Dagblaðið Vísir - DV - 25.01.2003, Blaðsíða 27

Dagblaðið Vísir - DV - 25.01.2003, Blaðsíða 27
LAUGARDAGUR 25. JANÚAR 2003 HelQarblacf 33V 2*7 Hoffman og Pacino Það hefur stundum ver- ið sagt um skærustu stjörnur kvikmyndanna af karlkyni að þeir standi ekki upp úr stígvéli og þurfi að príla upp á kassa til þess að kyssa leikkonur sem eru meira en 1,60. Um þetta eru til ýmsar sögur og sumar sannar. Tveir mögnuðustu leik- arar í amerískum kvik- myndum á seinni árum eru án efa þeir Dustin Hoffman og A1 Pacino. Ég hef aldrei séð þeim tildrað upp á kassa til þess að kyssa kvenhetjur sínar heldur sýnast þeir yfirleitt vera hávaxnir og myndar- legir. Hið sanna er að þeir eru jafnstórir og ná 1,66 á hæð sem er samkvæmt framanskráðu 15 sentí- metrum lægra en íslensk- ur meðalmaður. Hin grannvaxna Calista Flock- hart sem lék Ally McBeal og kynbomban Marilyn Monroe eru jafnstórar og þeir Pacino og Hoffman. Dylan og Patsy Cline Bob Dylan er óumdeilt einn áhrifamesti tónlistar- maður sinnar kynslóöar en hann er samt aðeins 1,68 á hæð og svo skemmti- lega vill til að það var einnig hæð Patsy Cline sem var ofurvinsæl sveita- söngkona. Sennilega er þetta það eina sem Cline og Dylan eiga sameiginlegt en leikkonurnar Juliette Binoche, Penelope Cruz og Bob Dvlan. Qorjs Day náðu þessari sömu hæð. Tom Cruise, sem er ein skærasta karlstjarna Hollywood um þessar mundir og aukinheldur heitbundinn Penelope Cruz, hefur rétt vinning- inn yfir unnustuna því Cruise er 1,70 á hæð. Ant- hony Hopkins sem er síst ófrægari en Cruise deilir hæðartölu með honum en það gera einnig fleiri leik- arar eins og Kim Basinger, Greta heitin Garbo og Tom Cruise. jjane Berry. Bruce Lee, bardagahetja og leikari, var 1,70 á hæð og það er líka Billy Joel og leikkonurn- ar Angelina Jolie og Hilary Swank sem varð fræg fyr- ir aö leika karlmann. Jafnstór þeim er einnig Traci Lords sem er eina leikkonan sem hefur náð frama í hefðbundnum kvikmyndum eftir áralangan feril í klámmyndum. Douglas og Bogart Humphrey Bogart var 1,73 á hæð sem er farið að slaga upp i meðalhæð ís- lenskra karlmanna. Jafn- háir honum eru leikarar á borð við James Dean, Kirk Douglas, Billy Crystal og Matthew Broderick en einnig leikkonurnar Julie Andrews, Cher og Sophia Loren. Þetta er einkar fjöl- breyttur stærðarflokkur Kirk Douglas. þvj J 73 a hæð eru einnig Isabella Rossellini og Ben Stiller sem bæði eru leik- arar en Frank Sinatra var einnig 1,73 á hæð. Frankie er jafnstór og Elton John og Ringó Starr og enn má segja að þetta sé sennilega það eina sem tengir þá saman. Af frægum leikkonum í þessum stærðarflokki má nefna Kate Winslet og Catherine Zeta Jones sem báðar eru 1,73 á hæð. Matthew Broderick. Cameron Diaz. Antonio Bandcras. Hávaxnar konur Þegar komið er upp 1 1,75 á hæðTer konum mjög að fækka á umræddum lista. Sennilega telst 1,75 vera frekar hávaxin kona en nefna má nokkrar þekktar leikkonur sem ná þessari hæð. Þetta eru Cameron Diaz, Jamie Lee Curtis, Gwyneth Paltrow, Julia Roberts og Elizabeth Hurley sem er reyndar frægust fyrir að vera fyrir- sæta, móðir og fyrrverandi kærasta Hugh Grants. Það er hins vegar eng- inn hörgull á frægum karl- leikurum sem eru ná- kvæmlega 1,75 á hæð en þarna eru Antonio Bander- as, Richard heitinn Burton, Robert de Niro, Michael Douglas, Paul Newman og Jack Nichol- son svo fáeinir séu nefnd- ir. Fred Astaire var 1,75 á hæð en hann var flinkasti dansari hvíta tjaldsins um miðja síðustu öld. Michael Jackson. Sylvester Stallone. Jackson og Liberace í hópi þeirra sem mælast 1,78 á hæð er að finna tvo mjög undarlega en fræga skemmtikrafta sem eru annars vegar píanistinn Liberace og hins vegar Michael Jackson söngvari og stundum nefndur kon- ungur poppsins. Bruce Springsteen, konungur rokkaranna er 1,78 á hæð og það er lika Sean Penn, leikari og leikstjóri. Sylv- ester Stallone og Jean Claude VanDamme eru báð- ir í þessum stærðarflokki og það opnar augu manns fyrir því að sennilega virð- ast þeir báðir minni en efni standa til því þeir eru svo breiðir. Þegar komið er í þessa hæð eru konur nær alveg horfnar en þó er skylt að geta þess að Laura Dern leikkona er 1,78 á hæð. Gérard Depardieu. Claudia Schiffer. Nixon og Anne Nicole-Smith Nokkrir þekktir leikar- ar mælast 1,80 sem er meðalhæð íslenskra karl- manna og má þar nefna Kevin Bacon, Alec Bald- win, Gérard Depardieu, Mel Gibson, John Gielgud og Hugh Grant. Woody Harrelsson er 1,80 og það var líka John Lennon. Tvær konur mjög þekktar ná 1,80 en það eru Vanessa Redgrave leikkona og Claudia Schiffer, fyrirsætan fræga. Við skulum ljúka þess- ari upptalningu á því að nefna stærstu konuna sem við fundum á þess- um lista en það er Anne Nicole-Smith sem er fræg fyrir að vera fræg ekkja milljarðamærings og fyrrum Playboy-fyrir- sæta. Richard Nixon, um- deildasti forseti Banda- ríkjanna á 20. öld, var 1,82 á hæð eins og Anne Nicole og enn má segja að það sé sennilega það eina sem þau hafi átt sameig- inlegt. -PÁÁ Sissa tíshuhús Hveifisgötu 52, sími 562 5110. Styrkir til úrbóta á ferðamannastöðum Á þessu ári mun Ferðamálaráð íslands úthluta styrkjum til úrbóta í umhverfismálum á ferðamannastöðum um allt land Úthlutað verðurtil framkvæmda á vegum einstakl- inga, fyrirtækja, félagasamtaka og sveitarfélaga, sem stuðla að verndun náttúrunnar, samhliða bættum aðbúnaði ferðamanna. Kostnaðaráætlun þarf að fylgja með umsókn, svo og önnur skilgreining á verkinu. Nauðsynlegt er að einn aðili sé ábyrgur fyrir verkinu. Gert er ráð fyrir að umsækjendur leggi fram fjármagn, efni og vinnu til verkefnisins. Verkefnin stangist ekki á við gildandi skipulag og séu unnin í samráði við sveitarfélög. Styrkir verða ekki greiddir út fyrr en framkvæmdum og úttekt á þeim er lokið. Styrkþegum gefst kostur á ráðgjöf hjá Ferðamála- ráði vegna undirbúnings og framkvæmda. Nánari upplýsingar veitir Valur Þór Hilmarsson, umhverfisfulltrúi, valur@icetourist.is Umsóknum ber að skila á eyðublöðum sem fást á skrifstofum Ferðamálaráðs á Akureyri og í Reykjavík auk þess sem þau eru aðgengileg á heimasíðu Ferðamálaráðs, www.ferdamalarad.is Umsóknarfrestur er til og með 14. febrúar og skulu umsóknir berast skrifstofu Ferðamálaráðs á Akureyri. Ferðamálaráð íslands Strandgötu 29, 600 Akureyri Sími 461 2915 ► ► ► ► ► ► ► ► ► Smáauglýsingar bílar, bátar, jeppar, húsbílar, sendibílar, pallbílar, hópferðabílar, fornbílar, kerrur, fjórhjói, mótorhjól, hjólhýsi, vélsleðar, varahlutir, viðgerðir, flug, lyftarar, tjaldvagnar, vörubílar... bílar og farartæki 550 5000
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.