Dagblaðið Vísir - DV - 01.02.2003, Page 34
34
H&lgorbloö 33V LAUG ARDAGU R I. FEBRÚAR 2003
LAUGARDAGUR l. FEBRÚAR 2003
H<3 Igct rb lacf 13 V
39
Söknuðurinn
stendur alltaf
Það er sagt að tíminn lækni öll sár. Birqir Örn
Birgis, faðir Einars Arnar Birgis, sem var mgrtur
afAtla Helgasyni íÖskjuhlíð 8. nóvember 2000,
talar við DV um málaferlin á hendur þrotabúi
morðingja sonarsíns, sorgina og leitina að
lausn.
Um þessar mundir eru liðin rúmlega tvö ár síðan Atli
Helgason lögfræðingur banaði Einari Emi Birgis viðskipta-
félaga sínum með barsmíðum í öskjuhlíð, en saman höfðu
þeir félagar þá nýlega opnað verslunina Gaps Collection við
Laugaveg.
Óhætt er að fullyrða að þetta hrottalega morö hafi verið
í mörgum skilningi án hliðstæðu á Islandi. Geysilega fiöl-
menn leit var sett í gang fljótlega eftir hvarf Einars Amar
og fiölmiðlar fylgdust grannt með framvindunni. Atli, sem
nú afplánar 16 ára fangelsisdóm fyrir morðið, tók virkan
þátt í leitinni, átti fundi með fiölskyldu fómarlambsins og
sat með ættingjum bænasamkomur sem haldnar vom
vegna hvarfsins.
Birgir Öm Birgis, faðir Einars, hefúr höfðað dómsmál
þar sem krafist er riftunar á kaupmála sem Atli og eigin-
kona hans gerðu með sér áður en bú Atla var tekið til gjald-
þrotaskipta.
Birgir Öm og ráðgjafar hans telja að með kaupmálanum
hafi Atli skotið undan búi sínu eignum með því að gera þær
aö séreign eiginkonu sinnar. Hann hyggst því með málsókn-
inni ffeista þess að rifta kaupmálanum þannig að húseign,
sem skráð er á eiginkonu Atla, komi til skipta og andvirð-
inu verði ráðstafað upp í kröfur samkvæmt dómi og sem
lánardrottnar hafa lýst í þrotabú hans.
Fyrir skömmu féllu Atli sjálfur og eiginkona hans frá frá-
vísunarkröfu sem þau höfðu gert í málinu. Jafnframt var
fallið frá kröfum á hendur Atla persónulega beinist því
málareksturinn nú einungis að eiginkonu hans sem er yfir-
ráðamaður umræddra verðmæta samkvæmt kaupmálan-
um.
Birgir Öm settist niður með blaðamanni DV til þess að
ræða þessi mál og líta yfir þau löngu tvö ár sem em liðin
síðan líf fiölskyldunnar var lagt í rúst.
- Um hvað snýst þessi málarekstur?
„Til þess að átta sig á því þarf að rifia upp hvað var lagt
til grundvallar í samstarfi þeirra Einars Amar og Atla
Helgasonar," segir Birgir sem hefúr ekki áður talað opin-
berlega um ýmislegt sem tengist þeim voveiflegu atburðum
sem hafa yfirskyggt allt annað í lífi hans og fiölskyldunnar
síðustu tvö árin.
„Þeir höfðu verið saman í Víkingi
og síðar í Val og þekktust fiá fyrri tíma
þótt nokkur ár væm liðin ffá því. Ein-
ar Öm hafði unnið ötullega að því að
fá umboð á Islandi fyrir þessi heims-
þekktu vörumerki frá Gap, Banana
Republic og Old Navy. Þegar hann var
búinn að ná þessum pakka saman eftir
nokkurra mánaða vinnu fór hann að
leita að fiárfestum.
Á þessum tíma leitaði Einar Öm lög-
fræðilegrar aðstoðar hjá Atla og spjöll-
uðu þeir um væntardeg áform Einars
um að opna verslun. Eitt leiddi af öðra
og sýndi Atli mikinn áhuga á að fá að
koma inn sem fiárfestir og sagðist hafa
rúm fiárráð. Einari fannst þetta spenn-
andi þar sem hann var að leita sér að
fiárfestum í verkefnið.
Þrír vina Einars Amar, sem einnig
þekktu Atla, vöruðu hann við að fara
út í viðskipti með honum og vísuðu á
óreglu hans og neyslu ólöglegra efna. Þessi mál ræddi Ein-
ar beint við Atla og sagði Atli honum að hann hefði tekið á
sínum málum fyrir nokkram árum og allt væri i besta lagi
hjá honum. Hann ætti nýtt hús, starfaði sjálfstætt og sagð-
ist hafa aðgang að verulegu fiármagni, m.a. hjá fiölskyldu
sinni. Einar ræddi þessi mál við okkur og sagðist treysta
Atla og að allir ættu að fá annað tækifæri í lifinu.
Fjölskylda Einars Amar studdi hann með ráðum og dáð
meðan verið var að undirbúa opnun verslunarinnar sem
var opnuö með pomp og prakt í byrjun nóvember. Fimm
dögum seinna átti Atli Helgason sem fiárfestir að reiða ffam
fyrstu greiðsluna. Samkvæmt því sem Einar Öm sagði fiöl-
skyldu sinni ætlaði hann að hitta Atla á fundi rétt fyrir há-
degi 8. nóvember til að ræða þá greiðslu, en það vora fyrstu
peningamir sem Atli hugðist reiða af hendi til verkefnisins.
En þá hringdi Atli og sagðist vera með bilaðan bíl sem
reyndist vera í Öskjuhlíðinni og bað Einar að koma þangað.
Einar kom aldrei aftur og fullvíst er talið að hann hafi ekki
farið lifandi af fundi þeirra félaga.
Við tók vika sem sem Birgir Öm lýsir sem nær óbæri-
legri. „Viku seinna, kl. kortér yfir sex að morgni, er okkur
tilkynnt að Einar sé fundinn og að hann sé látinn. Á meðan
á leitinni að Einari stóð hafði ég átt nokkra fundi með Atla
og fengið meiri innsýn í mál sem tengdust verslunarrekstr-
inum og meðal annars komist að því að það sem Atli sagði
mér fór ekki saman við það sem Einar hafði sagt okkur. Þá
vöknuðu grunsemdir um að Atli vissi meira en hann sagði
ffá.
Þannig er ljóst að það eru hugsanlega nokkur brot sem
Atli ffemur gagnvart Einari en þegar réttarhöldin vegna
morðsins hófust er aðeins þyngsta brotið tekið fyrir. Til
þess að tefia málið ekki var öllum öðram málum ýtt út af
borðinu. Fyrir morð er eru menn dæmdir til þyngstu refs-
ingar sem lög leyfa.“
Látíð reyna á kaupmálann
- Birgir segir að þegar þeir félagamir vora að leggja á
ráðin um samstarf hafi Atli sýnt í bankanum, sem veitti
þeim lánafyrirgreiðslu, veðbókarvottorð af húsnæði og
fleiri pappíra sem staðfestu traustan fiárhag hans og vakti
traust bankans og Einars Amar.
„Skömmu seinna gifti Atli sig og gerði kaupmála við
konu sina þar sem allar eignir hans vora færðar yfir á nafh
hennar og þar með er fiárfestirinn eignalaus, án vitundar
sonar okkar og fiölskyldunnar. Þetta er kjami málsins. Eft-
ir að kaupmáli er gerður mega líða tvö ár áður en honum
er rift.
Mér finnst ekki rétt að fialla um þetta eins og við, fiöl-
skylda Einars, séum að reyna að svipta
eiginkonu Atla eignum hennar. Ráðgjafar
okkar bentu okkur á að rétt væri að láta
reyna á hvort þessir hlutir stæðust.
Við fáum líklega ekki krónu af því fe
sem hugsanlega verður til skipta en mála-
ferlin kosta hins vegar stórfé. Ef til þess
kemur og kaupmálanum verður rift þá
skiptist andvirði eignanna milli þeirra
10-12 kröfúhafa sem lýstu kröfúm í þrota-
bú Atla vegna gjaldþrots hans. Það varð
hins vegar einhver að höfða málið áður en
tvö ár yrðu liðin og við gerðum það,“ seg-
ir Birgir sem segir að í tæp tvö ár hafi fiöl-
skyldan ekki leitt hugann að þessum mál-
um fyrr en við ábendingu lögfræðinga.
„Ég var mjög efins um að við ættum að
gera eitthvað í þessu en mér fannst það
siðferðilega rétt og þess vegna er málið
höfðað í mínu nafhi."
Málareksturinn er því formlega séð
rekinn gegn eiginkonu Atla þar sem eign-
imar runnu til hennar við gerð kaupmál-
ans en Birgir segir að það formsatriði geti valdið misskiln-
ingi.
- Nú vöraðu kunningjar Einars hann við samstarfi við
Atla. Vissir þú eitthvað um orðspor hans?
„Nei, ekkert. Þegar maður horfir til baka þá koma orðin
ef og hefði auðvitað stundum upp. Atli var síðan aöeins sá
fyrsti af nokkrum fiárfestum sem Einar ætlaði að fá til liðs
viö sig.“
- Þegar Einar lést má segja að fiölskyldan hafi staðið
frammi fyrir erfiðum ákvörðunum varðandi áframhald
Einar Örn Birgis.
Birgir Örn, faðir Einars Arnar, nálægt þeim stað í Öskjuhlíð þar sem sonur hans var myrtur 8. nóvember 2000. Síðan eru liðin rúmiega tvö erfið ár sem hafa verið fjölskyldunni gríðarlega erfið og inörgum spurningum er enn ósvarað.
DV-myndir Iiari
rekstursins. Birgir segir að þær ákvarðanir hafi ef til vill
ekki alltaf verið þær réttu.
„Þegar hann lést var búið að gera víðtækar skuldbinding-
ar marga mánuði fram í tímann. Þegar ráðist er með þess-
um hætti inn einkalíf manns fer allt á annan endann. Ég
vildi fylla í skarð sonar míns en eflaust hefúr okkar dóm-
greind ekki alveg verið í lagi á þessum tíma.
Vegna velvildar Smáralindarmanna og annarra var opn-
uð ný verslun þar og stofhað nýtt félag um þann rekstur.
Þrátt fyrir góða vöra og frábæra staðsetningu hefur þetta
verið þungur róður og við gerum okkur grein fyrir því að
dökkt ský hefúr fylgt okkur vegna atburðarins."
„Á ekki að fara að hætta þessari leit?‘
- Tveimur dögum eftir hvarf Einars var stærsta sending
verslunarinnar væntanleg og Birgir og fiölskylda hans fóra
niður eftir til að taka á móti vörunum.
„Þá var þar fyrir eiginkona Atla sem fram að því hafði
ekkert skipt sér af þessu verkefhi. Það eina sem hún sagði
við okkur var: „Á ekki að fara að hætta þessari leit?“ Önn-
ur orðaskipti höfúm við ekki átt við hana.“
- Birgir segir að fiölskyldan hafi unnið gríðarlega í sjálf-
boðavinnu síðustu tvö árin því tilfinningar þeirra hafi stað-
ið til þess að áform sonar hans stæðust.
„Það kemur enginn í staðinn fyrir Einar Öm en við höf-
um ekki orðið auðug af verslunarrekstrinum. Þessi mála-
rekstur til riftunar kaupmálanum og rekstur verslunarinn-
ar era algerlega óskyld mál.“
Sínúnn datt út
- Þegar Einar Öm hvarf fór leit mjög hratt af stað og
mörgum fannst það gerast ótrúlega fljótt. Má skilja það svo
að þið hafið óttast um hann áður en þetta gerðist?
„Nei, það gerðum við alls ekki. Við vorum hins vegar
heppin með uppeldi okkar bama og þau era mjög ábyrgðar-
fúll og alin upp við að láta alltaf vita af sér. Með tilkomu
gemsanna varð þetta enn nánara og við heyrumst alltaf öll
á hveijum degi. Þennan örlagaríka dag reyndi móðir Einars
að hringja til hans í GSM-síma hans upp úr kl. 13.00. Það
hringdi og hringdi og síðan datt síminn út. Þetta fannst okk-
ur skrýtið. Við vissum að hann hefði svarað og beðið okk-
ur að hringja eða sagst hringja sjálfur til baka ef hann væri
upptekinn.
Svo líður á daginn og þá kemur þaö upp að enginn hefur
heyrt í honum. Um sexleytið vorum við því í rauninni byrj-
uð að leita. Guðlaug unnusta hans vissi að hann átti fund
með Atla kl. 11 og það var það eina sem við vissum.
Við fórum síðan undir miðnætti til lögreglunnar og báö-
um um að lýst yrði eftir bílnum til þess að setja einhveija
leit af stað. Þegar bíllinn fannst síðan morguninn eftir varð
okkur Ijóst að eitthvað alvarlegt hefði gerst. Lögreglan taldi
ekkert óeðlilegt við þetta en við vissum betur. Einar Öm
var reglumaður á vín og tóbak og var heill og yndislegur
drengur."
- Birgir segist hafa átt fundi með Atla fljótlega og þá hafi
sig fljótlega farið að gruna að hann vissi meira um málið en
hann lét uppi.
„Ég trúði því aldrei alla vikuna að hann hefði gert þetta
sjálfúr því hann leitaði með okkur og kom með okkur á
bænastund. En mér fannst þau hjónin alltaf hegða sér mjög
undarlega - forðuðust að horfa í augun á manni.
- Þegar rætt er við Birgi er auðheyrt að þótt dómskerfið
hafi lokið umfiöllun um morðið á Einari Emi er langt frá
því að hann telji að öll kurl séu komin til grafar.
„Þótt Atli hafi verið dæmdur fyrir þetta hræðilega morð
þá era öll þessi önnur mál óuppgerð. Þessi mál hafa aldrei
verið rædd en það þarf að gera þau upp.“
Var hann einn?
- Þegar maður heyrir þig tína til ýmislegt sem tengist
þessu máli og rifiar upp að Atli hefur sagt að morðið hafi
verið framið í augnabliksæði, undir áhrifum lyfia, þá sýnist
ýmislegt benda til hins gagnstæða. Hvað finnst þér?
„Fyrir mér hafa alltaf verið efasemdir um að hann hafi
staðið einn að verknaðinum. En ég get ekkert fullyrt um
það, enda væri það allt of langt mál að tína til öll ef-in sem
fram komu i málinu og þar er afar mörgum spumingum
ósvarað.
Við viljum gjaman reyna að lifa í lausninni en ekki í
vandamálinu og einhvem tímann verður þessu að ljúka.
Lögreglan rannsakaði þetta mál vandlega og auðvitað reyn-
ir maður að lifa með því sem gerðist en það er langt í frá að
ég sé sáttur við alla enda.“
Birgir tók virkan þátt í leitinni að syni sínum og fylgdist
vel með leitarflokkum. Þannig elti hann björgunarsveitir
suður undir Grindavík að næturþeli og þegar hann fékk
upphringingu um að lik Einars væri fundið hafði hann
tveim tímum áður verið á ferðinni á slóðum leitarmanna.
Nætumar em verstar
- Þú talar um að lifa í lausninni. Hvemig hefúr fiölskyld-
an farið að því að lifa með þessu? Hvemig hjálpar maður
sjálfum sér í gegnum hluti eins og þessa?
„Það búið að vera mjög erfitt og það er engin ein leið.
Vikan sem hann var týndur og leitin var afskaplega erfiö og
maður óskaði þess alltaf að hann fyndist. Það er afskaplega
mikilvægt að geta farið að gröf hans í kirkjugarðinum.
En það var ruðst inn í okkar einkalíf, ekki bara okkar
foreldra hans heldur systkina hans, maka þeirra og þeirra
bama, en Einar var einstakur bamavinur og lét sér mjög
annt um frændsystkini sín. Hann átti unnustu og hennar
fiölskylda leið líka og hann átti marga
vini sem tóku þetta verulega nærri sér.
Þannig var þetta mjög stór hópur fólks
sem átti og á enn um mjög sárt að binda.
Við þáðum áfallahjálp og séra íris, prest-
ur í Hjallakirkju, var okkur ákaflega
hjálpleg og eins okkar sóknarprestur,
Pálmi Matthíasson, en sum okkar hafa
samt þurft að leita til lækna og sérfræð-
inga.
Það deyr partur af manni sjálfum við
þennan missi og þetta áfall. Hvort maður
er farinn að hugsa rökrétt í dag verða
aðrir að dæma um.
Þannig höfum við þegið vissa hjálp en
nætumar og svefninn gengur verst.
Maður lifði og hrærðist i þessu fyrst í
stað, að keppast við að ljúka einhverjum
verkefhum, en það er eins og þegar tím-
inn líður þá séu ákveðnar dagsetningar
erfiðari en aðrar og þetta sækir á mann.
Það er sami dagur að ári og það er af-
mælið hans og það era erfiðar stundir.
Við höfðum það fyrir sið í leitinni, fiöl-
skyldan, að koma saman og fara með
bæn eða faðirvorið, og það gaf manni
styrk, en við vöktum í marga daga í
kringum þessa atburði."
Þau eru lílvíi fómarlömb
- Birgir vill ítreka að fiölskyldan beri þrátt fyrir allt virð-
ingu fyrir sorginni í fiölskyldu Atla.
„Móðir Atla bað séra Áma Berg, sóknarprest sinn, fyrir
blóm og hlýjar kveðjur til okkar. Það þótti okkur vænt um
og báðum hann fyrir kveðjur til baka og fengum einnig
kveðjur frá tengdafóður Atla og fiölskyldu.
Við geram okkur fúlla grein fyrir því að Atla megin er
önnur fiölskylda sem á líka um sárt að binda og við berum
engan kala til þessa fólks nema síður sé. Þau era fómar-
lömb í þessu máli eins og við. Þess vegna er þessi málarekst-
ur erfið skref að stiga en öll skref síðustu tvö árin hafa ver-
ið erfið. Við viljum að dómstólar kveði upp sinn dóm um
þetta og þá er það úr sögunni.
Samt fannst mér málið vera farið að snúast upp í and-
hverfu sína þegar hann var um tíma í brennidepli vegna
réttinda fanga og samúðin var allt í
einu hans megin. Mér finnst ekki sið-
ferðilega rétt að maður sem fremur
svona glæp og er dæmdur í 16 ára fang-
elsi geti nánast gengið að því vísu að fá
lausn eftir 10 ár eða svo.“
Reiðin minnkar
en sölmuðurinn varir
- Breytist viðhorf manna til refsingar
og hefndar við að ganga i gegnum þessa
reynslu?
„Það gætti mikillar reiði hjá okkur
fyrst í stað en við höfum aldrei óskað
Atla eða fiölskyldu hans ills. Reiðin
minnkar þegar frá líður.
En reiði og heift fer aðeins illa með
þann sem ber hana og þess vegna er
maður að íþyngja sjálfum sér með því
að burðast með reiöina og ég held aö
ekkert okkar beri reiði, heift eða kala i
hjarta, en það þýðir ekki það sama og
að fyrirgefa.
Þetta reynir mikið á okkur öll og
vonandi tekst okkur að standa saman
áfram öll sem eitt og vinna okkur út úr
öllum tilfmningunum og sársaukanum.
Söknuðurinn stendur samt alltaf eftir.
Fjölskyldan hefur ekki enn farið vandlega í gegnum allar
þær spumingar sem ekki hefur fengist svar við. Það kann
að vera að við séum að verða tilbúin til þess í dag.“
-PÁÁ
Vikan sem Einars Arnar var leitað
segir faðir hans að hafi verið nœr
óbærileg, en þeim fannst mikil-
vægt að hann skyldi finnast og
gröf hans í Fossvogsgarði er þeim
niikils virði.