Dagblaðið Vísir - DV - 25.01.2003, Page 50

Dagblaðið Vísir - DV - 25.01.2003, Page 50
5-4- HeIqorbloö X>V LAUGARDAGUR 25. JANÚAR 2003 íslendingaþættir________________ Umsjón Kjartan Gunnar Kjartansson > Sjöfn Har myndlistarmaður er 50 ára í dag Sjöfn fæddist í Stykkishólmi og ólst þar upp til tví- tugs, bjó átta ár í Kaupmannahöfn en hefur síðan bú- ið í Reykjavík og haft vinnustofu þar og á Eyrarbakka síðustu ár. Hún lauk myndmenntakennaraprófi frá Myndlista- og handíðaskóla íslands 1973, bætti við fimmta árinu í myndlistardeild, einu ári í keramik- deild, lauk cand.phil.-prófi frá Det kongelige danske Kunstakademi í Kaupmannahöfn 1984 og hefur bætt við sig ýmsum námskeiðum í myndlist. Sjöfn kenndi við Kvennaskólann í Reykjavík, Víði- staðaskóla, Myndlistaskólann í Reykjavík, Birkerod gymnasium og Det kongelige danske Kunstakademi. Hún hefur haldið ellefu einkasýningar, m.a. í Kaup- mannahöfn, London, New York og Norfolk í Bandaríkj- unum og tekið þátt í samsýningum hér og erlendis. Sjöfn sat í stjórn íslendingafélagsins í Kaupmanna- höfn, hefur verið félagi í SÍM; FÍM; Myndhöggvarafé- laginu í Reykjavík; Félagi myndlistarkennara og sat í sýningarnefnd FÍM 1988-90. Hún hlaut starfslaun lista- manna 1986, hannaði lýðveldispeningí tilefni 50 ára af- mælis lýðveldisins 1994, á vegum landssamtakanna Þroskahjálpar, en sama ár var veggspjald eftir hana valið af sömu samtökum vegna alþjóðlegrar ráðstefnu um málefni fatlaðra. Hún hannaði útflutningsverðlaun forseta íslands fyrir Útflutningsráð 2001, hefur einnig gert fjölda skúlptúra, veggmynda og kápa á bækur og tímarit og vinnur nú við hönnun legsteina i samvinnu við S. Helgason 1 Kópavogi. Fjölskylda Sambýlismaður Sjafnar er Thulin Johansen, f. 6.9. 1946, fulltrúi í Reykjavik. Foreldrar hans: Svava Þor- gerður Þórhallsdóttir Johansen og Johan Thulin Jo- hansen. Þau bjuggu lengst af á Reyðarfirði en siðast í Reykjavík og eru nú bæði látin. Fyrrverandi eiginmaður Sjafnar var Ármann Ár- mannsson, f. 2.3. 1949, útgerðarmaður í Reykjavík. Stjúpbörn Sjafnar eru Laufey Johansen, Kitty og Anna Lilja. Systkini Sjafnar eru Hlöðver, f. 15.6. 1954, skipstjóri í Suður-Afríku; Sif, f. 22.11. 1955, megagestgjafi og golfari í Virginíu i Bandaríkjunum; Sigríður Inga, f. 2.9. 1957, sjúkraliði í Hafnarfirði; Valdis Hulda, f. 2.1. 1959, markaðsstjóri; Magnea Ásta, f. 24.5. 1962, fata- hönnuöur í Sviss; Albert, f. 4.10. 1963, skipstjóri í Chile. Foreldrar Sjafnar: Haraldur S. Gíslason, f. 15.8. 1929, rafverktaki og kennari, nú látinn, og Guðrún Gunnars- dóttir, f. 3.5. 1933, húsmóðir og ráðskona. Þau bjuggu lengst af í Stykkishólmi en síðar í Hafnarfirði. Ætt Fósturforeldrar Haralds: Ingvi Kristjánsson, skip- stjóri og bátasmiður frá Ólafsvík, og Sigríður Elín Tómasdóttir frá Ólafsvík. Haraldur var sonur Gisla, matsveins í Reykjavik, Gíslasonar og Ástu Kristjánsdóttur en bróðir Kristjáns var Ásgeir, b. á Fróðá, faðir Ásgeirs, föður Braga myndlistarmanns og Sveins hagfræðings. Ásgeir var einnig langafi Sverris Stormsker. Kristján var sonur Eggert Ólafur Briem fyrrv. deildarstjóri hjá Flugleiðum Eggert Ólafur Briem, Grundar- landi 22, Reykjavík, er sjötugur í dag. StarfsferiU Ólafur fæddist í Reykjavík og ólst þar upp. Hann lauk verslunar- prófi frá Verslunarskóla íslands 1952. Að námi loknu vann hann sem bankaritari við Landsbanka ís- lands en stundaði á þeim árum einnig dægurlagasöng og annaðist umsjón óskalagaþátta í Ríkisút- varpinu þar til hann hélt til London þar sem hann stundaði nám í verslunarfræðum um eins árs skeið við London Academy. Við heimkomu, 1956, hóf hann störf hjá Loftleiðum við farþegaaf- greiðslu á Reykjavíkurflugvelli en fluttist aftur til London 1957 til starfa á skrifstofu félagsins Eftir heimkomu, 1959, starfaði hann um nokkurra mánaða skeið sem vaktstjóri á Reykjavíkurflug- velli en tók, síðla sama ár, við um- sjón með tryggingum og skaðabóta- kröfum viðskiptavina. Á árinu 1972 fluttist Ólafur aftur til London þar sem hann tók við framkvæmdstjórastöðu fyrir Loft- leiðir og International Air Bahama fyrir Bretland og írland. Eftir sam- einingu Loftleiða og Flugfélags ís- lands fluttist Ólafur, 1974, heim og starfaði að ýmsum verkefnum á að- alskrifstofu Flugleiða. 1976 tók hann við starfi deildastjóra Viö- skiptaþjónustu, síðar Þjónustueftir- lits sem hann sinnti þar til hann lét af stöfum hjá félaginu fyrir aldurs sakir. Ólafur sat, á sínum starfsferli, fjölda alþjóöafunda og námskeiða um farþega og fraktþjónustumál sem fulltrúi Loftleiða og síðar Flug- leiða og var leiðbeinandi á slíkum námskeiðum. Hann hlaut viður- kenningu The Certified Claims Pro- fessional Accreditation Council Inc. sem Honorary Certified Claims Professional, HCCP 1983, var í stjórn alþjóðasamtaka flugfélaga um farþegaþjónustu, The World- wide . Airline Customer Relations Association, frá 1988 til 1994 og for- maður samtakanna 1990-1992. Ólafur var í stjóm Nemendasam- bands Verslunarskóla íslands um árabil, var í stjórn Skálklúbbs Reykjavíkur 1967-68 og formaður 1968-69. í stjórn íslendingafélagsins i London var hann 1972-73 og for- maður 1973-74. Hann gekk til liðs við Lions- klúbbinn Fjölni árið 1966 og var formaður klúbbsins starfsárið 1983- 84. Hann var alþjóðasamskipta- stjóri Lionshreyfingarinnar 1984-88, fjölumdæmisritari 1988-90, umdæmisstjóri Lionsumdæmis 109A 1991-92, fjölumdæmisstjóri 1992-93 og kynningarstjóri hreyf- ingarinnar 1994-96. Skipaður full- trúi Lionshreyfingarinnar i stjórn MedicAlert 1993 og formaður frá 1999. Fjölskylda Ólafur kvæntist 14. júlí 1960 Eddu Jónsdóttur Briem, f. 25.10. 41, full- trúa. Hún er dóttir Jóns Jóhanns Gunnarssonar skrifstofustjóra og k.h., Ásu Þorsteinsdóttur. Börn Ólafs og Eddu eru Ólafur, f. 27.12. 62, bæjarritari í Kópavogi, kvæntur Sigrúnu Tryggvadóttur hjúkrunarfræðingi, Kristín f. 4.3. 64, sjúkraþjálfari á Seyðisfirði, gift Birni Malmquist, forstöðumanni Ríkisútvarpsins á Austurlandi, og Ása, f. 16.4. 71, pianóleikari í Reykjavík Systkini Ólafs; Margrét Þuríður Briem f. 24.12.1912, d. 12.8.1994; Guð- rún Briem Björnsson, f. 9.4. 1915, Gunnlaugur Friðrik Briem f. 27.5. 1918, d. 13.7. 1997; Valgarð, f. 31.1. 1925, lögfræðingur í Reykjavík. Foreldrar Ólafs: Ólafur Jóhann Gunnlaugsson Briem, f. 14.7. 1884, d.19.11. 1944, framkvæmdastjóri í Reykjavík, og k.h., Anna Valgerða Claessen, f. 22.8. 1889, d. 8.5. 1966, húsmóðir. Ætt Ólafur var sonur Gunnlaugs Briem, alþm. og verslunarstjóra í Hafnarfirði. Gunnlaugur var sonur Eggerts Briem, sýslumanns á Reynistað. Eggert var sonur Gunn- laugs, ættföður Briemættarinnar, Guðbrandssonar. Móðir Ólafs fram- kvæmdastjóra var Frederike C.J. Claessen, dóttir Jean Jacobs Claes- sen, skrifstofustjóra í Kaupmanna- höfn, og k.h., Frederike Caroline Louise von Hansen. Anna Valgerða var dóttir Jean Valgad Claessen, kaupmanns á Sauðárkróki og landsféhirðis í Reykjavík, bróður Frederike Caroline Jakobínu. Móð- ir önnu Valgerðu var Anna Mar- grét Þuríður Kristjánsdóttir Möller, veitingamanns í Reykjavík. Ólafur og Edda munu halda upp á afmælið á ferðalagi um Suður Afríku. Þórðar, hreppstjóra, alþm. og dbrm. á Rauðkollsstöð- um, Þórðarsonar. Móðir Þórðar alþm. var Kristín, systir Þorleifs, læknis í Bjarnarhöfn. Móðir Kristjáns á Fróðá var Ásdís, systir Guðrúnar, langömmu Páls Steinars trésmiös, föður Birnu Þórunnar, handavinnu- kennara og fatahönnuðar. Ásdís var dóttir Gísla, b. í Hraunhöfn, Árnasonar og Ragnhildar Jónsdóttur af Rauðkollsstaðaætt. Guðrún er dóttir Gunnars Bachmann Guðmunds- sonar, Jónassonar. Móðir Gunnars var Jórunn Kon- ráðsdóttir í Stykkishólmi, Konráðssonar. Móðir Kon- ráðs i Stykkishólmi var Gyðríður Andrésdóttir, systir Þórdísar, ömmu Ásmundar Sveinssonar myndhöggv- ara. Móðir Guðrúnar var Kristensa Valdís Jónsdóttir, húsfreyja í Stykkishólmi, dóttir Jóns Jónssonar, sjó- manns og b. í Arney, og Kristólínu Þórunnar Krist- jánsdóttur af Hjarðarfellsætt. Sjöfn og sambýlismaður hennar eru stödd í Cape Town í Suður-Afríku á afmælinu og halda upp á dag- inn þar í návist Hlöðvers skipstjóra, bróður hennar, Þar verður opið hús að 405 Sea Cliff, Sea Cliff Road, Bantrey Bay, 8500 Cape Town, S-Afriku. Laugard. 25. janúar Sunnud. 26. janúar 90 ÁRA Páiína Stefánsdóttir, Klausturhólum 3, Kirkjubæjarklaustri. 85 ÁRA____________________ Sigurjón Ólafsson, Foldahrauni 37g, Vestm.eyjum. 80 ÁRA Margrethe Kristinsson, Naustahlein 21, Garöabæ. Eiginmaður hennar er Sigur- björn Ó. Kristinsson. Þau verða með heitt á könnunni aö Hjallabraut 8, II. hæð, á af- mælisd. kl. 15.00-18.00. 75 ÁRA Guðbjörg Agnarsdóttir, Hjallabraut 7, Hafnarfiröi. Ragna G. Pálsdóttir, Lækjasmára 4, Kópavogi. 7QÁRA_____________________ Ásta E. Kolbeins, Þrastanesi 14, Garðabæ. Guðmundur Stefánsson, Birkiteigi 17, Keflavík. Sigríður Guöjónsdóttir, Skeggjastöðum, Selfossi. 60 ÁRA____________________ ■ Pálína Ingibjörg Tómasdóttir, Stekkholti 5, Selfossi. Eiginmaður hennar er Sigurjón Bergsson, þjónustustjóri Sím- ans á Suðurlandi. Þau verða á faraldsfæti. Gunnvör Valdimarsdóttir, Stallaseli 6, Reykjavík. 50 ÁRA Jón Davíð Þorsteinsson, Básahrauni 1, Þorlákshöfn. Jónas Halldór Haralz, Sunnubraut 23, Kópavogi. Jónína Björk Óskarsdóttir, Engihjalla 3, Kópavogi. Kristján Daníelsson, Meiöastöðum 1, Garði. Páll Ólafsson, Úthliö 6, Reykjavík. 4Q ÁBA Beata Kinga Joó, Aðalstræti 19, ísafirði. Björn Ingi Óskarsson, Bogabraut 9, Skagaströnd. Gunnar Alfreð H. Jensen, Efstahjalla 21, Kópavogi. Gunnar Jóhannesson, Baðsvöllum 1, Grindavík. Hjördís Skímisdóttir, Hrisbraut 14, Höfn. María Sólbergsdóttir, Kaplaskjólsvegi 3, Reykjavík. Sigurður Jónsson, Reynimel 90, Reykjavík. Sigurður S. Stelngrímsson, Ásabraut 29, Sandgerði. Stelnunn Ásgeirsdóttir, Borgarh.braut 40, Kópavogi. Theódór Welding, Dalalandi 9, Reykjavík. Unnur Kjartansdóttir, Kambahrauni 31, Hverageröi. Þorri Jóhannsson, Hringbraut 54, Reykjavík. 80 ÁRA Jón Benediktsson, Aflagranda 40, Reykjavík. Mary Costello, Mjallargötu 9, Isafirði. 75 ÁRA____________________ Ragnhildur Ása Pálsdóttir, Tunguvegi 46, Reykjavík. 70ÁRA Jón Guömundur Bergsson, Engihjalla 9, Kópavogi. Kristín Jóna Einarsdóttir, Kirkjubraut 15, Njarðvík. Tómas Jónsson, Tryggvagötu 24, Selfossi. 60 ÁRA Heidrun Charlotte Vogt, Hamraborg 32, Kópavogi. Kjartan Ágústsson, Engjaseli 83, Reykjavík. Rannveig Gísladóttir, Skaftahlíð 12, Reykjavík. 50 ÁRA____________________ Elísabet Hilmarsdóttir, Hvassaleiti 28, Reykjavík. Elsa Stefánsdóttir, Hofi, Hofsósi. Friðrik J. Klausen, Ystabæ 1, Reykjavík. Gerður Baldursdóttir, Kjarrmóum 45, Garðabæ. Óli Reynir Ingimarsson, Fagraholti 6, Isafirði. Peter Jones, Fögruvöllum, Akureyri. Sigurjón Stefán Bjömsson, Neshömrum 12, Reykjavík. 40 ÁRA____________________ Aðalheiður H. Siguijónsdóttir, Lindarbergi 72, Hafnarfirði. Carlos Abel Eguiguren Flores, Njörvasundi 31, Reykjavlk. Elísabet M. Jóhannesdóttir, Bæjargili 95, Garðabæ. Guðbrandur Einarsson, Jóruseli 3, Reykjavík. Gunnar Öm Steinarsson, Furuhlíð 21, Hafnarfirði. Hafdís Bára Kristmundsdóttir, Breiðvangi 30, Hafnarfirði. íris Laufey Árnadóttir, Hjallahlíð 21, Mosfellsbæ. Oddný Þóra Óladóttir, Tómasarhaga 44, Reykjavík. Olga Sigríður Marinósdóttir, Reynihlíð 7, Reykjavlk. Ólafía Blrgisdóttir, Foldahrauni 24, Vestm.eyjum. Pétur Þór Einarsson, Hllðarási 5, Mosfellsbæ. Sigurður Kristinn Guðfinnsson, Freyjugötu 27, Reykjavík. Skúli Berg, Stórholti 7, Isafiröi. Steinþór Agnarsson, Vitastíg 9, Hafnarfiröi. Svava Amórsdóttir, Álftamýri 8, Reykjavík. Þorbjöm Tómasson, Byggöarholti 35, Mosfellsbæ. Þorsteinn V. Jónsson, Háaleitisbraut 52, Reykjavlk.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.