Dagblaðið Vísir - DV - 25.01.2003, Blaðsíða 40

Dagblaðið Vísir - DV - 25.01.2003, Blaðsíða 40
AA Helgarttlaö 33 "V LAUGARDAGUR 25. JANÚAR 2003 Ég drap eiginmanninn - hann tuðaði of mikið Óþarfa nöldur oq tuð qetur reqnst dqr- keqpt oq jafnvel kostað menn lífið. Bind- indismaðurinn Henrq Barlous varsífellt að nöldra íeiqinkonunni fqrirað drekka of mikið. Henrq fór að lokum qfirstrikið oq konan drap hann með eldhúshnífi. Laugardagskvöldin voru yfirleitt róleg á lögreglu- stöðinni í Swan í Lancasskíri. Reyndar voru öll kvöld róleg því að glæpir voru nánast óþekktir í þorpinu. Jonah Jellyman varðstjóri var því einn á vakt um miðjan janúar árið 1934 og átti ekki von á að verða truflaður fyrr en á vaktaskiptum um miðnætti. Hann bætti kolum í ofninn og kom sér þægilega fyrir, setti fætuma upp á skrifborð og fór að lesa kvöldblaöið. Ég drap manninn minn Rétt fyrir klukkan tiu opnuðust útidyrnar og kald- ur gustur lék um varðstofuna og í kjölfar hans kom lítil gömul kona með tárin í augunum. Konan, sem var með sjal yfir herðunum, gekk hægum en ákveðn- um skrefum í átt að skrifborðinu en áður en hún gat komið upp orði stóð varðstjórinn á fætur og spurði hana hvað væri að. Ætli hún hafi ekki týnt kettinum sínum, hugsaði hann með sér. „Ég ætla að gefa mig fram,“ sagði gamla konan sem hét Eliza Barlow og var sextíu og fjögurra ára. „Ha, hvað segir þú, vinan, fyrir hvað eiginlega?“ sagði Jonah hissa. „Ég drap manninn minn,“ sagði hún um leið og tár- in tóku að streyma niður kinnamar, „ég henti eldhús- hnífnum í hausinn á honum klukkan hálfátta í kvöld og nú er hann dauður.“ Eiginnmaður Elizu hét Henry Bar- low, hann var verkamaður og níu árum yngri en hún. Barlow-hjónin bjuggu í litlu raðhúsi við Pochdalegötu í verkamannahverfi Swan. Húsið var hefðbundið, á tveim- ur hæðum og hlaðið úr múrsteini. Vegna kuldans um veturinn og gigtarinnar, sem þjakaði og píndi Henry, hafði hann flutt rúmið sitt niður í eldhús og sofið þar síðustu vik- urnar. Það var blóð úti um allt, á rúminu og borðinu, á vaskinum og veggj unum en mest var blóðið á gólfinu, það flæddi yfir þröskuldinn og út á götu. Jonah Jellymann skimaði rólega yfir blóðvöllinn þar til hann sá eldhúshníf- inn á borðinu. Við fyrstu sýn virtist hnífurinn bitlaus en hann var al- blóðugur og Jonah sá ekki betur en það væru gráar hár- flygsur í blóð- inu. Kastaði hnífnum óvart Við yfirheyrslu daginn eftir sagði Eliza rannsóknar- lögreglumanninum William Humble að Henry hefði látist eftir að hann fékk hníf í höfuð- ið. Hún viðurkenndi að hafa kastað hnífnum en sagðist hafa gert það óvart. „Ég var að skera brauð,“ sagði hún og horfði í kjöltu sér, „og hann var að tuða í mér eins og vanalega. Ég sagði honum að hætta eða ég mundi henda hnífnum í hann og áður en ég vissi af lyfti ég hendinni og kastaði hnífnum í höfuð- ið á honum. Það sprautaðist blóð út um allt og ég reyndi að stoppa blæðing- una með því að rífa niður tusku og vefja um höfuðið á honum. Ég var í tvo tíma að bögglast við að bjarga honum.“ Lögreglan var sannfærð um að gamla konan væri að segja satt. Allt benti til þess að Henry Barlow væri fyrsti Englending- urinn sem létist vegna þess að eiginkonan henti hnif í höfuðið á honum. Að yfirheyrslu lok- inni var Eliza ákærð fyrir morð. Skaplítíll reglumaður Henry Barlow var níu árum vngri en kona lians. Ilann var stakur bindindismaður og ljúfmcnni. Hárflygsur í blóðinu Eftir að hafa hlustað á játning- una lokaði varðstjórinn Elizu inni í fangageymslu og fór á vettvang. Þegar Jonah kom á staðinn var læknirinn E.F. Maitland þegar mættur á svæðið ásamt íjölda forvitinna nágranna. Lík Henrys Barlow lá á eldhúsgólfinu, alveg eins og Eliza hafði sagt, með fæturna við kolavélina og höfuð- ið undir borði. Drápstólið Eliza kastaði eldhúshnífnum í höfuðið á eiginmanni sínum með voveiflegum afleiðingum. Jú, ég drap hann víst Við nánari eftirgrennslan tókst Jellyman og Humble að púsla saman atburðunum sem leiddu til dauða Henrys Barlow. Eliza Barlow hafði verið á hverfis- kránni frá klukkan eitt til hálfþrjú daginn sem morðið átti sér stað. Hún hafði drukkið þrjá bjóra og keypt einn til að hafa með heim. Vertinn sagði að hún væri einn af fastagestun- um og að hún hefði virst ódrukkin þegar hún fór. Henry hafði aftur á móti sést á ferli fyrir klukkan sjö Hverfiskráin Á leiðiuni á lögreglustöðina kom Eliza við á hverfiskránni og fékk sér einn bjór til að svala þorstanum. Heimili Barlow-hjónanna Húsið var liefðbundið, á tveimur hæðum og hlaðið úr múrsteini. Vegna kuldans um veturinn og gigtarinnar hafði Hcnrv flutt rúmið sitt niður í eldhús og sofið þar síðustu vikurnar. um morguninn og ekki var annað á sjá á honum en að allt væri í stakasta lagi. Ada Sharrock, nágranni Bar- low-hjónanna, sagði að Eliza hefði verið í miklu uppnámi þegar hún kom hlaupandi inn um dyrnar hjá henni um klukkan hálfníu um kvöldið. „Hún sagðist hafa drepið Henry og bað mig að koma heim með sér, en ég trúði henni ekki og sagði að það gæti ekki verið satt. „Jú, ég drap hann víst,“ sagði hún.“ Áður en frú Sharrock fór heim með Elizu bað hún annan nágranna þeirra, George Schofield, að koma með þeim. „Ég hræddist það sem beið okkar.“ Henry var enn með lífsmarki þegar þau komu i húsið. „Við reynd- um allt hvað við gátum til að bjarga honum,“ sagði Ada, en við komum of seint og hann lést nokkrum minútum síð- ar.“ „Ó, hvað á ég að gera,“ snökti Eliza og leit til Schofields. „Ég mundi fara beint til lögreglunnar og gefa mig fram ef ég væri þú,“ sagði hann. Eliza vafði sjalinu þéttar um axlirnar og sagðist ætla að fara að ráðum hans um leið og hún gekk út. Eliza fór þó ekki beinustu leið á lögreglustöðina því hún tók á sig krók til að stoppa á hverfiskránni og svala þorstanum með einum bjór. Aðspurður sagði vertinn við yfirheyrslu að Eliza hefði virst róleg þegar hún kom inn. „Hún drakk bjórinn að vísu í einum teyg en ég trúði henni ekki þegar hún sagði að Henry væri látinn." Vertinum brá aftur á móti þegar Eliza byrjaði að skjálfa og bað hann að hringja í lögregl- una og tilkynna fyrir sig morð. Það var hann sem hringdi til Maitlands læknis og sagði honum frá atburð- inum. Byttan og bindindismaðurinn Eliza og Henry kynntust sumarið 1917, hún var fimmtug og gift en hann þrjátíu og níu ára og ein- stæður. Það var ást við fyrstu sýn og skötuhjúin áttu í leynilegu ástarsambandi þar til eiginmaður hennar lést og þau giftu sig árið 1921. Fljótlega kom í ljós að þau voru eins og Kain og Abel og áttu engan veginn skap saman. Eliza var skapmikil og uppstökk og hafði gaman af því að hella í sig en Henry var einstakt prúðmenni, sáttfús og stakur bindindismaður. Þrátt fyrir skapgerðarmun- inn gátu þau engan veginn hugsað sér að skilja og áttu því oft í orðaskaki út af smámunum. Engin ununerld um slagsmál Við réttarhöldin kom fram að ekki hefðu fundist nein ummerki um slagsmál á heimilinu þrátt fyrir mikið blóð. Eliza sagði að eftir að hún henti hnífnum, óvart, í Henry hafi hann reynt að stöðva blæðing- una með því að skola sárið með vatni. Þetta jók á blæðinguna og áður en hún vissi af var hún óstöðvandi. „Ég gerði þetta óvart. Hann var sítuðandi, þið verðið að trúa mér.“ Réttarlæknirinn sem krufði líkið staðfesti að Henry hefði látist vegna blóðmissis og sagði að það væri mjög sjaldgæft að mönnum blæddi út vegna höfuðáverka. „Þetta er einstakt tilfelli og líklega hefur þvotturinn á sárinu riðið baggamuninn.“ Það tók kviðdóminn tæpan klukku- tíma að kveða upp úrskurð. Eliza var sýknuð og grét gleðitárum þegar hún gekk inn á hverfiskrána eftir að henni var sleppt. -Kip
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.