Dagblaðið Vísir - DV - 21.01.2003, Qupperneq 37
ÞRIÐJUDAGUR 21. JANÚAR 2003
37
Slæm byrjun hjá Jordan
Það byrjuðu ekki vel
æfingarnar hjá breska
Jordanliðinu í Formúl-
unni en æfingar liðsins
hófust í Barcelona í gær.
Giancarlo Fischicello
var þá á æfingahring
þegar skyndilega
kviknaði í bílnum og
hann stóð í Ijósum
logum. Ástæðan var
bensínleki sem kom upp
aðeins nokkrum
hringjum eftir að hann
hóf æfingamar. -PS
Rafpóstur: dvsport@dv.is
Kjartan Steinbach, formaður dómaranefndar IHF, hefur staðið í ströngu
Pað var i nógu að snúast hjá Kjartani Steinbach, en hann
er fulltrúi IHF i Viseu i riðlinum þar sem íslendingar leika,
en Ijósin fóru af I höllinni tæplega 10 mínutum fyrir leiks-
lok. Hérna ræða þeir Kjartan og Guömundur Guðmunds-
son landsliðsþjálfari hvaö sé til bragðs að taka.
DV-mynd Hilmar Por
Undirbuningur hefur
staðið í 6 mánuði
- kröfur til dómaranna aukast með hverri keppninni
Jón Kristján Sigurðsson, DVi Portúgal:
íslendingar eiga ekki bara keppn-
islið á heimsmeistaramótinu í
Portúgal heldur dæma hér Stefán
Amaldsson og Gunnar Viöarsson og
formaður dómaranefndar Alþjóða
handknattleikssambandsins, IHF,
er Kjartan Steinbach og hefur hann
gegnt formennsku þar allar götur
síðan 1996.
Það er í mörg hom að líta í
starfi Kjartans og segir hann að
undirbúningur dómaranefndar-
innar hafi staðið í sex mánuði.
„Það er alveg rétt að það er að
ýmsu að hyggja í undirbúningi fyrir
svona stórt mót. Það lýtur að sjálf-
sögðu að því að raða niður dómur-
um fyrir hvem leik, huga að starfs-
mönnum við leikina og búningum
og öðra slíku. Það er langur tími
sem fer í alla skipulagningu og við í
dómaranefndinni höfum verið að
undirbúa okkur síðasta hálfa árið
hægt og bítandi. Við erum enn
fremur í stöðugu sambandi og núna
skömmu fyrir mótið vorum við sátt-
ir við hvemig staðið var að málum.
Við þurftum síðan að leggja þetta
fyrir mótsstjómina sem hefur end-
anlegt úrskurðarvald hverjir dæma
hvaða leik,“ sagði Kjartan Stein-
bach.
- Maður skyldi ætla að það
færi töluverður tlmi í þetta starf
því auk þess ertu í fullri vinnu
heima.
„Ég get sagt að þetta sé áhuga-
málið mitt sem ég fæ ekkert greitt
fyrir. Ég var kosinn formaður
nefndarinnar á þingi Alþjóða
handknattleikssambandsins fyrir
Ólympíuleikana í Atlanta 1996. Það
er oft gefandi og skemmtilegt að
sinna þessu starfi en stundum eru
leiðindi og þras. Ég hef samt gaman
aPþessu því á annað borð væri mað-
ur ekki í því. Ég er samfara þessu
búinn að feröast um allar heimsálf-
ur og það fer mikill tími í ferðalög.
Ég get nefnt í því sambandi að á síð-
asta ári var ég erlendis í kringum
100 daga og þarf af leiðandi skarast
þetta mikið við vinnu mína heima.
Ég er svo heppinn að ég rek mína
eigin verkfræðistofu og félagi minn
er mjög skilningsríkur. Þetta þýðir
að þegar maður er heima vinn ég
mikið um kvöld og helgar."
- Hvað hefur helst tekið breyt-
ingum í dómaramálum síöan þú
tókst við formennsku í nefnd-
inni?
„Það tóku gildi nýjar leikreglur
1997 og svo aftur áriö 2001. Þama
voru ekki byltingarkenndar breyt-
ingar á ferðinni heldur áherslu-
breytingar en markmiðið er að
þessi mál gangi hægt og rólega fyrir
sig og breytingar sem menn era
SEunmála um í handboltaheiminum.
Hugmyndin á bak við þetta allt sam-
an er að handboltinn verði meira
aðlaðandi, stundum tekst vel upp og
stundum ekki. Hvað varðar stjóm
og skipulag hefur ekki mikið breyst
en á síðasta þingi í Sankti Péturs-
borg var mikið deilt en þar lágu fyr-
ir tillögur um að gera
skipulagsbreytingu sem ekki náöi
fram að ganga. Af þeim sökum hef-
ur verið boðað til annars þings í
haust.“
Hvemig eru Pórtúgalar í
stakk búnir að halda svona mót?
„Við getum sagt að það sé búið að
vera stress á þeim en það er ekki
fyrr en á síðustu stundu sem allt
smellur saman. Þetta er bara
þannig en þegar við héldum keppn-
ina 1995 þá voram við á síðustu
stundu með allt. Hvað mig varðar
og mína menn þá getum við ekki
kvartað yfir undirbúningi Portúgal-
anna og þeir leggja sig í líma að
gera hlutina vel.“
- Hvað eru mörg dómarapör að
dæma í keppninni?
„Það eru 16 pör að dæma í riðla-
keppninni og að henni lokinni þurf-
um við að senda fjögur pör heim og
svo aftur sama fjölda eftir milliriðl-
ana og klárum keppnina á átta pör-
um.“
- Hverju þarf dómari að búa yf-
ir til að fá að dæma á heimsmeist-
aramóti?
„Þegar stórt er spurt verður
kannski fátt um svör. Ef ég á aö
svara þessu verður hann að búa yf-
ir ákveðinni reynslu og við eram
skuldbundnir aö velja eitt parið
minnsta kosti frá hverri heimsálfu.
Síðan veljum við þá bestu sem við
teljum að era í stakk búnir til að
dæma svona keppni. Dómaramir
þurfa að standast líkamlegt próf og
skriflegt. í framhaldinu veljum við
pörin samkvæmt frammistöðu og
það verður ekki hjá því komist að
við þurfum að senda góð pör heim
en það er staðreynd að bestu pörin
koma frá sterkustu löndunum. Þetta
þýðir að við getum ekki verið með
átta pör í restina frá þeim þjóðum
sem tryggja sér sæti í 8-liða úrslit-
unum.“
- Eru meiri kröfur gerðar til
dómara nú en fyrir nokkrum ár-
um?
„Kröfurnar eru tvímælalaust
meiri í dag en áður. Ef við tökum
fyrir keppnina 1995 á íslandi þá
komu t.d. tvö pör, annað átti við
meiðsli að stríða í fæti og hitt í
ökkla. Þessi pör dæmdu aðeins einn
leik, vora þá búin, en svona nokkuð
samþykkjum við ekki í dag. Við ger-
um enn fremur kröfur um það að
pörin farin í gegnum líkamlegt próf
og til að ná því verða dómarar að
æfa. Þeir komast ekki í gegn án þess
að æfa og á því era hreinar línur.
Dómarar þurfa aö leggja hart að sér
fyrir svona keppni, æfa og hlaupa
að minnsta kosti fjórum sinnum i
viku.“
- Við íslendingar eigum dóm-
ara-par á þessu móti. Hvemig
stendur það sig samanborið við
aðra kollega sína?
„Þeir eru að mínu mati á meðal
sex bestu dómarapara i heiminum í
dag. Þeir voru á meðal efstu par-
anna í skriflega og líkamlega test-
inu þannig að þeir hafa undirbúið
sig virkilega vel fyrir heimsmeist-
aramótið. Verkefni þeirra í mótinu
hangir við frammistöðu íslenska
liðsins í mótinu. Eftir því sem ís-
lendingar fara lengra minnkar það
möguleika þeirra og á þessu era
þeir klárir en auðvitað vona þeir að
íslenska liðinu gangi sem best.“
- Hefur þú jafnvel trú á því að
þeir komist enn lengra og eigi eft-
ir að dæma einhvem tímann úr-
slitaleik í keppni sem þessari?
„Það gæti gerst og þeir eru
kandítatar fyrir allar stórkeppnir
sem fram undan eru. Ég ber mikið
traust til félaganna,“ sagði Kjartan
Steinbach, formaöur dómaranefnd-
ar IHF, í samtali við DV í Viseu í
Portúgal.
HANDBOLTI J \ tf
mca 0 ,
Úrslitin í gær
A-riðill
Júgóslavía-Pólland..........24-20
Túnis-Kuwait................29-20
Spánn Marokkó ...............23-18
B-riðill
Island-Ástralla.............55-15
Þýskaland-Katar.............40-17
Portúgal-Grænland ...........34-19
C-riðill
Króatía-Argentína ...........29-30
Rússland-Ungverjaland.......31-30
Frakkland-Saudi-Arabía......30-23
D-riðill
Alsír-Brasilía..............22-22
Svíþjóð-Egyptaland..........29-33
Danmörk-Slóvenía............33-24
Stefán og
Gunnar
á Madeira
Stefán Amaldsson og Gunnar
Viðarsson dæma í C-riðli
heimsmeistaramótsins í hand-
knattleik sem fram fer á eynni
Madeira. Þessi riðill er talinn sá
allra sterkasti í keppninni en í
honum leika Rússar, Frakkar,
Króatía, Ungverjar, Sádi-Arabar
og Argentínumenn.
Frábær frammistaða þeirra
félaga á síðustu misserum varð
til þess að þeir dæma í þessum
sterka riðli. Þess má geta að um
rúmlega tveggja stunda flug er
til Madeira frá Lissabon.
Ráðherra
á leiðinni
Valgerður Sverrisdóttir, iðn-
aðar- og orkumálaráðherra, er
væntanleg til Viseu á fimmtudag
í tengslum við formlega opnun
límtrésverksmiöju í borginni
sem íslenskir aðilar eiga og
reka. Um 20 manns koma í til-
efhi vígslunnar og hefur þeim
öllum verið boöið á leik íslands
og Portúgals á heimsmeistara-
mótinu.
Fjölmiðla-
menn
aldrei fleiri
Fjölmiðlamenn á stórmóti í
handknattleik hafa aldrei verið
fleiri en einmitt á keppninni hér
í Portúgal. Hátt í 700 umsóknir
bárust til mótshaldara og era
það um tvö hundruð fleiri en á
síðsutu tveimur keppnum á und-
an.
Þjóðverjar eru stærsti hópur
fjölmiðlamanna en þeir era um
hundr-að talsins. Spánverjar,
Frakkar, Svíar og Danir eru
einnig margir. Alls koma fjöl-
miðlar frá hátt í 40 löndum.
r
«.
alltumhmí
\& HANDBOLTA