Dagblaðið Vísir - DV - 25.01.2003, Blaðsíða 47

Dagblaðið Vísir - DV - 25.01.2003, Blaðsíða 47
LAUGARD AGU R 25. JANÚAR 2003 Helgctrblctcf DV si Fjögurra hurða Smart Ef raarka má fyrstu myndir er þessi nýi Smart bara virkilega smart! Bíllinn Smart, sem svissneski úrar- inn Swatch kom á laggimar með ær- inni eljusemi fyrir nokkrum árum, lenti fljótlega í eigu Daimler Benz sem undirfyrirtæki að nafhi Micro Concept Car - skammstafað MCC. Þetta er jað- arbíll svokallaður (niche-car) sem þýð- ir að hann er ekki í beinni samkeppni við þá söluhæstu en höfðar til ákveð- inna hópa bílakaupenda. Smart hefur reyndar reynst vinsælli en almennt var gert ráð fyrir í upphafi og hafa nokkur eintök af honum með- al annars ratað til íslands. En Daimler Chrysler, núverandi eigandi dótturfyr- irtækisins, sér nú leik á borði að út- víkka Smart-hugmyndina og vinnur i samvinnu við Mitsubishi Motor Cor- poration - MMC - sem DC á 37,4% í, að því að þróa nokkrar nýjar gerðir af Smart. Og nú undir skammstöfúninni NCC - New Concept Car. Þessir nýju Smartar eru einkum ætlaðir fyrir Bandaríkjamarkað en verða einnig fá- anlegir í Evrópu. Upprunalega snerist áætlunin um 4ra hurða, 4ra sæta Smart með svip- uðu lagi og brautryðjandann en síðan bættust við tveggja hurða hlaðbakur og fjögurra hurða fjölnotabíll í smá- bílaflokki, báðir á MMC-grunni. Síðan var bætt við fjögurra hurða sportjepp- lingi (SUV) í smábílaflokki sem fram- leiða á i verksmiðjum Daimler Chrysler í Juiz de Flora í Brasilíu til sölu í Bandaríkjunum og Evrópu, þar sem vegur sportjepplinga vex dag frá degi. Nýr bíll í haust Á myndinni má sjá fyrstu teikning- ar að hinum nýja ijögurra hurða bíl sem mun kallast Forfour þegar hann kemur á markað vorið 2004. Þessi bíll byggist mikiö á Tridion 4 tilraunabíln- um sem sýndur var á bílasýningunni i Frankfurt árið 2001. Frumsýning nýja bflsins verður einmitt á sömu bílasýn- ingu í haust en hann verður byggður á sama undirvagni og næsta kynslóð Mitsubishi Colt. Bíllinn verður 3750 mm og fær afl sitt frá þremur bensin- vélum, 1,0 til 1,4 lítra auk 1,5 lítra dísfl- vélar með forþjöppu. Til samræmis við nafn nýja bílsins mun væntanlegur tveggja manna sportbfll, sem verður fáanlegur sem bæði kúpubakur og tuskutoppur, fá nafnið Forfun eða For- sun eftir útgáfu. Gamli tveggja manna smábfllinn sem flestir þekkja mun hér eftir kallast Fortwo. -SHH/NG VW Multivan kemur í vor Volkswagen er um það bil að fara að setja á markað nýjan fjölnotabíl sem er stærsta fjölnotabifreið sam- steypunnar til þessa. Hinn nýi Multivan verður lúxusbíll og fellur þar með í flokk bifreiða sem eru fyrir hjá Volkswagen (Phaeton og Touareg). VW Multivan er fjölhæf- ur bíll en lykilatriðið á bak við það eru rennur sem felldar eru ofan í gólf bílsins. Þær gera mögulegt að setja stök sæti, bekk og borð i hvaða stöðu sem er og bjóða þar með upp á fjölbreytta sætaskipan, innréttingu og búnað. Multivan er einnig fyrsta stóra fjölnotabifreiðin sem er með hliðaröryggisloftpúða fyrir farþega í aftursætum, til við- bótar þeim sem þegar eru til staðar fyrir ökumann og farþega i fram- sæti. Fimm nýjar gerðir véla verða í boði, tvær bensínvélar, 115 eða 230 hestöfl, og nútímalegar dísiivélar með aflsvið frá 104 í 174 hestöfl. All- ar vélar, jafnt fimm og sex strokka, eru í boði með sex gíra handskipt- um gírkassa eða sjálfskiptingu - nokkuð sem ekki hefur þekkst í þessum flokki bifreiða fram að þessu. Nýtt samskiptakerfi Vandamálið við stóra fjölnotabíla hefur fram að þessu verið að halda uppi samskiptum á miili þeirra sem sitja fremst og aftast. Multivan býð- ur í fyrsta skipti upp á aukabúnað sem léttir þessi samskipti. Um er að ræða stafrænan samskiptabúnað (DVE). Þetta kerfl er sambyggt hátal- arakerfi bifreiðarinnar og sjá sex hljóðnemar, sem eru fefldir inn í þak bílsins, um að hægt er að tala saman á eðliiegan hátt. Hekla gerir ráð fyr- ir að kynna hinn nýja Multivan frá Volkswagen í vor hér á landi en verð liggur ekki fyrir enn þá. Suzuki í sókn Japanska merkið Suzuki er í nokkurri sókn um þessar mundir eins og sést til dæmis á danska bílamarkaöinum. Sala á Suzuki- fólksbíium jókst þar um 4% í fyrra og er það nú næstmest selda jap- anska merkið þar á markaði, en að- eins Toyota selst meira i Dan- mörku. Aukin sala er mest tilkom- in vegna vinsælda litla Wagon R fjölnotabílsins og einnig á Grand Vitara sem er mest seldi jeppinn í Danmörku. Suzuki áætlar enn meiri sölu á merkinu á heimsvísu á þessu ári og eru áætlanir um að auka framleiðsluna um 2% á þessu ári. -NG Eitt stykki Nissan Navara á 35 tonimum til í slaginn. Fjallasport breytir jeppum í Svíþjóð I Fjallasport AS í Noregi hefur gert I samning við Nissan í Svíþjóð um að ; sjá um breytingar á jeppum frá 1 Nissan að íslenskum hætti. Nissan- l jeppum hefur ekki verið breytt áður i; í Svíþjóð, að minnsta kosti ekki lög- 1 lega, en bílarnir þurftu að fara í sér- í: staka skoðun til að Fjallasport fengi framieiðsluleyfi á breytingunum. ;i Þessi skoðun er mjög ströng og eins í þurfti að fylgja mikið af vottorðum r og viðurkenningum. Um er að ræða | Nissan Navara pallbíia og er þeim [ breytt fyrir annaðhvort 33 eða 35 : tommu dekkjastærð. I Fekk fyrstu einkunn Sænska jeppablaðið „4Wheeler“ I fékk Nissan Navara á 35 tommu j dekkjum til afhota í tvær vikur og i reyndi hann í almennum akstri, akstri í skógi, drullu og í snjó. Blað- ið gaf bílnum fyrstu einkunn og gerði þetta að einu aðalefni janúar- blaðsins. Að sögn Reynis Jónssonar, eiganda Fjallasports, er eftir miklu ; að slægjast því að Nissan Navara er mesti seldi paUbfllinn í Svíþjóð um þessar mundir - tæplega 2000 bílar seldir á ári. „Fjallasport ráðgerir að breyta um 8% af þeim bílum á ári. Við breytingamar er notað íslenskt hugvit og hönnun og eins er mikið af þeim hlutum sem notaðir eru við breytingamar framleitt á íslandi,“ sagði Reynir. Fjaflasport hefur starf- að í Noregi í tæp 2 ár og hefur mark- aðurinn tekið breytingunum vel og vaxið jafnt og þétt. „Samningurinn við Svíana er að sjálfsögðu mikil lyftistöng fyrir fyrirtækið og koma bílamir til með að halda fullri þriggja ára verksmiðjuábyrgð," sagði Reynir enn fremur. Fyrst um sinn verður öllum bílum fyrir Sví- þjóð breytt í Drammen en þar er fyr- irtækið með stórt og gott verkstæði. í framtiðinni er stefnt að því að opna aðstööu í Sviþjóð. „Fjallasport hefur verið að breyta bflum fyrir Nissan, MMC, GM og SsangYong í Noregi og hefur MMCI Svíþjóð þegar haft sam- band við okkur varðandi breyting- ar,“ sagði Reynir að lokum. Poulsen ehf. hefur sölu á bílavarahlutum Fyrri hluta ársins 2001 urðu eig- I endaskipti að hinu gamalgróna fyr- irtæki Vald. Poulsen ehf., sem hafði í áratugi verið í eigu sömu fjölskyldu með aðsetur að Suður- landsbraut 10. Viö eigendaskiptin j var nafni þess formlega breytt i Poulsen ehf. og fyrirtækið flutti í | Skeifuna 2. Poulsen ehf. er áfram I rekið sem fjölskyldufyrirtæki því : eigendur þess í dag eru fyrrum eig- ! endur Bílanausts. Áratugareynsla núverandi eigenda af véla-, tækja- I og verkstæðismarkaði mun því : nýtast viðskiptavinum fyrirtækis- j ins. Leitað tækifæra Poulsen var stofnað 1910 og er I því með eldri fyrirtækjum lands- f ins. í upphafi var fyrst og fremst f verslað með eldfastan leir og ýmsa Imálma, auk þess sem járnsmiðja var hluti af rekstri fyrirtækisins. Síðar bættust við ýmsir hlutar í vél- og drifbúnað og var það upp- hafið að véladeild fyrirtækisins sem enn er kjarninn í rekstrinum. Af því sem er að finna í véladeild- inni má nefna Lincoln smurkerfi fyrir vélar og tæki, NSK kúlu- og keflalegur, Fenner reimar og tengi, rafmótora, reimskífur, tannhjól, drifkeðjur, talíur, ýmsa loka fyrir iðnaðinn og sjávarútveginn og svo varahluti í landbúnaðartæki. Að sögn Ragnars Matthíassonar, sem er einn af eigendum fyrirtækisins, er sífellt verið að leita nýrra tæki- færa. „Þar sem starfsmenn Poulsen hafa mikla reynslu og þekkingu í bílageiranum, þ.e.a.s. varahluta- þjónustu, hefur það kitlað okkur að fara út í slíka þjónustu. Við erum í sambandi við nokkra mjög áhuga- verða birgja og nú þegar erum við farnir að byggja upp varahlutala- ger. Okkur er vel tekið af bíleigend- um og bílaverkstæðum, margir kunna að meta þennan nýja kost í varahlutaþörfinni," sagði Ragnar að lokum. Verður Fiat Auto klofið frá Fiat-samsteypunni? Fiat-samsteypan er samkvæmt nýjustu heimildum að skoða það að flytja allar eignir sínar nema Fiat Auto, í nýtt hlutafélag sem skráð yrði á almennum markaði. Nýja fyr- irtækið myndi þá innihalda merki eins og Ferrari, Maserati, Iveco og fleiri. Samsteypan myndi svo kaupa i Fiat-bílafrarnleiðandanum fyrir 40 milljarða króna, til að hrinda við- snúnmgsáætlun í gang. Þessir pen- mgar kæmu úr endurfjármögnun fyrirtækisms en emnig frá lánar- drottnum og hugsanlega General Motors, sem á 20% í Fiat samsteyp- unni. Fiat Auto yrði einnig skráð á almennum hlutabréfamarkaði, und- ir stjóm Agnefli-fjölskyldunnar, en yrði opið fyrir fjárfestum á borð við Roberto Colannmo og Chicco Gnutti sem báðir hafa sýnt áhuga á fyrir- tækinu. Gæti selt flugvélaarm Annar möguleiki er einnig í stöðunni fyrir Fiat, en hann er sá að selja flugvélaarm fyrirtækisins, Fiat Avio, fyrir 130-170 milljarða króna. Þeim peningum yrði þá varið til að byggja upp bílafram- leiðsluna og gæti sú leið verið allt eins líkleg ef marka má heimildar- menn innan Agnelli-fjölskyldunn- ar. Carlyle fjárfestingarsjóðurinn er að skoða kaup á Fiat Avio sam- kvæmt sömu heimild. Búist er við að GM verði látið vita af þessum áætlunum á næstu dögum en hvenær þær kæmu til fram- kvæmda væri mikið undir GM komið. Búist er við að tilkynnt verði fljótlega um nettótap Fiat Auto upp á 17 milljarða króna á síðasta ári. -NG Suzuki Baleno GLX, 4 d., bsk., skr. 8/99, ek. 38 þús. Verð kr. 1100 þús. Suzuki Baleno Waqon, ssk., skr. 10/99, ek. 4B þus. Verð kr. 1170 þús. Suzuki Vitara JLX. bsk., skr. 6/00, ek. 59 þús. Verð kr. 1290 þús. Nissan Terrano II 2,4, bsk, skr. 7/01 ek 43 þús. Verð kr. 2280 þús. Suzuki Jimny JLX, bsk., skr. 6/02, ek. 15 þús. Verð kr. 1480 þús. Suzuki Jimny JLX. bsk., skr. 6/00, ek. 54 þús. Verð kr. 1160 þús. Sjáðu fleiri á suzukibilar.is $ SUZUKI SUZUKI BÍLAR HF. Skeifunni 17, sími 568-5100
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.