Dagblaðið Vísir - DV - 25.01.2003, Side 4

Dagblaðið Vísir - DV - 25.01.2003, Side 4
4 LAUGARDAGUR 25. JANÚAR 2003 DV Fréttir Sjávarútvegsráðherra áfrýjar dómi: Telur málið varða tjáningarfrelsi Ámi M. Mathiesen sjávar- útvegsráðherra ákvað í gær að áfrýja dómi Hér- aðsdóms Reykja- ness í máli Magn- úsar Þórs Haf- steinssonar gegn honum. Málið Call- aði sem kunnugt er um orð sem sjávarútvegsráðherra lét falla um m.a. um trúverðugleika þáttar sem Magnús Þór gerði um brottkast afla í róðri á Vesttjarðamiðum. „Ég tel að dómur þessi sé í andstöðu við dóma Hæstaréttar íslands í málum sem varða tjáningarfrelsi. Þar sem málið varðar svo mikilvægt svið sem tjáningarfrelsið er í nútímaþjóðfélagi tel ég óhjákvæmilegt annað en að áfrýja framangreindum dómi enda tel ég að niðurstaða Hæstaréttar í máli þessu muni hafa almennt gildi,“ segir sjávarútvegsráðherra. -GG Arni M. Mathiesen. tfvnner^ Frá miðjum jan. fram til 22. febrúar. á föstudags- og laugardagskvöldum Kvöldstund í Perlunni er öðruvísi. Þar snýst þjónustan um þig meðan þú snýst um borgina. Dinner and Dancing í Perlunni ertilvalið fyrir árshátíðir smærri fyrirtækja þar sem maturinn og þjónustan er aðalatriðið. Til að fullkomna kvöldið er svo tilvalið að fá sér snúning á dansgólfinu við Ijúfan söng og undirleik. Nýr og glæsilegur sérréttaseðill DV-MYND SÍGURÐUR JÓKULL Hætt komnir Þeir félagar Smári Adólfsson og Máni frá Fremri-Hvestu voru hætt komnir þegar þeir lentu í vök á Hvaleyrarvatni í koiniöamyrkri. Þeir eru nú báöir búnir aö jafna sig eftir volkiö. Máni er einn af uppáhaldshestum Smára en myndin af þeim var tekin í Sörlaskeiði í gær. Lenti með hest sinn í vök á Hvaleyrarvatni í kolniðamyrkri: Hélt aö mín síðasta stund væri upp runnin - segir Smári Adólfsson, hestamaður í Hafnarfirði „Þegar ég fór í vökina í annað sinn hélt ég að min síöasta stund væri upp runnin," sagði Smári Adólfsson, hestamaður í Hafnar- firði. Hann varð fyrir því sl. þriðjudagskvöld að lenda ásamt hesti sínum í vök á Hvaleyrar- vatni. Þetta var um áttaleytið um kvöldið og því orðið aldimmt. Smári, sem er þaulvanur hesta- maður og gjörkunnugur svæðinu, var að ríða á ísnum á vatninu. Hann vissi af uppsprettu í því en áttaði sig ekki á að hún hafði færst nær landi og stækkað frá því sem áður var. „Klárinn fór út í og datt fyrst niður með framlappimar," sagði Smári. „Ég rann fram af honum og út í vatnið. Ég reyndi að komast upp úr, en það gekk ekki fyrr en hesturinn kom að mér. Þá gat ég spymt fótunum i hann og komist upp á ísinn. Þá hugsaði ég að nú skyldi ég ná honum upp. Ég náði í tauminn og var að reyna að toga hann. Svellið var orðið mjög blautt og sleipt þannig að hann togaði mig niður í vökina aftur. Þrátt fyr- ir mikið gösl í vatninu náði ég að setja einteyming á hann.“ Smári kvaðst hafa verið orðinn mjög þungur í vatninu. Sem betur fer hefði klárinn svamlað um, þannig að hann hefði aftur náð að spyma í hann og koma sér upp á vakarbrúnina. „Ég reyndi enn að koma klárn- um upp úr, en tókst ekki og varð að gefast upp við svo búið,“ sagði Smári. Hann gekk af stað í áttina að hesthúsahverflnu. Fljótlega fann hann að hann kólnaði hratt upp, enda 12 stiga frost. Honum tókst þó að komast að hesthúsi Sveins Jónssonar í Sörlaskeiði. Hann hugðist fara með Sveini og syni hans til að sækja hestinn en gat sig varla hrært fyrir kulda. Hann var því keyrður heim. „Þeir voru orðnir sjö eða átta sem hjálpuðust að við að ná hest- inum upp,“ sagði Smári. „Það tókst loks þegar einn þeirra náði að koma spotta undir hnakkinn. Þá var hægt að draga hestinn á hnakknum á hliðinni upp á ís- inn.“ Smári sagði að kuldi hefði ver- ið í sér í heilan sólarhring á eftir en hann væri nú alveg búinn að ná sér. Hann kvaðst þegar hafa fengið dýralækni handa hestin- um. Klárinn hefði verið dasaður eftir volkið en kenndi sér nú einskis meins lengur. -JSS Sjávarútvegsráðherra eykur veiðiheimildir: Utflutningsverðmæti eykst um allt að 2,8 milljarða Sjávarútvegsráðherra, Árni M. Mathiesen, hefur ákveðið hækk- un á leyfilegum heildarafla ufsa, sandkola, kolmunna og út- hafskarfa og koma þær m.a. til móts við niðurskurð á aflaheim- ildum í þorski á fiskveiðiárinu 2002/2003. Aflaheimildir í ufsa hækka úr 37.000 tonnum í 45.000 tonn, afla- heimildir sandkola hækka úr 4.000 tonnum í 7.000 tonn, afla- heimildir kolmunna hækka úr 282.000 tonnum í 318.000 tonn og aflaheimildir úthafskarfa hækka úr 45.000 tonnum í 55.000 tonn. Þar af eru 10 þúsund tonn úr efri stofni eins og árið 2002. Þessar breytingar eru meiri í þorskígildum talið en samdráttur í leyfilegum heildarafla .þorsks sem kynntur var í júní sl. eða 12.000 þorskígildistonn á móti 11.000 tonnum. Gera má ráð fyrir að hækkun á leyfilegum heildar- afla ofangreindra tegunda auki útflutningsverðmæti útfluttra sjávarafuröa um 2,5 til 2,8 millj- arða. Þetta felur í sér að útflutn- ingstekjur sjávarafurða hækka um liðlega 2% frá fyrri áætlun- um. Að öllu samanlögðu munu því ákvarðanir sjávarútvegsráðherra leiða til þess að útflutningsverð- mætið á árinu 2002 verður ríflega 130 milljarðar króna í stað 128 milljarða króna eins og áætlað hafði verið. -GG Rúrik Haraldsson látinn Rúrik Har- aldsson leikari er látinn, sjö- tíu og sjö ára að aldri. Rú- rik, sem var einn af ástsæl- ustu leikurum landsins, fædd- ist í Vest- mannaeyjum 1926. Hann hóf nám í leiklist við Leiklistarskóla Lárusar Pálssonar nítján ára gamall og útskrifaðist frá Central School of Dramatic Art í Lundúnum árið 1950. Eitt af fyrstu hlutverkum Rú- riks var þegar hann lék hirð- mann í Myndabók Jónasar Hall- grímssonar, eftir Pál ísólfsson og Lárus Pálsson, á vegum Tónlist- arfélagsins í Trípólíbíói 1945. Rúrik lék hjá Leikfélagi Reykja- víkur frá árinu 1946 en var fast- ráðinn við Þjóðleikhúsið frá ár- inu 1951. Rúrik hlaut fjölda viðurkenn- inga á ferlinum, þar á meðal Menningarverðlaun Þjóðleik- hússins 1960 og 1968, Lista- mannalaun Menningarsjóðs 1960 og Silfurlampann árið 1970 fyrir aðalhlutverkið í Gjaldinu eftir Arthur Miller 1970. -Kip Rúrik Haraldsson.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.