Dagblaðið Vísir - DV - 25.01.2003, Page 31
LAUGARDAGUR 25. JANÚAR 2003
HelQarbloö 33 V
3
báða vængi. Þótt Freud hafi ekki
verið þekktur á miðöldum voru
til svipaðar aðferðir og hann
beitti."
Afstæðishyggja stjómvalda
„Það er að mörgu leyti þakklátt
fyrir íslending að vinna að ís-
lenskum miðaldabókmenntum,“
segir Ármann. „Miðaldirnar eru
það svið íslenskra fræða sem nýt-
ur mestrar athygli í útlöndum og
hef ég gert mitt besta til að birta
rannsóknir mínar á öðrum
tungumálum. Það er mikið mark
tekið á íslenskum fræðimönnum
þegar þeir hasla sér völl á alþjóð-
legum vettvangi. Helsti vandinn
er hversu fáir erlendir fræði-
menn skilja íslensku nægilega
vel. íslenskur fræðimaður getur
lent í því að vísað sé til stuttra
greina hans á ensku en stærri
verk hans séu síður lesin þar sem
þau eru á íslensku. Á hinn bóg-
inn vilja allir íslenskir fræði-
menn skrifa á íslensku og langar
til að kynna niðurstöður sínar
fyrir íslendingum. Ég á von á því
að flestir munu gera eins og
tíðkast helst nú að skrifa jöfnum
höndum á íslenku og erlendum
tungumálum."
Staða íslenskunnar í háskóla-
samfélaginu er Ármanni nokkurt
áhyggjuefni. „Mér finnst íslensk-
um fræðum engan veginn nægur
sómi sýndur í háskólasamfélag-
inu eða íslensku samfélagi yfir
höfuð,“ segir Ármann, „Ráða-
mönnum landsins og Háskólans
er tamt að skreyta sig íslenskum
menningararfi á tyllidögum en
þegar kemur að fjárveitingum er
íslensku úthlutað fjármagn sam-
kvæm almennum reikningskúnst-
um. Það er enginn skilningur á
því að Háskóli íslands hafi sér-
stakar skyldur gagnvart íslenskri
menningu og þar með heiminum.
Mér finnst það heimóttarlegt að
mörgu leyti að menn skilji ekki
að það er aðeins einn háskóli í
heiminum sem hefur tök á því að
sinna islenskum fræðum af
krafti. Það er synd að afstaða yf-
irvalda til íslensku einkennist af
tómlæti; í öllu falli kemst yfirlýst-
ur velvilji yfirvalda aldrei í verð.
Á háskólastigi geta menn stofnað
háskóla utan um það sem þeim
sýnist og nánast reiknað með að
fá tékka frá ríkinu. Þessi afstæð-
ishyggja stjórnvalda bitnar sér-
staklega á greinum eins og ís-
lensku sem ekki er jafn auðvelt
að selja og til dæmis viðskipta-
greinar. Þess vegna held ég að
staða íslenskunnar hafi rýmað
síðasta áratuginn án þess að það
hafi verið tekin um það ákvörð-
un. Afstaða yfirvalda felst í því
að gera öllum háskólum jafn hátt
undir 'höfði án þess að þar séu
kennd raun- eða hugvísindi.
Óbeint hefur þessi stefna leitt til
þess að staða hugvísinda hefur
versnað."
Hallar á íslendinga
Sjötiu ár eru síðan Morkin-
skinna var gefin út og þá var hún
ekki með samræmdri stafsetn-
ingu og því einungis lesin af sér-
fræðingum. „Hún er því nær ófá-
anleg,“ segir Ármann. „Hún var
nýlega gefin út í ágætri enskri
þýðingu og líka norskri. Það hall-
ar því nokkuð á íslendinga hvað
þetta varðar.
Von mín er að ritgerð mín
verði til þess að auka áhuga
manna á Morkinskinnu þannig
að hún verði gefin út innan fárra
ára þannig að venjulegir Islend-
ingar geti lesið hana. Ef rann-
sóknir mínar ættu þátt i að
hvetja til þess, þá þættu mér þær
ekki til einskis."
-sm
Nýr og betri Berlingo á Atvinnubíladögum Brimborgar
Misstu ekki af
tækifærunum á Atvinnubíla-
dögum Brimborgar.
Frábær tilboð. Allar gerðir
fjármögnunarleiða.
Komdu í heitt kaffi.
Ein létt sendiferö
og næstum heilt tonn
Frakkarnir eru erfiðir. Þeir sturta tómötunum á
þinghúströppurnar ef því er að skipta. Stundum
agúrkum. Þegar Citroén Berlingo er annarsvegar
þá heimta þeir ekki bara gæði með munaðinum
heldur styrkleika á við stærri sendibíla. Þeir eru
flottir Frakkarnir - auðvitað fengu þeir það sem
engin annar býður: Berlingo með 8oo kílóa
burðargetu - bara 200 kíló í tonnið! Vertu klókur;
fáðu mikið fýrir miklu minna, kauptu Berlingo
sem lofar góðu - komdu í Brimborg.
Við hjá Brimborg lofum þér:
• Berlingo á mjög góðu verði (aðeins kr. 1.220 þús. án vsk)
• Stærra hleðslurými en í sambærilegum sendibílum (3m3)
• Meiri burðargetu en í sambærilegum sendibílum (800 kg)
• Traustri og skjótri þjónustu
• Lægri tíðni bilana en víðast hvar þekkist
• Hliðarhurðum á báðum hliðum með lokunarvörn
• Topplúgu fyrir lengri hluti
• Fjarstýrðri samlæsingu
• Breiðum og þægilegum sætum með langri setu
• Fjarstýringu á hljómtæki við stýrið
• Skrifborði ef þú fellir bakið á framsætinu og plássi fyrir ostinn
• Mjög hagstæðri rekstrarleigu
kr. 28.062 m.vsk. á mánuði í 3ár
Innifalið smur- og þjónustuskoðanir.
Rekstrarleiga m. v. mánaðarlegar greiðslur i 36 mánuði og er háð
breytingum á gengi erlendra mynta og vöxtum þeirra.
Horfðu nú í nýja átt og farðu með meira
í einni ferð á Citroén Berlingo
Hjá Frökkunum er munaður
staðalbúnaður. Loksins þekkja
þeir líka orðið gæði.
í 5 ár hefur Citroén táknað bæði
gæði og munað. Ástæðan er róttæk
gæðastefna sem mótuð var árið 1996
og litu fyrstu afurðir hennar dagsins
Ijós árið 1998. Árangurinn er 54
prósent söluaukning á heimsvísu hjá
þessum franska framleiðanda.
Við hjá Brimborg höfum sannreynt
gæði Citroén á 3ja ár.
B CITROÉN
(>
brímborg
Viðskiptaþátturinn
Útvarpi Sögu fm 94.3
Þáttur um viðskipti og efna-
hagsmál á hverjum virkum degi
milli klukkan 17-18
(tllt þttð áhugaverðasta í heiini riðskipta í dag
- það borgar sig að hlustd
Landsbankinn Q|