Dagblaðið Vísir - DV - 25.01.2003, Blaðsíða 9
LAUGARDAGUR 25. JANÚAR 2003
r>v
Ensími og Singa-
pore Sling vestur
um haf
Singapore Sling og Ensími munu
leggja land undir fót í marsmánuði
næstkomandi og er stefnan tekin á
Bandaríkin. Hljómsveitimar hafa
þegið boð um að spila á tónlistarhá-
tíðinni SXSW - South by Southwest
sem haldin er árlega í Austin,
Texas. SXSW er með stærstu tónlist-
arhátíðum sem haldnar eru í
Bandaríkjunum en þar spila árlega
nokkur hundruð hljómsveitir sem
koma víða að. Tónleikahátíðin er
einnig ráðstefna sem snýr að tón-
listariðnaðinum í heild sinni auk
þess sem haldin er kvikmyndahátíð
þar sem óháðum kvikmyndum- er
gert hátt undir höfði. Þess má geta
að erlendir útgefendur og fjölmiðlar
hafa sýnt sveitunum mikinn áhuga
í kjölfar útgáfu á nýjum plötum
þeirra síðastliðið haust og vel
heppnaðra tónleika þeirra á
Airwaves-tónlistarhátíðinni. -HK
Útlendinga-
reglugerð
Sólveig Pétursdóttir dómsmála-
ráðherra kynnti í gær nýja reglu-
gerð um útlendinga sem unnið hef-
ur verið að frá því í sumar sem leið.
Reglugerðin er engin smásmiði -
116 greinar á fjörutíu blaðsíðum. Til
samanburðar má nefna að 46 grein-
ar eru í lögum um persónuvemd. í
reglugerðinni felst að réttarstaða út-
lendinga er bætt og skýrð til mikilla
muna, t.d. hvað varðar málsmeðferð
hælis- og leyfísumsókna. -ÓTG
Hverageröi:
Lampaþjófar enn
á ferð
Lampaþjófar voru enn á ferð í
Hveragerði í gær en þá var þremur
gróðurhúsalömpum stolið úr húsa-
kynnum Garðyrkjuskólans. Nokkuð
hefur borið á lampaþjófnaði í
Hveragerði að undanfomu og leikur
grunur á að hinir fmgralöngu noti
lampana til að rækta kannabis. Fyr-
ir fáeinum dögum endurheimti lög-
reglan á Selfossi tíu lampa sem
stolið hafði verið úr gróðurhúsi -
upp komst um málið í tengslum við
fikniefnamál.
Kannabismál kom upp á Blöndu-
ósi fyrr í vikunni. Lögregla gerði
upptækar um sex hundruð kanna-
bisplöntur og voru tveir menn
handteknir í kjölfarið. Þeir hafa
verið úrskurðaðir í gæsluvarðhald
og verða fluttir á Litla-Hraun innan
tíðar. -aþ
Túnfiskveiðarnar:
711 fiskar á 237
sóknardögum
Fimm japönsk skip stunduðu tún-
flskveiðar með flotlínu frá byrjun
september fram til 12. nóvember.
Veiðisvæðið náði frá Suðurdjúpi og
rétt suður fyrir landhelgismörkin.
Heildaraflinn var 711 túnfiskar á
237 sóknardögum sem vógu slægðir
89,5 tonn. Þar af veiddust 324 fiskar,
samtals 40,4 tonn að þyngd, á 105
sóknardögum innan fiskveiðilögsög-
unnar. Árangur veiðanna var betri
en undanfarin 3 ár en töluvert lak-
ari en árin 1997 og 1998. Göngur tún-
fisks norður á bóginn á haustin eru
helst taldar stjómast af sjávarhita,
fæðuframboði og stofnstærð. Talið
er að megnið af þeim túnfiski sem
gengur inn á íslensk hafsvæði á
haustin komi frá hrygningarstöðv-
um í Miðjarðarhafi og tilheyri því
austurstofni Norður-Atlantshafs-
túnfisks. -GG
Fréttir
Skutu grá-
gæs í janúar
Hann Heimir Þór Ivarsson í Ólafs-
vík varð heldur betur hissa er hann
fór á skyttirí í vikunni meö félaga
sínum, Torfa Sigurðssyni, og ætluðu
þeir að skjóta endur. Það voru ekki
endur sem þeir fengu heldur tvær
grágæsir sem er mjög óvenjulegt eða
einsdæmi að sjá í janúar, að sögn
kunnugra. Venjulega fer grágæsin
til vetrarheimkynna sinna á Bret-
DV-MYND PÉTUR S. JÓHANNSSON
Grágæs í matlnn
Heimir Þór hampar hér fengnum.
Hann fékk grágæs í staö andar.
landseyjum í október eða í síðasta
lagi í nóvemberbyrjun. Vafalaust
hafa hlýindin í haust mglað gæsim-
ar þannig að þær hafa ekki haft sig
í að fara á gamlar slóðir.
Að sögn Ólafs Einarssonar, fugla-
fræöings á Náttúrufræðistofnun ís-
lands, er óvenjulegt að grágæsir séu
svo norðarlega á þessum tíma. Grá-
gæsin fer venjulega til heimkynna
sinna á Bretlandseyjum í lok októ-
ber. Þær sjást þó á Suðurlandi eftir
þann tíma. -PSJ
Islensk límtrésverksmiðja í Portúgal
Valgerður Sverrisdóttir iönaöarráðherra gangsetti meö formlegum hætti límtrésverksmiöjuna Flexilam í bænum Mortagua í Portúgal í gær. Hér er Valgeröur í
verksmiöjunni ásamt Gesti Báröarsyni framkvæmdastjóra og fleiri.
Límtrésverksmiðja í eigu íslenskra aðila opnuð formlega í Portúgal:
Mikil tækifæri hér
- segir Gestur Bárðarson, framkvæmdastjóri Flexilam
Valgerður Sverrisdóttir iðnaðar-
ráðherra gangsetti með formlegum
hætti límtrésverksmiðjuna Flex-
Oam í bænum Mortagua í Portúgal í
gær. Verksmiðjan er í eigu þriggja
íslenskra aðila og er eignarskipting-
in þannig að Límtré hf. á 47,6%, Ný-
sköpunarsjóður atvinnulífsins á
44,4% og Lusitania Ventures efh.
8%. íþróttamálaráðherra Portúgals
var einnig viðstaddur hina form-
legu opnun verksmiðjunnar.
Gestur Bárðarson er fram-
kvæmdastjóri Flexilam í Portúgal.
Hann var inntur eftir þvi hvenær sú
hugmynd kviknaði að reisa límtrés-
verksmiðju í Portúgal.
„Ég vann í tvö ár hér í Portúgal á
vegum Hampiðjunnar á árunum
1989-1991. Þó að ég færi heim aftur
langaði mig í aðra röndina til að
gera eitthvað meira hér í landi. Ég
sá fullt af tækifærum og limtrés-
verksmiðja var eitt af þvi sem mér
datt í hug. Ég hafði samband við
framkvæmdastjóra Limtrés á Flúð-
um 1994 og honum leist vel á þá hug-
mynd sem ég viðraði við hann. Við
skoðuðum aðstæður og byrjuðum að
byggja þetta upp hægt og sígandi,"
sagði Gestur í samtali við DV.
Gestur sagði að farið hefði verið í
sterka markaðssókn 1997 og hún
fengið góð viðbrögð. í kjölfarið hefði
verið opnuð markaðsskrifstofa 1998.
í fyrstu heföi límtré verið flutt til
Portúgals frá Flúðum í smáum stíl
en það hefði undið upp á sig jafnt og
þétt. Árið 1999 var gott ár, að sögn
Gests, og hefði þá verið ákveðið aö
skynsamlegast væri að hefja fram-
leiðslu í Portúgal. Nýsköpunarsjóð-
ur kom þá inn í dæmið og hafinn
var undirbúningur að verksmiðju-
byggingu. Fór framleiðslan í gang í
júní 2001. Síðan hefur verið byggt
smátt og smátt upp og tækjum og
öðru slíku bætt við. Verksmiðjan er
nú kominn á fullan snúning með 27
starfsmenn, 17 í verksmiðju, 10 í
hönnun, sölu- og skrifstofustörfum.
Bjartsýnir
„Við vissum í upphafi að við
þyrftum að ganga í gegnum ákveðið
skeið og við færum ekki að þéna
mikla peninga í byrjun. Við höfum
rekið þetta á núllinu hingað til en
erum að auka veltuna. Við erum
bjartsýnir á að næsta ár verði mjög
gott hjá fyrirtækinu en bygginga-
markaður er erfiður um þessar
mundir. Við verðum varir við sam-
drátt, og þá sérstaklega í byggingum
sem við erum í, sundlaugum og
íþróttahúsum. Við jukum veltuna
um 25% milli 2001 og 2002 og við bú-
umst við svipaðri aukningu í ár og
lítum björtum augum á framtíðina.
Portúgal er stór markaður. í land-
inu búa um tíu milljónir manna og
byggingar margar hverjar eru léleg-
ar. Bæta þarf byggingar og byggja
nýjar. Hér eru því mikil tækifæri,"
sagði Gestur
- Hyggið þið á fleiri landvinn-
inga?
„Við viljum fyrst læra að ganga
og síðan fara að hlaupa. í sannleika
sagt horfum við á Líberíuskagann
sem okkar heimamarkað, bæði
Portúgal og Spán. Við erum búnir
að ná góðri fótfestu í Portúgal, höf-
um afgerandi markaðshlutdeild í
þessum geira og erum eini límtrés-
framleiðandinn. Okkar markaðs-
hlutdeild er yflr 50% og við stefnum
aö þvi fljótlega yfir tO Spánar. Erum
reyndar þegar búnir að fara i eitt
verkefni þar,“ sagðui Gestur og
bætti við að þetta er frábær dagur.
„Við unnum Portúgala í handboltan-
um, og maður getur því ekki annað
en verið bjartsýnn á framhaldið,"
Mjög jákvætt
Valgerður Sverrisdóttir iðnaðar-
ráðherra sagði I samtali við DV að
opnun limtrésverksmiðju væri frá-
bært skref fyrir ísland og þetta fyr-
irtæki sem ætti í hlut.
„Fyrirtækiö fer glæsilega af stað
og ég hef trú á þvi að það eigi eigi
eftir að nema lönd víðar, enda er
það áætlun. Þetta skiptir miklu
máli því við vitum að við erum á
hinu evrópska efnahagssvæði og
þar er frjáls fjárfesting. Á sama
tíma erum viö að vinna í þyí að fá
erlenda fjárfesta heim til íslands.
Það hefur gengið núna hvað varðar
áliðnaðinn og íslensk fyrirtæki eru
að gera það virkilega gott erlendis.
Þetta er allt saman jákvætt. Ég veit
að þetta fyrirtæki er okkur til sóma
hér í Portúgal og aðstaða starfsfólks
í verksmiðjunni hefur vakið at-
hygli. Þetta er bara í einu orði sagt
mjög jákvætt," sagði Valgerður við
DV -JKS