Dagblaðið Vísir - DV - 25.01.2003, Qupperneq 18

Dagblaðið Vísir - DV - 25.01.2003, Qupperneq 18
HeÍQarblaö DV LAUGARDAGUR 25. JANÚAR 2003 I 8 4- LAUGARDAGU R 25. JANÚAR 2003 Helajarblað X>V 19 Líklega engar tilviljanir Þannig að það hefur legið nokkuð beint við að fara í Leiklistarskóla Þjóðleikhússins? „Nei, í rauninni ekki. Ég þurfti að hætta í fimmta bekk í Menntaskólanum af því ég var með meðfæddan blóðsjúkdóm. Þá hugsaði ég mér að ég myndi vinna í einn vetur á Akureyri og leika með leikfélaginu en síðan jafnvel fara til útlanda í skóla. Um haustið fór ég til Reykjavíkur til að sletta aðeins úr klaufunum og ná í handrit fyrir sýninguna sem ég ætlaði að leika i þegar ég kæmi til baka til Akureyrar. En ég kom aldrei til baka; sendi Tómas Inga Olrich með handritin til Akur- eyrar en varð sjálfur eftir. Ég hafði þá rekist á Jónas Jónasson sem hafði leikstýrt okkur feðgun- um í Pabbanum og hann sagði mér að inntökupróf í Leiklistarskóla Þjóðleikhússins stæðu yfir og hvatti mig til að líta þar inn. Og það endaði með þessari magalendingu á sviðinu nokkru síðar.“ Og svo heldur lífið áfram að lemja mann Er ekki undarlegt að hugsa til baka og sjá þessar tilviljanir? „Kannski voru þetta ekki tilviljanir. Kannski hefði þetta endað svona hvort eð var. Ég á frekar von á því. Kannski þetta hefði borið að með öðrum hætti en ég hugsa að þegar upp er staðið heföi út- koman orðið sú sama.“ Þetta hefur frekar verið spurning um hvenær en hvort? „Já, ég hugsa það. Það hefði auðvitað getað orðið ákaflega gaman að komast í erlendan leiklistar- skóla. Ég hugsaði líka um að læra flug en þetta end- aði svona. Og allir eru tiltölulega sáttir við það í dag.“ Heljarstökk fram og aftur Hlutverk þín á sviði, í kvikmyndum, sjónvarpi og útvarpi eru orðin mörg hundruð. Er eitthvert hlutverk sem stendur hjarta þínu næst? Eitthvað sem stendur upp úr? „Því er erfitt að svara. Oftast nær eru manni hugleiknust þau hlutverk sem eru næst manni í tíma. Þegar litið er til baka sé ég að ákveðin hlut- verk standa upp úr á hverju æviskeiði. Og alveg eins og manneskjan tekur breytingum eftir því sem lífið gefur henni fleiri pústra þá breytist maður sem leikari. Til að byrja með var ég sléttur í fram- an og sálin tiltölulega slétt líka. Allt var átakalítið og ég spriklaði mikið, sannarlega spriklaði ég mik- ið. Ég var voðalega fimur og flinkur; gat farið helj- arstökk fram og til baka. En kannski fyllti maður ekki alveg út í flíkurnar. Samt sem áður var nauð- synlegt að fara í gegnum þetta tímabil á þennan hátt. Mér eru minnisstæð hlutverk sem voru mikil glíma á þeim tíma og öll átök sitja í manni og marka spor. Þar má nefna hlutverk eins og Fandó í Fandó og Lis hjá Grímu, þar sem ég lék á móti Margréti Guðmundsdóttur, Tveggja þjónn og Tangó í Iðnó. 1967 stofnuðum við Leiksmiðjuna og ferðuðumst um landið. Frá þeim tíma er Galdra-Loftur ákaflega minnisstæður; hann lét mann ekki ósnortinn. Ey- vindur Erlendsson var þá nýkominn frá Rússíá og við áttum um skeið frjótt samstarf. Síðan tóku við árin sem við sleiktum sárin eftir að Leiksmiðjan fór á hausinn. Þá fórum viö Þór- hildur norður þar sem ég tókst meðal annars á við Steingestinn eða Don Juan eftir Moliére. 1973 var svo stofnað atvinnuleikhús á Akureyri. Þar vösuðumst við í öllu en Þórhildur Þorleifsdótt- ir, eiginkona mín, var þá byrjuð að leikstýra. Við gerðum allt vitlaust, líka í pólitíkinni. Við þóttum svo óskaplega róttæk að menn urðu skíthræddir og vildu helst ritskoða sýningarnar. Á þessum árum var mikið fjör, við vildum reyna á þanþol kúnstar- innar og ég vona að við höfum alltaf verið heil í því sem við tókum okkur fyrir hendur. Næst var Alþýðuleikhúsið sem við stofnuðum upphaflega á Akureyri sem ferðaleikhús. Við fórum um landið með sýningar, til dæmis á verkum Böðv- ars Guðmundssonar, Skollaleik og Krummagulli, en þær sýningar voru síðar teknar upp fyrir sjón- varp. Sýningin á Skollaleik þótti nýlunda, bæði hvað varðaði stílfærslu og sem pólitískt leikhús: gott dæmi um vel heppnað samstarf leikstjóra, sem var Þórhildur, og höfundar. Svíum þótti til dæmis mjög merkilegt að hægt væri að kombínera leikhús og pólitik á þennan hátt.“ Ytri sársauka sló inn „Á þessum tíma voru engir opinberir styrkir og við bjuggum okkur til styrktarmannakerfi í kring- um Alþýðuleikhúsið. Mér er það mjög minnisstætt þegar Ragnar í Smára kallaði mig til sín. Hann sat með sína lambhúshettu og parkinsonsveiki og sagði að trúlega yrðum við aldrei sammála í póli- tíkinni en hins vegar væri Alþýðuleikhúsið vaxtar- broddur í íslenskri leiklist og því vildi hann gjam- an afhenda okkur tvö hundruð þúsund króna styrk, sem voru miklir peningar á þessum tíma og mun hærri upphæð en nokkur annar hafði styrkt okkur um. Á árunum 1977-78 fékk ég listamannalaun og not- aði þau til að koma Alþýðuleikhúsinu suður til Reykjavíkur. SÁL-skólinn var að útskrifa sinn eina árgang og þá steyptust út á markaðinn fjörutíu leikarar. Þá var mikið líf í Alþýðuleikhúsinu. Ég var þá ráðinn til Þjóðleikhússins en 1981 tók ég mér ársfrí því þá fengum við Hafnarbió og settum þar meðal annars upp Don Kíkóta og Stjórnleysingi ferst af slysforum. Vonandi var maður þá farinn að þroskast og taka öðruvísi á hlutunum. Samt sem áður vorum við enn að gera tilraunir og prófa okk- ur áfram. Á þessum árum var líka mikið að gera í útvarpi, sjónvarpi og kvikmyndum en um svipað leyti lék ég Gísla Súrsson í Útlaganum, kvikmynd Ágústs Guðmundssonar. Þá var fótunum skyndilega kippt undan mér. Ég varð fyrir slysi árið 1984; þá urðu kaflaskil. Öll svona áföll setja mark sitt á mann og maður þarf að endurmeta hlutina. Þarna hófst kannski nýtt tíma- bil þar sem ytri sársauka sló inn. Ég fékk hlutverk þar sem ég þurfti að fara undir skinnið á sjálfum mér; sökkti mér dýpra í verkin. Og svo heldur lífið áfram að lemja mann. Allt markar mann en ég vona að mér hafi að mörgu leyti tekist að snúa því til betri vegar og látið áföll- in hjálpa mér í kúnstinni." Ekkert heilt nema legið Áfallið sem þú talaðir um var þegar þú féllst ofan af vinnupöllum við húsið þitt. „Já. Þetta var um vor og við Kjartan Bjarg- mundsson vorum uppi á stillans við þriðja mann. Við vorum að byggja hæð ofan á Óðinsgötuna; við- koman var mikil, fimm börn, og eitthvað þurfti að gera í málunum. Við vorum að koma úr hádegis- mat og á leiðinni upp til að festa efra dekkið á vinnupallinum. Við höfðum valið langböndin vand- lega en samt sem áður leyndist kvistur í einu þeirra. Það var í lagi meðan einn var uppi í einu en þegar við stóðum þar allir þrír brast langbandið og við hröpuðum niður á stéttina. Ég mölbraut á mér báða hæla og ökkla og Kjartan ökklabrotnaði. Það vildi svo vel til að lögreglumaður á bifhjóli átti leið fram hjá í því sem pallurinn hrundi. Það vildi okk- ur til happs hversu fljótt sjúkrabíll kom á staðinn. Það fór betur en á horfðist. Ég hafði þá tekið að mér hlutverk prests í kvik- myndinni Gullsandi eftir Ágúst Guðmundsson. Þegar hann kom til mín á sjúkrahúsið sagði ég að það gengi bara betur næst með samstarf. En hann var ekki á því; var ákveðinn í að reyna þetta. Ég hélt hann væri orðinn vitlaus. Allt var sett af stað: Bæklunarsérfræðingar bjuggu til tól sem héldu mér uppistandandi. Ég var síðan skrúfaður ofan í sandinn á tökustað. Ég hélt það myndi líða yfir mig því blóð hafði aldrei runnið niður í fæturna þær vikur sem liðnar voru frá slysinu. En ég lifði fyrsta daginn af og lék afganginn af myndinni á hnjánum; reyndi að leika tiltölulega eðlilega fyrir ofan mitti.“ Heldurðu að það hafi hjálpað þér í batanum að þér var ýtt strax út í leikinn að nýju? „Já. Meðan ég var í endurhæfingu á Grensás- deildinni lék ég einnig í framhaldsleikriti í Útvarp- inu. Ég fór um allt í hjólastólnum. Það var þá sem ég mætti á fund niðri í Þjóðleikhúsi og Flosi Ólafs- son sagði: „Oft hef ég öfundað Arnar, vin minn, en nú vildi ég ekki vera með tærnar þar sem hann hef- ur hælana“. Og allmörgum árum og skurðaðgerð- um síðar sagði Randver Þorláksson, vinur minn, að líklega væri ekkert orðið heilt í mér nema legið.“ og dansa eins og videysingur“ Þetta hlýtur að hafa verið erfitt fyrir leikarann sem fór heljarstökk aftur á bak og áfram. Hugsað- irðu aldrei um að kannski væri ferillinn búinn? „Nei, ég hugsaði það aldrei. Ég var alltaf ákveð- inn í því að leika áfram. Ég þurfti að vísu að læra að ganga upp á nýtt en ég var ákveðinn í því að koma mér á lappirnar þótt ég vissi ekki hversu bæklaður ég yrði eða hversu mikið það yrði mér til trafala á sviðinu. Það stendur við daginn minn í Af- mælisdagabókinni að glaðlyndi, fjör og áhyggju- leysi séu aðalþættir skapgerðar minnar og ég ákvað að taka mark á þvi. Þannig fór ég í gegnum þetta. Og kannski lærði ég að nýta aðra þætti í leik- aranum Arnari Jónssyni. Eftir nokkur ár var ég orðinn tiltölulega góður og „Kjarni listarinnar er kjarni okkar sjálfra. Ég gleymdi því stundum; hafði bara ekki meira vit en það. Við erum öll kjánar. Síðan slær þessum sannindum niður einhvern tíma á lífsleiöinni." DV-mynd Hari þótt ég gæti hvorki hlaupið né stokkið bar ekki mikið á því. Ég fór að æfa golf til að styrkja mig og láta blóðið renna betur. Það var óskaplega gaman að verða þokkalegur íþróttamaður á gamals aldri og ég er enn að lækka í forgjöf. Allt hjálpar þetta og eflir mig. Núna er ég til þess að gera nýstiginn upp úr þremur aðgerðum sem allar eru afleiðingar slyss- ins. Sú fyrsta var á hné þar sem sett var hálf stál- kúla en síðan kom í ljós að ég gat ekki gengið þvi það var kjúka í kjúku. Það þýddi að í fyrravetur gekkst ég undir uppskurði á báðum fótum. Þegar ég byrjaði að æfa hlutverk Helga í Veislunni var ég því á hækjum. Svo datt einhverjum í hug að ég væri góð- ur dansari og í Með fullri reisn stytti ég mér leið til heilbrigðis og dansa eins og vitleysingur." Bömin gengu sjálfala Þið hjónin eigið miklu barnaláni að fagna. „Já, fimm flott börn.“ Ferill þinn hefur verið mjög jafn, þú hefur aldrei horfið af sviðinu, og Þórhildur hefur að sama skapi haft mikið að gera. Hvernig fóruð þið að þessu? „Börnin gengu bara sjálfala! Elsta dóttir okkar, Guðrún Helga, hefur reynst okkur betri en enginn. Hún er forkur og sá um uppeldið um tíma. Trúlega ofgerðum við henni, ég vona að hún erfi það ekki við okkur. Svo vöndust börnin á að koma með okk- ur í leikhúsið. Við höfum líka átt góða að og það hefur bjargað miklu. Auðvitað skiljum við ekki í dag hvernig þetta gat gengið en bæði erum við hjónin snörp til verka og þannig hefur það orðið auðveldara. En þetta hefur reynt á og það hefur hrikt í stoðum, annað hvort væri nú.“ Það eru ekki miklar tekjur í leiklistinni. „Nei, svo til engar tekjur, enda fórum við aftur og aftur á hausinn og átum bílana okkar. Það er eins og það er.“ Styttíst í uppdráttarsýki Þú talaðir um pólitíska leikhúsið á áttunda ára- tugnum. Leikhúsið í dag er ekki mjög pólitískt. „Nei, það vantar dálítið á það. Átökin mættu væg- ast sagt vera meiri, sérstaklega eins og veröldin snýst um þessar mundir.“ Af hverju heldurðu að pólitíkin sé ekki meira áberandi í leikhúsinu en raimin er? „Leikhúsið er barn síns tíma. Það missti sig dálít- ið út í vinsældakapphlaupið og fór að keppa við kvikmyndir og sjónvarp sem er að mörgu leyti eðli- legt. Þvi miður virðist enginn skilningur á því hvað listir eru nauðsynlegar og færa okkur mikið. Menn hafa einblínt um of á algildi hinnar sjáanlegu arð- semi. Þegar menn missa sig alveg út í materíalisma er ekki von á góðu. Þess vegna hefur kúnstin borið skarðan hlut frá borði og ekki fengið til sín það sem hún hefur þurft. Einnig leitast hún við að halda sér gangandi á annan hátt og er þar með komin í erfiða stöðu. Hún hættir kannski sjálfsgagnrýni eða rit- skoðar sjálfa sig fyrirfram, þorir ekki að taka áhættu og hættir að stríða sjálfri sér. Þegar svo er komiö styttist i uppdráttarsýki. í póstmódemisman- um er allt lagt að jöfnu og menn þora ekki að standa með sínu. Það er mikið um flinkheit og það vantar ekki endilega hugmyndaflug heldur miklu frekar stefnu. Menn gera einhver tilhlaup en ekki meira. Þetta liggur i tíðarandanum. Við höfum búið lengi við stjórnvöld sem hafa ekki haft þann skilning sem mér finnst þurfa og ákveðin ritskoðun kemur eins 4- og dauð hönd yfir allt. Menn finna fyrir því og það smitar yfir á alla stjómun því það er ekki vel séð að menn séu með uppsteyt. Menn eru fljótir að ritskoða sjálfa sig niður í millileið sem allir geta sætt sig við. Og þannig lifir engin kúnst góðu lífi; fyrr eða slðar verða allir að horfast í augu við sjálfa sig.“ Róttækari og pólitískari nú Saknarðu þeirra tíma þegar leiksýningar vöktu meiri viðbrögð? „Það var voðalega skemmtilegt - og aðsóknin jókst. Þannig að menn þurfa ekki að hafa áhyggjur af því.“ Ertu alltaf jafn róttækur og pólitískur? „Á annan hátt en kannski róttækari og pólitískari nú en áður. Línurnar eru skýrari og ég veit betur hvað hugnast mér og hvað ekki.“ En hafa viðhorf þín til leikhússins og listarinnar breyst? „Stundum sló maður vindhögg og stundum kom maður aftan að sjálfum sér, fór offari og gleymdi að kúnstin er engin dægurfluga; hún krefst íhygli og næðis og leitar inn á við en ekki í einhverjar kenni- setningar. Kjarni listarinnar er kjarni okkar sjálfra. Ég gleymdi því stundum; hafði bara ekki meira vit en það. Við erum öll kjánar. Síðan slær þessum sannindum niður einhvern tíma á lífsleiðinni. Og sé manni gáfa gefin verður ekki færst undan því að finna leið til að hlúa að henni. Ég hef í seinni tíð reynt að komast að því hvaða tónar eru hreinir í þeirri hörpu sem mér var gefin.“ Kjarninn hefur sem sagt færst nær sálinni? „Já, og ég held að slagkrafturinn komi þaðan.“ Veröa ekki hlutverkin betri meö aldrinum? „Jú, og þau verða kröfuharðari. Maður getur ekki komist og vill ekki komast auðveldlega frá neinu hlutverki. Þá komum við að því að stundum er reynslan ekki metin nægilega mikils í leikhúsinu. Það er gott að vinna með óreyndum leikstjórum í bland við reyndari og ég hef verið mjög heppinn hvað það varðar. En það gengur náttúrlega ekki í leikhúsi að nýta ekki þá bestu krafta sem til eru; það er eins og að skipa alltaf varamönnum inn á í handbolta. Þá tapast leikurinn. Þetta hefur verið talsverður ljóður á ráði leikhúsa hér á íslandi. Það mætti gera meira að því að fá góða erlenda leik- stjóra hingað til lands og nýta betur krafta þeirra góðu innlendu leikstjóra sem eru vannýttir í dag.“ Augnablikið sem gleymist ekki í hverju felst galdur góðs leikara? Hvað er það sem heillar þig í fari leikara þegar þú hefur upplif- að þínar stærstu stundir sem áhorfandi? „Það er flókið samspil margra þátta. Leikari þarf að hafa dirfsku, innsæi, stórt hjarta til að miðla sterkum tilfinningum áreynslulaust til fólks og leik- arinn verður að þora að hvíla í kringumstæðunum með allt sitt; sú einbeiting býr til augnablik sem fólk gleymir ekki. Þegar leikarinn kemur inn á svið verður hver einasta fruma að vera í gangi, hann verður að vera heitur að innan og fullur af orku og tilfinningu þannig að leysigeislinn hitti áhorfand- ann beint í hjartað. Þegar þetta tekst nær leikarinn áhorfendum hvort sem þeir eru hundrað eða þús- und.“ -sm
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.