Dagblaðið Vísir - DV - 25.01.2003, Qupperneq 10

Dagblaðið Vísir - DV - 25.01.2003, Qupperneq 10
10 Útgáfufólag: Útgáfufélagiö DV ehf. Framkvæmdastjóri: Örn Valdimarsson Aöalritstjóri: Óli Bjðrn Kárason Ritstjóri: Sigmundur Ernir Rúnarsson Aóstoðarritstjóri: Jðnas Haraldsson Ritstjórn, skrifstofur, auglýsingar, smáauglýsingar, blaðaafgreiðsla, áskrift: Skaftahlió 24,105 Rvík, sími: 550 5000 Fax: Auglýsingar: 550 5727 - Ritstjórn: 550 5020 - Aðrar deildir: 550 5749 Ritstjórn: ritstjorn@dv.is - Auglýsingar: auglysingar@dv.is. - Dreifing: dreifing@dv.is Akureyri: Kaupvangsstræti 1, sími: 462 5000, fax: 462 5001 Setning og umbrot: Útgáfufélagið DV ehf. Plötugerö og prentun: Árvakur hf. DV áskilur sér rétt til að birta aðsent efni blaðsins í stafrænu formi og I gagnabönkum án endurgjalds. DV greiðir ekki viðmælendum fyrir viðtöl við þá eða fyrir myndbirtingar af þeim. íslendingabók slcer í gegn íslendingar eru og hafa verið áhuga- samir um ættir sínar. Ættfræði hefur mörgum verið helsta áhugamálið og hinir eldri spyrja gjarnan þá yngri hverra manna þeir séu við fyrstu kynni. Minningargreinar eru hluti af þessum meiði og ættfræðiskrif DV hafa notið mikilla vin- sælda árum saman. Þar rekast menn oft á frændgarð sem þeir höfðu ekki hugmynd um. Þótt persónufræðin hafi höfð- að til margra hefur það þó frekar verið eldri kynslóðin sem sinnt hefur ættfræðigrúskinu að einhverju ráði. Nú bregður hins vegar svo við að ólíklegustu menn, karl- ar og konur í hvaða stétt sem er og á öllum aldri, sitja við ættargrúsk í tölvum sinum. Svo er fyrir að þakka ættfræði- grunninum íslendingabók sem settur var á Netið fyrir réttri viku. Ættfræðigrunnurinn er samstarfsverkefni Friðriks Skúlasonar og íslenskrar erfðagreiningar. Hann er öllum op- inn, endurgjaldslaust. Notendur geta skoðað sjálfa sig og ætt- ingja og rakið ættir sínar saman við aðra sem skráðir eru í grunninn. Ættfræðigrunnurinn íslendingabók er frábært framtak og móttökurnar eftir því. Hér er um að ræða eina ættfræði- grunninn í heiminum sem nær til heillar þjóðar. í íslend- ingabók er að finna upplýsingar um ættir 700 þúsund íslend- inga eða meira en 95% allra þeirra sem uppi hafa verið frá því að fyrsta manntalið var tekið, árið 1703. Réttilega hefur verið bent á að íslendingabók opnar fjölda manna nýjar víddir og hún mun margfalda hóp þeirra sem gera sér grein fyrir hvað ættfræðin hefur að bjóða. Með því að hafa bókina opna öllum almenningi vonast aðstandendur hennar eftir að hún verði enn nákvæmari, að fólk láti vita rekist það á villur í grunninum. Þeir sem leitað hafa í ættfræðigrunninum vilja raunar meira. Leitin er takmörkuð við upplýsingar um forfeður þess sem flettir í henni þegar kemur aftur fyrir þriðja ættlið. Sigrún Jóhannesdóttir, forstjóri Persónuvemdar, hefur sagt að upplýsingar um skyldleika séu ekki viðkvæmar. Þá hefur það verið haft eftir Kára Stefánssyni, forstjóra íslenskrar erfðagreiningar, að hann hefði viljað hafa grunninn miklu opnari þótt strangari skilmálar hafi verið ákveðnir. Lagafrumvarps er að vænta þar sem skotið verður ótví- ræðri lagastoð undir vinnslu á ættfræðiupplýsingum enda hefur Persónuvernd bent á að ef til vill vantaði skýrari regl- ur um slíka vinnslu. Vonandi verður slíkt til að opna al- menningi frekar hina afbragðsgóðu íslendingabók. Spamaður fyrir bíleigendur Það er dýrt að eiga bíl á íslandi. Bíl- ar eru dýrir í innkaupi og dýrir í rekstri enda er flest sem að þeim rekstri lýtur mjög skattlagt. Því hljóta bíleigendur að leita leiða til þess að út- gerð þessara nauðsynjatækja verði sem hagkvæmust. Á það var bent í DV ríflega tíu þúsund krónur á ári skipti bíleigandi reglulega við sjálfsafgreiðslustöðvar í stað þess að nota fulla þjónustu á bensínstöðvum. í þeim útreikningum var miðað við tutt- ugu þúsund kílómetra ársakstur bíls sem eyðir 10 lítrum á hverja hundrað ekna kílómetra. Verðmunur á ódýru sjálfsafgreiðslustöðvunum og hæsta verði á þjónustustöðvum er rúmar 5 krónur. Af því sést að sjálfsafgreiðsluafslátturinn kemur sér vel fyrir neytendur enda getur eldsneytiskostnaður numið 25-30% af rekstrar- kostnaði fólksbíls. Viðskiptavinir sjálfsafgreiðslustöðva fara að sjálfsögðu á mis við þjónustu mannaðra bensínstöðva en hljóta að líta til þess að talsvert vinnst fyrir það viðvik eitt að dæla sjálfir á bílinn. Það munar um minna, ekki síst ef tveir bílar eru á heimili, eins og algengt er. Jónas Haraldsson ______________________________________LAUGARDAGUR 25. JANÚAR 2003 DV Gróskan í tónlistinni n / w. w* Sigmundur Ernir Rúnarsson ritstjóri Ritstjórnarbréf Það er með ólikindum að fylgjast með menningarlífi landsmanna. Og greinilegt að ofvirkni þjóðarinnar er á köflum æðisleg í þessum efn- um. Þetta sást meðal annars i nýaf- staðinni veislu í Borgarleikhúsinu þar sem íslensku tónlistarverðlaun- in voru afhent með viðhöfn. Þar fóru menn ekki meö veggjum held- ur hugsuðu stórt og vel í takt við þá miklu grósku sem er í tónlistarlífi landsmanna. Það hreinlega iðar af kæti. Og stendur betur en nokkru sinni. Vitaskuld er hægt að nota marga mælikvarða á menningu, meðal annars sölutölur. Þær segja nokkra sögu. Líklega hefur islensk tónlist ekki selst betur i annan tíma en síðustu vikumar á nýliðnu ári. Það var eins og æði rynni á hljómplötu- unnendur sem keyptu íslenska tón- list í meira mæli en kaupmenn hafa vanist fram til þessa. Svokallaðar gullplötur og platínuplötur, sem eru mælikvarði á sölu, voru afhent- ar nánast daglega fyrir jólin og skreyta nú híbýli fjölda tónlistar- manna. Tíundi hver í tónlist Tómas Ingi Olrich menntamála- ráðherra sagði við afhendingu verðlaunanna á flmmtudag að nærri léti að tíundi hver landsmað- ur kynni á hljóðfæri og iðkaði list- ina a tama sér tU skemmtunar og framfæris. Þetta er ekkert venju- legt hlutfaU af einni þjóð. Við þetta má bæta að þeir sem gerst þekkja tU tónlistarlífs hér á landi telja að ekki færri en tíu tónleikar séu í boði á landinu í hverri viku og þá eru aðeins nefndir þeir viðburðir sem tengjast sígUdri tónlist og margvíslegum sönglögum. Þessi ríkulega gróska í íslensku tónlistarstarfi veröur ekki síst rakin tU starfa margra framúrskarandi út- lendinga sem hafa flutt tónlistar- þekkingu sína tU landsins á síðustu hundrað árum eða svo. Án þeirra væri íslensk tónlist langtum fábrotn- ari en hún er og líklega komin styttra á veg. Öflug tónskáld og hljóð- færaleikarar víða að úr heiminum, ekki síst gömlu austantjaldslöndun- um, rifu upp tónlistarlífið víða um land um miðja síðustu öld og mörk- uðu djúp spor í íslenska tónsögu. Sjálfsögð þátttaka Þessi þátttaka úUendinga í mót- un íslenskrar menningar gerði það að verkum á sinni tið að íslending- ar náðu að fylgjast betur með tíðar- andanum en þeir hefðu ella gert. Jafnvel í dreifðustu byggðum risu tónlistarskólar þar sem nýjustu ópusar tónsögunnar voru æfðir frá morgni til kvölds. Þessi arfleifð hef- ur skilað sér í mjög almennum áhuga á tónlist og ekki síst í því viðhorfi landsmanna aö sjálfsagt sé að senda börn sín til tónlistarnáms á fyrstu stigum skólagöngunnar. Það er því ef til vill ekki að undra að landsmenn sjái einhvem árangur erfiðisins á stundum eins og þeim sem liðu i leikhúsi Reyk- víkinga á fimmtudagskvöld. Þar mátti líta breiddina í íslenskri tón- list. Hún er ekki minni en gengur hjá milljónaþjóðum. Og kröfurnar eru í takt við getuna. Tónskáldið John Speight, einn verðlaunahaf- anna á fimmtudagskvöld, nefndi i þakkarræðu sinni að enn einu sinni þyrftu tónlistarmenn þjóðar- innar að koma saman í leikhúsi til að iðka list sína. Þessi ríkulega gróska í ís- lensku tónlistarstarfi verður ekki síst rakin til starfa margra framúr- skarandi útlendinga sem hafa flutt tónlistar- þekkingu sína til landsins á síðustu hundrað árum eða svo. Án þeirra vœri íslensk tónlist langtum fábrotn- ari en hún er og líklega komin styttra á veg. Ótrúleg afköst Bubbi Morthens kom fram prúð- búinn í veislunni góðu i Borgar- leikhúsinu og söng eins og honum einum er lagið. Nefnt var að hann hefði verið að gefa út 48. plötuna sem geymdi lög úr safni kappans. Og vel á frnimta hundrað dægurlög hefðu verið þrykkt á plötur og diska eftir þennan einhvem virtasta og vinsælasta dægur- lagatónlistarmann sem ísland hefur eignast. Og það er ekkert lát á hug- myndaflugi meistarans sem selt hefur vel á annað hundrað þúsund hljómplatna. Bubbi er táknmynd fyrir vorið í íslenskri dægurlagamenningu. Hann er tónlistarlegt afkvæmi gömlu meistaranna, bæði hérlendis og erlendis, og sprakk út sem ótrú- lega öflugur rokkari og lagasmiður fyrir nálega aldarfjórðungi. Það var þá - og jafnan kallað nýbylgja. Sú bylgja hefur enn ekki hnigið og í reynd er með ólíkindum hvað hún hefur risið hátt hér á landi á síð- ustu árum. Vel menntaðir krakkar á hvaða hljóðfæri sem er koma fram í kippum og vekja athygli langt út fyrir landsteinana. Sameiginlegur tónn Það var greinilegt á Bubba á fimmtudagskvöld að honum fannst mikið standa til. Og það var það vissulega. Þarna stóð hann í hópi með Garðari Cortes og Diddú og Jóni Páli og Áma Scheving sem hlógu saman í syngjandi sveiflu. Þarna baksviðs í Borgarleikhúsinu sást hvað stutt er á milli klassikur, rokks og djass. Og þama sást að samheldni ríkir á mllli tónlistar- manna í landinu sem hafa oftar en nokkrir aðrir listamenn komið saman og geflð vinnu sína til góðra mála. Það var Samtónn, ný heildarsam- tök þeirra sem með einum eða öör- um hætti koma að flutningi og út- gáfu tónlistar hér á landi, sem stóð að hátíðinni í Borgarleikhúsinu í samstarfi viö opinbera aðila og einkafyrirtæki. Þessi nýju samtök eru ávísun á enn meiri grósku í tónlist, enda mun það koma á dag- inn að aukið samstarf tónlistar- greinanna mun skOa sér í betri vöru og þjónustu í þessum geira. Og ákafari baráttu fyrir hag stéttar- innar, svo sem réttlátara skattkerfi sem íþyngir nú allri útgáfu. Tónlist fyrir alla 23. janúar var stór dagur í ís- lenskri tónlistarsögu og sýndi að það besta í íslenskri tónlist er klár- lega á heimsmælikvarða. Að baki þessum árangri er þrotlaus vinna marga manna á bak við tjöldin sem hafa lokið upp galdri tónlistarinnar fyrir alþýðu manna. Fyrir vikið á allur almenningur óheftan aðgang að tónleikum og tónlistamámi. ís- lenski tónlistarmóralinn er með öðrum orðum almennur og ekki hafrnn upp á sviö sem stór hluti þjóðarinnar telur vera fyrir ofan skilning sinn. Útlendingar sem leggja leið sina til íslands til að kynnast því af eig- in raun hvað er eiginlega að gerast á eyjunni köldu sjá og heyra að sér- staða íslendinga í þessum geira er nokkur. Landsmenn ganga hreint til verks í tónlistinni. Og blanda þar saman ólíklegustu hljóðum og hljóðfærum eftir því sem vindamir leika um landið. Nýbreytni og framsækni eru hér lykilorð. Og fjöl- breytni sömuleiðis. Enda hrista út- lendingar hausinn og efast stórlega um nákvæmni manntalsins hér á landi. Drýgindalegir Félagarnir í hljómsveitinni Búdrýgindi taka viö verölaunum sínum í Borgarleikhúsinu á fimmtudagskvöld en sveit þeirra var valin efnilegasta grúppan í flóru íslenskrar dægurlagamenningar.
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.