Dagblaðið Vísir - DV - 21.01.2003, Qupperneq 16
16
Útlönd
ÞRIÐJUDAGUR 21. JANÚAR 2003
r>v
Ariel Sharon
Forsætisráðherrann virðist vís til sig-
urs með Likud-bandalaginu
Likud-bandalagiö
líklegt til sigurs
Skoðanakannanir sýna að Likud-
bandalag Ariels Sharons virðist lik-
legt til sigurs í þingkosningum ísra-
els í næstu viku. Það virðist því fátt
geta komið í veg fyrir að Ariel Shar-
on verði áfram forsætisráðherra
landsins.
Greinilegt er að framtíð landsins
mun ákvarðast mikið af því hver
sest í sæti forsætisráðherra að kosn-
ingunum loknum en Amram
Mitzna, leiðtogi Verkamannaflokks-
ins, er helsti keppinautur Sharons.
En Mitzna og hans menn eiga þó
enn nokkuð í land samkvæmt könn-
unum en í þeim fær Likud-banda-
lagið 12 fleiri sæti á þingi en Verka-
mannaflokkurinn, en þó er banda-
lagið nokkuð frá því að fá hreinan
meirihluta.
7 farast í Kanada
Minnst 7 skíðamenn, flestir
Bandaríkjamenn, fórust og minnst 1
slasaðist þegar snjóflóð varð á jökli í
vesturhluta kanadísku Kletta-
Ijallanna. 20 skíðamenn grófust und-
ir snjónum en ekki er vitað nákvæm-
lega um líðan hinna 12. Þeir voru
margir hverjir fluttir á sjúkrahús.
Embættismenn Norður-Kóreu komu til Seoul í gær:
Kóreulöndin hefja
viðræður á morgun
A morgun munu embættismenn
Norður- og Suður-Kóreu sitjast niður í
höfuðborg síðarnefnda landsins og
ræða saman um kjarnorkuvandann
sem kominn er upp norðan
landamæranna. S-Kórea mun væntan-
lega reyna af fremsta megni að fá ná-
granna sína til að láta af kjamorkuá-
ætlunum sínum.
Viðræður Kóreulandanna eru þær
fyrstu síðan N-Kórea sagði upp aðild
að alþjóðlegum sáttmála um takmörk-
un við útbreiðslu kjamavopna í síð-
asta mánuði. Suður-Kórea hefur heit-
ið því að nota viðræðurnar, sem
munu standa yflr næstu fjóra daga, til
að gera N-Kóreu grein fyrir afstöðu
sinni sem markast fyrst og fremst af
því að ekki stafi kjamorkuvopnaógn
af landinu, eins og reyndar alþjóða-
samfélagið krefst.
Ekki er þó búist við að N-Kórea
leggi sterklega hlustir við þessar
John Bolton
John Boiton frá utanríkisráöuneyti
Bandaríkjanna kom til Seoul í gær.
beiðnir nágranna sinna en þeir hafa
ætíð haldið fram að þessi deila verði
ekki leyst nema að rætt verði milli-
liðalaust við Bandaríkin.
Aðstoðaratanríkisráðherra Banda-
ríkjanna, John Bolton, kom einnig tii
Seoul í gær og hyggst hann ræða við
þarlend yflrvöld í dag og á morgun
vegna deilnanna. Annar starfsmaður
bandaríska utanríkisráðuneytisins,
James Kelly, var í bæði S-Kóreu og
Kína I síðustu viku.
Rússar munu vera nyög bjartsýnir
um farsæla lausn deilunnar eftir að
erindreki þeirra, Alexander Losyu-
kov, ræddi við n-kóresk yfirvöld um
helgina. Hann sagði að viðræður
sínar við forseta N-Kóreu, Kim Jong-
il, hefðu verið mjög gagnlegar og upp-
byggilegar. Losyukov kynnti
forsetanum friðaráætlun Rússa en
viðræður þeirra stóðu í 6
klukkustundir.
Einn lést í átök-
um Vénesúela
Einn lést og tugir manna slösuð-
ust í götubardögum í Venesúela í
gær, á sama tíma og Jimmy Carter,
fyrram forseti Bandaríkjanna, kom
til landsins til þess að reyna að
miðla málum.
Átökin brutust út þegar andstæð-
ingar Chavez héldu mótmælagöngu
í bænum Charallave sem er rétt
sunnan höfuðborgarinnar Caracas.
Fylgismenn forsetans réðust á fylk-
inguna og lögreglan skarst í leikinn.
Samkvæmt yfirvöldum mun maður-
inn hafa látist af skotsárum og 33
særðust einnig af sömu ástæðu.
Verkfall andstæðinga Chavez hef-
ur nú staðið yfir i 7 vikur.
♦
F M R
TIL FASTEIGNAEIGENDA
Á tilkynningarseðlum sem nú eru að berast
fasteignaeigendum voru fyrir mistök áritaðar
upplýsingar frá árinu 2001 í stað 31. desember
2002. Nýir tilkynningarseðlar með réttum
upplýsingum verða sendir út í vikunni 27. - 31.
janúar nk. Fasteignaeigendur eru beðnir velvirðingar
á þessum mistökum og þeim óþægindum sem þau
kunna að hafa valdið.
Umboðsmaður óskast
Útgáfufélagið DV óskar eftir umboðsmanni
í Grindavík frá 1. febrúar næstkomandi.
Áhugasamir eru vinsamlegast beðnir um
að hafa samband við Unni Sig. Aradóttur
í síma 550 5744 fyrir 27. janúar
næstkomandi.
Særður af skotsárum
Manni sem er greinilega þjáður vegna skotsára sem hann hefur hlotið í átök-
um gærdagsins er hjálpað og reynt að koma honum undir læknishendur.
Canberra enn í hættu
vegna skógareldanna
íbúar Canberra, höfuð-
borgar Ástralíu, unnu
hörðum höndum að því í
gær og nótt að vernda
borgina gegn skógareld-
um sem geisa enn utan
hennar. Eldarnir hafa
kostað 4 menn lífið og
brennt 419 heimili til
grunna.
íbúar borgarinnar
gerðu allt sem þeir gátu
til að vernda heimili sín,
allt frá því að klifra upp á
húsþak með garðslöngu
að vopni að því að fella tré
og fjarlægja annan hugs-
anlegan eldsmat frá heim-
ilum sínum.
13 úthverfi borgarinnar voru á
hættusvæði samkvæmt viðvöran yf-
irvalda en samkvæmt veðurspám,
sem spá breyttri vindátt og 35 stiga
hita, gætu skógareldar sem geisa nú
um 10 km utan borgarinnar fært sig
nær henni á næstu dögum.
Slökkviliðsmenn og björgunar-
menn unnu hörðum höndum að þvi
Engu hlíft
Leikvellir urðu einnig
eldinum aö bráð í
Canberra í Ástralíu.
í nótt að grafa 23 km
langan eldvarnarskurð
vestan megin borgarinn-
ar, til þess að reyna að a-
fstýra því að þeir nái til
hennar.
íbúar borgarinnar hafa
verið mjög gagnrýnir á
yfirvöld fyrir að láta sig
ekki vita nógu snemma
af eldunum sem geisuðu
utan borgarinnar. Þau
biðja borgarana um að
hlífa slökkviliðsmönnum
við gagnrýninni og lof-
uðu rannsókn vegna
dauða þeirra fjögurra
sem fórust þegar þau
reyndu að vernda heimili
sm. •
Miklir þurrkar hafa verið í Ástr-
alíu að undanfórnu og segja sér-
fræðingar að líklega muni ekki
rigna neitt að ráði fyrr en í mars
eða apríl. Hvergi er að finna rign-
ingarský í kortunum fyrir næstu
viku. Um 300 þúsund manns búa í
höfuðborginni Canberra.
BB
Sigur sósíalismans
Stjómvöld á
Kúbu lýstu því yfir
í gær að sósíalism-
inn væri sigurveg-
ari kosninganna
sem haldnar voru
um helgina í land-
inu. 609 voru í boði
til 609 þingsæta og
hlutu allir frambjóðendur um 96%
fylgi. Meðal þeirra var verðlauna-
hafi á Ólympíuleikum og faðir Elian
Gonzalez, sem öðlaðist frægð í
Bandaríkjunum árið 2000.
Mannlaus flugvél hrapaði
Mannlaus bandarísk njósnaflug-
vél hrapaði í tilraunaflugi yfir suð-
urhluta Pakistan í gær. Að sögn yf-
irvalda mun orsök slyssins vera
tæknilegs eðlis, ekki vegna aðgerða
andófsmanna Bandaríkjahers á
svæðinu. Enginn mun hafa slasast á
jörðu niðri.
Bush boðar jafnræði
George W. Bush Bandaríkjafor-
seti ávarpaði í gær kirkjusöfnuð í
Glenarden í Maryland í tilefni af því
að í gær var minnst séra Martins
Luthers Kings, sem var myrtur árið
1968. Hann boðaði að gæta ætti rétt-
lætis meðal kynþátta en hann gagn-
rýndi fyrir skömmu inntökustefnu
Michigan-háskóla, sem tekur frekar
inn fulltrúa minnihlutahópa heldur
en hvíta stúdenta, óháð einkunnum.
Bandaríkjamaður myrtur
Bandarískur þegn var myrtur og
annar særður í skotárás í norður-
hluta Kúveits eftir því sem ríkis-
sjónvarp landsins sagði frá. Banda-
ríska sendiráðið eða herinn gat ekki
staðfest fréttina en engar frekar
upplýsingar var aö fmna áður en
blaðið fór í prentun.
Andstaða eykst í Bretlandi
Næstum helmingur Breta er mót-
fallinn stríði í írak samkvæmt nýrri
skoðanakönnum sem birt var í
Guardian í morgun. 47% eru mót-
fallin innrás og 81% telur að nýrrar
ályktunar Öryggisráðs SÞ sé þörf
fyrir innrás.
Berlusconi og mafian?
Fyrrum meðlimur ítölsku mafi-
unnar sagði fyrir
rétti í gær að nú-
verandi forsætis-
ráðherra landsins,
Silvio Berlusconi,
hefði tekið á móti
yfirmanni mafíunn-
ar á 8. áratugnum.
Hann segir að mafí-
an hafi viljað fá Berlusconi á sitt
band og haft í hótunum við hann.
Talsmenn Berlusconis segja þetta
bull og sjálfur vill forsetinn ekkert
um málið segja.
Ný stjórnarskrá
á teikniborðinu
Framtíðarríki Palestínu verður leitt
áfram af forseta sem ekki getur setið
lengur i embætti en tvö kjörtímabil
sem hvort er 5 ár, samkvæmt nýrri
stjómarskrá sem er á teikniborðinu.
Þá mun fýrirhugað að Austur-Jerúsal-
em veröi höfuðborg lýðveldisins og að
friður verði haldinn við nágrannarík-
in, þeirra á meðal ísrael. íslam verður
þjóðartrúin en mönnum verður þó
frjálst að iðka hvaða trú sem er.
Samkvæmt uppkastinu mun forset-
inn skipa forsætisráðherra og vera
æðsti maður ríkisstjómarinnar, sem
er svipað því valdi sem Yasser Arafat
hefur nú. Útdrættir úr uppkastinu
vora birtir í morgun, en upphaflega
var áætlað að í dag yrðu haldnar
kosningar um stjóm Palestínu i ann-
að sinn í sögunni, en þeim var frestað
um óákveðinn tíma í síðasta mánuði.