Dagblaðið Vísir - DV - 21.01.2003, Side 40

Dagblaðið Vísir - DV - 21.01.2003, Side 40
HjFRETTASKOTIÐ SÍMINN SEM ALDREI SEFUR Hafir þú ábendingu eöa vitneskju um frétt, hringdu þá í síma 550 5555. Fyrir hvert fréttaskot, sem birtist eöa er notað f DV, greiöast 3.000 krónur. Fyrir besta fréttaskotið í hverri viku greiöast 7.000. Fullrar nafnleyndar er gætt. Viö tökum viö fréttaskotum allan sólarhringinn. 550 5555 Viðbótarlífeyrissparnaður Allianz (jfí) V Loforð er loforð ÞRIÐJUDAGUR 21. JANUAR 2003 * f. 4 * * J mut * • > * « — æl "'m — íi« • • . • * M. • « | • « I .* j * 'd i m m m ■« m ■ • DV+ÍYND E.ÓL. Tunglið, tungliö, taktu mig Gaman hefur veriö aö sjá tungliö koma upp yfir Esjunni undanfarna daga og lýsa upp umhverfiö enda var tungliö fullt á laugardag. Nú fer upplýstur hluti tungl- kringlunnar smám saman aö minnka þar til þaö hverfur okkur sjónum í 2-3 daga. Þá birtist þaö á ný, veröur nýtt tungl (1. feb.). Um 29 dagar líöa milli þess sem tungl veröur nýtt. Viö nýtt tungl er Ijósrönd hægra megin á því sem vex meö degi hverjum og veröur aö fullu tungli um hálfum mánuöi síöar. Síöan fer tungliö aö minnka aftur en þá vex myrkur hluti tunglkringlunnar frá hægri þar til Ijósröndin er aöeins vinstra megin og tungliö hverfur. En þaö er fleira en tungliö sem vekur athygli þessa daga. Stöðumælirinn á myndinni er nærri litlum gosbrunni á Klapparstíg og var sannarlega kominn í klakabönd þegar Ijós- myndari átti leiö hjá í gær. 14 fíkniefnamál á einu kvðldi - þar af sjö á sama veitingastaðnum Aðgeröir fíkniefnalögreglumanna í Reykjavík leiddu til þess áð 14 fíkniefnamál urðu til á einu og sama kvöldinu, föstudagskvöldinu. Er hér um óvenjuháa tölu að ræða en gefur engu að síður vísbendingu um hve mikið magn efna er í um- ferð þó svo að lögreglan hafi lagt áherslu á að leita hjá „líklegu" fólki eða ef ákveðnar grunsemdir komu upp. Athygli vekur að sjö af málunum urðu til á einum og sama veitinga- staðnum. Hörður Jóhannesson yfir- lögregluþjónn segir að ekki sé ástæða til að tilgreina um hvaða stað var að ræða því hann hafi í raun verið valinn af handahófi og leit á fólki innandyra verið fram- kvæmd með vilja og „þökk“ for- svarsmanna staðarins. Lögreglan muni svo halda áfram að leita á fólki á sérstökum veitingastöðum í borginni. „Við vorum úti með öflugt götu- eftirlit þetta kvöld,“ sagði Hörður en sjö af málunum urðu til á götum úti eða annars staðar. Einn ungur maður reyndist vera með um 100 e- töflur á sér og er grunaður um að hafa verið með allt þetta magn til að selja fólki. 20-30 töflur fundust á öðr- um þetta kvöld og um 120 grömm af hassi. Auk fjöldans vekur einnig athygli að nánast allir sem handteknir voru í málunum 14 eru fæddir árið 1982 eða síðar, 20 ára og yngri. Sá yngsti reyndist 16 ára piltur. Hann verður kærður eins og a.m.k. 13 aðrir sem reyndust hafa fíkniefni undir hönd- um þetta föstudagskvöld í miðborg Reykjavíkur. -Ótt GABRIEL HÖGGDEYFAR hagstæð verð G&varahlutir Bíldshöföa 14 • Sfrnt: 567-6744 gscarparts@centrum.is UTSALA 40% afsláttur Sportvörugerðin hf. Skipholti 5, s. 562-8383 BIRÆFIÐ RAN UM HÁBJARTAN DAG DV 16. janúar sl. Innbrotið í Blómahæð: MALIÐ > UPPLÝST^ Lögreglumenn í Hafnarfírði hafa upplýst bíræfið innbrot í hús við Blómahæð i Garðabæ fyrir tæpum tveimur vikum. Alls voru sex hand- teknir vegna gruns um aðild að mál- inu - þrír hafa viðurkennt þátt sinn í málinu en sá fjórði ber við minnis- leysi. DV greindi frá innbrotinu í síð- ustu viku og kom þar fram að það hefði verið framið um hábjartan dag. Þjófarnir spenntu upp glugga og höfðu meðal annars skartgripi á brott með sér. íbúamir hafa nú fengið hluta þýfisins til baka. Lögreglan í Hafnarfirði segir nokkuð vera um að innbrot séu framin að degi til eins og í fyrr- greindu tilviki. Því er brýnt fyrir fólki að verði það vart grunsam- legra ferða að láta lögreglu vita. -aþ / / / / / Alþingi: MÓTVÆGI 0G MÓTMÆLI / / Utandagskrárumræða verður á Al- þingi í dag um mótvægisaðgerðir í efnáhags- og atvinnumálum vegna áformaöra stóriðjuframkvæmda á Austurlandi, að ósk þingflokks Vinstrihreyfingarinnar - græns fram- boðs. Fjármálaráðuneytið hefur sem kunnugt er sagt að líklega kalli fram- kvæmdimar á að draga þurfi saman aðrar framkvæmdir ríkisins um 10% til þess að halda verðbólgu í skefjum. Andstæðingar framkvæmdanna hafa boðað til mótmælastöðu á Aust- urvelli þegar Alþingi kemur saman klukkan klukkan hálf tvö og ætla jafnframt að fylgjast með umræðunni af þingpöllum. Sem kunnugt er var mikið um frammíköll af pöllunum við umræður um málið í borgarstjóm fyrir helgi. Halldór Blöndal þingforseti segir að reynt sé að sýna umburöarlyndi við fundarstjóm þingsins en almennt séð gildi einföld regla í þessum efhum: „Ef hér verða hávær köll uppi á þing- pöllum og menn fara aö trufla þing- fundi myndi ég einfaldlega fresta þingfundi. Við fömm ekki að halda einhverja leiksýningu fyrir fjölmiðla hér uppi á pöllum." -ÓTG / / / / / / / / / / VELDU ÖRYGGIISTAÐ ÁHÆTTU! Sími 580 7000 | www.securitas.is / / / 112 EINN EINN TVEIR NEYÐARLÍNAN LÖGREGLA SLÖKKVILIÐ SJÚKRALIÐ / / /

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.