Dagblaðið Vísir - DV - 25.01.2003, Qupperneq 37

Dagblaðið Vísir - DV - 25.01.2003, Qupperneq 37
LAUaA.RDA.GUR 25. JANÚAR 2003 / / l cj ct rb lct c) 33"V 41 Börain völdu Sigrúnu Börnum gafst kostur á aö velja bestu myndskreytinguna meðan á sýningunni „Þetta vilja börnin sjá“ stóö yfir í Geróubergi. Þau kusu myndskreytingar Sigrúnar Eldjárn í bókinni Draugasúpan. Þann 23. nóvember 2002 var opn- uð sýning í Gerðubergi á mynd- skreytingum úr nýútkomnum barnabókum sem samanstóð af myndum úr flestum þeim íslensku barnabókum sem komu út árið 2002. Sýningunni lauk 5. janúar 2003. Þar voru myndir eftir marga okkar bestu myndskreyta, þ. á m. Sigrúnu Eldjárn, Brian Pilk- ington, Ólaf Gunnar Guðlaugsson, Höllu Sólveigu Þorgeirsdóttur og Áslaugu Jónsdóttur. Á sýningunni voru myndir úr fjörutíu og fjórum bókum eftir tuttugu og þrjá myndskreyta. Skipuð var dómnefnd af Gerðu- bergi, Félagi íslenskra myndlist- armanna og Félagi íslenskra teiknara og valdi dómnefndin Höllu Sólveigu Þorgeirsdóttur sem besta myndskreytinn. Var þetta í fyrsta sinn sem slík sýning var haldin og voru verð- launin DIMMALIMM einnig veitt í fyrsta sinn. Meðan á sýningunni stóð gafst börnum kostur á að velja þá myndskreytingu sem þeim þótti best og voru myndir Sigrúnar Eldjárn valdar með yfirburða- kosningu. Myndirnar eru úr bók- inni Draugasúpan sem gefin er út hjá Máli og menningu og tóku 600 börn þátt í kosningunni. Gínusögur Norræn útgáfa af Píkusögum eftir Eve Ensler verður flutt á þriðju hæðinni í Borgarleikhúsinu í kvöld klukkan átta. En þá munu leikkon- urnar Kristbjörg Kjeld, María Efl- ingsen, Birita Mohr og Charlotta Böving flytja klukkutímakafla úr þessu vinsæla verki á færeysku ís- lensku og dönsku og eftir hlé mun færeyska söngkonan Eivör Pálsdótt- ir flytja ljúfa tóna. Þessi norræna útgáfa af Ginusög- um var gerð sérstaklega fyrir leik- listarhátið í Tórshavn í sumar þar sem hún vakti mikla athygli og Leikpallur Gríma fylgdi svo á eftir með verkið í fullri lengd og gerði allt vitlaust í Færeyjum og sló svo um munaði aðsóknarmet. Umræður voru fjörugar þarlend- is; lögþingsmaðurinn Gerhardt Lognberg vildi taka styrkinn af Grimu fyrir uppátækið en þegar í ljós kom að hann hafði hvorki séð né lesið verkið var gert grín að hon- um fyrir að stinga nefinu þar sem hann átti ekki erindi og fékk hann viðurnefnið Ginu-Gerhardt. Frést hefur líka að konur á Sandey þori nú ekki að bjóða gestum hinn þjóð- kunna ginu-bita með kafflnu lengur. Píkusögur hafa sem kunnugt er hlotið miklar vinsældir hérlendis í uppfærslu Borgarleikhússins og er þessi norræna útgáfa sýnd í boði þess og færeyska leikkonan Birita Mohr kom hingað sérstaklega til að taka þátt í sýningunni. Ginusögur eru stuttar sögur um þá upplifun að vera kona og eru byggðar á viðtöl- um við konur víðs vegar að úr heiminum. Þetta eru grípandi sögur um bæði gleði og sorg og lætur eng- an ósnortinn. Kristbjörg leikur á íslensku, Mar- ía og Birita á færeysku og Charlotte Böving, sem margir kannast við sem „hina smyrjandi jórnfrú", leik- ur á dönsku. Þannig fæst sterk til- finning fyrir uppruna verksins, ólikar konur frá ólíkum löndum sem eiga það sameiginlegt að vera konur. Aðeins verður um þessa einu sýn- ingu að ræða og verður boðið upp á kaffi og ginu-bita í hléi. Pioneer DCS-303 Kr. 89.900.- DVD Heimabíó • hljómtæki • útvarp Pioneer NS-11 Kr. Magnari 110 W (RMS, 1kHz, 6 Ohm) • RCA inngangur • RDS útvarp • AM/FM • 30 stöðva minni • Klukka • CD spilari • Stafrænn útgangur > Aðskilinn skjár með veggfestingu • 2 x 30 W Hátaiarar • 50 W Bassabox Pioneer IS-22 Kr. 64 Magnari 2 X 100 W • Þrískiptir Hátalarar 2 X 120 W «0011031 stafrænn útgangur • RCA Inngangur *Spilar CD-R , CD-RW • Kassettutæki • • Fjarstýring • AM / FM útvarp með RDS »30 Stöðva minni • Bass /Treble Pioneer DEH-1500R bíltæki Pioneer DEH-P2500R bíltæki LETTGREIÐSLUR IÞRJÁ MÁNUÐI HJÁ ORMSSON öll tækin og verðin á netinu www.ormsson.is ©OFMSSON ...merkið sem tryggir þér fullkomin hljóm heima eða í bílnum er auðvitað Pioneer! Pioneer DEH-1500R* 4 X 45 W magnari • D4Q Digital RDS Móttakari • FM / AM / LW • 18 stöðva minni • Laus framhlið • 3 Banda tónjafnari EEQ forstilltur tónjafnari • RCA útgangur 4 X 50 W magnari* D4Q Digital RDS Móttakari • FM / AM / LW 24 stöðva minni • Laus framhlið • 3 Banda tónjafnari • EEQ forstilltur tónjafnari • RCA útgangar • Tengi fyrir magasín Magnari 5 X 75 W RMS • Bassbox 75 W RMS • Stilling á Bassa og Diskant Útvarp með 30 stöðva minni og RDS • Dolby Digital / DTS / Pro logic II AUX inngangur og TV inngangur • AUX útgangur • “Optical" stafrænn inngangur • Super VHS útgangur • Bassabox 13 x 36 x 36 cm Bak- og Framhátalarar 11 x 15.5 x 76 cm • Miðjuhátalari 20 x 11 x 76 cm
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.