Dagblaðið Vísir - DV - 21.01.2003, Qupperneq 35
35
I
ÞRIÐJUDAGUR 21. JANÚAR 2003
I>V
HANDBOLTI J Uf
0 pedfflðQQiL/
40 marka sigur á Ástralíu í fyrsta leik íslands á HM í Portúgal og stærsti sigur á HM frá upphafi
íslenska landsliðiö í handknatt-
leik vann sinn stærsta sigur frá
upphafl vega þegar liðiö sigraði
Ástrala með fjörutíu marka mun,
55-15, í fyrsta leik sínum á heims-
meistaramótinu í Viseu í Portúgal í
gærkvöld. Sigurinn er lika sá
stærsti á HM, en fyrra met áttu
Svíar sem þeir settu í leik gegn
Ástralíu árið 1999 og voru úrslitin
þá 49-17.
Allir voru sér meðvitandi um að
ástralska liðið væri ekki sterkt á
svellinu en að það væri svona slakt
óraði fæsta fyrir. Um hreina aftöku
var að ræða að annað eins hefur
ekki sést í manna minnum á stór-
móti í handknattleik. Guðmundur
Guðmundsson landsliðsþjálfari
stillti þó upp sínu sterkasta liði í
byrjun en þegar ljóst var hvert
stefndi gerði hann örar manna-
breytingar þegar staðan var orðin
10-0. Ólafur Stefánsson fór þá m.a.
út af og tók ekki frekar þátt í leikn-
um svo ekki gat hann kvartað und-
an álagi í þessum leik og gott að
hafa hann hvíldan þegar kemur að
sterkari andstæðingum.
Það er mjög hæpið að dæma ís-
lenska liðið út frá þessum leik en
það á þó virkilegt hrós skilið fyrir
að halda einbeitingunni allan leik-
inn og fékk þó í það minnsta ágætis
æfingu eftir allt saman. Ástralar
komuSt ekki á blað fyrr en 13 mín-
útur voru liðnar af leiknum en þá
skoruðu þeir fyrsta markið sitt. Bil-
ið milli liðanna breikkaði jafnt og
þétt og í hálfleik var staðan 23-6.
Ekki sló islenska liðið af í síðari
hálfleik og mörk úr hraðaupphlaup-
um og úr homunum hrönnuðust
upp. Heiðmar Felixsson fékk nú
loksins að leika af einhverri alvöru
vegna þess að Ólafur Stefánsson
hvíldi. Heiðmar nýtti tækifærið vel,
stóð vel fyrir sínu og gerði tíu
mörk. Hann sýndi hve hann er orð-
inn líkamlega sterkur og betri á all-
an hátt síðan hann hóf að leika á
Spáni.
Markmiðið íslenska liðsins var
að komast yfir flmmtíu marka múr-
inn og það gekk eftir og fimm mörk-
um betur. Þessi leikur á sér fáa líka
á heimsmeistaramóti ef nokkum á
annað borö. Mótspyma Ástrala var
Jón Kristján Sigurösson
blaöamaöur
Okkar
menní
Portúgal
Hilmar Þór Guömundsson,
Ijósmyndari
slík að ekki finnast lýsingarorð til
að segja frekar frá henni. Það er
með ólíkindum að lið með þennan
styrk, ef styrk skyldi kalla, skuli á
annað borð komast í úrslitakeppni á
heimsmeistaramóti. Eyjaálfa á sæti
í úrslitakeppninni og í gegnum
hana komust Ástralar eftir yfir-
burðasigra á andstæðingum. Ástral-
ar eiga óralangt í land á öllum svið-
um handboltans en það er vonandi
að þeir læri eitthvað með þátttöku
sinni í keppninni þó að það hljóti að
verða niðurdrepandi að tapa leikj-
um með miklum mun. Þeir eiga ef-
laust eftir að fá fleiri rassskellingar
á mótinu en aldrei að vita nema
þeir batni með fleiri leikjum.
íslenska liðiö hefur rutt fyrstu
hindruninni úr vegi á heimsmeist-
aramótinu en róðurinn kann að
þyngjast með hverri raun. Hætt er
við að liðið þurfi að hafa meira fyr-
ir hlutunum gegn Grænlendingum
sem sýndu í leiknum við Portúgal í
gærkvöld að þeir búa yfir mun
meiri styrk en Ástralar.
Guðjón Valur Sigurðsson var
mjög sprækur i leiknum en hann
kom inn á fyrir Gústaf Bjarnason
um miðjan fyrri hálfleik. Guðjón
Valur lék meira og minna það sem
eftir var leiksins og gerði 14 mörk
sem telst gott út af fyrir sig. Eins og
áður sagði verður íslenska liðið
ekki dæmt af afrekum sínum í þess-
um leik. Það vann sina vinnu og lét
ekki óhemjuslappa andstæðinga slá
sig út af laginu. Guðmundur Hrafn-
kelsson og Roland Valur Eradze
skiptu með sér hálfleikjunum og
vörðu ágætlega en skotin hjá Áströl-
um voru stundum afar máttlítil. ís-
lenska liðsins biður erfiðara verk-
efni í kvöld þegar það etur kappi við
Grænlendinga sem kunna meira
fyrir sér í íþróttinni en Ástralar.
-JKS
Aron Kristjánsson svífur hér í gegnum vörn Ástrala sem var eins og gatasigti í leiknum i gær og skorar eitt þriggja
marka sinna í leiknum. DV-mynd Himar Þór
ALLTUM HMj
handbolta