Dagblaðið Vísir - DV - 21.01.2003, Síða 31
ÞRIÐJUDAGUR 21. JANÚAR 2003
31
Sport
Ekki öll nótt
úti enn hjá ÍS
- eftir útisigur í framlengingu í Grindavík
ÍS hefur ekki sagt sitt síðasta orð
þrátt fyrir að staða liðsins í deiidinni
sé ekki góð en í gærkvöld náði liðið í
tvö góð stig með sigri á Grindavík,
92-95, og eru Stúdínur því aðeins fjór-
um stigum á eftir Haukum og Njarð-
vík og alit getur gerst. Það þurfti að
framlengingu til að fá úrslit því stað-
an var 81-81 eftir venjulegan leiktíma.
Það var María Anna Guðmundsdóttir
sem jafnaði leikinn fyrir Grindavík
með glæsilegri 3ja stiga körfu þegar 12
sekúndur voru eftir af venjulegum
leitíma.
Þrátt fyrir hetjulega baráttu varð
Denise Shelton að játa sig sigraða í
lokin en Shelton gerði öll 11 stig
Grindavíkur í framlengingunni og
hvorki fleiri né færri en 56 stig í
leiknum.
Heimastúlkur í Grindavík leiddu
nánast allan leikinn í venjulegum
leiktíma. Munurinn var mestur 11
stig í fyrri hálfleik en gestimir náðu
að minnka muninn í sex stig fyrir hlé,
42-36. Grindavík náði aftur 10 stiga
forskoti en tókst aldrei að hrista Stúd-
ínur af sér enda Stúdínur að berjast
fyrir lífi sínu í deildinni.
ÍS náði góðu áhlaupi í fjórða leik-
hluta og jafnaði Cecilia Larsson,
70-70, með 3ja stiga körfu þegar
skammt var til leiksloka og Larsson
gerði enn betur og skoraði aðra stóra
3ja stiga körfu í næstu sókn og kom ÍS
þremur stigum yfir.
Shelton svaraði með tveimur 3ja
stiga körfum fyrir Grindavík og
spennan magnaðist. Alda Leif kom ÍS
þremur stigum yfir 29 sekúndur fyrir
leikslok en eins og áður segir jafnaði
Maria Anna með glæsUegri 3ja stiga
körfu og því varð að framlengja.
Það voru þær Alda Leif og Over-
street sem fóru fyrir liði ÍS það sem
eftir lifði leiks en Shelton bar Grinda-
víkurliðið uppi. CecUia Larsson
tryggði síðan sigur ÍS með tveimur
vítaskotum í blálokin.
Hjá Grindavík var Denise Shelton
aUt í öUu og gerði 56 af 92 stigum liðs-
ins í leiknum. Svandis Sigurðardóttir
fékk það hlutverk að gæta hennar aU-
an leikinn og spurning hvort að ívar
Ásgrímsson, þjálfari ÍS, hefði breytt
um áherslur í vöminni. Sólveig Gunn-
laugsdóttir og María Anna áttu ágæt-
is kafla en Sólveig gerði engin mistök
frekar en fyrri daginn og hefði mátt
reyna meira.
Hjá ÍS voru þær Alda Leif og Over-
street atkvæðamestar og var Alda Leif
heppin að fá að taka þátt í síðustu sjö
mínútum leiksins því hún var komin
með fimm vUlur í lok venjulegs leUi-
tíma en mistök á ritaraborði gerðu
það að verkum að hún gat tekið þátt í
landa sigrinum. Larsson lék vel sem
og Svandís sem er ótrúlega dugleg í
fráköstunum og þá var hún ógnandi í
sókninni í þetta skiptið og þarf að
halda því áfram. Þá skUaði Hafdís
Helgadóttir mikilvægum mínútum og
skUaði 11 stigum. -Ben
Stig Grindavikur: Denise Shelton 56 (14
frák., 4 stoðs.), Sólveig Gunnlaugsdóttir 13,
María Anna Guðmundsdóttir 8 (4 stoðs., 4
stolnir), Stefanía Ásmundsdóttir 8 (7 frák.),
Ema Rún Magnúsdóttir 4 (4 stoðs.), Petr-
únella Skúladóttir 3.
Stig ÍS: Meadow Overstreet 27 (7 stoðs., 4
stolnir), Alda Leif Jónsdóttir 24 (9 frák., 4
stoðs.), Svandís Sigurðardóttir 12 (14 frák.),
Cecilia Larsson 12 (7 stoðs.), Hafdís Helga-
dóttir 11, Jófríður Halldórsdóttir 7.
-Ben
V..--ÍC
i ;
:
Helga Þorvaldsdóttir hjá KR keyrir hér upp að körfu Hauka í leik liðanna í gær. Helga skoraði 11 stig í leiknum.
Sómali sett-
ur í bann
hjá FIFA
Farah Weheliye Addo, formað-
ur Sómalska knattspyrnusam-
bandsins, hefur verið dæmdur í
tveggja ára bann af FIFA og má
því ekki hafa afskipti af íþrótt-
inni næstu tvö árin. Ástæðan er
ummæli sem Addo lét frá sér
fara vegna fjármála FIFA og
Sepp Blatters fyrr á árinu. Þegar
Addo var inntur eftir sönnunum
fyrir ásökunum þeim sem hann
bar á hendur Blatter og fleirum
innan sambandsins varð fátt um
svör. Dómur þessi þykir sönnun
þess að Blatter hyggst refsa þeim
sem börðust hvað harðast gegn
honum í hremmingum þeim sem
hann gekk í gegnum vegna fjár-
mála Alþjóða knattspymusam-
bandsins á síðasta ári. -PS
Ég er ekki
svindlari
Robert Pires, leikmaður
Arsenal, er ósáttur við þau um-
mæli knattspymustjóra West
Ham eftir viðureign liðanna um
helgina að Pires hafl leikið þeg-
,ar víti var dæmt og Steve Lomas
var rekinn út af eftir viðskipti
sín við Arsenal-leikmanninn.
„Ég lét mig ekki faila og ég er
ekki svindlari. Lomas braut á
mér. Ég var að komast í skotið
þegar hann togaði mig niður.
Þetta var einnig rautt spjald því
hann togaði mig niður og rændi
mig augljósu marktækifæri.
Lomas var síðasti varnarmaður
og aðeins markvörðurinn var
eftir,“ sagði Pires. Glenn Roeder
er ekki sammála og segir að
snertingin hafi verið sáralítil og
Pires látið sig falla. -PS
1. deild kvenna í körfuknattleik í gærkvöld:
Uppgangur hjá KR
- sem lagði Haukastúlkur í jöfnum og spennandi leik
KR sigraði Hauka, 63-60, í 1. deild
kvenna í körfuknattleik í DHL-höll-
inni í gærkvöld í ágætum og nokk-
uð spennandi leik.
Fyrir leikinn voru liðin jöfn að
stigum og það var greinilegt allt frá
byrjun að getumunurinn var ekki
mikill.
Jafnt var eftir fyrsta leikhluta,
16-16, og þetta jafnræði hélst allan
annan leikhlutann þótt heimastúlk-
ur væru aðeins á undan. Þær leiddu
með einu stigi, 28-27, þegar fyrri
hálfleikurinn var allur.
Haukastelpur mættu síðan af
krafti til leiks í síðari hálfleik og
voru snöggar að hirða forystuna og
mest varð hún sex stig, 29-35.
KR-liðið var þó ekki af baki dott-
ið þrátt fyrir þennan góða kafla
gestanna, því með góðri baráttu og
vörn náði liðiö aftur forystunni,
sem var tvö stig, 49-47, þegar þriðji
leikhluti var allur.
Áfram hélt liðið af sama kraifti í
upphafi lokaleikhlutans og fljótlega
var forskot þess orðið' átta stig.
'Haukaliðið tók þá aftur við sér og
þegar rétt tæpartvær mínútur voru
eftir af leiknum var munurinn orð-
inn eitt stig, 61-60.
Það Var síðan Jessie Stomski sem
skoraði síðustu körfu leiksins, þrjá-
tíu sekúndum fyrir leikslok og
Haukastelpur misstu síðan boltann
fljótt.
Rann út í rólegheitum
Liðið gerði síðan nánast enga til-
raun til þess að brjóta á KR-ingum,
hver svo sem ástæðan fyrir því var,
og leiktíminn rann eiginlega út í ró-
legheitunum.
Mikilvægur sigur KR-inga var
því staðreynd og liðið er óðum að
komast á lappirnar eftir erflða tíð.
Jessie Stomski var þeirra sterkust,
og Hildur Sigurðardóttir var að
venju traust. Helga Þorvaldsdóttir
og Hanna Kjartansdóttir stóðu fyrir
sínu og vel það.
Hjá Haukum var Katrina Crens-
haw mjög sterk í fyrri hálfleik en
dalaði veruléga í þeim síðari. Hel-
ena Sverrisdóttir átti góða spretti
en lenti í villuvandræðum og það
munar um minna. Stefanía Jóns-
dóttir var dugleg, og Hafdís Hafberg
spilaði mjög vel þann stutta tíma
sem hún fékk.
Stig KR: Jessie Stomski 21 (12
fráköst, 7 stolnir), Hildur Sigurðar-
dóttir 12 (6 stoðs.), Helga Þorvalds-
dóttir 11, Hanna Kjartansdóttir 9,
Gréta Grétarsdóttir 6 (6 stoðs.), Mar-
ía Káradóttir 3, Georgia Kristiansen
1.
Stig Hauka: Katrina Crenshaw
17 (9 frák.), Stefanía Jónsdóttir 11,
Hafdis Hafberg 10, Helena Sverris-
dótfir 10. Egidija Raubalté 6, Hrafn-
hildur Sonja 4, Pálína María G. 2
-SMÍS
Staöan í deildinni:
Keflavík 12 12 0 966-603 24
Grindavík 13 7 6 919-951 14
KR 13 6 7 774-836 12
Njarðvík 12 5 7 783-845 1Ö
Haukar 13 5 8 755-840 10
ÍS 13 3 10 744-857 6
Njarðvík tekur á móti' Keflavlk á
miðvikudaginn í lokaleik 13.
umferðar. Keflavík getur náð 12 stiga
forskoti í deildinni með sigri.
Úrslitin í nótt:
New York-Miami............72-65
Sprewell 24 (6 stoðs., 3 frák.), Thomas 15
(8 frák.) - Jones 19 (7 stoðs., 6 frák.),
Allen 13 (13 frákj, Grant 8 (13 frákj
Washington-Denver 89-74
Jordan 25 (6 stoðs., 5 frák ), Hughes 20 (5
frákj, Russell 10 (6 frákj - Howard 25 (7
frákj, Harrington 8 (8 stoðs.)
Detroit-Indiana ..........88-78
Hamilton 18, Robinson 15 (5 stoösj,
Wallace 14 (15 frákj, - Miller 28 (10 af 13
í skotum), Artest 14, O’Neal 12 (11 frák.)
New Orleans-Phoenix . .. 114-102
Wesley 28 (5 stoðs., 5 frákj, Magloire 22
(10 frákj, Mashburn 19 (8 frák., 5 stoös.)
- Marion 25 (16 frákj, Marbury 22 (11
stoðsj, Stoudemire 22 (13 frák.)
Golden State-Sacramento . 80-102
Ríchardson 28 (6 frákj, Murphy 13 (15
frákj, Dunleavy 13 - Webber 16 (8 frák.,
8 stoðsj, Stojakovicl6 (5 frákj, Divac 16
(11 frák.)
Atlanta-Chicago ....... 102-115
Abdur-Rahim 27 (5 frákj, Terry 23 (7
stoðsj, Robinson 20 (8 frák.) - Rose 37 (7
af 10 f 3 stiga), Fizer 24 (19 frák.) ■
San Antonio-Hóuston.......87-82
Duncan 32' (9 frák-), Robinson 14 (7
frákj, Parker 11 (8 stoös.) - Mobley 15,
Morris 15, Ming 11 (8 frák.)
Minnesota-Toronto .........89-81
Gamett 19 (15 frák., 8 stoðsj, Hudson 16,
Nesterovic 10 (10 frákj, Szczerbiak 10 -
Lenard 22, WiUiams 13 (13 frákj, Peter-
son 13
Memphis-Portland...........87-99
Wright 22 (9 frákj, Williams 15 (8
stoösj, Giricek 15 - Mclnnis 15, Pippen
14 (7 frák., 5 stoösj, Wells 14 (9 frák.)
Philadelphia-Boston.......99-100
Pierce 40 (7 frák., 6 stoðsj, Walker 33 (6
frákj, Bremer 10 (5 stoðs.) - Iverson 29,
Snow 17 (6 stoðsj, Van "
Utah-New Jersey
Stockton 25 (4 st
frak„ 5 stoðsj, Harp:
Kidd 33 (13 frák:, 5
Jefferson 18.
Lakers-Clippérs ......
O’Neal 32 (15 frák., 4 stoðsj, I .
(8 frák., 11‘stoðsJ, Fisher 12 - Miller 20,
Maggetté 18 (6,frákJ, Olowokandi 15.
Shaq og Kobe voru f stuði i nótt.