Dagblaðið Vísir - DV - 01.02.2003, Side 4

Dagblaðið Vísir - DV - 01.02.2003, Side 4
LAUGARDAGUR 1. FEBRÚAR 2003 -j-yyyr Frjálslyndi flokkurinn: Biðlaun rétta lít- ið hlut kvenna Framboðsmál Frjálslynda flokks- ins þokast áfram en búist er við að endanlegur framboðslisti í Suður- kjördæmi með Magnús Þór Haf- steinsson í efsta sætinu muni verða frágenginn í dag og á allra næstu dögum í Reykjavíkurkjör- dæmunum. Þann 10. febrúar er stefnt að því að birta framboðslista Frjálslyndra í Norðvesturkjördæmi og á svipuðum tíma í Norðaustur- kjördæmi. Margrét Sverrisdóttir, fram- kvæmdastjóri Frjálslynda flokks- ins, var spurð hver hefðu verið við- brögðin við auglýsingu um fólk á framboðslista flokksins. „Ég sá ekki eftir því en það er ekki þar með sagt að allir sem gáfu sig fram fái að fara í framboð. Það voru einnig mjög jákvæð viðbrögð innan flokksins. Tilgangurinn var tvíþættur. Annars vegar að láta fók vita hvað við værum að gera, stilla upp o.fl. og svo kom nýtt fólk sem hægt er að virkja til þátttöku í kosningaslagnum fram undan hvort sem það kemur á lista eða ekki. Við vorum sérstaklega að auglýsa eftir konum en hlutur þeirra réttist litið þrátt fyrir að þær væru sérstaklega hvattar til að gefa kost á sér. Mest var þetta fólk af suðvesturhorni landsins. Við erum að hefja fundaherferð um landið sem hefst á Húsavík næsta föstudagskvöld," segir Margrét Sverrisdóttir. -GG Kaffi Reykjavík: Lögbann á tón- listarflutningi Sýslumaðurinn í Reykjavík hef- ur lagt lögbann við opinberum tón- listarflutningi á veitinga- og skemmtistaðnum Kaffi Reykjavík, að kröfu STEF, Sambands tón- skálda og eigenda flutningsréttar. Gerðarþoli er Eignarhaldsfélagið Háaleiti. STEF telur að um alilangt skeið hafi verið leikin tónlist opin- berlega án heimildar frá höfundum og því hafi það verið þrautalending að fá lagt lögbann við frekari lög- brotum staðarins. Aðstoðardeildar- stjóri sýslumanns, Feldís Lilja Ösk- arsdóttir, telur ljóst að tónlistar- flutningur á veitinga- og skemmti- staðnum Kaffl Reykjavik sé i skjóli skemmtanaleyfis Eignarhaldsfélags- ins Háaleitis þrátt fyrir að annað félag sé að taka við rekstri staðar- ins. Umsókn nýs aðila um skemmt- analeyfi hefur ekki verið afgreidd af hálfu leyfisdeildar lögreglustjór- ans i Reykjavík. -GG Aukning í dag- vöruverslun Smávægileg aukning varð i verslun með dagvöru fyrir siðustu jól miðað við jólin þar á undan samkvæmt smásöluvísitölu Sam- taka verslunar og þjónustu. Sala á matvöru og annarri dagvöru jókst um 0,3% í desember sl., miðað við desember árið áður, að teknu tilliti til breytinga á verðlagi á þessu tímabili. Veltuaukning varð einnig í áfengissölu, eða um 1,7%, ef borin eru saman sömu tímabil. Nánast engin breyting hefur orðið í veltu lyíjaverslana milli síðustu fjögurra mánaða ársins. -GG Ráðstefna VG um nýsköpun í dag efnir Vinstrihreyfingin - grænt framboð til viðamikillar ráð- stefnu um nýsköpun í atvinnumál- um á Hótel Loftleiðum í Reykjavík og hefst ráðstefnan kl. 09.30. Þar munu 16 fyrirlesarar úr ýmsum áttum flytja erindi um ólíkar hlið- ar nýsköpunar í íslensku atvinnu- lífi, allt frá rannsóknum og hug- myndavinnu frumkvöðla til stór- fefldrar verðmætasköpunar og jafn- vel útrásar á heimsmarkað. Ráðstefnan er öllum opin og að- gangur ókeypis. -GG Fréttir Þemadagar á smáauglýsingadeild DV: Smáauglýsingar með mynd á 950 krónur Mjög góð viðbrögð hafa verið við tilboði smáauglýsingadeildar DV um bílaauglýsingar með mynd á þriðjudögum sem kosta einungis 950 krónur. Vegna þessa mikla áhuga viðskiptavina og jákvæðra við- bragða hefur verið ákveðið að bjóða þeim sem auglýsa fasteignir og sum- arhús sömu kjör á miðvikudögum. Þá kostar smáauglýsing með mynd vegna fasteigna og sumarhúsa að- eins 950 krónur. „Það var allt vitlaust að gera vegna þessara þemadaga í bílaaug- lýsingum. Við höfðum vart undan og höfum við ákveðið að vera með þá áfram á þriðjudögum og fasteignir og sumarhús á miðvikudögum, svo erum við að vinna að öðrum tilboðum sem síðar verða kynnt, það er allt á fullu“ sagði Jónína Ósk Lárusdóttir á smá- auglýsingadeild DV. DV hefur um árabil birt smáaug- lýsingar í blaðinu og haft forystu á þeim vettvangi. Má með sanni segja að smáauglýsingar DV hafi verið markaðstorg þjóðarinnar þar sem fólk hefur getað auglýst allt mögu- legt, bæði vörur og þjónustu, til kaups eða sölu. Þegar fólk les smá- auglýsingar DV má segja að það hafi flngurinn á púlsinum á stærsta markaðstorgi þjóðarinnar. Vegna góðra viðbragða við þema- dögum smáauglýsingadeildar mega viðskiptavinir og lesendur blaðsins eiga von á ýmsum hagstæðum smá- auglýsingatilboðum í nánustu fram- tíð og eru hvattir til að fylgjast með þeim. Þeir sem auglýsa í smáauglýsing- um DV njóta þess að auglýsing þeirra Þemadagar í smáauglýsingum DV Smáauglýsingar DV bjóöa þeim sem augiýsa bíla á þriöjudögum og þeim sem auglýsa fasteignir og sumarhús á miö- vikudögum aö birta smáauglýsingu meö mynd fyrir 950 krónur. Eftir birtingu í blaöinu er smáauglýsingin í viku á smáauglýsingavef DV á slóöinni www.smaauglysingar.is. birtist á smáauglýsingavef DV sem er að finna á slóðinni www.smaauglys- ingar.is. Þar er auglýsingin í viku eft- ir að hún birtist í blaðinu. Á vefnum má einnig panta smá- auglýsingar og greiða fyrir birtingu þeirra. Allar upplýsingar fara um VeriSign-öryggishugbúnaðinn sem tryggir að óviökomandi kemst ekki í viðkvæmar upplýsingar um greið- anda. -hlh jSaitt mála/ Tungl og regnbogi á Tjörninni Ingibjörg Sólrún Gísla- dóttir veitti verðlaun fyr- ir þrjár bestu tillögurnar í hugmyndasamkeppni Vetrarhátiðar Reykjavík- ur árið 2003 í Ráðhúsi Reykjavíkur. Hlut- skarpastur varð gjörning- urinn Ljósberar sem verður framinn á Tjörn- inni af Ilmi Maríu Stef- ánsdóttur ásamt 20 nem- endum úr fornámsdeild Myndlistaskólans i Reykjavík. I fyrstu mynda lýsandi blöðrur Verölaunahafarnir ásamt Ingibjörgu Sólrúnu Gísladóttur. tungl á Tjörninni og svo verður þeim öllum safnað saman í ljósskúlptúr. í öðru sæti var verk Al- freðs Sturlu Böðvarsson- ar sem ber nafnið Ó! Frjáls? og verður eins konar fangaklefi úr ljós- geislum. Regnbogabrú yflr Tjörnina, sem er hug- mynd Stefáns Geirs Karlssonar, lenti í þriðja sæti. Vetrarhátíðin verð- ur nú haldin i annað sinn og stendur yfir dagana 27. febrúar til 2. mars. -dh Mál stjórnarmanns gegn Verkalýðsfélagi Akraness: Félagið dæmt til að opna bókhaldið - Hæstiréttur staðfesti niðurstöðu Héraðsdóms Vesturlands Verkalýðsfé- lagi Akraness (VLA) er skylt að veita Vilhjálmi Birgissyni að- gang að öllum bókhaldsgögnum félagsins fyrir árin 1997, 1998 og 1999 á skrifstofu stefnda að við- lögðum dagsekt- um, kr. 10.000 á dag. Þetta segir m.a. í niðurstöðum Hæstaréttar í gær. Er stefnda (VLA) gert að greiða stefn- anda 550.000 krónur í málskostnað og er virðisaukaskattur af lög- mannsþóknun innifalinn. Þar með staðfestir Hæstiréttur niðurstöðu Héraðsdóms Vestur- lands frá síðastliðnu sumri i máli Vilhjálms Birgissonar gegn Verka- lýðsfélagi Akraness en félagið áfrýj- aði málinu. Greint var frá deilum í DV vegna meintrar fjármálaóreiðu í VFLA sumarið 2000. Nær stöðug átök hafa síðan verið milli meirihluta og minnihiuta stjórnar. Krafðist Vil- hjálmur Birgisson, stjórnarmaður þess, að fá að skoða bókhaldið hjá VFLA. Formaður félagsins, Hervar Gunnarsson, lagðist gegn því. Kærði Vilhjálmur þá málið sem tek- ið var upp í Héraðsdómi Vestur- lands sem féllst á sjónarmið Vil- hjálms. Þrátt fyrir niðurstöðu hér- aðsdóms og að samþykkt hafi verið í meirihluta stjómar og trúnaðar- ráðs VFLA að hlíta héraðsdómsúr- skurðinum frá 11. júní 2002, var málinu áfrýjað til Hæstaréttar af hluta stjórnar. Margvísleg deilumál Málið snýst m.a. um kostnaðar- skiptingu á milli Verkalýðsfélags Akraness, Sveinafélags málmiðnað- armanna og Verslunarmannafélags Akraness og fleiri félaga i sameign- arfélaginu „Stéttarfélögin Kirkju- braut 40“ sem sameignarsamningur var gerður um í janúar 1991. Samningur félaganna tók til sam- eiginlegs reksturs vinnumiðlunar- skrifstofu, almennrar afgreiðslu- skrifstofu, svo og annars reksturs sem stéttarfélögin gætu orðið sam- mála um. Stjórn VLFA er sökuð um að hafa allan tímann fært tekjur af umsýslu með atvinnuleysisbótum inn á sína reikninga en ekki skilað þeim í sameiginlegan rekstur stéttarfélag- anna. Þetta snýst einnig um meintar ólöglegar kosningar í stjóm VFLA í haust sem ASÍ hefur þó lagt blessun sína yfir. Búið var að stefna I því máli en dregið til baka þar sem lof- að hafði verið umbótum. Það hefur hins vegar ekki gengið eftir og er nú reiknað með að málið fari fyrir dómstóla. Engir aðalfundir Vantraust var samþykkt á stjórn VFLA í desember 2001 en Hervar Gunnarsson sagði þá samþykkt um- deilanlega og sagðist sitja áfram ásamt stjóm félagsins. Nýbúið er að leggja fram árs- reikning fyrir árið 2001 en aðalfund- ur var ekki haldinn árið 2002. Sá fundur verður nú haldinn 1. febrúar og líklegt að þar komi til harkalegs uppgjörs vegna kosninganna í haust. -HKr. Hervar Gunnarsson.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.