og virtust margir sérlega hrifnir af blómum
prýddu beltinu.
Brúðarleg
Beyonce Knowles, ein af
stetpunum í Destiny's
Child, í stórglæsilegum
siffonkjól.
Langlr leggir
Cameron Diaz
klæöist stuttum
ermalausum
kjól og veröur
ekki annaö sagt
en aö hún beri
hann vel.
Jakki frá Armani
Meryl Streep var klassísk í fatavali
aö vanda. Jakkinn er ættaður úr
smiöju Armani. Sjálfsagöist Streep
vissulega líta vel út en lyktin afsér
væri hræöileg - hún heföi ekki haft
tíma fyrir sturtu enda hefði hún
komiö beint af flugvellinum.